Morgunblaðið - 20.06.1976, Page 44
ALGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
SUNNUDAGUR 20. JUn! 1976
Maður drukknar í
Rey kj a víkur höf n
ÞAÐ SLVS varð í Reykjavíkur-
höfn snemma í gærmorgun að 36
ára gamall maður féll í höfnina
og drukknaði. Ilann hét Sigurður
Viðar Hafliðason, til heimilis að
Hjallavegi 4. Hann var sjómaður
að atvinnu og einhleypur.
Slysið varð á sjötta tímanum í
gærmorgun. Sigurður og félagi
hans eínn voru á gangi á Granda-
garði. Af einhverjum ástæðum
féll Sigurður i sjóinn við Kaffi-
vagninn. Félagi Sigurðar henti
sér á eftir honum en áður en hann
náði til Sigurðar var hann
sokkinn. Lögreglan kom fljótlega
á vettvang og rétt á eftir kom
froskmaður úr björgunarsveitum
SVFÍ. Fann hann lík Sigurðar
eftir skamma leit.
Portúgal i öðru sæti
ISLENDINGAR eru enn í
efsta sæti OECD-þjóða í
verðbólguþróun. Meðal-
talsverðbólga aðildarríkja
OECD er nú á ársgrund-
velli 12,2%, en samkvæmt
skýrslum er verðbólgan á
íslandi 36,3%. Portúgalir
koma næstir með 22,8%
verðbólgu og í þriðja sæti
eru Bretar með 21,2%.
Samkvæmt nýjustu tölum
úr Hagtölum mánaðarins
hækkaði vísitala fram-
færslukostnaðar um 32,5%
síðustu 12 mánuði.
Samkvæmt skýrslu frá
OECD, Efnahagssamvinnu
og þróunarstofnunarinnar,
var verðbólgan miðað við
síðustu 12 mánuði 9% í
Kanada og 6,1% í Banda-
ríkjunum. í Japan var
verðbólgan 8,8%, í
Ástralíu 13,4%, á Nýja
Framhald á bls. 43
Ljósmynd Ól.K.M.
VEÐRIÐ — Það voru margir sem notfærðu sér að Sundlaug Vesturbæjar var aftur
opnuð í gær og var þar hver flekinn skipaður af sóldýrkendum. Veðurstofan spáir
hlýju veðri og sólskini sunnanlands og vestan I dag, skýjuðu á Austurlandi en
þokulofti og súld á Norður- og Norðausturlandi. Klukkan 12 á hádegi 1 gær var
sólskin og hlýtt veður frá Skeiðarársandi vestur og norður um að ísafjarðardjúpi.
Hiti var mestur 14 stig 1 Reykjavík og spáð var enn meiri hita síðar um daginn.
Umferðar-
slys á Héraði
ALVARLEGT umferðar-
slys varð á Héraði 1 fyrri-
Mánaðar
bið eftir
skattskrá
LÖGUM samkvæmt á að
leggja skattskrár fram í
dag, 20. júnf. Hins vegar
hefur útkoma þeirra
dregizt á undanförnum
árum og svo verður
einnig að þessu sinni, að
sögn Bergs Guðnasonar
lögfræðings Skattstof-
unnar f Reykjavfk. Sagði
Bergur að skattskráin f
Reykjavfk yrði lögð
fram seint f júlf og f
fyrsta lagi 20. júlf.
Bergur sagi að ýmsar
ástæður væru fyrir því
að útkoma skattskrár-
innar drægist ein mik-
ið og raun bæri vitni.
Ein ástæðan væri síð-
búnar lagasetningar en
aðalástæðan væri sú, að
fjöldi framtala væri orð-
inn svo mikill að við nú-
verandi aðstæður næðist
ekki að fullskoða öll
framtöl fyrir 20. júní,
eins og starfsfólki Skatt-
stofunnar væri uppálagt
að gera.
nótt, er bíll valt á blindhæð
um 3 km fyrir norðan
Egilsstaði. Tveir piltar
voru í bílnum og slasaðist
annar þeirra, farþeginn,
alvarlega og var hann flutt-
ur í Fjórðungssjúkrahúsið
á Neskaupstað. Ökumaður-
inn slapp ómeiddur, en
grunur leikur á að um
ölvun hafi verið að ræða.
Slysið varð um klukkan
04. Á blindhæð og beygju
missti ökumaður stjórn á
bifreið sinni, sem var af
Fiat-gerð. Valt bíllinn lík-
legast tvær veltur og fór út
af veginum. Farþeginn
slasaðist eins og áður er
sagt og eru meiðsli hans
innvortis.
Heyskapur jafnvel
hafínn á stöku stað
Horfur á hagstæðu sumri fyrir landbúnaðinn
„ÞAÐ er óhætt að segja, að það
horfir vel með þetta sumar fyrir
bændurna og landbúnaðinn,“
sagði Halldór Pálsson, búnaðar-
málastjóri, f samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það hefur verið
óvenju gott tíðarfar og gróðrar-
tfmi nú fyrrihluta sumars og f
vor.“
Halldór sagði, að fyrripartur
maímánaðar hefði að vísu verið
fremur kaldur en það naumast
komið að sök, því að seinnihluti
mánaðarins og það sem af væri
júní hefði verið óvenju hagstæður
gróðrinum. Heyskapur væri rétt
hafinn f örfáum stöðum en síðan
mætti búast við að hann hæfist að
einhverju marki eftir svo sem
vikutfma og yrði víðast hvar kom-
inn f fullan gang upp úr mánaða-
mótunum.
Halldór sagði, að grassprettan
væri enn tæpast orðin nógu mikil
til að sláttur gæti hafizt að ráði,
og mætti að nokkru rekja það til
þess að bændur beittu nú gjarnan
Viðbótarsamningur við Sovétríkin:
Kaupa 5 þús. tonn af
frystum sjávarafurðum
Helmingi minna magn en
aetlunin var að selja
SÖLUSAMTÖK hraðfrysti-
iðnaðarins — SH og sjávar-
afurðadeild StS — hafa að
mestu gengið frá sölu á um
5 þúsund tonnum af fryst-
um sjávarafurðum til
Sovétríkjanna. Er þetta
um helmingi minna magn
en fyrirhugað hafði verið
að selja þangað með slfk-
um viðbótarsamningi. Eft-
ir er að undirrita þennan
nýja samning formlega.
Samningurinn gerir ráð fyrir,
að Sovétmenn kaupi um 2500
tonn af frystum karfa og 500 tonn
af frystum flökum ýmissa fiskteg-
unda, svo sem löngu, keilu og
grálúðu en hins vegar eru svo
2500 tonn af heilfrystum fiski af
ýmsum tegundum, þó mest af
smáþorski, en einnig langhali og
flatfiskur.
Ekki munu forráðamenn ís-
lenzku sölufyrirtækjanna vera
ánægðir með það verð sem Sovét-
menn hafa getað fallizt á í þessum
samningum. Sérstaklega þykir
þeim flakaverðið lágt og mun það
vera meginástæða þess að viðbót-
arsamningur þessi hljóðar upp á
helmingi minna magn en upphaf-
lega hafði verið gert ráð fyrir að
selja til Sovétrfkjanna.
tún sín framan af sumri, sem
aftur gerði það að verkum að
grassprettan drægist heldur fram
á sumWð. Bændum þætti það þó
hins vegar ekki koma að sök, þar
sem með hinum stórvirku tækjum
sem nú væri farið að nota til
heyskapar, mætti vel ljúka
heyönnum á um mánaðartíma.
Hins vegar væri betra — ef mögu-
legt væri — að geta hafið heyskap
síðast í júní og júlí, því að þá væri
yfirleitt þurrkasamara en þegar
kæmi fram í ágúst.
Um sumarið í fyrra sagði
búnaðarmálastjóri, að heyfengur
yfir landið i heild hefði að mörgu
leyti verið allsæmilegur, en mjög
iélegur um sunnan- og vestanvert
landið en þetta áfall kæmi þó
fyrst fram hjá bændum á þessu
svæði nú á þessu ári. Fóðrið sem
þeir hafi orðið að gefa í vetur hafi
verið þriðjungi til helmingi lak-
ara en undir venjulegum
kringumstæðum og þurft hefði að
gefa mikið kjarnfóður með því.
Þetta kæmi sfðan fram í auknum
tilkostnaði bænda vegna auk-
innar kjarnfóðurgjafar jafnframt
því sem búfénaðurinn skilaði
minna arði. Halldór sagði enn-
fremur, að nokkuð hefði borið á
lambaláti í vor hér suðvestan-
lands sem ef til vill mætti rekja til
lélegs fóðurs eða jafnvel rangrar
kjarnfóðurgjafar en engu að síður
hefðu ekki orðið mikil brögð að
sjúkdómum í búfénaði af þessum
sökum. Búnaðarmálastjóri sagði
síðan, að ef þetta sumar yrði sem
nú horfði, ætti það að koma
bændunum til góða á næsta ári.
Verðbólgan enn
mest á Islandi