Morgunblaðið - 20.06.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNÍ 1976
17
„Einmana“,
málverk eftir
Óla G. Jóhanns-
son.
Sjálfsmynd
Sölva Helga-
sonar (Sólon
tslandus). t
eigu Akureyrar-
bæjar (Davfðs-
hús). Þá mynd
taldi Davfð eina
mestu gersemi,
er hann átti,
enda mun hún
vera það merki-
legasta, er eftir
Sölva liggur.
hann stæði ekki að Vorvöku
heldur Akureyrarbær. Helm-
ingur af tekjum menningar-
sjóðs væri notaður til að efla hann
en hinn helmingurinn til fram-
kvæmda. Framlag sjóðsins árið
1976 væru 800 þúsund. Þeir lögðu
ríka áherzlu á að menningarsjóð-
ur ætti að kaupa myndlistarverk
sem markaði línu, eins konar yfir-
lit, hér vantaði huglæga tímabilið,
t.d. Þorvald Skúlason, Snorra
Arinbjarnar, Jón Engilberts o.fl.
Það væri mjög misráðið að kaupa
ekki þær myndir sem okkur
vantar upp á safnið, og ef við
gerum það ekki strax þá... —
Þeir bættu við að mjög vantaði
hér einnig Þórarin B. Þorláksson,
hins vegar hefðu verið keyptar
myndir rammagerðarmálara
(Helgi VilBerg).
Það kom fram að 68 nemendur
stunduðu nám í Myndlistarskóla
Akureyrar og er það algjör
hámarksfjöldi, , — skortur á
viðunandi húsnæði stendur fyrir
þrifum, hér er um að ræða eld-
gamalt hús sem á að rifa. Námið
fer fram tvisvar i viku, fjórar klst.
i hvert sinn, lengur geta þeir ekki
kennt vegna þess að námsflokkar
Akureyrarbæjar eru í sama hús-
næði og fullnýta sinn tlma.
Akureyrarbær styrkir skólann að
þvi er svarar einum kennaralaun-
um, en af þeim peningum þurfa
þeir að borga drjúga húsaleigu
(Helgi V.).
Að lokum barst talið að minja-
söfnum Akureyrar, sem mig
langaði mjög til að skoða, en í ljós
kom að þau voru öll lokuð nema
Nonnahús. Slíkt telst fráleitt á
listavöku og ætti ekki að koma
fyrir aftur, ber að opna þau
sérstaklega í sambandi við
vökuna því að Vorvaka mun
vissulega laða aðkomufólk að, og
er eins víst að það fýsi að tylla þar
tá, sem frægustu synir bæjarins
lifðu og störfuðu. Davíðshús
sögðu þeirað skipa ætti hærri sess
en verið hefði, töldu þeir og
fullyrtu raunar að fæstir
Akureyringar hefðu komið í það
hús.
Ég heimsótti Nonnahús og var
dvöl mín þar unaðsstund, —
margt að sjá og hugljúft að fræð-
ast um hinn nafntogaða son
Akureyrar. Varð ég mikið hrifinn
af teikningum Manna er þar
héngu á vegg, er sýndu að í hon-
um hefur búið rík listhneigð, ekki
siður en með Nonna, — en eins
og menn muna dó hinn hugljúfi
Manni aðeins 24 ára úr tæringu
Við litum einnig inn i raun-
vísindastofnun Menntaskólans á
Akureyri en þar er Sveinn
Björnsson með stóra sýningu og
var þar margt um manninn en
ekki veit ég um hvort þar væru
tengsl með listavöku.
— Dvölin á Akureyri varð mér
minnisstæð um margt, hún sýndi
og sannaði mér að meðal
Akureyringa býr rík listhneigð,
sem leitar færis til átaka á því
sviði. Það er trú mín að hljóti
viðieitni hinna ungu og áhuga-
sömu manna þann stuðning, sem
þeim að réttu ber, — þá muni
margt skipast á farsælan veg i
hinum fagra höfuðstað Norður-
lands.
Mér varð hugsað á heimleið i
flugvélinni, agndofa yfir litadýrð
í skýjum, — að það er öllum um
megn að virkja fegurð miðnætur-
sólar, en það er unnt að virkja
fegurð sem í brjóstum býr.
Bragi Asgeirsson.
Steinþór M.
Gunnars-
son sýnir í
Hveragerði
Hveragerði 18. júní.
STEINÞÓR Marínó Gunnarsson
sýnir um þessar mundir í Eden
í Hveragerði. 50 verk eru á
sýningunni og eru þau öll til
sölu. Þetta eru 40 krítarmyndir
og 10 olíulitarmyndir. Sýning-
in stendur til 27. júní. Flestar
myndanna eru öræfamyndir,
en Steinþór sagði í stuttu spjalli
við undirritaðan að hann hefði i
þessum myndum reynt að
teikna og mála samband sitt
við náttúruna Þetta er 1 2.sýn-
ing Steinþórs hér á landi, en
hann hefur einnig haldið 2 sýn-
ingar í Noregi. — Georg.
Sumar
Terasse. Otrúlega ódýr. Sterk og falleg sólhúsgögn
Níösterk plastgrind. Bómullaráklæði.
Á veröndina, í garðinn, í sumarbústaðinn oa_
meira að segja í stofuna —
cntnOQ
KJÖRGARÐI SIMI 16975 SMIDJUVEGI6 SÍMI44544
88073—99