Morgunblaðið - 20.06.1976, Síða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNÍ 1976
£ LANDSFUNDUR Kvenréttindafélagsins er haldinn um þessa helgi, var settur á Hótel Sögu á
föstudagskvöld en aðild að þvf eiga nú 47 félög. Á myndinni flytur formaður, Sólveig Olafsdóttir, ávarp.
Elfn Páimadóttir sagði frá störfum S.Þ., Ingibjörg Haraldsdóttir flutti Ijóð og flutt voru þjóðlög frá
Sfberfu. I gter voru fundarstörf á Hallveigarstöðum. Formaður flutti skýrslu svo og formaður menningar-
og minningasjóðs, Auður Auðuns. Frá sfðasta fundi hefur um 1 millj. kr. verið veitt f styrki og komið út 4.
bindi æviminningabókar. Eftir hádegi átti að fjalla um aðalefni fundarins „Uppeldi og starfsval á
jafnréttisgrundvelli** með framsöguerindum og hópumræðum og f gærkvöldi átti starfshópur að fjalla
um starf Kvenréttindafélagsins. Fundinum lýkur f kvöld.
Auglýst eft-
ir vitnum
SLYSARANNSÖKNADEILD lög-
reglunnar hefur beðið Mbl. að
auglýsa eftir vitnum að eftirtöld-
um atburðum, en f öllum tilfell-
unum hefur orðið tjón á bifreið-
um en tjónvaldar ekki fundizt.
Fimmtud. 10. júní, fyrir hádegi,
fór steinn í gagnum hliðarrúður á
Toyota-bifreið og á vinstri hlið á
Broncobifreið, sem stóð gegnt
þeirri fyrrnefndu á móts við
Laugarnesveg 88 (húsagötuna).
Sennilegt að steinninn hafi henzt
undan bifreið, eða undan hjól-
barða bifreiðar, af götunni.
Föstud. 11. júní var ekið á bif-
reiðina YF 505 B, sem er Cortina-
fólksb., árg. 1975, mosagræn að
lit. Bifreið þessi stóð á móts við
brezka sendiráðið á Bragagötu og
var þetta á milli kl. 09:00—10:00
um morguninn. Vinstra framaur-
bretti var dældað. Grár litur var í
sárinu. Talið að tjónvaldur sé grá
Willys-jeppabifreið, sem hafði
staðið þarna hinum megin göt-
unnar og mun hafa þurft að aka
aftur á bak til þess að komast í
burtu.
Þriðjud. 15. júní var ekið á bif-
reiðina R-32355, sem er Saab-
fólksb., árg. 1973, gul að lit. Bif-
reiðin stóð á móts við Laugaveg
178 á tfmabilinu kl. 10:00 —
15:00. Vinstra framaurbretti var
dældað og rauður litur í sári.
Rauð Taunus-station-bifr. talin
hafa staðið vinstra megin við R-
32355 um morguninn.
Miðvikud. 16. júní var bifreið-
inni R-43212, sem er Peugeot-
fólksbifr., árg. 1971, dökkrauður
að lit, lagt við húsið Skipholt 17a
kl. 14:30—14:45, en þegar eigand-
inn kom aftur var toppur bifreið-
arinnar dældaður og ataður tjöru.
— Verðbólgan
Framhald af bls. 44
Sjálandi 17,2%, í Austur-
ríki 7,8%, í Belgíu 9,9%,
Luxemburg 10,3%, Dan-
mörk 5,2%, í Finnlandi
16,3%, Frakklandi 9,5%,
Vestur-Þýzkalandi 5,4%,
Grikklandi 13,3%, íslandi
36,3%, írlandi 16,1%,
Ítalíu 11,8%, Hollandi
8,9%, Noregi 9,8%,
Portugal 22,8%, Spáni
15,4%, Svíþjóð 11,1% Sviss
2,5%, Bretlandi 21,1% og
Júgóslavíu 16,0% í
skýrsluna vantar tölur frá
Tyrklandi.
- Myndir af Mars
Framhald af bls. 1
nákvæmninni við það að eldflaug
yrði skotið frá Los Angeles, þvert
yfir Bandarikin, og hún hæfði
matardisk á veitingaborði í New
York.
Vikingsflauginni var skotið á
loft í ágúst í fyrra. Nú er önnur
Víkingsflaug á leið til Mars, og á
hún að kanna annan stað á stjörn-
unni í ágúst.
„Undir suðvestur-
urhimni” frum-
sýndur 1 dag
UNDIR suðvesturhimni, tónleik-
ur eftir Gunnar Reyni Sveinsson
og Sigurð Pálsson verður frum-
sýndur í dag kl. 13 í Lindarbæ en
síðan endurfluttur kl. 17. Verkið
er tillegg Gunnars Reynis Sveins-
sonar til Norrænu músíkdaganna
— verk fyrir áhugafólk, og það
eru nemendur úr Leiklistarskóla
Islands, sem flytja verkið undir
leikstjórn Sigurðar Pálssonar. í
viðtali við Gunnar Reyni Sveins-
son í blaðinu í gær, þar sem verk
þetta var kynnt, slæddist inn
hvimleið villa í niðurlag greinar-
innar. Þar átti að standa: Þessir
textar eru einkum þrenns konar:
i fyrsta lagi er um að ræða ábend-
ingar um æskilegar breytni (ekki
breytingar), í öðru lagi textar
sem falla undir hið úrelta orð
ádeila og í þriðja lagi er svo
græskulaust gaman.
— Silvia
Framhald af bls. 1
179 ár, sem haldið er brúðkaup
rfkjandi konungs Svfþjóðar.
Fjöldi evrópskra þjóðhöfð-
ingja, þeirra á meðal forseti
Islands, sat brúðkaupiö, og
meðal kóngafólks í kirkjunni
voru Ólafur Noregskonungur,
Margrét drottning Danmerkur,
Baldvin konungur og Fabiola
drottning frá Belgíu, Constan-
tin fyrrum Grikkjakonungur og
Richard prins af Glouchester
frá Englandi.
Stórkirkjan, sem er rúmlega
700 ára og elzta kirkja Stokk-
hólms, var fagurlega skreytt
fyrir athöfnina, og mannfjöldi
hafði safnazt saman fyrir fram-
an kirkjuna og konungshöllina
nokkrum klukkustundum áður
en athöfnin hófst.
Þegar athöfninni lauk, og
Silvia Sommerlath var orðin
drottning Svíþjóðar, gengu
brúðhjónin út að skrautbúnum
hestvagni utan dyra. Óku þau
síðan um götur'-borgarinnar
áleiðis til konungshallarinnar,
og var ákaft fagnað af mann-
fjöldanum. Síðasta spölinn til
hallarinnar fóru þau á báti, og í
höllinni var snæddur hádegis-
verður með erlendum og inn-
lendum brúðkaupsgestum.
Brúðkaupsferðinni er heitið
til Kenya.'og ætluð i kenungs-
hjónin að leggja af stað strax i
dag að lokinni hádegisveizl-
unni. Karl Gústaf konungur er
þrítugur, en drottningin 32.
- Norrænu
músíkdagarnir
Framhald af bls. 2
Rasmussen. Er leikið fjórhent á
flygil, auk þess á selestu, píanó og
falskt pianó. Kvartoni eftir Norð-
manninn Ketil Sæverud flytja
fjórir ungir listamenn frá Noregi
og tónleikunum lýkur með því að
kvartett undir forustu Guðnýjar
Guðmundsdóttur konsertmeistara
flytur nýtt verk eftir danska tón-
skáldið Hans Abrahamsen.
TÓNLEIKAR NEW MUSIC
ENSAMBLEí DAG
Kanadfski tónlistarflokkurinn
New Music Ensamble heldur tón-
leika á Norrænum músfkdögum í
dag, sunnudag kl. 15, og á mánu-
dagskvöld kl. 20 á Kjarvalsstöð-
um. Flokkurinn hefur búsetu í
Toronto og lýtur forustu flautu-
snillingsins Robet Aitken, sem er
(slenzkum tónlistarunnendum að
góðu kunnur, hefur oftsinnis
leikið hér og unnið mikið með
íslenzkum hljómlistarmönnum
og kynnt verk fslenzkra tónskálda
eriendis. Auk Aitkens koma 18
tónlistarmenn með flokknum,
allt snjallir hljóðfæraleikarar.
NME er nú á heimleið úr tón
leikaför um Evrópu, þar sem
hann hefur að undanförnu haldið
tónleika í Stokkhólmi, Björgvin
(á listahátíðinni þar), Saar-
brúcken, Genf, Parfs, Bourges,
Nantes, Brússel og London. Mun
New Music Ensamble leika verk
eftir kanadisk tónskáld þ. á m.
Segre Garant, Normu Beecroft,
Donald Steven, Bruce Mather,
Gilles Tremblay, Harry Somers og
Harry Freedman, og eru þetta allt
mjög þekkt tónskáld í heimalandi
sinu og raunar vfða um heim. Þá
verða flutt verk eftir sænsku tón-
skáldin Sven-Erik Back og Tamas
Ungvary og verk eftir norska tón-
skáldið Olaf Anton Thommesen
sem heitir Det hemmelige
evangeliet og er samið við forna
biblíutexta. Verk þetta var frum-
flutt nú fyrir skömmu á lista-
hátiðinni f Björgvin. í þvi kemur
og fram dansarinn Roy Lindkvist.
Verk þetta mun bráðlega koma út
á hljómplötum. Þá verður frum-
flutt nýtt verk eftir Þorkel Sigur-
björnsson sem hann samdi á
þessu ári og nefnir Sólstöður.
Fiskveiðisamningar
Norðmanna við A-
Evrópuríki framundan
NORSKA stjórnin hefur að und-
anförnu átt viðræður um fisk-
veiðimál við þau rfki A-Evrópu,
sem hagsmuna eiga að gæta
vegna útfærslu Norðmanna f 200
mflur fyrir lok þessa árs, að þvf er
NTB hefur eftir Arne Treholt,
fulltrúa norsku stjórnarinnar. t
þessum viðræðum hafa Norð-
menn freistað þess að komast að
samkomulagi við hlutaðeigandi
rfki. Nú liggja fyrir drög að samn-
ingum við Pólverja og A-
Þjóðverja. Drögin eru trúnaðar-
mál enn sem komið er, en (
grundvallaratriðum er þar stuðzt
við verulegar aflatakmarkanir
Pólverja og A-Þjóðverja á tiltekn-
um svæðum. Eru framhaldsvið-
ræður við þessar þjóðir fyrirhug-
aðar á hausti komanda.
Þá sagði Arne Treholt, að veru-
legur árangur hefði þegar náðst í
viðræðum Norðmanna við Sovet
stjórnina og stæðu vonir til að
þeim lyki með samningum um
mánaðamót september og október
n.k.
Um undirbúningsviðræður
norsku stjórnarinnar við Efna-
hagsbandalagið sagði Treholt, að
þrátt fyrir yfirlýstan vilja Norð-
manna til að komast að samkomu-
lagi, hefði lítill árangur orðið til
þessa. Væri árangurs reyndar
ekki að vænta fyrr en umboð EBE
til samningagerðar væri óvefengt,
en ráðherranefnd bandalagsins
tæki trúlega ákvörðun um þetta
atriði á næsta fundi sínum. Hefði
sú óvissa, sem ríkt hefði um um-
boð EBE til samningsgerðar, gert
sitt til að setja nokkuð óraunveru-
legan svip á þær viðræður, sem
fram hefðu farið hingað til, sagði
Arne Treholt. Væru Norðmenn
uggandi vegna þessarar óvissu,
sérstaklega þar sem togaraveiðar
á miðunum við Noreg hefðu auk-
izt verulega að undanförnu, en
það væri afleiðing áformaðrar út-
færslu margra ríkja á þessum
slóðum i 200 mílur á næstunni.
Finnskt tónskáld
heldur erindi
með tóndæmum
MEÐAL listamanna. sem hér
dveljast nú vegna Norrænu
músfkdaganna. er finnska tón-
skáldið Jarmo Sermilá frá
Helsingfors, og heldur hann er-
indi með tóndæmum um finnska
nútfmatónlist í dag, sunnudaginn
20. júnf, kl. 17:00 f Norræna
húsinu.
Jarmo Sermilá er forstöðu-
maður finnsku tónlistarupplýs-
ingamiðstöðvarinnar og hefur
einnig verið mjög virkur innan
ICMS. Hann flytur erindi sitt á
ensku vegna hinna kanadísku
gesta, sem taka þátt í Norrænu
músikdögunum.
Allir eru velkomnir til að hlýða
á hinn finnska gest.
e" í HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS
SKULDABRÉF A WiT
5. DRÁTTUR 15. JÚNl 1976
VINN1NGSUPPHA0 1.000.000 KR
27510 86039
VINNINGSUPPHAO 500.000 KR.
29113
VINNINGSUPPHf0 100.000 KR•
937 24562 34616 52886
2378 25934 47497 54615
5232 29707 47538 61436
NNINGSUPPH-fD 10, »0D0 KR .
401 9838 21682 34447
521 9893 2?566 34510
72 4 10000 22901 34947
1461 10248 22928 35113
1581 10357 23094 35153
2061 10709 23292 35509
21 72 10822 23663 35660
2222 11074 23878 35853
3278 11231 24091 35922
3328 11410 26103 36441
3779 11752 26243 36461
3999 11765 26716 371 73
4562 13166 26787 37548
5576 14601 27211 37786
5901 15229 27557 3 794 7
5960 15476 28190 38118
608 7 15577 28336 38755
6293 17331 28602 39825
6339 17690 28808 42571
68 99 18108 29259 42 60 9
6900 19210 31337 46401
7522 19317 31386 46413
7657 19939 31617 46794
76 73 200 20 31915 47237
7696 20192 31957 4 82 3 9
7779 21004 32240 48291
8338 21443 32907 499 80
8555 21503 33750 5040 8
9245 21581 340 21 50463
SKRA UM VINNINGA
61442 61572 74077 78601 80316 82 22 3 85770 92245 99173 99990
50611 61380 72692 85814
50782 61920 73300 86074
5081 7 61959 73501 86548
51182 62548 74 2 35 86870
51229 62 96 8 75958 87975
51305 63973 7627^ 88412
51622 64380 7664 1 88753
51 782 64555 76707 88866
51996 64 661 76901 89158
52 845 64910 77866* 8 96 43
53058 64913 77954 89962
53616 651 86 78672 90067
53662 65 2 76 7 8949 90713
53871 654 64 79230 91577
5421 7 66326 79280 91649
54910 66986 79314 91929
55365 66 998 79566 92065
55788 6 71 73 79775 92200
56585 6 796 7 80726 93812
5 745 7 6 8864 81255 94560
57562 69015 81526 95733
57598 6 9992 81831 96351
57840 70352 82105 966 73
57852 706 72 62460 97103
58913 71226 83219 97127
58929 71410 83397 98218
59167 59664 59672 71590 726 08 72 62 7 83940 84468 846 85 99157
FJARMALARAOUNEYTID
REYKJAVIK 15. JUNI 1976
— Reykjavíkur-
bréf
Framhald af bls. 23
Nóbelsskáldsins rússneska urðu
eins ogfleinn íþjóðarsál Breta og
þannig átti hann e.t.v. öórum
einstaklingum fremur þátt í því
að við sigruðum þá í þessari sið-
ustu lotu á Islandsmiðum. Ærin
ástæða er til að bjóða Solsjenitsyn
til Islands af þessari ástæðu einni
saman, en hitt er augljóst hverj-
um manni, að enginn gestur ætti
að vera Islendingum kærkomnari
en sá, sem mest hugrekki hefur
sýnt i baráttunni við útþenslu-
stefnu heimskommúnismans, og
standa vonir til, að Solsjenitsyn
komi hingað fyrr en síðar. Sá, sem
varar við hættum af einræðisöfl-
um, er ekki striðsæsingamaður
heldur velgerðarmaður frjálsra
þjóða. Jón úr Vör ætti ekki að tala
illa um baráttu Solsjenitsyns,
þessa áhrifamesta starfsbróður
síns, boðbera frjálsrar hugsunar,
mannreisnar og mannréttinda,
heldur ætti hann að rétta honum
hjálparhönd á örlagastund.
Það yrði óskemmtilegt fyrir Jón
úr Vör, ef APN-„fréttastofan“
færi nú að vitna í ummæli hans
um Solsjenitsyn. En það skal hún
vita, að Jón úr Vör talar þessu
sinni ekki fyrir munn íslenzkra
rithöfunda. Afstaða Rithöfunda-
ráðs tslands er þeim væntanlega
meir að skapi.