Morgunblaðið - 20.06.1976, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNÍ 1976
Með djöfulinn
á hælunum
Race with the Dewil, 1975,
amerísk. Leikstjóri: Jack
Starrett.
Tveir fyrrverandi mótorhjóla-
töffarar eru á leið í frí ásamt
eiginkonum sfnum í nýju bflhýsi
(rúta, innréttuð sem heimili) og
fyrsta kvöldið leggja þeir bflnum f
rólegu og fallegu umhverfi Þar
verSa þeir hins vegar vitni aðfórn
arsamkomu djöfladýrkenda og
horfa á unga súlku drepna. Er þeir
reyna að forða sér eltir samkund
an og gerir misheppnaða tilraun til
að brjótast inn f bflhýsið. Ferða
mennimir kæra þessa atburði á
næstu lögreglustöð en fá daufar
undirtektir. Á leið sinni til næsta
áfangastaðar verða þau fyrir stöð-
ugri áreitni djöfladýrkendanna uns
þau telja sig hvergi óhult. Svo
virðist sem allt héraðið sé undir-
lagt af þessum „sértrúarhóp", þvf
sffellt taka fleiri þátt f þvf að reyna
að koma þeim fyrir kattarnef, m.a.
með þvf að reyna að þvinga bflinn
á ferð út af veginum með þrem
trukkum. Þegar þau telja sig svo
loks sloppin, ná djöfladýrkendurn-
ir taki á þeim.
Eftir leikstjórann, Starrett, höf-
uð við áður séð hér The Gravy
Train (Bræður á glapstigum) og
blóðbunumyndirnar Slaughter og
Cleopatra Jones Starrett er enn
við sama heygarðshornið og þessi
mynd er gerð f svipuðum dúr og
hinar fyrri. Það sem veldur manni
nokkurri furðu og umhugsun, er
sú staðreynd, að djöfladýrkun er
óhugguleg staðreynd f Bandarfkj-
unum og óvefengjanleg mein-
semd, en framleiðendur myndar-
innar notfæra sér þetta sjúka
ástand gagnrýnislaust sem gróða-
veg. Þetta verður að teljast f
hæsta máta óábyrg kvikmynda-
gerð. í annan stað er dálftið kald-
hæðnislegt að sjá Peter Fonda hér
f eins konar framhaldshlutverki úr
Easy Rider, nema hvað nú er hann
orðinn „borgaralegur" og dælir
blýi f hippana, sem eru að vfsu
miklu herskárri en hann var f Easy
Rider. Burtséð frá þessu er Iftið
um myndina að segja, persónu-
sköpun er nánast engin („púkarn-
ir" eru allir andlitslaus hjörð, eig
inkonurnar skrækja f sffellu og
stjömurnar, Fonda og Oates, gera
ekki annað en bera sig manna-
lega) og Starrett tekst heldur slæ-
lega að halda uppi þeirri spennu
eða þeim hrollvekjuanda, sem
sagan ætlast til.
SSP.
Punktar..
XXX King Kong er nú að komast
f umferð aftur. Eftir mikið rifrildi
milli Paramout og Universal hefur
nú verið sæst á, að Paramount
framleiði myndina (Universal
græðir hvort sem er á þvf, vegna
þess að bæði fyrirtækin dreifa
SIGURÐUR SVERRIR PÁLSSON
Roman Polanski bæði leikstýrir og
leikur í The Tenant.
King Kong i fæðingu.
myndum gegnum sama aðilann,
CIC). Framleiðandinn, Dino De
Laurentiis, hefur þegar hafist
handa og nú mun vera tilbúin 40
feta vélgorilla, sem kostar litlar 3
milljónir dollara en áætlaður
kostnaður við gerð myndarinnar f
heild hefur strax hækkað úr 13
milljónum f 22 milljónir dollara Af
þeim sökum hefur De Laurentiis
ákveðið að gera aðra mynd með
Kong: „King Kong f Afrfku". Leik-
stjóri fyrri myndarinnar átti upp-
haflega að vera Joseph Sargent
(The Taking of Pelham) fyrir
Universal, en nú mun John
Guillermin (The Towering Inferno)
stjóma henni. Sargent fór hins
vegar ekki illa út úr þessu, þvf að
hann fékk 1 Vz árslaun hjá Uni-
versal, hvort sem myndin yrði
gerð eða ekki.
XXX f Afganistan hefur mynd
Hustons, The Man Who Would Be
King, verið bönnuð á þeim for-
sendum, að fbúar landsins séu
gerðir alltof frumstæðir . . .
XXX Bernardo Bertolucci, leik-
stjóri Last Tango in Paris, fram-
leiðandiinn, Alberto Grimaldi, og
dreifingaraðilinn (United Artists,
ábyrgaðarmaður Lee Kamern),
hafa allir verið dæmdir f tveggja
mánaða fangelsi fyrir klám. . .
XXX Milos Forman (One Flew
Over the Cuckoo's Nest) er nú að
vinna að gamanmynd er nefnist
„Someone Is Killing the Great
Chefs of Europe" en mun að þvf
loknu fara að vinna við mynd, sem
á að heita Las Vegas Gamble . . .
XXX Og að lokum ein setning
frá breskum pólitfkusi, Hugh
Jenkins, sem fslenskir pólitfkusar
mættu fhuga, Jenkins sagði:
Framleiðsla á gæðakvikmyndum f
þessu landi er mjög mikið áhuga-
mál rfkisstjómarinnar . . SSP.
Kvik
mund
/iocin
Bréfa-
dálkur
Einn haldinn biósýki spyr:
1. Er nokkur von til að ARNAR
BORGIN og BYSSURNAR FRÁ
NAVARONE verði sýndar aftur?
2. Eru ekki til neinar stórar
myndir með Laurel og Hardy,
Buster Keaton, Charlie Case og
Harold Lloyd; ef svo er, verða þær
sýndar hérna — og hvenær?
3. Verða fleiri myndir eftir bók-
um Agöthu Christie sýndar hór?
Með þökk fyrir birtingu.
G.B.
1. ARNARBORGIN verður end-
ursýnd á þessu ári I Gamla Bló.
Ekki eru neinar áætlanir á prjón-
unum varðandi endursýningar á
NAVARONE (Stjörnubió).
2. Allir þessir gamanleikarar
gerðu langar myndir. nema
Charlie Chase (en þú hlýtur að
eiga við hann). Ekki er sfðunni
kunnugt um að ráðagerðir séu
uppi um endursýningar á myndum
þessara grinkarla. Þær væru þó
sjálfsagt vel þegnar.
3. Siðasta bók frú Christie
nefnist CURTAINS, og vilja margir
telja hana I hópi bestu bóka rithöf-
undarins. Hún verður þvi vafa-
laust mynduð fyrr en siðar.
S.V.
Kæra Kvikmyndasiða.
Okkur þykir sem þið gerið ekki
alveg greinarmun á kvikmyndalist
og kvikmyndaiðnaði. Listaverkið
ANDREI RUBLEV fékk til að
mynda jafnmargar stjörnur i eink-
unnagjöf ykkar og iðnaðarfram-
leiðslan JAWS og GODFATHER
PART II, svo dæmi sé nefnt.
Við virðum dugnað ykkar við að
elta uppi flestar þær myndir sem
hér sjást, en væri ekki viturlegra
að leyfa þeim myndum sem þið
dæmið sem einskisnýtar að sigla
sinn sjó og eyða I staðinn meira
rúmi i þær fáu, reglulega góðu
myndir sem slæðast hingað. upp
til okkar á gamla, góða Frón, ann-
að slagið.
Við höfum tekið eftir að þið
eruð ansi liðlegir við að svara
spumingum lesenda og sendum
þvf með þessum linum nokkrar
spurningar sem við vonum að þið
svarið með jafnvel enn meiri lið-
legheitum en endranær.
1. Hverjar mynda Resnais,
(Alain) hafa verið sýndar hér og er
nokkur von til þess i náinni fram-
tið að nýjasta mynd hans.
„STAVISKY", komi hingað?
2. Skyldi nokkur von vera til
þess að sá draumur okkar. að fá
að berja eftirtaldar myndir augum
I Islensku kvikmyndahúsi. rætist á
næstunni: LANCELOT DU LAC, e.
Bresson; ELEKTRU e. Janscó; LE
FANTÓME DE LA LIBERTÉ, e
Bunuel, DERSU URZALA e
Kurosawa og Kaspar Hauser e.
Werner Herzog?
LLog HH
Um leið og við þökkum bréfið,
viljum við benda bréfriturum á, að
ANDREI RUBLEV gat engan veg-
inn talist listaverk i augum okkar.
Að „iðnaðarframleiðslurnar"
JAWS og GODFATHER PART II,
hlutu jafnmargar stjörnur eru þvi
engin mistök; hinar bandarisku
voru mikið betur gerðar sem slikar
heldur en listrænt gildi þeirrar
rússnesku. En sem betur fer er
öllum frjálst að hafa sinar skoðan-
ir á þessum málum sem öðrum.
Ekki vitum við haðan i ósköpun-
um þið hafið þær upplýsingar að
við eltum uppi „flestar þær mynd-
ir sem hér sjást". Það er löngu
liðin tið. Hitt ar annað mál að við
reynum að sjá sem flestar hinar
bitastæðari myndir sem hér er
boðið uppá, og mun svo verða t
framtfðinni.
1. Þær myndir sem sýndar hafa
verið hérlendis eftir Resnais eru
HIROSHIMA MON AMOUR ( 59),
L'ANNÉE DERNIÉRE Á
MARIENBAD ('61), MURIEL('63).
LA GUERRE EST FINIE ('66) og JE
T'AIME, JE T’AIME ( 68) Mynd-
irnar LOIN DE VIET NAM ( 67) og
DÉLIVEREZ — NOUS DU BIEN
('71) hafa ekki verið sýndar svo ég
viti til hérlendis. STAVISKY er
ekki nýjasta mynd þessa athyglis-
verðe leikstjóra, heldur
PROVIDENCE með þeim Dirk
Bogarde, Ellen Burstyn, John
Gielgud og David Warner i aðal-
hlutverkum. Hún var tekin I
Brussel, London, Antwerpen og
Nýja Englandi (USA). Hafnarbió
mun að öllum likindum sýna
STAVISKY, með Jean Paul Bel
mondo i titilhlutverki svindlarans
fræga.
2. Ég vil benda ykkur á að hafa
uppá eins til tveggja mánaða
gömlu TIME vikuriti, sam birti
ágæta og ýtarleg grein um upprisu
þýsks kvikmyndaiðnaðs. Ég hef
tapað þessu blaði, en i þvi var
einmitt minnst á Reinhard Hauff
(ef ég man rétt).
3. Mér þykir óliklegt að
ELEKTRA og LANCELOT. . verði
sýndar hérlendis úr þessu, nema
þá aðeins i kvikmyndaklúbb. LE
FANTÓME DE LA LIBERTÉ verður
fljótlega tekin til sýninga i Nýja
BIó; forráðamenn Háskólabiós
hafa verið iðnir við að sýna nýjar.
þýskar myndir svo að það er alls
ekki ósennilegt að álita að KASP-
AR HAUSER verði tekin til sýn-
inga þar von bráðar. DERSU
URZALA er það ný að við þurfum
sjálfsagt að biða I ár að minna
kosti eftir að hún skjóti hér upp
kollinum.
4. Hvort að Andrei Tarkovsky er
á leiðinni til Siberiu. hefur Kvik-
myndasfðan þvi miður enga hug-
mynd um, en slik ferðalög þar
eystra eru, eins og allir vita, ekki
óalgeng meðal listamanna. Við
bendum ykkur á að hafa samband
við APN., þeim er örugglega Ijúft
að gefa ykkur slikar upplýsingar.
S.V.
Jóhanna Olafsdóttir frá
Fit — Sjötíu og fimm ára
..Kg ann þör. <>g ann þér. þú indæla jörð.
Hvor árstíó. sem kla*<>ir þinn
lífsfr jóa svörð.
Ilvorf dökkgra*na sumarsins
silkiö þitt skín.
Viósól. eða vetrarins drifhifta lín.**
Svo kvað skáldió Stefán G.
Stepfánsson.
Þessi tilfinning er í lífi margra.
Æskustöðvarnar eru hjartfólgn-
ar.
Eyjafjallasveit hefir heillað
hugi margra, vegna hinnar stór-
kostlegu tilkomumiklu fegurðar í
ríki náttúrunnar. Þar iklæðist
landið okkar hinu fyrsta skrúði
vorsins. 1 Eyjafjailasveit nýtur
maður vorfegurðar og yndisleiks,
farfuglarnir heilsa með hrifningu
vorsól og sumri, Menn og málleys-
ingjar njóta fegurðar þessarar
svipfögru sveitar. Hressandi vor-
blær strýkur um kinn, og færir
nýjan lífsþrótt og unað. Litskrúð
haustsins er ennfremur ógleym-
anlegt. Hérað og umhverfi heill-
ar, en líka hið þjóðlega umhverfi,
hjörtu fólksins, allt er samgróið.
Gestrisni og kærleikur hefir þar
runnið saman í eitt. Sveitin er
umvafin kærleika fólksins.
Ástæðan fyrir línum þessum er
sú, að mér er afar ljúft að minnast
merkisdags f lífi frú Jóhönnu að
Fit í Vestur-Eyjafjallahreppi.
Mér finnst ég eigi henni og heim-
ilinu að Fit mikið upp að inna, frá
þeim tíma er ég dvaldist við skól-
ann að Seljalandi.
Ævisaga hennar verður ekki
rakin hér, enda standa rætur
hennar djúpt, dýpra en nokkur
heimild nær til, stórkostlegustu
þættirnir gerast í fylgsni hugans,
en ekki á yfirborðinu.
Á þriðja áratug hefir Jóhanna
að Fit verið rúmföst vegna lömun-
ar. Hugur hennar hefir haldið
fullum styrk og lokið upp leiðum.
Þrautseigja hennar hefir yfirstig-
ið alla örðugleika. Jóhönnu hafa
verið léðir vængir kveldroðans.
Heimilið að Fit liggur í þjóð-
braut, gestakoma mikil, aldrei
barið að dyrum árangurslaust. Að
Fit er jafnan reiðum höndum
hjálp, heilræðif hvíld. Húsráðend-
ur synja engum aöstoðar meðan
nokkuð er til, er skipta má. Að
Fit er kyntur eldur bróðurkær-
leikans, aldrei daufheyrzt við
neinu. Heimilið sameiginlegt sem
sól og Ioft. Aldrei er þar upp-
skerubrestur bróðurkærleikans.
Jóhanna Ólafsdóttir fæddist að
Núpi í Vestur-Eyjafjallahreppi
21. júní 1901. Foreldrar hennar
voru þau hjónin Ólafur Ketilsson
bóndi þar og Ingibjörg Ólafsdótt-
ir. Ingibjörg og Ólafur voru talin i
röð betri búenda.
Hugur Jóhönnu hneigðist
snemma að bókum, en þess var
enginn kostur að sitja lengi á
skólabekk. Af sjálfsdáðum aflaði
hún sér góðrar fræðslu. Ung gift-
ist hún eiginmanni sínum, Páli
bónda að Fit. Hafa þau lifað sam-
an í hjóhabandi i yfir hálfa öld.
Páll hefur að aðalsmerki fjör, gáf-
ur, drenglyndi, vinfestu og hrein-
skilni. Páll er hreinskiptinn í orð-
um, getur verið glettinn í svörum.
Hvar sem hann er eykur hann
glaðværð, traustið og drengskap-
inn, hið djúpa vináttuþel og hið
hlýja viðmót.
Hjónaband þeirra Jóhönnu og
Páls hefir verið hið farsælasta og
ástúðlegasta, eins frá beggja
hálfu, þó eigi þannig, að annað
drægi sig i hlé og hyrfi fyrir hinu,
heldur þroskast þau hlið við hlið.
Þau gera úr lífinu óaðskiljanlega
einingu. Aðdáun vekur hin stór-
kostlega nærgætni og umönnun,
er Páll veitir konu sinni, hann
víkur ekki frá henni eitt eða neitt,
vakinn og sofinn að veita henni
sem einlægasta aðhlynningu.
Páll og Jóhanna hafa undan-
farna áratugi verið í skjóli Sigríð-
ar dóttur sinnar og eiginmanns
hennar, Baldurs Ólafssonar.
Ég minnist margra ánægju-
stunda á heimilinu á Fit. Utan
dyra kasta menn af sér drungan-
um, það er ekki hægt að komast
með hann inn. Bæði eru þau hjón,
Sigríður og Baldur, sérstaklega
gestrisin eins og ég hef fyrr sagt.
Glaðværðin og hlýlegheitin skipta
öndvegi. Samræður oft alvarleg-
ar, stundum fyndnar og fjörugar,
en ávallt hreinskilnar og tildurs-
lausar. Ekki hefir heimilisfólkið
að Fit gert sér neitt sérstakt far
um að leita sér vinsælda, en það á
marga vini, kunningja og félaga,
fleiri en það veit um. Það er ör-
uggasta merkið um mannkostina.
Jóhanna, hjartanlegustu og
innilegustu heillaóskir í tilefni
dagsins.
Helgi Vigfússon.