Morgunblaðið - 20.06.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 20. JUNI 1976
33
HÖGGDEYFAURVAL
FJAÐRIR
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSPRESSUR
SPINDILKÚLUR
STÝRISENDAR
VIFTUREIMAR
KVEIKJUHLUTIR
FLEST í RAFKERFIÐ
HELLA aðalluktir, lukta
gler, luktaspeglar og
margs konar rafmagns
vörur
BOSCH luktiro.fi
S.E.V. MARCHALL
luktir
CIBIE luktir.
LJÓSASAMLOKUR
BÍLAPERUR allar gerðir
RAFMAGNSVÍR
FLAUTUR 6—24 volt
ÞURRKUMÓTOR
6—24v
ÞURRKUBLOÐ
ÞURRKUARMAR
BREMSUBORÐAR
BREMSUKLOSSAR
ÚTVARPSSTENGUR
HÁTALARAR
SPEGLAR í úrvali
MOTTUR
HJÓLKOPPAR
FELGUHRINGIR
AURHLÍFAR
'MÆLAR alls konar
ÞÉTTIGÚMMÍ OG LÍM
HOSUR
HOSUKLEMMUR
RÚÐUSPRAUTUR
FELGULYKLAR
LOFTPUMPUR
STÝRISHLÍFAR
KRÓMILISTAR
BENSÍNLOK
TJAKKAR V/i—30T
VERKSTÆÐISTJAKKAR
FARANGURSGRINDUR
BÖGGLABÖND
ÞOKULJÓS
DEKKJAHRINGIR
RÚÐUKÍTTI
ÞVOTTAKÚSTAR
BARNAÖRYGGIS
STÓLAR
4 tegundir
BARNABÍLBELTI
BÍLBELTI
HNAKKAPÚÐAR
ÖSKUBAKKAR
MÆLITÆKI f. rafgeyma
SWEBA sænskir úrvals
rafgeymar
ISOPON OG P 38 beztu
viðgerða- og fylliefnin
PLASTI KOTE spray
lökkin til blettunar o.fl.
Athugið
allt úrvalið
•inau
Síðumúla 7—9
Simi 82722
st h.t
— Stríðsglæpir
Framhald af bls. 19
fangelsa þar til hann var dæmdur
í 10 ára þrælkunarvinnu. Sök
hans var kölluð landráð eins og
vænta mátti. Hann hafði haldið
fram „borgaralegri mannúðar-
stefnu“ og samúð með fjand-
mönnum ríkisins!
Bók Kopelevs er vissulega
merkilegt rit. En því miður stafa
vinsældir hennar í Þýzkalandi lík-
lega af þeirri ástæðu einni, að
hún fjallar um illvirki Rauða
hersins i Þýzkalandi. Og það er
leitt, ef svo er. Hinn frægi þýzki
rithöfundur, Heinrich Böll, ritar
formala fyrir þýzkri útgáfu
bókarinnar. Þar biður hann landa
sína þess lengstra orða að slíta
ekki hryllingssögurnar í bókinni
úr samhengi sínu og kynda með
þeim undir gömlu hatri. „Við höf-
um blínt um of á það“, segir hann,
„sem á okkur var lagt eftir 1945.
Við megum ekki gle.vma þvi, sem
við lögðum á aðra fvrir 1945.“
— WILLIAM GUTTMANN
— Hægfara
Framhald af bls. 27
Þessi sjúklingur öskraði af kvöl-
um í heilan sólarhring. I örvænt-
ingu sinni braut hann rúðu og
reyndi að skera sig á háls með
glerbrotunum. Fyrir vikið hlaut
hann nýja refsingu og var lúbar-
inn. Hann heimtaði að fá að
deyja. ..
. . . Læknirinn Kamenetskaia
var af sjúklingunum uppnefnd
Ilse Koch (ein illræmdasta fanga-
búðastýra nasista). Evdokimov
varð á að nefna þetta nafn og var
dæmdur í halopéridolkúr.
Að hverju stefnir slik „læknis-
meðhöndlun" og slíkt kerfi? Að
brjóta niður hina mannlegu veru
á nokkrum dögum, eyða vilja
hans til viðnáms. Sjálfur hef ég
reynt það, hvernig mér hefur
hrakað með hverjum deginum
andlega, siðferðilega og tilfinn-
ingalega. Ég missti fljótt áhuga á
stjórnmálum, síðan vísindum og
loks á konu minni og börnum.
En aftur á móti skaut upp hjá
mér ótta um konu mína og börn.
En minninu hrakaði óðfluga. I
fyrstu höfðu kvalir sjúklinganna
haft mjög mikil áhrif á mig og
eins það að frétta af vinum, sem
höfðu brugðizt. En svo varð mér
sama um þetta allt. Ahrif hinna
sterkari lyfja urðu meiri fyrir
það, að ég var einangraður frá
öllum hinum pólitísku vistmönn-
unum. Mig langaði til að heyra
ekki framar ópin, barsmíðarnar,
hlátrana, grátinn, óráðin. Ég lá
allan daginn endilangur og
reyndi að sofa. Til þess hjálpuðu
lyfin líka.
Ég hef séð marga vistmenn
falla saman. Ég hef miklar
áhyggjur af heilsufari Evdo-
kimovs og Plakhotniouks. Ég vil
leggja áherzlu á það, að vegna
mótmæla konu minnar og vina
minna, vegna þess bergmáls, sem
þau hafa fengið í almenningsálit-
inu á Vesturlöndum, hefur mér
tekizt svo miklu betur að halda
líkamskröftum.
Ég vil sem sannfærður komm-
únisti beina máli mínu til komm-
únista á Vesturlöndum. Þegar ég
var i geðveikrahælinu i Dnjepro-
petrovsk, frétti ég, að frönsku og
ítölsku kommúnistarnir hefðu
tekið höndum saman um að fá
mig lausan. Ég hélt ekki, að þetta
myndi verða mér að liði persónu-
lega, en ég gladdist yfir sjálfri
staðreyndinni: Fyrir mér var
þetta merki þess, að kommúnistar
berjist fyrir mannúðlegum sósíal-
isma.
Við, ný-marxistar í Sovétríkj-
unum, höfum alltaf rennt vonar-
augum til kommúnistaflokka
Frakklands, Italíu og Stóra-
Bretlands. Við vonum, að þessir
flokkar muni halda áfram verki
kommúnistaflokks Tékkó-
slóvakíu, að þeir haldi á ný á loft
hugsjónum kommúnismans og
þvingi kommúnistaflokk Sovét-
ríkjanna til að velja á milli ný-
stalinisma eða kommúnisma með
mannlegt andlit.
—svá— þýddi úr
„Die Zeit“ og „L‘Express“
Hays hættir formennsku
í stjórnunarnefndinni
Washington 18. júní Reuter.
WAYNE Hays, fulltrúadeildar-
þingmaður sagði f dag að hann
myndi segja af sér sem formaður
stjórnunarnefndar þingdeildar-
innar, en sú nefnd er ein hin
mikilvægasta f deildinni. Hann
segir f bréfi til forseta fulltrúa-
deildarinnar, Carls Alberts að
þær ásakanir sem hann liggi und-
ir um að hafa greitt Elizabeth
Rays laun af almannafé fyrir
blfðu sfna, svo og afleitt heilsufar
hans gerðu honum ókleift að
rækja skyldustörf sfn sem for-
maður þessarar nefndar.
Þá er búizt við tilkynningu frá
Hays innan skamms um að hann
muni segja af sér þingmennsku,
en á skrifstofu hans var sú frétt
borin til baka f dag.
I Reuterfréttum í dag segir að
með þessu séu þó kynferðismál
fulltrúadeildarþingmanna ekki
útrædd og liggja nokkrir undir
alvarlegum grunsemdum um að
hafa misnotað aðstöðu sina á svip-
aðan máta og Hays, eða þeir John
Young, demókrati frá Texas,
Allan Howe demókrati frá Utah,
sem mun hafa boðið lögreglukonu
sem var dulbúin sem gleðikona fé
ef hún vildi eiga með honum
stund og hið sama mun hafa
komið fyrir Joe Waggonner,
demókrataþingmann frá
Louisiana.
a. RÚNAR
JÚLiUSSON
BRIMKLÓ endurfædd á nýrri plötu
G. RUNAR JULIUSSON í þrumustuði á sólóplötu
Hvað droymdi sveinlnn.
Draumur nr. 999.
Mðlmtréð i skóginum
Fordyr
‘1. Ó Jesú bróðir bestí
2i Rokk og rói, vid dönsum hér
3. Fráulein
‘4. Songur um Iftið
5. Því fer sem fer
6. Ef viö llfum af veröbólguna
7. Þaó er af og frá
Bakdýr
1 Ég'sáljósió
2. Ég sigli einn míns liös
3. Ef vid látum brosió lifa
4. Þegar veöriö versnar uti á sjó
5. Bara af þvi
6. Hamingjulag
GS 099
GEIMSTEINN - TÓNLIST ■ SKOLAVEGUR 12 ■ KEFLAVÍK • SÍMI 92-2717
fs m W 1 M ' ' jfflSp ' ' - ' • ’ fíw i .JSJwyJ.'' J§ §