Morgunblaðið - 05.07.1979, Side 3

Morgunblaðið - 05.07.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ1979 3 Dræm hrefnuveiði síðustu vikurnar Veiða má 200 hrefnur við landið í sumar HREFNUVEIÐAR gengu vol íraman a£ sumri íyrir Norður- landi, en afleitlega nú síðustu þrjár vikurnar, að því er Davíð Kristjánsson á Akureyri sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Davíð gerir út tvo báta á hrefnuveiðar frá Akureyri og rekur fyrirtækið Reykmiðstöðina sem vinnur afurðir úr hrefnukjötk Auk báta Davíðs er einn bátur gerður út á hrefnuveiðar frá Árskógssandi, þannig að þeir eru þrír í Eyjafirði í sumar. Davíð kvaðst ekki vita nákvæm- lega hve margar hrefnur hefðu veiðst í sumar, en alls er leyfilegt að veiða 200 hrefnur hér við land í sumar. Er það sami aflakvóti og verið hefur undanfarin þrjú ár. Veiðitímabilið er afmarkað þann- ig að byrjað er á ákveðnum degi á vorin, og síðan veitt þar til leyfi- legum hámarkskvóta er náð. I vor hófust veiðarnar þann 20. maí, en í fyrravor hófust þær 25. apríl. Fjórtán bátar höfðu hrefnuveiði- leyfi í fyrra, en ekki er um það að ræða að kvótanum sé skipt niður á báta, þannig að þeir veiða mest sem fyrstir ná í aflann. Hrefnan, sem er lítill hvalur, er einkum veidd út af Eyjafirði, Skagafirði og Skjálfanda, en ann- ars heldur hrefnan sig umhverfis allt landið, allt frá Faxaflóa og norður og austur um að sögn Davíðs Kristjánssonar, til dæmis sagði hann alltaf vera talsvert um hrefnu inni á Breiðafirði. Einnig sagði hann hrefnu vera veidda talsvert fyrir Austfjörðum, en þar hefði veiðin verið mjög dauf í sumar, eða nánast engin. Hrefnukjötið fer allt á innan- landsmarkað, nema rengi og spik sem fer á markað í Japan. Að sögn Davíðs hafa undanfarin ár verið gerðar talsverðar rannsóknir á hrefnustofninum hér við land, en ekki mun fullljóst hvort íslenski stofninn er sá sami og sá hrefnu- stofn sem Norðmenn veiða austur af Jan Mayen og vestur af Hvarfi. Ryksugan sem svíf ur HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur undrun, vegna þess hve fullkomlega einföld hún er. Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpok rumar 12 litra. já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líður uni gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust fyrir þig, svo létt er hun. i "gerlé^ust... í*ú n c g 2 Ih a y | 9 e iMade in OSa) Kynningarverö 30% afsláttur Kr. 65.590.- $0^ Grunnvatnsstada á Suðvesturlandi lækkar stöðugt „I>AÐ þarf að fara að aðgæta með vatn á Reykjavíkursvæðinu, því grunnvatnsstaðan suðvestan- lands er orðin svo lág og heldur áfram að lækka. og sú þróun getur leitt af sér vatnsskort. að minnsta kosti verður erfiðara að ná í vatn,“ sagði Sigurjón Rist vatnamælingamaður í samtali við Mbl. í gær. Sigurjón sagði að hann setti skil við höfuðdag 1976, en síðan hefði grunnvatnsstaðan suðvestanlands farið stöðugt lækkandi. Mælingar í efri hluta Heiðmerkur sýndu, að grunnvatnsstaðan þar væri nú 7 metrum lægri en hún var 1976 og í neðri hluta Heiðmerkur er munur- inn 1.3 metrar. Suðurá, sem renn- ur úr Silungapolli, mældist 400 sekúndulítra í júnílok 1976 en 260 lítrar nú, og Hólmsá, sem var 6 teningmetrar (6000 lítrar) á sek- úndu 1976, mældist í lok júní sl. rúmlega hálfur teningsmetri, eða 580 lítrar á sekúndu. Sama þróun væri annars staðar, t.d. sýnir síriti í Kleifarvatni að vatnið er á niðurleið. Sigurjón sagði, að venjulega hækkaði grunnvatnið á vorin, en nú hefði svo brugðið við, að frá því leysingar hófust 23. maí og til júníloka hefðu leysingarnar ekki gert betur en að halda grunn- vatnsstöðunni í horfinu. HOOVER er heimilishjálp FALKIN N SUOURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 FerSaskrifstofan Ferðaskrifstofan usturstræti 17, II. hæð, símar 26611 og 201 Þú getur enn átt sumar í Utsýnarferð LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN Allar aðrar brottfarir uppseldar til 26. ágúst Verö frá kr. 170.400 Útborgun kr. 40.000 eftirstöövar á 5 mánuðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.