Morgunblaðið - 17.06.1980, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ1980
Hópferðabílar
8—50 farþega
Kjartan Ingimarsson
sími 86155, 32716.
Kjósum
PÉTUR
hann er sá eini sem
eykur stööugt fylgi
sitt, því um hann
geta allir sameinast.
burðarfólki
AUSTURBÆR
Laugarvegur
frá 101 — 171.
VESTURBÆR
Hringbraut
frá 37—91.
Hjarðarhagi
frá 44—64.
UPPLÝSINGAR
í SÍMA
35408
Hljóðvarp kl. 19.35:
Allt í
grænum
sjó
Á dagskrá í hljóðvarpi í kvöld
kl. 19.35 er þátturinn Allt í
grænum sjó í umsjá Jörundar
Guðmundssonar og Hrafns Páls-
sonar.
Hrafn sagði aðspurður um efni
þáttarins, að í þetta sinn yrðu þeir
með gamlar perlur, stutt leikin
samtöl — uppsuðu — auk þess
sem Jörundur syngi og talaði
iungum.
Sjónvarp kl. 20.30:
Þjóðlíf
Á dagskrá sjónvarps kl.
20.30 í kvöld er þátturinn
Þjóðlíf í umsjá Sigrúnar
Stefánsdóttur. í þessum
sjötta og síðasta þætti
Þjóðlífs verður m.a. farið í
eggjatökuferð í Súlnasker
og í heimsókn til Krist-
jáns Davíðssonar listmál-
ara. Rætt er við nýstúd-
enta og stúdent sem út-
skrifaðist fyrir 70 árum.
Hamrahlíðarkórinn kem-
ur við sögu, og einnig
verða meðal gesta Spán-
verjarnir Els Comediants.
Valdimar Leifsson stjórn-
ar upptöku.
Kvikmyndatökufólk frá sjónvarpinu fór með bjargveiðimönnum i Vestmannaeyjum fyrir skömmu i
eggjatöku í Súlnasker, en þar þarf að klífa liðlega 100 metra þverhnípt bjarg til þess að komast upp á
eyna. Er það talin erfiðasta bjargleið á íslandi, þvi að víða slútir bergið fram yfir sig. Kvikmyndað var
fyrir Þjóðlifsþátt Sigrúnar Stefánsdóttur. A myndinni eru frá vinstri: Ernst Kettler, Páll
Steingrimsson, Ása Linda Guðbjörnsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Valdimar Leifsson, Guðjón Jónsson,
Sigurður Karlsson, Þorkell Húnbogason og Valur Andersen. Ljósmynd Mbi. Ami Juhnspn.
Hljóðvarp kl. 11.15:
Sáttmálinn við Guð
Kl. 11.15 í dag verður útvarpað Guðsþjónustu frá
Dómkirkjunni. Prestur er séra Halldór S. Gröndal. Guð-
mundur Jónsson og Dómkórinn syngja. Organleikari er
Marteinn H. Friðriksson.
Séra Halldór var inntur eftir ræðuefninu og kvaðst hann
ætla að fjalla um sáttmála þann er íslenska þjóðin hefði gert
við Drottin Guð og staðfestur væri í helgasta riti hins
íslenska lýðveldis, stjórnarskránni. Síðan sagðist sr. Halldór
leiða hugann að gildi þessa sáttmála og því hvernig þjóðin
hefði haldið hann.
Sr. Halldór S. Gröndal.
Hljóðvarp kl. 20.30:
Beint útvarp frá
Laugardalshöll
Á dagskrá hljóðvarps kl.
20.30 á miðvikudagskvöld
er þáttur frá Listahátíð í
Reykjavík 1980. Þá verður
útvarpað beint fyrri hluta
söngskrár írska þjóðlaga-
flokksins „The Wolf Tones".
Útvarp Reykjavík
ÞRIÐJUDKGUR
17. júní
MORGUNINN
8.00 Morgunbæn. Séra Birgir
Ásgeirsson flytur.
8.05 Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur tvö íslenzk tón-
verk. Stjórnendur: Páll P.
Pálsson og William Strick-
land.
a. Hátíðarmars eftir Árna
Björnsson.
b. „Minni íslands“, forleikur
eftir Jón Leifs.
8.25 íslenzk ættjarðarlög,
sungin og leikin.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.20 Alþingishátíðarkantata
eftir Pál ísólfsson. Guð-
mundur Jónsson. Þorsteinn
Ö. Stephensen, Söngsveitin
Fílharmonía, Karlakórinn
Fóstbræður og Sinfóníu-
hljómsveit íslands flytja;
Róbert A. Ottósson stj.
10.05 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Lúðrasveitin Svanur leik-
ur íslenzk lög; Sæbjörn
Jónsson stj.
10.40 Frá þjóðhátíð í Reykja-
vík.
a. Hátíðaráthöfn á Austur-
velli. Þorsteinn Eggertsson
formaður þjóðhátíðarnefnd-
ar setur hátíðina. Forseti
íslands, dr. Kristján Eld-
járn, leggur blómsveig að
fótstalli Jóns Sigurðssonar.
Dr. Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra flytur ávarp.
Ávarp Fjallkonunnar.
Karlakórinn Fóstbræður og
Lúðrasveitin Svanur syngja
og leika ættjarðarlög, þ.á m.
þjóðsönginn. Stjórnendur:
Ragnar Björnsson og Sæ-
björn Jónsson. Kynnir Helgi
H. Jónsson.
b. 11.15 Guðsþjónusta i
Dómkirkjunni. Séra Halldór
S. Gröndal messar. Guð-
mundur Jónsson og Dómkór-
inn syngja. Organleikari:
Marteinn H. Friðriksson.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 „Að marka og draga á
land“. Guðrún Guðlaugsdótt-
ir tekur saman dagskrá um
Þjóðskjalasafn íslands. Rætt
við Bjarna Vilhjálmsson
þjóðskjalavörð, Sigfús H.
Andrésson skjalavörð og
Hilmar Einarsson forstöðu-
mann viðgerðarstofu o.fl.
SÍÐDEGID
14.45 Tónleikar Singóníu-
hljómsveitar Íslands í Há-
skólabíói 17. f.m. Hljómsveit-
arstjóri: Jean-Pierre Jac-
quillat. Einleikari á pianó:
Pascal Rogé — báðir frá
Frakklandi. Á efnisskrá eru
tónverk eftir Maurice Ravel:
a. „Við leiði tónskáidsins
Cuperins“, verk fyrir
strengjasveit.
b. Sónatína í Fís-dúr og
„Saknaðarljóð um látna
prinsessu“, bæði verkin fyrir
einleikspianó.
c. Píanókonsert i D-dúr fyrir
vinstri hönd.
d. „Bolero“, spánskur dans.
— Jón Múli Árnason kynnir.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Barnatími: „í æðarvarp-
inu“, leikrit eftir Líneyju
Jóhannesdóttur. Áður útv. á
sumard. fyrsta 1959. Leik-
stjóri: Ilildur Kalman. Leik-
endur: Þorsteinn ö. Steph-
ensen, Sigriður Hagalin,
Bessi Bjarnason, Árni
Tryggvason, Guðrún Þ.
Stephensen, Helga Valtýs-
dóttir, Steindór Iljörleifsson,
Rósa Sigurðardóttir, Halla
Hauksdóttir, Kristín Björns-
dóttir og Anna Hauksdóttir.
Guðrún Sveinsd. leikur
rimnalög á langspil.
17.20 Síðdegistónleikar: Sam-
leikur í útvarpssal.
a. Unnur María Ingólfsdóttir
ÞRIÐJUDAGUR
17. júni
og
20.00 Fréttir, veður
dagskrárkynning
20.20 Þjóðhátiðarávarp for-
sætisráðherra, dr. Gunnars
Thoroddsen.
20.30 Þjóðlíf
í þessum sjötta og síðasta
þætti Þjóðlífs verður m.a.
farið i eggjatökuferð i
Súlnasker og í heimsókn til
Kristjáns Davíðssonar list-
málara. Rætt er við nýstúd-
enta og stúdent, sem út-
skriíaðist fyrir 70 árum.
Hamrahlíðarkórinn kemur
sögu, og ein»'
meðal gesta Spánverjarnir
Els Comediants.
Umsjónarmaður Sigrún
Stefánsdóttir. Stjórn upp-
töku Valdimar Leifsson.
21.40 Abba
Þessi mynd var tekin á
hljómleikaferð Abba um
Evrópu og Bandarikin á
síðasta ári.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
22.30 Hinn íslenski þursa-
flokkur
Gömul kvæði í nýjum
þjóðlegum ^nmg. Áður á
uagskrá 27. janúar 1979.
verða 23.05 Dagskrárlok
J
og Allan Marks leika á fiðlu
og píanó:
1: Fiðlusónata í A-dúr eftir
Francesco Geminiani.
2: Fiðlusónata í a-moll eftir
Robert Schumann.
3: Vocalise op. 34 nr. 14 eftir
Sergej Rakhmaninoff.
4: Meditation op. 32 eftir
Alexander Glazúnoff.
b. Danski hljómlistarflokk-
urinn „Den Fynske Trio“
leikur Trió i B-dúr op. 11
eftir Ludwig van Beethoven.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Allt í grænum sjó. Jör-
undur Guðmundsson og
Hrafn Pálsson standa að
gamanmálum.
20.00 Frá tónleikum Lúðra-
sveitar verkalýðsins í
Iláskólabiói 8. marz sl.
Stjórnandi: Ellert Karlsson.
Kynnir: Jón Múli Árnason.
20.35 Úr bréfum Jóns Sigurðs-
sonar; — síðari lestur. Finn-
bogi Guðmundsson lands-
bókavörður les.
21.00 Kórsöngur í útvarpssal:
Selkórinn syngur islenzk og
erlend lög. Söngstjóri: Ragn-
heiður Guðmundsdóttir. Ein-
söngvari: Þórður Búason.
Pianóleikari: Lára Rafns-
dóttir. ,
21.25 Menntaskólinn á Akur-
eyri 100 ára. Þáttur frá
hátiðarhöldum vegna afmæl-
isins. Ólafur Sigurðsson
fréttamaður stjórnar.
22.00 Tveir Strauss-valsar.
„Listamannalif“ og „Raddir
vorsins“ Filharmoniusveitin
i Vínarborg leikur; Clemens
Krauss stj. r-
2? ¥' - .
—« veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Danslög. Svavar Gests
velur lögin fyrsta klukku-
tímann. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.