Morgunblaðið - 17.06.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.06.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ1980 Allt í einn pakka ALLT í EINUM PAKKA Leikrit: Beðið eftir Godot Leikstjóri: Oddur Björnsson Þýðandi: Indriði G. Þorsteinsson Lýsing: Ingvar B. Björnsson Leikmynd og búningar: Magnús Tómasson Leikarar: Árni Tryggvason/ Bjarni Steingrímsson/ Viðar Eggertsson Theodór Júlíusson/ Laurent Jóns- son Samúel Beckett er skrýtinn fugl. Hann þykir dagfarsprúður. Enda hefir hann komið sér notalega fyrir í nágrenni Parísar ásamt elskulegri konu. En verk hins sama Beckett bera ekki vott, borgarlegarar nægjusemi og gárulausra sálarhylja. Öðru nær, þar er líkt og velli og sjóði leirhver fullur af andstyggi- legum kykkvendum. I senn efnis- iegum og lifandi á sálarfóðri einu saman. Sá mismunur sem þarna kemur fram í daglegum háttum Beckett karlsins og þess innri manns sem verk hans birta — er klassískt dæmi um þá miklu gjá sem oft er milli listamannsins og borgarans. Gjá sem ýmsir t.d. Salvador Dali reyna alls ekki að brúa, en aðrir brúa á þann hátt að aðskilja daglegt líf og það líf sem þeir lifa í verkum sínum. Auðvitað eiga allir menn sinn innri heim sem oft er ansi ólíkur hinum ytri, en ég held að sá innri sé oftar fyrirferðarmeiri hjá þeim sem fást við listsköpun, einfald- lega vegna þess að þeir hafa framfæri sitt af því að birta hann. Það er svo hinna að njóta þessarar birtingar. Ef þetta er skoðað hagfræðilega þá sést að starf listamannsins er þjóðhags- lega hagkvæmt. Á þann hátt að ákveðinn afmarkaður hópur manna þ.e. listamenn sér um að fá sínum innra heimi þekkjan- legt form í listaverki. Sem síðan hinir geta notið í afmörkuðum tíma t.d. með kvöldstund í leik- húsi. Þess á milli geta svo hinir þ.e. meirihlutinn sem ekki fæst við Iistsköpun einbeitt sér að hinum efnislega heimi, fram- leiðslunni og öllu sem henni fylgir- gg er hræddur um að stjórnendum þessa lands þætti miður ef allur almenningur tæki að blanda saman listsköpun og daglegu amstri. Nei þá er betra að listame'nn séu vellaunaður Lelkllst eftir ÓLAF M. JÓHANNESSON hópur sem getur einbeitt sér að því að uppfylla þessa þörf í mannlegu samfélagi. Því betur sem þessi hópur er launaður og því meiri frið sem hann fær til sköpunar því betra fyrir þjóðina. Stendur ekki skrifað: maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. Eitt gott dæmi um vel skipu- lagða liststarfsemi er Listahát- ið. Þar fær þjóðin í einum pakka samanþjappað fóður fyrir heil- ann sem endist langt fram á næsta vetur. Finnst mér þetta fyrirkomulag stórsniðugt og mjög í ætt við þann súper- markaðanútíma sem við lifum í þar sem hægt er að fá hina ólíklegustu hluti í „einum pakka" raunar allt frá heilum húsum oní sjónvarpsmálsverð. Má segja að á listahátíðum sé nýting listamanna í hámarki og ættu þeir raunar að vera á bónus meðan á þessari vertíð stendur. í einu er þó listapakki ársins í ár frábrugðinn svipuðum pökkum fyrri ára. Nú er í fyrsta sinn reynt að færa hinn hluta þjóðfé- lagsins þ.e. þann sem stendur fyrir utan listagengið, inn í hringrásina gera hinn almenna mann einn hluta af listahátíð- arpakkanum ef svo má segja. Þetta er djörf tilraun hjá for- stöðumönnum Listahátíðar 80. Virðingarverð tilraun og vafa- laust þjóðhagslega hagkvæm því hún fer fram á sumarleyfistíma og til allrar hamingju í góðu veðri. Það var gaman að upplifa einn þátt þessarar tilraunar á sýningunni Beðið eftir Godot. Það vildi nefnilega þannig til að LISTAHÁTÍÐ 1980 Listasafn alþýðu hefur nú hafið starfsemi sína í nýjum húsakynnum að Grensásvegi 16 og keyrir að fullu í tilefni Listahátíðar með stórglæsilegri sýningu á myndaröð spánska snillingsins Francisco Goya. Ríkislistasafnið í Helsingfors lánaði myndaröðina hingað, sem er stórmannlega gert enda í fyrsta skipti sem frændur vorir lána myndaröðina út fyrir landamærin, — jafnframt er þetta í fyrsta skipti sem Islend- ingum gefst kostur á að sjá þrykk eftir frumgerð meistar- ans. Goya er ekki mikið þekktur á íslandi nema í þröngum hópi myndlistarmanna og unnenda myndlistar en nú virðist vera farið að rofa til um kynningu á þessum einstæða snillingi. Fyrir rúmu ári færði Þjóðleikhúsið upp leikverkið „Ef skynsemin blundar" eftir Antonio Bureo Vallejo í þýðingu örnólfs Árna- sonar. Þetta var eftirminnileg leiksýning fyrir alla er þekktu til Goya og ævi hans, leikararnir gerðu hlutverkum sínum yfir- leitt góð skil, leikstjórn Sveins Einarssonar afbragð miðað við erfitt hlutverk. Vissulega mjög erfitt að miðla innilokuðum löndum sínum umbúðalausum tjákrafti og funheitum suðræn- um ástríðum, — líkast því að dansa Marzúrka við símastaur Leikritið sáu fáir enda var það tiltölulega fljótt tekið af fjölun- um en væntanlega verða það fleiri er skoða myndaröðina „Hörmungar stríðsins", — „los Desastres de la Guerra", og nota sér þar með einstakt tækifæri til að kynnast magnaðri list eins af fremstu myndlistarmönnum sögunnar. Mig langar til að kynna lista- manninn að baki verkanna í stuttu yfirliti og styðst þá við pistil er ég reit í leikskrá Þjóð- leikhússins og sem ég hafði mikið fyrir að berja saman enda heimildir margs konar og sumar reikular, en ég breyti textanum og heimfæri á sýningu mynda- raðarinnar. „Hverfum 234 ár aftur í tím- ann og lítum yfir sviðið, þar sem spánski snillingurinn og áhrifa- valdurinn Francisco Goya var borinn. Litla þorpið Fuendeto- dos stendur á aragónísku há- sléttunni ekki iangt frá Sara- gossa (Zaragoza), höfuðborg hins forna konungdæmis Ara- góníu, á Norður-Spáni. Út frá þröngri og bugðóttri þorpsgöt- unni greinist byggðin, sem sam- anstendur af nokkrum gráum og óhrjálegum húsum, en yfir þeim gnæfir svo þorpskirkjan, sem einna helzt svipar til kastala með sínum ströngu og köldu múrum. Landið er hrjóstrugt og lífs- kjörin hörð, íbúarnir, sem nefn- ast „Baturros", bera svip að aðstæðunum — jafnvel viður- nefnið Baturros, hefur yfir sér harðan og ósveigjanlegan hljóm. Á þessum slóðum rignir sjald- an, hér finnast engin lækjarföll « „Hér gerir Goya að mcginatriði myndarinnar hetjuiund konunnar". GOYA Ránfuglinn. 'r'rr .'.áJSC né vatnadrög og einungis eitt og eitt tré á stangli — líkast einbúum í auðninni. Fimm mán- uði ársins tekur landslagið á sig grænan lit, en aðra mánuði er það gult og brúnt. í einu af hinum gráu, fátæk- legu húsum í miðju þorpinu búa hjónin José Goya og kona hans Gracia Lucientes og nefnast líkt og aðrir íbúar þropsins „Labra- dores", en það útleggst jarð- yrkjufólk. Menn yrkja hér jörð- ina, en eiga hana ekki, því að greifinn af Fuentes, af hinni auðugu og nafnkenndu ætt Pignatelli, á allar jarðir í hérað- inu. Hér gerðist það, að þeim hjónum fæðist sveinbarn, og mun það með furðulegri ráðstöf- unum forsjónarinnar, að einn fjölhæfasti og litríkasti mynd- listarmaður síðari alda skildi vera borinn inn í jafn eintóna umhverfi og snautt af myndræn- um andstæðum, — þótt ekki skuli hér fortekið, að þorpið sjálft og umhverfi lumi á myndrænu samhengi. — Húsið, sem Goya fæddist í, stendur enn uppi eftir öll þessi ár, og engar heimildir eru til um það, hve lengi það hefur staðið uppi þar áður. Á veggnum, er snýr að þorpsgötunni, hefur ver- ið komið fyrir steintöflu og á henni stendur, að hér hafi FRANCISCO JOSÉ GOYA Y LUCIENTES fæðst hinn 30. marz árið 1746.“ Það má með sterkum líkum >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.