Morgunblaðið - 20.06.1976, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNI 1976
37
félk í
fréttum
WSk
Wmk
Candy Clark: leikur á móti David Bowie I myndinni „Maðurinn sem kom til jarðarinnar'
Candy Clark, ástmœr
Davids Bowies í nýrri kvikmynd
+ Við höfum sagt frá því hér á
sfðunni, að David Bowie hefur
getið sér gott orð sem leikari f
kvikmyndinni „Maðurinn, sem
kom til jarðarinnar". Mótleik-
ari hans er leikkonan Candy
Clark, sem ættuð er frá Okla-
homa f Bandarfkjunum og kom
fyrst fram f myndinni „Fat
City“, sem Stjörnubfó sýndi á
sfnum tfma. Candy þykir mjög
efnileg leikkona og var einu
sinni orðuð við Óskarsverðlaun
fyrir leik sinn sem mennta-
skólastúlkan f mynd Georges
Lucas, „Sfðasta nóttin með
klíkunni".
Ingmar Bergman
+ Eins og fram hefur komið f
fréttum hefur leikstjórinn
sænski, Ingmar Bergman, flúið
föðurland sitt og kennir um of
mikilli skattáþján. Bergman
átti eyjuna Farö þar sem hann
vann löngum að myndum sfn-
um. Nú hefur hann selt eyjuna
mági sfnum, Lars de Geer, og er
kaupverðið um 120 milljónir
fsl. króna. Ekki er Ijóst hvað
mágur Bergmans ætlast fyrir
með eyjuna en getum er að þvf
leitt, að hann ætli að gera hana
að einhvers konar ferðamanna-
stað.
+ Liza Todd, dóttir Elizabeth
Taylor og Mike Todd, hefur nú
sett upp tfzkuverzlun f Parfs
ásamt fyrrum einkaritara
móður sinnar og Richard
Burton, Raymond Vignale.
Verzlunin var opnuð með mik-
illi viðhöfn og gestum veitt
kavfar og vodka af mikilli
rausn.
+ Anna prinsessa er sögð þegj-
andi hás þessa dagana. Hún var
að kynna sér vinnubrögð og
starfsskilyrði f stálverksmiðju
á Norður-Englandi og varð að
öskra f hvert sinn sem hún
spurði spurninga, með fyrr-
greindum afleiðingum.
+ t Suðurrfkjum Bandarfkj-
anna og vfðar þar sem veður
þykja með skaplegra móti er
mikið iðkuð sú fþrótt sem
kannski má kalla „fjalakött" á
fslenzku þó að ekki sé okkur
alveg Ijóst f hverju kúnstin er
fólgin. A meðfylgjandi mynd
má sjá einn meistara þessarar
fþróttar f fullum herklæðum.
Janice heitir hún og tók nýlega
þátt f mikilli keppni á strönd-
inni f Daytona f Florida.
+ Það bar til f dýragarðinum f
Knuthenborg á Lálandi f Dan-
mörku að gfraffakýr bar nýlega
kálfi, kvfgu, en oft hefur geng-
ið erfíðlega að fá dýr til að
tfmgast, sem búa við aðrar að-
stæður en þeim eru eðlilegar.
Fæðingin gekk vel að sögn og
stóð yfir f þrjár stundir, og
þykir það allt með felldu þegar
gfraffar eiga f hlut. A mynd-
inni sést þegar kýrin karar
kálfinn nýfæddan.
Húsnæði óskast — Dýra-
læknir
Ungur dýralæknir ásamt eiginkonu og tveimur
börnum óskar eftir húsnæði 4 — 5 herb. í
nágrenni Reykjavíkur (helst á Vesturlandsleið).
Æskilegt að eitthvað landrými fylgi. Upplýsing-
ar eru veittar í sima 72964 eftir kl. 7 á kvöldin.
Húsbyggjendur
Einangrunar-
plast
Getúm afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavíkursvæðið með stuttum fyrirvara.
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆMT VERÐ.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi sími: 93-7370
Kvöldsími 93-7355.
Spónlagðar
spónaplötur
Stærð 122 cm X 250 cm.
Þykkt 17mm
Okoume / Okoume
Koto / Koto
Almur / Álmur
Brenni / Brenni
Eik / Eik
Fura / Fura
Teak / Trak
Hnota / Hnota
Verð án
söiuskatts
2.690.00 pr. plötu
2.986.00 pr. plötu
6.485.00 pr. plötu
4.536.00 pr. plötu
6.540.00 pr. plötu
6.450.00 pr. plötu
7.500.00 pr. plötu
7.500.00 pr. plötu
HARÐVIÐARSALAN S.F.
Grensásvegi 5 S-85005 & 85006
Q Star innréttingar
-við allra hæfi -í öll herbergi
Star-innréttingar eru samsettar úr einingum, sem f ram-
leiddar eru í Sviþjóð á vegum staerstu innréttingafram-
leiðenda Evrópu. /
Þær geta hentað í allar stærðir eldhúsa, — en ekki aðeins
í eldhús, heldur ( öll önnur herbergi hússins.
Star-innréttingar eru bæði til ( nýtlzku stíl og með göml
um virðulegum blæ, en eru allar gerðar samkvæmt kröf-
um nútfmans.
Komið með teikningu af eldhúsinu eða hinum herbergj-
unum, þar sem þið þurfið á innréttingu að halda. Við
gef um góð ráð og reiknum út, hvað innréttingar eins og
ykkur henta muni kosta.
Stuttur afgreiðslufrestur. Einstaklega hagstætt verð.
Bústofn, Klettagarðar 9
Sundaborg — Sími: 8-10-77