Morgunblaðið - 17.06.1980, Side 16

Morgunblaðið - 17.06.1980, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ1980 Stan Getz í Laug- ardals- höll ÞAÐ var ósvikinn jazz, sem fyllti Laugardalshöll- ina á laugardagskvöliö, er Stan Getz og félagar þeyttu hljóðfæri sín áheyr- endum til óblandinnar ánægju. Stan spilaði sjálfur á tenór- og barritónsaxó- fóna, en aðrir í hljómsveit- inni voru Andy Laverne, 33ja ára, sem spilaði á hljómhorð og píanó, Chuck Loeb, sem spilaði á gítar, 25 ára, Brian Bromberg, sem spilaði á bassa og bassagítar, tvítugur og Mike Ifyman, sem spilaði á trommur, 21 árs. Meirihluti laganna, sem þeir félagar spiluðu, voru frumsamin af þeim Loeb og Laverne, en inn á milli komu síðan klassísk og þekkt jazz- lög. Fyrsta lagið eftir hlé var Dessafinato, lagið sem gerði Stan Getz á síðari hluta 7. áratugsins heimsfrægan í poppheiminum, því að þetta var lagið, sem fleytti honum upp í efsta sæti vinsældalist- ans í Bandaríkjunum. Þetta hefur engum öðrum jazzleik- ara tekizt, hvorki fyrr né síðar. Þess má geta, að sjónvarpið tók upp alla hljómleikana, svo að sjónvarpsáheyrendur munu fá að sjá og heyra þá síðar. Kvintett Stan Getz á sviðinu i Laugardalshöll, frá vinstri Laverne við píanóið, Stan með tenórsaxófóninn Bromberg með bassann, Hyman við trommurnar og Loeb með gitarinn. Ljósm: Kristinn Birgir ísl. Gunnarsson skrifar: Með Stan Getz í Laugardalshöllinni Fyrir jazzáhugamenn voru tónleikar Stan Getz í Laugar- dalshöllinni sl. laugardagskvöld vafalaust hápunktur Listahátíð- ar. Rúmlega 2000 manns hlýddu á tenór-saxófónsnillinginn blása með góðri aðstoð manna sinna. Fögnuðurinn var mikill — og ekki að ástæðulausu. Stan Getz er 53 ára gamall og hefur verið atvinnumaður í saxófónleik síðan hann var 15 ára. Auk frábærrar tækni hefur hann ekki sízt vakið athygli fyrir hinn mjúka hreina tón, sem er svo persónulegur að hann er hvarvetna auðþekktur og enginn tenórsaxófónleikari annar getur leikið eftir. Undanfarin ár hefur Stan Getz gert mikið af því að safna um sig ungum tónlistarmönnum með nýjar og ferskar hugmynd- ir. Svo er einnig að þessu sinni, en kvintett hans skipa kornungir menn, sem þó hafa allir þegar náð langt í list sinni. Ekki fór á milli mála að hér var um há- menntaða tónlistarmenn að ræða, sem auk þess að kunna sitt fag, hafa þann neista, sem gerir þá að góðum jazzleikurum. Elztur meðleikaranna, eða „The old man“ eins og Stan Getz kynnti hann, er píanóleikarinn Andy La Verne, 31 árs að aldri. Hann hefur allsérstæðan stíl og er greinilega undir áhrifum ým- issa meistara klassískrar tón- listar. Hann semur einnig og flutti kvintettinn tvö af lögum hans. Tveir þeirra félaga eru undir tvítugu, trommuleikarinn Mike Hyman (18 ára), sem sýndi góð tilþrif og bassaleikarinn Brian Bromberg (19 ára), sem er greinilega mjög efnilegur, hefur mikla tækni og var skemmtileg- ur í sólónum. Þá er enn ótalinn gítarleikar- inn Chuck Loeb, sein auk þess að vera frábær gítarleikari, er ágætis tónskáld, en þeir félagar fluttu fjögur verk eftir hann. Hann er 25 ára gamall. Stan Getz og félagar opnuðu hljómleikana með kraftmiklu lagi eftir píanóleikarann Andy La Verne. Þá strax kom í ljós, að Stan Getz er kraftmeiri blásari en menn e.t.v. hafa ímyndað sér, ekki sízt miðað við ýmsar eldri plötur hans. Tónninn er sá sami, en stíllinn annar en var. Ljúft og fallegt lag eftir gítarleikarann Chuck Loeb fylgdi á eftir. í báðum þessum lögum fengu tónskáldin að spreyta sig og fengu menn góðan forsmekk að því, sem síðar varð. Því næst kom gamalt og gott lag „Autumn leaves", þá aftur lag eftir gítarleikarann og þá var komið að fallegri ballöðu, sem eru uppáhaldsverkefni flestra tenórsaxófónleikara. Það var lagið „No more“, fimmtíu ára gamalt lag, sem Billy Holi- day söng á sínum tíma. Siðasta lagið fyrir hlé var enn eitt verk eftir gítarleikarann Chuck Loeb. í því var mikill kraftur og tækni. Tvíleikur þeirra Stan Getz og Loeb í lok lagsins var frábær og þar með lauk fyrri hluta tónleik- anna í mikilli stemmningu. Fyrst eftir hlé fengum við upprifjun frá „bossa nova“-tíma- bilinu, en Stan Getz átti mikinn þátt í að gera þessa brasilísku tónlist vinsæla á Vesturlöndum upp úr 1960. Nú lék hann án hlés tvö lög eftir Antonio Carlos Jobim, hið fræga Desafinado og Chega de Saudade. Ekki fór á milli mála að þetta var öðruvísi „bossa nova“ en Stan lék hér áður fyrr, ekki eins ljúft og seiðandi, heldur kraftmeira og ákveðnara. Nú var aftur komið að píanó- leikaranum Andy La Verne og fluttu þeir félagar fallegt verk eftir hann, þar sem góður píanó- leikur tónskáldsins naut sín vel. Þá kom falleg ballaða, að þessu sinni eftir Billy Strayhorn, sem mikið vann með Duke Ellington á sínum tíma. Hinn tæri og mjúki tónn Stan Getz naut sín vel í þessu lagi, en þó svellur skapið undir niðri. Þá var komið að lokalaginu og var það enn eitt verk eftir gítarleikarann Chuck Loeb. Þarna fóru allir fimmmenning- arnir á kostum og hver um sig fékk að láta gamminn geisa í löngum sólóum. Það notuðu þeir sér óspart og sýndu, að allt eru þetta mjög góðir listamenn. Ekki sízt var Loeb frábær í þessu verki. Ekki fengu þeir að yfirgefa sviðið strax. Fagnaðarlæti voru mikil og tvö aukalög voru leikin. Hið síðara enn ein ballaðan. Að þessu sinni lagið „Infant Eyes“ eftir tenórsaxófónleikarann Wayne Shorter, en það er meðal þeirra laga, sem eru á 50 ára afmælisplötu Stan Getz, en á afmælisdaginn voru teknir upp tónleikar í Montmartre-klúbbn- um í Kaupmannahöfn og gefnir út á tveggja plötu albúmi. Það er nokkuð táknrænt fyrir Stan Getz að píanóleikarinn Andy La Verne „fékk“ að enda tónleikana með einleik, þar sem hann lék af mikilli tilfinningu og var frábær í túlkun sinni. Stan Getz vill greinilega leyfa ungu mönnun- um, sem með honum eru að njóta sín. Sjálfur uppsker hann þann árangur að vera í stöðugri endurnýjun. Stíll og efnisval breytist í takt við nýja tíma í jazz-tónlistinni, sem ungir menn eru boðberar fyrir. Fyrsta platan, sem ég eignað- ist með Stan Getz var 78 snún- inga plata árið 1953 (upptaka 1950) með eigin kvartett. Nokkr- um árum seinna eða 1958 hlust- aði ég á hann á tónleikum í Gautaborg með Jazz at The Philharmonic, flokki Norman Granz. Það var allt öðruvísi Stan Getz, sem við hlýddum á í Höllinni sl. laugardagskvöld. Hann er kraftmeiri og ákveðnari nú, en hinn mjúki og þýði tónn er samur við sig. Hvort hann er betri nú eða þá — það er annað mál. Ég held að allir hafi farið ánægðir út í bjarta júní-nóttina að tónleikunum loknum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.