Morgunblaðið - 05.07.1979, Side 39

Morgunblaðið - 05.07.1979, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979 39 ekki vilja haía þeirra eigið trúar- legt asklok fyrir sinn himin. Annars tel ég minningu míns góða læriföður og vinar misboðið með því að deila frekar um hann við G.G. En segja vil ég að lokum um Asmund biskup hið sama og sagt var um ísleif biskup Gissur- arson, að „æ kemur mér hann í hug, er ég heyri góðs manns getið“. Hundalógík Anselmusar Þá þykir mér týra á skarinu þegar G.G. þykist hafa búið til sína eigin friðþægingarkenningu! En af því að svo vill til, að hún kemur alveg heim við hina hlut- lægu friðþægingarkenningu, sem kennd er við miðalda-skólaspek- inginn Anselmus frá Kantaraborg (1033—1109), þá ætla ég að gefa svolítið yfirlit yfir kenningu hins síðarnefnda. Jón biskup Helgason segir í Kristnisögu sinni, að í höfuðriti Anselmusar: „Hvers vegna Guð gjörðist maður", sé oss gefinn í megindráttum friðþægingarlær- dómurinn, eins og hann hefir verið drottnandi innan kirkjunnar allt til vorra daga. í Sögu kristinnar kirkju segir Magnús Jónsson röksemdafærslu Anselmusar vera á þessa leið: „Guð hefir skapað manninn til þess að fylla upp í skarðið eftir föllnu englana. En syndin hefir gert þessa fyrirætlun að engu. Nú raskast engar fyrirætlanir Guðs, og því þurfti hér úr að bæta. En syndin hefir komið manninum í óendanlega skuld við Guð, því að brot gegn óendanlegri veru er óendanlega mikið. Þessa skuld getur maðurinn aldrei borgað, bæði af því að hún er óendanleg, en öll manna verk endanleg, og af því, að maður sem breytti alveg rétt, gerði ekkert annað en það sem hann er skyldugur til. Guð getur á hinn bóginn ekki gefið upp skuldina vegna eilífs réttlætis síns. Þar verður að koma refsing eða fullnægjugjörð. Refsing myndi gjöreyða mannkyninu, og þá næðist ekki tilgangurinn með sköpun mannsins. Hér verður því að koma fullnægjugjöj-ð. Hún verður að vera óendanleg, þ.e. á einskis færi nema Guðs sjálfs. En hún verður á hinn bóginn að koma frá manninum, sem skuldaði. Þess vegna er ályktunin: Enginn á að borga nema maðurinn. Enginn getur borgað nema Guð. Þess vegna varð Guð að gjörast maður. Og guðmaðurinn varð að deyja, því að með fullkomnu líferni sínu gjörði hann ekkert annað en það, sem hann var skyldugur til. En þar sem dauðinn er laun syndar- innar, átti hann ekki að deyja. Dauði hans er því borgun og hún óendanleg, og hún tilreiknast svo mönnunum". Það má segja, að Guð sé latinn fara þarna í gegnum sjálfan sig, eins og æfður fimleikamaður á slá. Ef nokkuð er til, sem kalla mætti „hundalógík", þá er það þessi röksemdaleiðsla Anselmusar. Og verði þeim að góðu, sem við henni vilja taka athugasemdalaust. En Jón biskup hefir þetta að segja: „Ekki þarf annað en lesa dæmisögur Jesú um glataða son- inn og skulduga þjóninn til þess að sannfærast um, hve langt er hér komið frá fagnaðarerindi Jesú, þegar kennt er, að hátign Guðs og hegnandi réttlæti setji föðurkær- leika hans takmörk, svo að Guð geti ekki fyrirgefið nema móðgun- arbætur hafi áður verið greiddar. I kenningu Anselmusar gætir miklu minna kærleikshugsjónar Jesú, eins og vér eigum hana í samstofna’-guðspjöllunum, en germanskra réttarhugmynda mið- aldanna. bar ber meira á réttlát- um Jahve gyðingdómsins en á gæzkurfkum föður drottins vors Jesú Krists“. (Kristnisaga II, bls. 215) Hreinskilni í trúarefnum „Ég legg ekkert upp úr því, hvernig mér eða sr. Bjartmari geðjast að þessari kenningu eða öðrum", segir Guðvin Gunnlaugs- son. Eru það harla einkennileg orð. Hvernig getur maður fylgt eða haldið fram einhverju því, sem maður er ekki sáttur við í hjarta sínu? Ég get það að minnsta kosti ekki, þó að G.G. finnist ekkert annað en sjálfsagt að gjöra slíkt þegar honum býður svo við að horfa. En ég er samþykkur siðbót- arhöfundinum, sem taldi „hvorki rétt né ráðlegt að breyta á móti samvizku sinni". Ekki man ég heldur betur en Jesús kallaði þá menn hræsnara, sem létust vera annað en þeir voru í raun og veru. Og orðið hræsnari var ekkert gæluorð í hans munni. Viðmælanda mínum væri að sönnu nokkur vorkunn með þessa afstöðu sína til samvizkunnar, ef hann hefði upp á vasann öruggt vottorð frá Guði sjálfum um það, að viðkomandi kenning væri frá sér komin og alveg eftir sínu höfði. En nú dreg ég það algjör- lega í efa, að hann hafi slíkt vottorð. G.G. kýs því þann kostinn að játa hugsunarlaust einhverja samsuðu misviturra manna á fyrri tíð, af því að hann heldur það sáluhjálparatriði að gera svo, en forsmáir þá greind, sem Guð hefir gefið honum til þess að hugsa málið sjálfur. Og þó talar hann um, að Guð hafi gefið mönnunum skynsemi til þess að meta rétt þá hluti, sem munur er á! Hreinskilni við sjálfan sig og aðra er gulis ígildi ekki síður í trúarefnum en á öðrum sviðum. Svo verður sannleikanum bezt þjónað og honum, sem er konung- ur í rfki sannleikans. Séra Sigurður Séra Sigurður Einarsson er einn þeirra, sem G.G. teflir fram málstað sínum til trausts og halds. Séra Sigurður var kennari minn í guðfræðideild, og ber ég alltaf hlýjan hug til hans, eins og allra kennara minna í deildinni. Ekki get ég þó neitað því, að trúfræðin sem hann bar á borð fyrir okkur, væri „eins og bögglað roð fyrir brjósti mínu“. Séra Sigurður var gáfumaður og tilfinninganæmur. Hann gat verið skemmtilegur með afbrigðum og orðsins list lék honum á tungu. En þrátt fyrir þetta má segja, að röksemdaleiðsl- an í trúfræðinni væri ekki að sama skapi sannfærandi á stund- um. Og svo óheppilega vill til, að í orðum þeim sem G.G. tekur upp úr bók hans um Kristna trú og höfund hennar, er sr. Sigurður allt í einu kominn inn í heim tvíveld- ■shyggju (Dualisma), sem meir hefir verið kennd við Zoroaster en Krist. En það skiptir G.G. auðvit- að engu máli. Hann er hvort sem er með annan fótinn í Gyðing- dómi, og þó að hinn fóturinn sleppi þá annað slagið yfir í forn-persneskan átrúnað, breytir það ekki svo miklu. Helvítistal Jesú Krists En þetta er að skapi Guðvins Gunnlaugssonar, að Satan sé gerður að eins konar jafningja Guðs almáttugs. Og segir hann, að „enginn tali meira um helvíti en Jesús Kristur sjálfur". Einhvern veginn kannast ég ekki við, að þetta geti verið rétt hjá manninum. Ég neita því ekki, að Jesús hafi minnzt á helvíti og forstjórann þar. En að honum hafi verið þetta eins kært umtalsefni og G.G. vill vera láta, það er hinn mesti misskilningur, eins og hver og einn getur sannfært sig um. Markúsarguðspjall, sem talin er traustasta heimildin, nefnir að- eins eitt tilfelli um þetta, þar sem Jesús talar um hneykslanir (Mark. 9.43—47). Sama er að segja um Lúkas, en fáeinir staðir í Matth. I Jóhannesarguðspjalli er helvíti ekki nefnt á nafn. Svipaða sögu er að segja um tal Jesú um „hinn vonda“. Mér sýnist því, að Jesús tali eins lítið um þessa hluti og hann kemst af með. En þarna er enn eitt dæmið um það, að menn sjá það eitt sem þeir vilja sjá. Greinilega væri G.G. það kærast, að Jesús hefði verið sítalandi um helvíti og eilífa fordæmingu. En þannig var það nú ekki, því að hann hafði um svo margt fegurra og betra að tala. Dómur Mannssonarins Viðmælandi minn telur mér hafa „orðið á í messunni", er ég vitnaði í orð Mannssonarins á efsta degi. (Matth. 25). En ég vissi vel, hvað ég sagði. Og aldrei hefi ég reynt að láta svo, að það sem skrifað stendur í hinni helgu bók, væri þar ekki skrifað. Hins vegar hefi ég minn skilning á Orðinu. Að hætta á glötun sé fyrir hendi, hefi ég aldrei dregið í efa. En saga Glataða sonarins endaði þó þann- ig, að hann kom aftur heim til föðurhúsanna. En við vorum að tala um „eilífa glötun", í merkingunni, endalausa og óafturkallanlega glötun, sem er annað mál. Og þeirri kenningu mótmælti ég, og geri enn. Mannssonurinn talar í Matth. 25 um „eilífa eldinn". Það gefur enga heimild til að álykta sem svo, að þeir sem þangað kunni að lenda, séu dæmdir til að vera þar endalaust. En það var þetta, sem ég vildi vekja athygli viðmæi- anda míns á: Mannssonurinn nefnir, í dómi sínum. ekki eitt einsta þeirra atriða, sem G.G. telur „höfuðatriði kristninnar“. Hvernig getur það, sem ekki kemur til orða á degi dómsins verið slík „höfuðatriði", sem hann vill vera láta? En ég sé, að G.G. hefir ekki skilið, hvað ég var að segja. Og er honum það ef til vill fyrir beztu! Hann getur þá haldið áfram að elska margnefnd „höfuðatriði" sín, sem þó Mannssonurinn á dóms- degi virðist ekki hafa hugmynd um, og hafði það ekki heldur á meðan hann gekk hér um kring á jörðu og gjörði gott. Þar rekur sig hvað á annars horn Svo má með sanni segja um skrif G.G. Hann segist t.d. „aðeins trúa á Jesúm Krist, krossfestan og upprisinn frelsara". Og þetta held- ur hann sjálfsagt. En svo er það deginum ljósara, að alls konar kerlingabækur eru honum engu síður kærar en það, sem Kristur kenndi og bauð, að ekki sé meira sagt. Því að ella hefði hann ekki talið það til höfuðatriða kristninn- ar, sem Kristur hvorki minntist á né hafði hugmynd um. Þá segir G.G. í öðru orðinu, að grundvöllurinn sé Kristur, en í hinu, að Biblían sé grundvöllur- inn. Eru þá grundvellirnir orðnir tveir? „Aumingja Páll“ vissi eng- an annan grundvöll en þennan eina, sem er Kristur. Og hann tók svo stórt upp í sig , að annan grundvöll gæti enginn lagt. En nú hefir G.G. sem sagt lagt annan grundvöll. Og þá veit maður það. Greinarhöfundur brenglar sam- an tvenns konar merkingu í orðinu „trú“. Hann virðist ekki gera greinarmun á guðstrú og hinu, „að leggja trúnað á“ eitthvað. Þess vegna villist hann líka út á þá braut að telja trúnað við kirkju- kenningarnar hinn eina sanna kristindóm. „Sumir vilja hafa Guð svo lítinn, að hann sé lítið meira en þeir sjálfir", segir G.G. En þó ætlar hann Guði sínum, það sem hann mundi ekki vilja gera sjálf- ur. Ég veit, að Guðvin er það góðmenni, að hann mundi engan vilja dæma til eilífrar útskúfunar. A.m.k. segir hann að það valdi sér sársauka að hugsa til þess, að sumir verði að lifa um eilífð fjarri Guði. En hann minnist þó ekki á, að Guði muni þykja þetta neitt miður. Og af því að hann sér enga leið til frelsunar þessum vesa- lingum, telur hann vfst að Guð almáttugur sjái það ekki heldur! Þá sýnist munurinn á Guði og Guðvini ekki svo ýkja mikill, þar sem sá síðarnefndi veit upp á hár, hvaða leiðir Guði eru færar, og hverjar ekki færar til frelsunar syndugum mönnum. En G.G. segir að það hafi engin önnur leið til verið en sú, sem áðurnefnd frið- þægingarkenning útlistar svo fag- urlega. En eftir þeirri kenningu virðist freisunin fólgin f þvf að losna við syndagjöldin en ekki hinu, að þroskast að vizku og vexti og náð hjá Guði og mönn- um. Páll hélt, að keppikeflið væri það að losna undan valdi syndarinnar og verða Kristi líkur. „Ef þér hafið ekki anda Krists, þá eruð þér ekki hans“, voru orð postulans. Og hver vill neita því, að þetta sé rétti mælikvarðinn á kristindóm vorn? Eiðrof prestanna í Vísisgrein sinni bregur G.G. prestum um það, „allmörgum" þeirra, að þeir „rjúfi þann eið, sem þeir hafa gefið, er þeir voru vígðir til embættis". Það verður ekki sagt um grein- arhöfund, að hann skeri ásakan- irnar á hendur prestum við neglur sér. En ætla mætti, að menn segi ekki svona um bræður sína í Kristi, að raunalausu. En í hverju eru svo þessi „eiðrof" fólgin? Þau eru fólgin í því, sem komið hefir fram í þessum umræðum, að „allmargir“ prestar hafa ekki talið sér skylt að beygja kné sín fyrir úreltum kirkjukenningum. En svo er kannski rétt að geta þess, áður en lengra er haldið, að það er engin prestaeiður til. Og þetta hefði G.G. átt að kynna sér áður en hann reiddi refsivöndinn á loft. Prestaeiðurinn var afnuminn 1888. Prestaheit kom í staðinn, en með handbókinni frá 1910 var það líka afnumið. Það er nú látið nægja, að biskup brýni fyrir vígsluþega, að hann „prédiki Guðs orð hreint og ómengað, eins og það er að finna í hinum spámannlegu og postullegU ritum, og í anda vorrar evangelísku lútersku kirkju". Þetta er það sem snertir kenninguna. í lokin spyr biskup, hvort vígsluþegi „lofi því í einlægu hjarta, að gjöra þetta eftir því, sem Guð gefur honum náð til“. Jáyrði vígsluþegans er hvorki eiður né heit, heldur viljayfirlýs- ing. Eins og sjá má, er vígsluformáli þess mjög rúmur, hvað kenning- una snertir og þýðir í rauninni það, að kenningarfrelsi er viður- kennt innan þjóðkirkjunnar. Vígsluþegi lofar því einu, að prédika Guðs orðið eftir beztu vitund. Annars er heldur ekki rétt eða ráðlegt að krefjast af honum. Svolítið um nátt- tröllin og fleira Mótsagnakennt er það, eins og fleira hjá margnefndum greinar- höfundi, að hann skuli kalla: „nátttröll, sem dagað hafa uppi í kirkjunni", þá, sem hann segir þó fylgja miklu yngri guðfræðistefnu en sjálfur hann gerir. Og í skrifi sínu vitnar hann með velþóknun í orð eins og þessi. „Þannig er í stuttu máli heimsmynd kristinnar trúar, gamaldags og einföld, eins og hún hefir verið alla þá stund, sem liðin er síðan Jesús Kristur umgekkst hér á jörðinni. Og hún á að vera það“. Heimsmynd kristinnar trúar á því að vera „gamaldags“, að mér skilst. Nú hefi ég alltaf álitið, að nátttröllin hafi einmitt verið gam- aldags en ekki nýtízkuleg! Það væri því miklu eðlilegra að hugsa sér, að G.G. væri þarna að tala um sjálfan sig og sína trúbræður og systur. Því að óheppnari og slysa- legri gat hann ekki verið í þessum samlíkingum sinum. En manni bregður svo sem ekkert við, þótt vart verði hug- takaruglings og hugtakafölsunar nú á tímum. Svo algengt er þetta orðið. Einræðisríkin skreyta sig með nöfnunum „lýðveldi" og „al- þýðulýðveldi". Og þeir sem mestir eru „heimsvaldasinnarnir" sjálfir, nota það heiti óspart um óvini sína. Svipað þessu gerist á trú- málasviðinu hérna hjá okkur. Seytjándualdar-menn kalla and- stæðinga sína „nátttröll" og grall- arasinnar tala hneykslaðir um „trúmálaafturhald", og svo fram- vegis. Er þetta í senn broslegt og raunalegt. Ekki veit ég svo gjörla hvað G.G. er að fara þegar hann segir, að „margir þessara presta hafi e.t.v. aldrei ætlað sér að verða prestar, heldur tekið þetta sem hverja aðra atvinnu, af því að það þurfti styttra háskólanám til þess en margra annarra greina". Munurinn á lengd námsins, miðað við ýmislegt annað nám, er ekki svo mikill að það geti hafa skipt sköpum. Og sé hugsað um „atvinnuna", þá hefir margt annað þótt ábatavænlegra um dagana en prestsstarfið. Manni sýnist það vera orðið flest, sem G.G^finnur „þessum prestum" til foráttu, og iengu líkara en að upp sé risinn nýr „prestahatari" á meðal vor. Rétt er það, að margir eru sjálfsagt kallaðir, en fáir útvaldir í þessari stétt. En mundi það ekki einnig geta átt við um fleiri, sem gegna ábyrgðarstöðum? Mér er næst að halda, að Guðvin Gunnlaugsson hafi langað til þess að verða prestur, og því brenni honum í brjósti þessi meinlega gremja til prestanna, þótt ómakleg sé. En eins og í Völuspá segir, kemur sú tíð, að „böls mun alls batna" og „gullnar töflur aftur í grasi finnast". Svo sér nú líka G.G. fram á það, að upp muni renna betri tímar, því að „nátt- tröll" í prestastétt séu nú mjög á förum. Og þakkar hann biskupi og „ýmsum kennurum guðfræðideild- ar“ þá heillaþróun. Ég er bjartsýnn á framtíð kristninnar í landinu, eins og Guðvin, þó að óskir okkar um framvinduna muni ekki falla í sama farveg. Og vissulega má alls góðs vænta af hinni ungu presta- kynslóð, og hið sama af kennurum guðfræðideildar, sem ég veit að leggja kapp á það eitt að leita sannleikans. Og um biskup vorn, herra Sigurbjörn Einarsson, vil ég segja þetta: Ég er þess fullviss, að hann vill ljós yfir land — en ekki myrkur. Hvað er kristindómur? Það verður auðvitað aldrei gefið fullkomið og endanlegt svar við þeirri spurningu. Og eðlilega hljóta svörin að verða á misjafna lund. En dálítið kaldhæðnislegt er það, þegar „höfuðatriði" kristin- dómsins eru komin út fyrir flest það, sem Jesús Kristur kenndi og bauð. Við höfum kynnzt því rækilega, hvað Guðvin Gunnlaugsson telur — ekki aðeins kristindóm — heldur „höfuðatriði kristninnar“. En nú langar mig að heyra fleiri raddir um þetta að lokum. Er sannast að segja orðinn hálf- þreyttur á guðfræði G.G. og skoð- unum hans á kristindóminum. Og nú sný ég mér til skáldanna og spyr fyrst séra Kai Munk, hvað hann haldi í þessum efnum: „ó, hvað er kristindómur? Einungis það. að hafa öðlazt traust á Guði — traust fyrir Krist. Hann er engan veginn það, að mælt sé fyrir vegum Guðs og þeim lýst, eða skrá afhent um eiginleik^v hans og einkenni, heldur er kristindómur- inn leyfi til að treysta því örugg- iega, að Guð sé veruleiki og breytist aldrei. heldur hafi alia þraeði í hendi sér. Já, það er þetta traust, sem er nógu voldugt til þess að þurfa hvorki að vita né skilja. Það getur sagt í sömu andrá: „Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig?“ og þegar á eftir:. „Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn“. Skáldið Stephan G. Stephans- son gefur megininntak fagnaðar- boðskaþar Jesú í þessum tveimur ljóðlínum: „Hann kenndi að mannást heit og hrein til himins væri leiðin ein“. Svör þessara tveggja andans manna eru náskyld, þótt ólík virðist vera. En samanlögð segja þau hið sama og felst í boðorðinu. sem Jesús Kristur sagði æðst þeirra boðorða, sem vörðuðu veg- inn til lífsins. Svo sendi ég Guðvini Gunn- laugssyni, og öllum sem þessi orð sjá, beztu sumarkveðju. 30. apríl 1979. Bjartmar Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.