Morgunblaðið - 20.06.1976, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNÍ 1976
Aruncus dioicus (A.
vulgaris — A. sylvestris)
Aruncus þýðir geitarskegg
en dioicus táknar að þetta sé
tvíbýlisjurt þe að sumar
plöntur hafa eíngöngu kven-
blóm og aðrar eingöngu karl-
blóm Þarna er ekki hægt að
segja að um jafnrétti
kynjanna sé að ræða vegna
þess að karlplönturnar eru
með fegurri blómskúfa og
þar af leiðandi jafnan valdar
til ræktunar Blómin eru ör-
lítil, hvít að lit og geysilega
mörg í allstórum samsettum
skúfum Blómafjöldinn í ein-
um slíkum blómskúf er talinn
vera nálægt 10 000 Geitar-
skeggið blómstrar um mitt
sumar og blómin standa
lengi Þetta er óvenjulega
stórvaxin og tilkomumikil
planta sem verður 1—2 m á
hæð og annað eins í þver-
mál Blöðin eru mjög stór,
fallega fjaðurskipt og minna
mikið á reyniblöðku og
musterisblóm, sem raunar
eru náskyld geitarskegginu
Blöðin eru dokkgræn og
gljáandi Geitarskegg er út-
breitt um N.-Evrópu, Síberíu
og vestantil i N -Ameriku
Það vex venjulega í skóg-
Geita-
skegg
(Jötun-
jurt)
lendi til fjalla og helzt við
lindir og læki, enda þrifst það
bezt í rökum jarðvegi og
nokkrum skugga og skjóli
Það hefur stinna stöngla og
þarf engan stuðning. Það
nýtur sin bezt eitt sér en
einnig fer vel að planta því
innan við tré eða runna og
skjólgirðingar Aðeins þarf að
gæta þess að ætla þvi gott
svigrúm svo blöðin geti breitt
óhindrað úr sér til allra hliða.
Þessi harðgerða og skemmti-
lega planta virðist fremur
fágæt i görðum sem bendir
til þess að erfitt muni vera að
fá hana í gróðrarstöðvum.
Henni má fjölga með
sáningu og einnig skiptingu.
Þó getur verið talsvert erfitt
að skipta gömlum plöntum
vegna þess að jarðstöngull-
inn verður afar harður svo
jafnvel þarf að beita öxi eða
sög til þess að ná honum
sundur. Geitarskegg verður
margra áratuga gamalt og er
talið geta náð 70—80 ára
aldri. H.S.
BLÓM
VIKUNNAR
UMSJÓN: ÁB.
@
Sænsk bók
um efnahags-
og félagsmál
Ut er komin i Lundi bókin
..Teori och metod för ekonmisk
och social historia", eftir Rolf
Adamson prófessor í sögu
efnahagsmála í Stokkhólmi og
hefur Mbl. borizt hún. Þetta er
fræðileg bók, sem fjallar um
ýmiskonar kennslufræðilega
umræðu, sem ofarlega hefur
verið á baugi á undanförnum
árum. Bókin er hugsuð sem
grundvöllur fyrir hópvinnu og
umræður. Samt sem áður er hún
þannig úr garði gerð að hún getur
gagnað einstaklingum, einkum
þeim sem komnir eru nokkuð
langt í sínu námi eða vinnu á
þessu sviði.
Hugmyndin er að lesandinn
geti sjálfur hugsað sig í gegnum
röð af mikilvægum vísindalegum
spurningum með hjálp
bókarinnar, en standi ekki
andspænis tilbúnum lausnum á
þeim. Bókin nær langt út yfir
þröngt efnisval. Eru 15
viðfangsefni þýdd úr ensku,
norsku, frönsku og dönsku og er
skipt upp í verkefni, sem síðan
eru tengd.
Nýir kapp-
róðrarbátar
vígðir á Húsavík
NÝIR kappróðrarbátar voru
vigðir á sjómannadaginn á
Húsavík, og var þá I fyrsta skipti
keppt á þeim. Annars fóru
hátíðahöld dagsins fram með
hefðbundnu sniði. Tveir aldraðir
sjómenn, þeir Ásgeir
Kristjánsson og Bjarni
Ásmundsson voru heiðraðir.
Sígildar sögur 0% fikrDtsNsv vy mm s m