Morgunblaðið - 15.07.1980, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
156. tbl. 67. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Brenndur
til bana
JóhannesarborK. 14. júlí — AP.
HVÍTUR maður brann til bana í
dai? þeuar kveikt var í tveimur
bifreiðum eftir ókyrrð meðal
svartra verkamanna i verksmiðju
SASOL sem vinnur olíu úr kolum í
Secunda i Austur-Transvaal.
Talsmaður fyrirtækisins sagði að
ókyrrðin sem náði hámarki með
íkveikjunni stafaði af orðrómi um að
hermaður hefði skotið blökkumann
til bana í gær.
Hann sagði að múgurinn hefði
kveikt í sendiferðabifreið, sem hvíti
maðurinn var einn í, og strætisvagni.
Talið er að farþegar hafi verið í
strætisvagninum, en engan þeirra
sakaði.
Einn hinna slósuðu borinn burt.
Eldblossar lýstu upp miðborgina eftir sprenginguna.
Símamynd Nordfoto.
Gífurleg* sprenging
í Kaupmannahöf n
Frá Sveinhirni Baldvinssyni.
í Kaupmannahófn í K«‘rkveldi. —
GÍFURLEG sprenging
varð í nótt um klukkan
00.45 að dönskum tíma í
Den Danske Sojakage-
fabrikk. sem stendur við
íslandsbryggju á Amager
í Kaupmannahöfn. Óvíst
var um slys á fólki, þegar
blaðið fór í prentun, en að
sögn lögreglunnar í Kaup-
mannahöfn, voru a.m.k. 22
fluttir í sjúkrahús.
Við sprenginguna lék allt
á reiðiskjálfi og var sem
jarðskjálfti væri. Allar
rúður í miðborg Kaup-
mannahafnar brotnuðu
meir eða minna, samkvæmt
því sem danska útvarpið
skýrði frá í gærkveldi.
Lögregla, slökkvilið, lækn-
ar og hjúkrunarlið var
kvatt á vettvang. Öll um-
ferð var bönnuð á svæðinu.
Samkvæmt heimildum
Rússar ráðast á
50 afgönsk þorp
Nýju Delhi, 14. júlí. AP.
SOVÉZKA herliðið i Afghanist-
an virðist hafa breytt baráttuað-
ferðum sinum og gert áhlaup og
ioftárásir á 50 til 60 þorp á
landsbyggðinni á undanförnum
tveimur vikum, og „mörg þús-
und“ óbreyttir borgarar og
skæruliðar hafa fallið að sögn
diplómata i dag.
Flugumferð Rússa til Kabul
hefur einnig aukizt greinilega
undanfarna fjóra daga og allt að
tólf rússneskar flutningaflugvélar
hafa komið að degi til auk birgða-
flugvéla þeirra sem halda áfram
að koma á nóttunni.
Fyrir um 10 dögum drógu Rúss-
ar úr tilraunum sínum til að
komast í færi við afghanska
skæruliða á landsbyggðinni og
juku í þess stað til muna árásir á
þorp, sem eru grunuð um að skjóta
skjólshúsi yfir skæruliða.
Afghanskur sérfræðingur segir
að fréttir hermi að meira en 1,000
hafi fallið í einu stóru þorpi og 38
í minna þorpi. Hann sagði að
fréttir um árásirnar bærust „svo
títt og reglulega" að hann teldi að
þúsundir hefðu beðið bana.
Hann kveðst hafa heyrt að
Rússar ráðist án viðvörunar, en
áður hafi skæruliðar sagt þorps-
búum að forða sér áður en árásir
yrðu gerðar á stöðvar Rússa.
Fámennara sovézkt herlið tekur
þátt í árásunum á þorpin, en
meira treyst á herflugvélar, þyrl-
ur og önnur þung hergöng.
danska útvarpsins mun
talsvert hafa veriö um
gripdeildir í verzlunum í
kjölfar sprengingarinnar,
þar sem verzlanir stóðu
opnar eftir að rúður í
gluggum þeirra brotnuðu.
Verksmiðjan stóð í ljósum
logum er Morgunblaðið fór
í prentun.
Lögreglan í Kaupmanna-
höfn birti í útvarpi viðvar-
anir til fólks um að halda
sig innan dyra, en vera
jafnframt viðbúið að yfir-
gefa heimili sín, þar sem
klórgas var geymt við verk-
smiðjuna og var talin
hætta á að það læki út.
Þyrfti þá að fjarlægja fólk
úr hverfinu. Lögreglan tel-
ur að orsök sprengingar-
innar hafi verið bensínleki
í þeim hluta verksmiðjunn-
ar, þar sem baunamjöl var
unnið úr sojabaunum.
Óttast var um öryggi 5
manna, sem voru á nætur-
vakt í verksmiðjunni. Þrjú
sjúkrahús tilkynntu að
þangað hefði verið flutt
fólk, sem slasaðist í spreng-
ingunni. Nokkrir voru
fluttir í sjúkrabifreiðum í
sjúkrahús í úthverfi Kaup-
mannahafnar, sem sérhæf-
ir sig í meðferð alvarlegra
brunasára.
Billy þáði
líbýskt fé
Washington, 14. júli. AP.
BRÓÐIR Jimmy Carter Banda-
rikjaforseta, Billy. skráði sig i
dag fulltrúa Libýu i dómsmála-
ráðuneytinu og skýrði frá þvi
að hann hefði fengið 220.000
doilara frá Libýu á þessu ári,
en kallaði það lán.
Dómsmálaráðuneytið hefur
lokið langri rannsókn á starfi
Billy Carter fyrir hönd Líbýu og
ákveðið að höfða ekki mál gegn
honum. Billy Carter er því
frjálst að halda áfram starfi
sínu sem fulltrúi Khadafy þjóð-
arleiðtoga.
Ráðuneytið hefur höfðað mál
gegn tveimur CIA-mönnum,
sem eru sakaðir um að reka
hryðjuverkaskóla fyrir Líbýu og
tilraun til að koma til leiðar
tilræði við fyrrverandi líbýskan
ráðherra í Egyptalandi.
15% fleiri með
Ronald Reagan
Detriot. 14. júli. AP.
RONALD Reagan hefur tryggt
sér 15% forskot fram yfir Jimmy
Carter forseta á undanförnum
vikum samkvæmt úrslitum i sið-
ustu skoðanakönnunum, sem voru
birtar i sama mund og flokksþing
repúblikana var sett i Detriot i
dag.
Framboð John Andersons hefur
einnig fengið byr í seglin, því að
aðeins 9% munur er á honum og
forsetanum. Reagan nýtur stuðn-
ings 42% kjósenda, Carter 27% og
Anderson 18%.
Fyrir síðustu kosningar studdu
53% Carter en 36% Gerald Ford
forseta rétt fyrir flokksþing demó-
krata, en eftir tilnefningu Carters
og fyrir tilnefningu Fords studdu
62% Carter en 29% Ford.
Sjá frétt frá fréttaritara Morgunblaösins í
Detriot á bls. 46.
Ilitabylg'ja hefur kostað
543 mannslíf vestanhaf s
RlKISSTJÓRINN i Missouri,
Joseph Teasdale, lýsti yfir neyð-
arástandi í rikinu i gær vegna
þrálátrar hitahylgju og skipaði
þjóðvarðliðinu að vera til taks.
Minnst 543 hafa látizt af
völdum hitabylgjunnar i 15 rikj-
um siðan hún hófst fyrir þremur
vikum, þar af að minnsta kosti
142 i Missouri.
Teasdale sagði að veðurfræð-
ingar hefðu skýrt frá þvi að
hitinn mundi sennilega haldast i
að minnsta kosti eina viku. Á
sunnudaginn mældist hitinn
42,2 stig i Kansas City.
Hitinn hefur verið svo mikill í
St. Louis, að fullorðinn órangútan
í dýragarði St. Louis, Kalle, sem
er frá frumskógum Malaysíu, lézt
af máttleysi af völdum hitans.
Mest mældist hitinn 35,5 stig í
St. Louis aom wr lítið miðað VÍð
hitann á öðrum stöðum. í
Memphis var 41,6 stiga hiti, mesti
hiti sem þar hefur mælzt síðan
mælingar hófust 1875. í Bates-
ville, Arkansas, var hitinn 43,8
stig eða 111 á Fahrenheit.
Auk þeirra sem hafa látizt í
Missouri hafa 88 látizt í Texas, 84
í Arkansas, 34 í Tennessee, 33 í
Oklahoma, 25 í Kansas, 24 í
Georgíu, 20 í Mississippi, 15 í
Illionois, 13 í Alabama, fimm í
Louisiana, fjórir í Kentucky, tveir
í South Carolina, tveir í Indiana
og einn í Nebraska.
Mesti hiti í Macon, Georgíu,
mældist 42 stig og George Israel
bæjarstjóri lýsti yfir neyðar-
ástandi. Loftkældur útisam-
komustaður var opnaður almenn-
ingi og strætisvagnar fluttu
þangað fólk, sem taldi sig vera í
hættu af völdum hitans.
I Florida segja embættismenn
að 10.000 kjúklingar hafi dáið úr
hitanum. Mest mældist hitinn 40
stig í Pensacola og ekki er búizt
við að hitinn minnki í að minnsta
kosti eina viku.