Morgunblaðið - 17.06.1980, Side 18

Morgunblaðið - 17.06.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1980 Samband ungra sjálfstæðismanna 50 ára: Torfi Hjartarson flytur ávarp, en aðrir á mvndinni eru f.v.: Anna Jónsdóttir, Erna Finnsdóttir, Geir Hallgrimsson o« Jón Maiínússon. Afmælishátíð á Þingvöllum Fjórir af stofnendum S.U.S., f.v.: Stefán Jónsson, Pálmi Jónsson, dr. Gunnar Thoroddsen og Torfi Hjartarson. FYRIR tæpum fimmtiu árum var stofnað Samband ungra sjáifstæðismanna i Reykjavik. nánar tiltekið 27. júní 1930. Þessara merku tímamóta var minnst á afmælishátið sam- bandsins sl. lauuardaK, sem haldin var í Valholl á Þingvöil- um. Fjöldi nesta sótti hátíðina, sem fór mjöi? vel fram, ok meðal þeirra voru fjórir þeirra manna sem sóttu stofnfund S.U.S. fyrir 50 árum, en þeir voru Torfi Hjartarson. fyrrv. sáttasemjari og fyrsti formaður S.U.S., Stefán Jónsson, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, Pálmi Jónsson, fv. skrifstofustjóri i Kveldúlfi hf. og dr. Gunnar Thoroddsen. varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins. Hátíðin á laugardag hófst með þvi að lagður var blómsveigur á minnisvarða Bjarna Benedikts- sonar. fyrrverandi forsætisráð- herra. konu hans og dótturson- ar, en að þvi loknu var móttaka i boði stjórnar S.U.S. i nýja bak- garðinum í Hótel Valhöll. Hátið- inni var siðan fram haldið með kvöldverði og ræðuhöldum, en meðal þeirra sem töluðu voru þeir Jón Magnússon, formaður S.U.S. og Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Þá tók einnig til máls Torfi Hjartarson, fyrsti formaður S.U.S., og lýsti hann m.a. að- dragandanum að stofnun sam- bandsins, en gerði siðan að umtalsefni ástand þjóðmála. Nefndi hann þann mikla ójöfnuð sem er á atkvæðavægi milli landshluta, en það kom siðar fram i máli varaformanns Sjálf- stæðisflokksins dr. Gunnars Thoroddsen, að leiðrétting á kjördæmamálinu yrði fram- kvæmd fyrir næstu alþingis- kosningar. Aðrir sem tóku til máls voru Þór Vilhjálmsson, Magnús Kristinsson, Kjartan Rafnsson. Árni Grétar Finnsson og Pétur Rafnsson. Sambandið fékk margar góð- ar gjafir á afmælinu og fjöldi skeyta og heillaóska bárust. Stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna veitti 6 af fyrrver- andi formönnum S.U.S., þeim sem voru viðstaddir, gullmerki félagsins sem nýlega var lokið við að hanna, en fyrrverandi for- menn félagsins, sem voru fjar- staddir, munu fá merkið afhent nú á næstunni. Afmælishátíðinni að Þingvöll- um lauk síðan með fjöldasöng, sem Stefán Jónsson stjórnaði. Um þessar mundir koma út tvö rit á vegum Sambands ungra sjálfstæðismanna í tilefni afmæl- isins. Greinasafn eftir Birgi Kjaran og afmælisrit sem inni- heldur greinar af ýmsu tagi eftir unga sjálfstæðismenn, sem fæstir hafa skrifað mikið áður. Frá borðhaldinu I Hótel Valhöll Maria Gisladóttir Loksins fæ ég tæki- færi til að dansa hér heima. Ég er búin að bíða eftir þessari stundu í mörg ár, „sagði María Gísladótt- ir ballettdansari við Wiesbaden óperuna í spjalli við Mbl. í gær, en í gærkvöldi dansaði hún á listdanssýningu í Þjóðleikhúsinu á veg- um Listahátíðar. Dansaði María, sem nýlega hefur verið ráðin aðal kvendansari við óperuna í Wiesbaden í Vestur-Þýzkalandi, atriði úr Þyrnirósu ásamt Roberto Dimitr- ievich frá Argentínu, en hann er helzti karldansari óperunnar í Wiesbaden. Þau María og Roberto dansa einnig í Þjóð- leikhúsinu á morgun, miðvikudag, og munu þá að auki dansa ball- ett sem saminn er við kafla úr 5. sinfóníu Mahlers, en höfundur ballettsins er Rob- erto. „Það er búið að bjóða mér hingað nokkrum sinnum, en það er ekki fyrr en nú að ég get þegið boðið. Það er erfitt að fá Þóra Einarsdóttir: Albert Guðmundsson Fyrir utan umfangsmikil störf í þágu ríkis og borgar er Albert Guðmundsson alþingism. virkur aðili og áhugamaður um lausn félagslegra vandamála, sem hvorki verða leyst með húsnæðis- né atvinnumálum. Hann gefur sér tíma til að hlusta. Hlusta á innstu og viðkvæmustu æðaslög samfé- lagsins, sem svo sannarlega ekki virðist öllum gefið, — og sem gefur honum tækifæri til að kanna dýpri mið — að leit hinna raunverulegu vandamála. Albert Guðmundsson er maður fjöldans — vinur smælingjans. Ófáir eru þeir einstæðingar, sem leita til Alberts Guðmundssonar um hjálp og aðstoð. Oft ver hann dýrmæt- um tíma sínum til hjálpar þeim, þótt hljóðlega sé um gengið — og ekki talið til ágætis né frama. Þetta skiftir þó í raun höfuðmáli í samskiptum manna. „Góður maður, er vill öðrum mönnum vel í orði og verki — er einn vitur maður“. Það skiptir ekki meginmáli fyrir forseta fámennrar þjóðar að vera kunnugur samkvæmisleikjum né sýndarmennsku. — En það er nauðsynlegt að þekkja þjóð sína — veg hennar og vanda — kosti og takmarkanir. Sá sem er hlutlaus Albert Guðmundsson og Þóra Elnar«íiA**!- ' • síðastliðin jól. ___..uir 1 jólafagnaði Varðar skortir þekkingu. Albert Guð- mundsson verður aldrei hlutlaus áhorfandi. Hann hefur augun opin fyrir vandamálum, sem oft fara fyrir ofan garð og neðan hjá flestum í ofurkappi lífsgæðakapp- hlaups. Albert Guðmundsson hef- ur til að bera þá reynslu og þekkingu, sem nauðsynleg er — svo saman megi fara virðing fyrir einstaklingnum — og farsælt for- ustuhlutverk. Á helgustu nótt ársins jólanótt- inni, þegar flestir njóta hvíldar og friðar í skjóli fjölskyldu gleymir Albert Guðmundsson ekki skyld- um sínum og samúð — sem kristinn maður, við einstæAi-— Og ÓPæf””— ' —^mga 0_.umenn. Mörg undanfarin ár hefur Albert Guðmundsson m.a. heimsótt jólafagnað Verndar, sem haldinn er fyrir einstæðinga á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.