Morgunblaðið - 20.06.1976, Blaðsíða 30
30
MOKC.UNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 20. .lUNI 1976
Texti og myndir:
Gísli Sigurgeirsson
beint á melana, og þeir sem koma
austan að geta farið Gönguskörð,
þaðan niður Garðsárdal yfir á
bakka Eyjafjarðarár og slást þar
ef til vill í hóp með Akureyring-
um fram á Melgerðismela.
SVÆÐIÐ ÁKJÓSANLEGT
TIL
HESTAMANNAMÓTA
Hólmgeir Valdemarsson,
stjórnarformaður Melgerðismela
s.f., sagði í viðtali við blaðið, að
það væri margt sem gerði
Melgerðismela ákjósanlega til
hestamannamóta.
— Þarna er stórkostleg aðstaða
frá náttúrunnar hendi, sagði
Hólmgeir, og tel ég að þarna verði
bezta aðstaðan á landinu til að
halda hestamannamót þegar
framkvæmdum verður lokið.
Aðalskeiðvöllurinn og sýningar-
svæðið verða í hvammi á bökkum
Eyjafjarðarár, en þar er sérstak-
lega skjólsælt, aðeins opið fyrir
austanátt, en hún er sjaldgæf á
þessum slóðum. Áhorfendasvæð-
in eru eins og bezt verður á kosið
frá nátturunnar hendi I stöllun-
um umhverfis hvamminn. Tjald-
stæði eru nægileg og hentug og
þeir sem eru ríðandi geta valið úr
skemmtilegum reiðvegum, en fátt
Þeir voru að leggja þakið á stóðhesiahúsið og sögðust tæpast hafa tfma til myndatöku.
Miklar framkvæmdir norðlenzkra hestamanna á Melgerðismelum:
FRAMKVÆMDIR
HÓFUSTIFYRRA
Hólmgeir sagði að framkvæmd-
ir hefðu hafizt í fyrrasumar, strax
og gengið hafði verið frá
samningum við hreppinn. Byrjað
var á skeiðvellinum, sem er hring-
völlur, um 1 km að lengd. Einnig
voru hafnar framkvæmdir við
veitingaskála og stóðhestahús,
ásamt girðingum.
Siðan var hafizt handa i vor,
strax og aðstæður leyfðu.Veit-
ingaskálinn er nú fokheldur, en
hann er 220 fermetrar, stál-
grindarhús, klæddur með spóna-
plötum og bárujárni á þaki. Þar
verða veittar veitingar ásamt
snyrtingum og skrifstofu. Stóð
hestahúsið er einnig 220 fermetra
stálgrindarhús, alklætt með báru-
járni, en í þvi verða 40 básar.
Reynir Vilhjalmsson gerði
heildarskipulag af svæðinu, en
Mikael Jóhannesson teiknaði
húsin.
Nú er unnið að því að leggja
rafmagn að húsunum og vegur
verður lagður frá aðalþjóðvegin-
um fjótlega.
KOSTNAÐUR MIKILL
Kostnaðurinn vil þessar fram-
kvæmdir er þegar orðinn mikill
og á eftir að verða enn meiri —
heldur Hómgeir áfram — Félögin
hafa lagt fram 1.3 millj. hvort, en
sú upphæð á eflaust eftir að
hækka mikið áður en öllu er
lokið. Einnig höfum við notið
styrkja og sveitarfelögin hafa
stutt félögin með framlögum.
En það sem gerir okkur þetta
kleyft er að mestöll vinna er lögð
fram I sjálfboðavinnu á kvöldin
og um helgar. Ekki varð þó hjá
því komizt að ráða tvo smiði, Ægi
Aðalsteinsson og Aðalstein
Jóhannesson f fullt starf til að
tryggja að mannvirkjum verði
lokið á tilsettum tíma, en tíminn
er að verða naumur, mótið á að
hefjast 9. júlí.
MARGIR MÖGU-
LEIKARÁNÝTINGU
MANNVIRKJA
Við spurðum Hólmgeir hvort
þetta væru ekki nokkuð dýr
mannvirki til að standa ónotuðu
mestan hluta af árinu.
Negla, negla, negla — þeir eru
ófáir naglarnir sem þarf að negla
f stórt þak.
Þetta verður bezta
mótssvæðið á landinu
— sagði Hólmgeir Valdemarsson
Hólmgeir svaraði því til að það
væri engan veginn meiningin að
einskorða svæðið við hestamanna-
mót. Þarna skapaðist möguleiki
fyrir ungmennafélögin að koma
sér upp íþróttaaðstöðu möguleiki
væri á að hafa reiðskóla fyrir
börn og unglinga og jafnvel full-
orðna á sumrin og tamningastöð á
veturna, Búnaðarfélagið gæti
haldið þarna sýningar, jafnvel
stórar landbúnaðarsyningar, og
þannig mætti lengi telja sagði
Hólmgeir að lokum.
er ákjósanlegra en að láta
gamminn geysa eftir rennislétt-
um melunum. Beitiland er einnig
nægilegt í svokölluðu Yztanesi, 20
hektarar.
VEL I SVEIT SETT
Þá gat Hólmgeir þess, að Mel-
gerðismelar væru sérlega vel í
sveit settir fyrir þá sem koma
ríðandi að.
Þeir sem koma ríðandi norður
yfir hálendið geta komið niður í
Eyjafjarðardal og er þá skammt á
melana; þeir sem koma vestan að
geta farið Nýjabæjarfjall og niður
Skjóldal, en þá lenda þeir svo til
Moka — moka — þau eru ófá
handtökin við miklar fram-
kvæmdir.
ÞEGAR ekið er suður Eyjafjörð að vestanverðu og komið fram fyrir
Djúpadalsá, blasa við víðátlumiklir melar austan þjóðvegarins. Það
eru Melgerðismelar, þar sem áður var aðalflugvöllur Akurevringa og
Eyfirðinga, gerður áð mestu frá náttúrunnar hendi. Ef farið er austur
eftir rennisléttum melunum, sem víða eru grasi grónir og þurfa ekki
nema litla aðhlynningu til að groa enn betur, blasir við skjólgóður
hvammur við bakka Eyjafjarðarár. Þetta land tilheyrir jörðinni Mel-
gerði, sem Saurbæjarhreppur kevpti á sl. sumri. Ifestamannafélögin
Léttir á Akureyri og Funi, Eyjafirði, hafa nú gert leigusamning til 50
ára við Saurbæjarhrepp um afnot af hluta jarðarinnar, þ.e. áðurnefnd-
um melum og bökkum ásamt beitilandi. Þarna eru félögin nú að koma
sér upp aðstöðu til að halda stór sem smá hestamannamót. Það fyrsta,
fjórðungsmót norðlenzkra hestamanna, verður haldið dagana 9., 10. og
11. júlf n.k. Þá er búizt við margmenni og fjölda hesta á Melgerðismela
og er nú allt kapp lagt á að Ijúka framkvæmdum I tæka tíð.
FÉLÖGIN STOFNUÐU
SAMEIGNARFÉLAG
Þegar félögin Léttir og Funi
höfðu tryggt sér svæðið, stofnuðu
þau sameignarfélag, Melgerðis-
mela s.f., til að standa að fram-
kvæmdum á svæðinu. I stjórn
félagsins eiga sæti frá Funa Sig-
urður Jósefsson og Hjalti Jósefs-
son, og frá Létti Reynir
Björgvinsson og Hólmgeir
Valdemarsson.
Þá er búizt við því að á næst-
unni gangi fleiri félög, sem starfa
í Eyjafirði, að einhverju leyti inn
I eignaraðild að staðnum, t.d. ung-
mennafélögin og Hestamanna-
félagið Þjálfi á Grenivík.