Morgunblaðið - 05.07.1979, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 05.07.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979 5 Bergur Jónsson skipaður rafmagnseftirlitsstjóri IÐNAÐARRÁÐHERRA, Hjör- leiíur Guttormsson, hefur skipað Berg Jónsson, verkfræðing, rafmagnseftirlitsstjóra ríkisins frá og með 1. þ.m. Fráfarandi rafmagnseftirlits- stjóri, Jón Á. Bjarnason, hefur að eigin ósk látið af störfum af heilsufarsástæðum. Hinn nýskipaði rafmagnseftir- litsstjóri, Bergur Jónsson, er fæddur 16. apríl 1934. Hann lauk prófi í rafmagnsverkfræði við Technische Hochschule í Munchen árið 1960. Starfaði síðan sem verkfræðingur hjá Siemsens- Schuckertwerke AG til 1966 við hönnun og eftirlit á rafbúnaði við Fyrirheit um að farm- gjöldin verði endur- skoðuð innan 2 mánaða — segjaforráðamenn skipafélaganna TILLAGA Verðlagsnefndar um að heimila skipafélögunum 18% hækkun á farmgjöldum sínum auk 4% hækkunar vegna gengis- breytinga kom ekki til afgreiðslu á ríkisstjórnarfundi í fyrradag. Að sögn Svavars Gestssonar, viðskiptaráðherra, vannst ekki tími til að afgreiða málið á fundinum en það verður tekið fyrir á næsta fundi ríkisstjórnarinnar. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélagsins, sagði að þeir teldu þessa afgreiðslu Verðlags- nefndar ófullnægjandi og teldu að það væri ekki rekstrargrundvöllur fyrir skipin með þessum hætti. „Okkur er sömuleiðis sagt að þetta sé bráðabirgðaafgreiðsla og á það hefur verið lögð mikil áherzla. Það er gert ráð fyrir að málið verði tekið upp á ný og afgreitt innan tveggja mánaða. Við teljum þetta ófaglega afgreiðslu á málinu, því við höfum engar athugasemdir fengið við okkar útreikninga, sem hafa verið lagðir fram og þeir hafa ekki verið gagnrýndir svo okkur sé kunnugt. Við bendum á að skipafélögin hafa frá í mars 1978 fengið 60% hækkun á þessum farmgjöldum en á sama tíma hefur olía hækkað um 290%, þó að vísu langmest allra síðustu mán- uðina og svo annað dæmi sé tekið sem allir skilja þá hafa dagblöðin á þessum tíma hækkað um 106%,“ sagði Hörður. Hörður sagði að skip Eimskipa- félagsins myndu ekki stoppa þótt ekki fengist meiri hækkun á farm- gjöldunum nú en þessi 22%. „Við teljum að það sé óhjákvæmilegt annað en staðið verði við fyrirheit um að þetta verði endurskoðað innan tveggja mánaða, því að þessi rekstur mun fara í strand með þeim farmgjöldum, sem skipafélögin fá nú,“ sagði Hörður. Ragnar Kjartansson, fram- kvæmdastjóri hjá Hafskip hf. sagði að skipafélögin teldu að þarna væri einugnis um bráða- birgðahækkun að ræða. Skipafé- lögin hefðu lagt fram rökstuðning fyrir hækkunarbeiðni sinni sem væri ótvíræður og kæmi þar fram að hækkunarþörfin væri um 40%. Félögin hefðu síðast fengið hækk- un á farmgjöldum í upphafi árs 1978 og frá þeiin tíma hefði allur innlendur kostnaður aukist um 40 til 42%, erlendur kostnaður um 10 til 12 og þá væri olían ekki meðtalin, sem hefði tvöfaldast í verði. „Við leggjum allt okkar traust á þá aðila, sem fara með endanlegt vald í þessum efnum og trúum því ekki að þessari atvinnu- grein verði úthlutað nokkurra milljarða tapi á þessu ári sem í raun væri ef þessi 18% hækkun væri ein látin gilda til áramóta," sagði Ragnar. F ákur kaupir Ragn- heiðarstaði í Flóa HESTAMANNAFÉLAGIÐ Fák- ur hefur keypt jörðina Ragnheið- arstaði i Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu og er ætlunin að jörðin verði nýtt sem beitiland íyrir hross félagsmanna Fáks og einnig verði þar aðstaða fyrir tamningastöð og hugsanlega reiðskóla og námskeiðahald á vegum félagsins. Að sögn Guð- mundar Ólafssonar, formanns Fáks, var endaniega gengið frá kaupunum nú nýverið en kaup- verð jarðarinnar er 37 milljónir króna og sagði Guðmundur að þessi kaup yrðu fjármögnuð með sameiginlegu átaki félagsmanna. Browne og Hiibner vilja tefla á Reykjavíkurmótinu BANDARÍSKI stórmeistarinn Walter Browne, sem sigraði á síðasta Reykjavíkurskákmóti, hef- ur þegið boð SÍ og TR um að tefla á Reykjavíkurmótinu í febrúar. Þá hefur v-þýzki stórmeistarinn Rob- ert Hubner tilkynnt að hann vilji gjarnan tefla á mótinu. Áður höfðu stórmeistararnir Korchnoi og Stean lýst áhuga sínum á þáttöku í Reykjavíkur- skákmótinu. Ragnheiðarstaðir eru 800 hekt- ara jörð og sagði formaður Fáks að um væri að ræða bæði tún og vallendi og væri þetta kjörið beitiland fyrir hross. Jörðin væri skammt frá Stokkseyri og góð aðstaða til útreiða í nágrenninu. Guðmundur sagði það ætlun stjórnar félagsins að gefa félags- mönnum kost á að taka á leigu girðingarhólf fyrir hross sín og einnig yrði sköpuð aðstaða fyrir þá sem þarna vildu dvelja bæði í tjöldum eða hjólhýsum um stund og vera við útreiðar. Þá væri ætlunin að ráða bústjóra á jörðina til að annast eftirlit en koma ætti upp aðstöðu á jörðinni fyrir tamn- ingastöð og til að hafa hross á vetrarfóðrum. „Með þessum kaup- um hefur ræst óskadraumur, sem hefur verið á stefnuskrá félagsins í áratugi, og opnast ýmsir mögu- leikar, sem félagið hefur ekki fram að þessu getað látið rætast," sagði Guðmundur. Þá má geta þess að Reykjavík- urborg hefur samþykkt að heimila Fáki afnot af auknu landi jarð- anna Saltvíkur og Arnarhoíts á Kjalarnesi til hrossabeitar utan hluta af túnunum í Saltvík og svæðis fyrir væntanlegar bygging- ar í Arnarholti. Hefur félagið með þessu fengið stærra land en það hafði áður úr þessum jörðum. Skuld ríkissjóðs hjá Seðlabankanum 26 milljarðar um áramót —10,9 milljarðarekstrar- skuld fyrstu 6 mánuði ársins Bergur Jónsson. raforkuver í Djakarta í Indónesíu, svo og að undirbúningi orkuvera í Þýskalandi, Spáni og Libíu. Frá árinu 1966 hefur Bergur verið verkfræðingur og síðar deildarverkfræðingur hjá Lands- virkjun og hefur m.a. unnið þar að hönnun og eftirlit með raforku- verinu við Sigöldu og fjölmörgum öðrum verkefnum. Þá hefur Bergur annast stunda- kennslu við Háskóla íslands og Tækniskóla Islands. REKSTRARSKULD ríkissjóðs hjá Seðlabanka íslands var 29. júní sl. 10.962 milljónir en var á sama tíma í fyrra 9.862 milljónir. Tómas Árnason, fjármálaráð- herra sagði í samtali við Mbl. að auk þessara tæpu 11 milljarða hefði skuld ríkissjóðs um síðustu áramót við Seðlabankann verið 26 milljarðar og hefði sú skuld verið að safnast saman á undan- förnum árum en hann vissi ekki um stöðu hennar nú. Varðandi fyrrnefnda 10.9 millj- arða króna skuld sagði Tómas að hún hefði verið að safnast saman á árinu en ríkissjóður væri með öll rekstrarviðskipti sín við Seðla- bankann og venja væri að tekjur ríkissjóðs væru miklu meiri seinnipart ársins, þannig að á fyrri hluta ársins væri jafnan um nokkra skuld ríkissjóðs við Seðla- bankann að ræða. Tómas sagði það rétt vera að hann hefði sagt að ríkissjóður væri á hausnum, er bifreiðaeig- endur afhentu honum mótmæli sín vegna hækkunar á benzín- verði. „Ég var að undirstrika það að ríkissjóður stæði ekki nógu veí, þegar ríkið skuldar 26 milljarða um síðustu áramót og að við bættri þeirri 10.9 milljarða skuld, sem safnast hefði saman á árinu. Það verður þó að gera greinarmun á þessu tvennu, því 26 milljarð- arnir eru föst skuld ríkissjóðs við Seðlabankann en 10.9 milljarðarn- ir eru rekstrarskuld sem á að jafnast út á árinu," sagði Tómas. Um samanburð milli ára sagði Tómas að hafa yrði í huga að heildarupphæð fjárlaga í ár væri mun hærri en í fyrra. Fjárlögin fyrir árið 1978 hefðu verið að heildarupphæð 139 milljarðar en það þyrfti meira rekstrarfjár- magn til að standa undir 208 milljarða króna fjárlögum eins og fyrir árið 1979. lllpÍÉtSsSi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.