Morgunblaðið - 20.06.1976, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNÍ 1976
Ingigerður Danivals-
dóttir - Minningarorð
Hún lézt hér í borg 15. maí eftir
langa vanheilsu, nærri 81 árs að
aldri. og var harla lifsreynd
manneskja.
Ingigerður var fædd að Selhaga
í Austur Húnavatnssýslu 22. júní
1895 og voru foreldrar hennar
Danival bóndi Kristjánsson og
seinni kona hans Jóhanna Jóns-
dóttir. Danival var greindur mað-
ur og minnisstæður sveitungum
sínum. Hafa ýms orð hans og at-
ferli verið i frásögu færð. Af 10
börnum hans eru nú eftir á Iífi 3
systur: Kristín í Keflavík, Hall-
dóra í Reykjavík og Ingibjörg í
Njarðvík. Ingigerður var nokk-
urra ára þegar fjölskyldan fluttist
að Litla-Vatnsskarði í Laxárdal í
Húnavatnssýslu. Þar komust
börnin til góðs þroska, þótt löng-
um væri þröngt í búi.
Ingigerður var snemma tápmik-
il og hafði sterka löngum ti) að
mennta sig. Af eigin rammleik
komst hún í Kvennaskólann á
Blönduósi og útskrifaðist þaðan
eftir tveggja vetra nám. Eftir það
gerðist hún heimiliskennari á
myndarbúinu Víðidalsá í Stranda-
sýslu. 1917 réðst hún til Norður-
fjarðar í Arneshreppi og giftist
þar Torfa Guðm.iindssyn' kaupfé-
lagsstjóra fr: Öfeigsfirði. Enn er
i minnum hafður hjá giiinlu fólki
úr Víkursveit sá snyrti- og mynd-
arbragur, sem var á heimili þeirra
hjóna. 3 urðu biirn þeirra. En
skjótt brá þar sól sumri. Eftir
fjögurra ára sambúð missti Ingi-
t
Bróðir okkar
ANDRÉSJÓNSSON.
Njarðargótu 27.
lést að heimili sinu 18 júní.
Systkini hins Iðtna.
gerður mann sinn 22. júní 1922.
Gekk hún þá með þeirra þriðja
barn og var komin langt á leið.
Kom sér vel að góðan tengdaföður
átti hún, þar sem var Guðmundur
bóndi Pétursson í Ófeigsfirði.
Hann var þá ekkjumaður og bjó
með dóttur sinni Sigríði. Hjá
þeim var Ingigerður næstu árin
með börnin sín þrjú. Ráðskona
hjá tengdaföður sínum í Norðfirði
varð hún er hann tók við kaupfé-
lagsstjórastörfum eftir son sinn.
Þar trúlofaðist hún Jóni Sveins-
syni verzlunarmanni frá Árnesi.
Þau eignuðust son. Á annan veg
fór samt en vonir stóðu til. Rúmu
ári eftir fæðingu hans, eða 1928,
fór hún með sinn yngsta og elzta
son hingað til Reykjavíkur. Hin
systkinin tvö urðu eftir í Ofeigs-
fírði hjá afa sínum og föðursystur.
Ekki var hér björguiegt í þann
tíma og átti eftir að versna.
Kreppan mikla og illræmda fór þá
í hönd, en með frábærum dugnaði
og hagsýni sá Ingigerður fyrir sér
og sonum sfnum. Rak hún hér
matsölu um árabil. Þar þótti góð-
ur kostur. A aðfangadag jóla 1932
giftist hún Guðmundi Bærings-
syni, stýrimanni frá Kollsvík í
Rauðasandshreppi á Barðaströnd.
Traust og farsælt varð hjónáband
þeirra. Fast og vel stóðu þau sam-
an í sæld og þraut. Einkum voru
fyrstu árin erfið hvað efnahag
snerti, atvinnuleysi svo mikið að
þaulvanir og þekktir sjómenn
urðu að vera í landi við stopula og
illa launaða atvinnubótavinnu.
Reyndi þá mjög á stillingu hins
þrautgóða manns og ráðdeild og
nýtni húsmóðurinnar. En hvar og
hvernig sem húsakynni þeirra
voru á þessum árum, báru þau
ævinlega skýran vott um þrifnað
Ingigerðar og smekkvísi.
Son og dóttur eignuðust þau
hjón. Aldrei sást á þeim í bernsku
hvað útlit og klæðaburð snerti,
hve litlu foreldrarnir höfðu úr að
spila. Hið sama gilti um eldri
börnin. Ingigerður var stórhuga
kona og skildi gildi menntunar.
Öll börn sín hvatti hún til náms.
Útför
GUNNLAUGSJÓHANNSSONAR,
húsgagnamsISameistara,
Álfabraut 14. Akureyri,
sem lézt 1 5 þ m fer fram frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 21. júni kl.
13,30
Rósa Gisladóttir, Gtsli Gunnlaugsson,
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Bjami Ómar Jónsson.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, og afi
INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON,
Skaftafelli 2, Seltjarnarnesi.
verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 21 júni kl 1 3.30
Blóm vinsamlga afþökkuð Ólafia Bjarnadóttir,
Bjami Ingimundarson,
Elin Gústafsdóttir
og bamaböm.
t
Eiginkona min og móðir okkar
KRISTRÚN GUOJÓNSDÓTTIR.
BergstaSastræti 50,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. þ m kl 3 e h
Kjartan Jónsson
og böm.
+
Útför eiginmanns mlns, föður okkar, tengdaföður og afa
MAGNÚSAR G. GUÐBJARTSSONAR
fyrrv. vélstjóra
Stigahlið 49
fer fram frá Háteigskirkju, miðvikudaginn 23 júnl, kl 13,30 Þeim,
sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á liknarstofnanir
Sigriður Benónýsdóttir
Gylfi Þór Magnússon, Sigriður Dóra Jóhannsdóttir,
Elisabet S. Magnúsdóttir, Eysteinn Sigurðsson,
Magnea S. Magnúsdóttir, Guðni Ólafsson,
Kristberg Magnússon Ragna Ágústsdóttir
og barnaböm.
hvernig sem kjör hennar voru.
Með drengilegum stuðningi
manns síns varð hún þeirrar
ánægju aðnjótandi að geta hjálp-
að þeim mikið í þessu efni. Öll
nutu þau nokkurrar skólagöngu
og tveir synirnir eins langrar og
yfirleitt er unnt að veita. Barna-
lán hafði hún.
Börn hennar eru þessi. talin i
aldursröð: Þormóður Torfason,
búfra'ðingur frá Hvanneyri.
kvæntur Sigríði Sandholt, nú bók-
ari hjá kaupfélagi Árnesinga á
Selfossi. Sigurrós Torfadóttir,
gift undirrituðum, Torfi Þ. Torfa-
son, kaupmaður, kvæntur Ástrfði
Ölafsdóttur. Séra Ingi Jón Jóns-
son, sem var prestur á Nes-
kaupstað. Jóhann Guðmundsson
læknir, kvæntur Sigríði Árnadótt-
ur, og Svandís Guðmundsdóttir,
gift Walter Hjaltested verzlunar-
manni. 20 eru barnabörn Ingi-
gerðar, 12 enn yngri niðjar.
Smám saman rýmkaðist nokkuð
húspláss og efnahagur Guðmund-
ar og Ingigerðar. Einkar notalegt
og fagurt var heimili þeirra, er
þau síðast áttu saman. Ætíð var
þar gott að koma. Mikinn hluta
vetrar 1950 var ég í kosti hjá þeim
og átti þar ótaldar rósamar og
ánægjulegar stundir.
Ingigerður var mér alla tíð góð
tengdamóðir. Hagsýn og myndar-
leg var hún í sér og glaðvær með-
an hún var og hét. Allt lék þá i
höndum hennar. Hannyrðakona
mikil var hún, kunnáttusöm og
listfeng. Ætla má að þau sem til
eru af hennar fögru handarverk-
um verði lengi geymd hjá niðjum
hennar og þykja æ meiri kjörgrip-
ir sem lengra líður.
Árið 1962 dró ský fyrir sólu. Þá
missti Ingigerður son sinn, Inga
Jón 29. júní, aðeins 35 ára að
aldri. Prestur hafði hann þá verið
i 10 ár og getið sér hinn bezta
orðstír, enda mannkostir hans fá-
gætir.
Álitlegt bókasafn átti hann. Það
gáfu síðan foreldrar hans sjúkra-
húsinu í Neskaupstað. En áður en
Ingigerður hafði nokkuð náð sér
eftir þetta þunga áfall, skall á
hana annað reiðarslag, því að 23.
september varð hinn sterkbyggði
og trausti eiginmaður hennar
bráðkvaddur. I allri sambúð
þeirra hafði hann verið henni
klettur sem hún skilyrðislaust gat
reitt sig á. Og sannarlega hafði
hann gert sem í hans valdi stóð til
að létta henni sonarmissinn, er
gekk honum sjálfum nærri
hjarta, því innilega vænt þótti
honum um hinn ágæta stjúpson
sinn.
Upp frá þessu tók heilsa Ingi-
gerðar að bila. Hygg ég að telja
megi að naumast hafi hún litið
virkilega glaðan dag það sem hún
átti eftir ólifað. Nokkuð kuldaleg
gat hún þótt í viðmóti og engan
vegin allra. En tilfinningar henn-
ar voru heitar, sterkar og heils-
huga, og harmurinn langvinnur
og sár. „Læknast ekki fyrr en á
aldurtila stund,“ eins og skáldið
gamla og sorgbitna kvað. Mikils-
háttar kona er með Ingigerði
gengin og ræktarsöm móðir. Með
þakklæti mun ég alltaf minnast
hennar. Þorsteinn Björnsson.
Ingimundur Guð-
mundsson - Minning
MANUDAGINN 21. júní 1976
verður Ingimundur Guðmunds-
son verkstjóri i Sænsk-íslenzka
frystihúsinu jarðsunginn frá Nes-
kirkju.
Ingimundur var fæddur 11. maí
1912 og var nýlega orðinn 64 ára
er hann lézt. Hann var sonur Guð-
bjargar Ivarsdóttur og Guðmund-
ar Björnssonar er bjuggu að
Auðshúshjáleigu í Ölfusi. Ingi-
mundur fluttist til Reykjavíkur
árið 1929, 17 ára gamall, og hóf
fljótlega störf hjá Sænsk-íslenzka
frystihúsinu hf., er þá hafði ný-
lega byrjað starfsemi. Vann Ingi-
mundur þar óslitið til dauðadags
fyrst sem verkamaður, en frá ár-
inu 1965 sem verkstjóri.
Ingimundur kvæntist árið 1941
eftirlifandi konu sinni, Ólafíu
Bjarnadóttur frá Vorhúsum á
Vatnsleysuströnd. Eignuðust þau
einn son, Bjarna, sem er trésmið-
ur hér í borg. Bjarni er giftur
Elínu Gústafsdóttur og eiga þau
þrjú börn.
Ingimundur og Ólafía hafa alla
sína sambúð átt heima á Seltjarn-
arnesi, fyrst að Völlum, en 1955
keyptu þau húsið Skaftafell 2, og
hafa búið þar síðan. Leiðir okkar
Ingimundar lágu fyrst saman, er
+
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
SOFFÍU KRISTJÁNSDÓTTUR
HæðargarSi 22, Reykjavik
fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 22. júni kl. 1.30.
Björg Sverrisdóttir, Guðmundur Hervinsson.
Bjöm Sverrisson Solveig Indriðadóttir
og bamaböm
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför,
JÓNS SVEINSSONAR,
Viðigerði v/Garðaveg, Hafnarfirði.
Sigriður Björnsdóttir og böm.
Reykjavíkurborg keypti Sænsk-
íslenzka frystihúsið 20. júlí 1973,
og Bæjarútgerð Reykjavfkur var
falið að sjá um rekstur hússins.
Er ég kynntist Ingimundi fann ég
fljótt, að þar var samvizkusamur
og heiðarlegur maður, sem óhætt
var að trúa fyrir miklu ábyrgðar-
starfi, enda var það samdóma álit
allra, sem við mig hafa rætt um
Ingimund, að traustari mann og
vandaðri væri erfitt að finna.
Það var því mikið áfall er til-
kynning um það barst kl. 2 e.h.
föstudaginn 11. júni, að Ingi-
mundur hefði látizt á heimili sínu
þá í hádeginu. Hafði ég um morg-
uninn.verið að tala í síma við
Ingimund um dagleg störf og
meðal annars um sumarfríið
hans, sem hann ætlaði að fara að
taka. Sjálfsagt hefur Ingimundur
þá um morguninn kennt ein-
kenna þess sjúkdóms, sem hann
varð að falla fyrir, en hann var
ekki slíkur maður að hann kvart-
aði.
Samstarfsmenn hans hjá
Sænsk-fslenzka frystihúsinu
sakna góðs vinar og starfsfélaga.
Vottum við eiginkonu hans, syni
og öðrum vandamönnum dýpstu
samúð vora.
Vigfús Aðalsteinsson.
+
Þökkum Innilega samúð viðandlát og jarðarför
INGIMUNDAR Þ. INGIMUNDARSONAR,
frá Hólmavik
Bömin.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför
MÁS EINARSSONAR.
Erna Másdóttir,
Sigriður D. Goodwin
og aðrir vandamenn.
+ Þökkum af alhug samúð. einlægan vinarhug og margskonar stuðning + Þökkum af alhug auðsýnda sam-
okkur veittan, við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, úð og virðingu við andlát og
tengdaföður og afa útför föður okkar.
FINNS TH JÓNSSONAR GUÐMUNDAR HELGA
Margrét Guðmundsd. BJARNASONAR,
Steinunn, Ingveldur, Þórunn, Hildur, Jóna Norðurbrún 1.
Auður. Frlmann, Soffia. Jón, Sigurjón, Margrét, Ása, Jóhannes Böm hins látna.
Margrét, Kristin. Helga, Léra. óskirð Guðlaug. Finnur GuSlaug.