Morgunblaðið - 15.07.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
Færri
farþegar
í JÚNl kom til landsins
19.321 íarþegi með skipum og
flugvélum, en i sama mánuði i
fyrra kom alls 22.301 farþegi
eða 2.980 fleiri. Alls hafa frá
áramótum til júníloka komið
51.830 farþegar og í fyrra var
talan fyrir sama tímabil
59.034 eða rúmum sjö þúsund-
um fleiri.
íslenskir farþegar í júní voru
9.012 og útlendingar 10.309 og í
júní í fyrra komu 9.783 íslend-
ingar og 12.518 útlendingar. Af
erlendu farþegunum komu
flestir frá Bandaríkjunum eða
1.805, 1.439 frá Svíþjóð, 1.432
frá Noregi, 1.152 frá Vestur-
Þýskalandi og 1.105 frá Dan-
mörku. Þá komu m.a. 942 frá
Bretlandi og 551 frá Sviss og
100 Austurríkismenn.
Bogi óskaði ekki
eftir rannsókn
MISHERMT var í Morgunblaðinu á
sunnudag, að lögfræðingur Boga
Hallgrímssonar hafi borið fram
kæru þess efnis, að Bogi hafi verið
hrakinn úr embætti skólastjóra í
Grindavík. Sá aðili, sem krafðist
rannsóknar í málinu, var Arnmund-
ur Backmann, lögfræðingur Frið-
björns Gunnlaugssonar, sem áður
var skólastjóri í Grindavík. Bogi
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að það hefði aldrei hvarflað að
sér að krefjast rannsóknar, en á
hinn bóginn kvaðst hann fagna
rannsókninni, því að væntanlega
myndi hún leiða hið sanna í ljós.
Mótmæla
fóður-
bætisskatti
„MEÐ ÞESSARI skattlagn-
ingu hefur ríkisstjórnin fund-
ið enn eina leið til þess að
skattleggja almenning í land-
inu, því að endanlega greiða
neytendur skattinn í hærra
vöruverði. Þannig gengur rík-
isstjórnin enn einu sinn fram
fyrir skjöldu og eykur á
vandann í verðbólgustríðinu,“
segir í frétt frá Kaupmanna-
samtökum íslands þar sem
mótmælt er fóðurbætisskatti
og skorað á ríkisstjórnina að
fella hann niður nú þegar.
Segir í frétt Kaupmanna-
samtakanna að með skattlagn-
ingunni hyggist ríkisstjórnin
leysa vanda landbúnaðarins og
þar með minnka umframfram-
leiðslu á mjólk og dilkakjöti, en
þar sem landbúnaðarvörur séu
mjög verulegur hluti af vöru-
úrvali matvöru- og kjötversl-
ana hljóti slík ákvörðun að
hafa víðtæk áhrif á afkomu
þeirra verslana. „Kaupmanna-
samtökunum er ljós sá vandi,
sem blasir við í framleiðslu
mjólkur og dilkakjöts, og hafa
þau á öðrum vettvangi bent á
Íeiðir því til úrbóta. Hins vegar
er ljóst að ríkisstjórnin er með
þessum aðgerðum að „hengja
bakara fyrir smið“ þar sem
ákveðið er að framleiðendur
eggja, svína og kjúklinga greiði
einnig þennan skatt. Þessar
búgreinar hafa glímt við
vandamál vegna umframfram-
leiðslu og fjármagnsskorts, en
hafa leyst þann vanda án
nokkurrar fyrirgreiðslu opin-
berra aðila, hvorki í formi
styrkja, niðurgreiðslna eða út-
flutningsbóta," segir einnig í
frétt Kaupmannasamtakanna.
Tvær sölur
TVÖ ÍSLENZK fiskiskip seldu
afla sinn í Bretlandi í gærmorgun.
Guðsteinn seldi 155.3 tonn í Hull
fyrir 75.8 milljónir króna, eða 488
krónur hvert kíló.
Síðan seldi Súlan 75.6 tonn í
Fleetwood fyrir 41.7 milljónir
króna, eða 551 krónu hvert kíló.
Yfirvinnubann flugumferðarstjóra á Akureyri:
Starfsmenn Flugleiða ganga
í starf flugumferðarstióranna
Öryggisnefnd
FÍA hefur mótmæl
„Þá hefur það og gerzt í þessu
máli, sem við erum síður en svo
ánægðir með, að Flugleiðir hafa
sent sína menn norður til Akur-
„ÞAÐ REKUR hvorki né hrekur
i þessu máli, enda ekki eðlilegt að
mennirnir vilji vinna fyrir minna
kaup heldur en greitt er fyrir
sambærilega vinnu í Reykjavík,”
sagði Baldur Ágústsson, formað-
ur Félags flugumferðarstjóra, er
Mbl. innti hann frétta af deilu
flugumferðarstjóra á Akureyri
og samgönguráðuneytisins, en
flugumferðarstjórarnir hafa
FYRSTÚ tillögur nefndar, sem
rikisstjórnin skipaði á dögunum,
til að gera tillögur um úrlausnir i
efnahagsmálunum munu vera
væntaníegar nú fyrir næstu mán-
aðamót. þar sem gera þarf ráð-
stafanir til að draga úr þeim
kauphækkunum. sem koma eiga
ÍSLENZKA sendinefndin, sem
eiga mun viðræður við fulltrúa
Efnahagsbandalags Evrópu,
EBE, um veiðar við Austur-
Grænland. hélt utan í gærmorg-
un og munu viðræðurnar hefjast
í dag.
Hannes Hafstein, skrifstofu-
þessum aðferðum
neitað að vinna meiri eftirvinnu
en lög gera ráð fyrir, nema fá
sömu greiðslur og gerast í
Reykjavík.
til framkvæmda 1. september n.k.
samkvæmt hækkun framfærslu-
vísitölu.
Eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst mun framfærsluvísi-
talan hækka um 10,5 prósent nú
12. ágúst, en það leiðir til 9,0
prósent hækkunar kaupgjalds, þar
stjóri í utanríkisráðuneytinu, er
formaður nefndarinnar, en auk
hans sitja í henni Jón Arnalds,
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, Már Elísson, fiski-
málastjóri og Dr. Jakob Magnús-
son, fiskifræðingur.
eyrar, þar sem þeir gefa upplýs-
ingar um veður og aðstæður til
flugvéla félagsins. Þetta gera þeir
án þess að hafa aðgang að tækjum
vallarins gegnum talstöð. í þessu
sambandi má og geta þess, að
öryggisnefnd Félags íslenzkra at-
sem hækkun launahðar bónda í
búvöruútreikningi og hækkanir á
áfengi og tóbaki hafa ekki áhrif á
verðbótavísitölu samkvæmt lög-
um.
Sú leið, sem einkum virðist vera
rædd til að lækka verðbótavísitöl-
una er stórauknar niðurgreiðslur,
sem hafa munu veruleg áhrif á
stöðu ríkissjóðs. Ennfremur
mundu skattalækkanir, ef fram-
kvæmdar yrðu, hafa áhrif til
lækkunar vísitölu, en óvíst er talið
að til þess verði gripið, þar sem
það rýrir tekjur ríkissjóðs. Fyrst
um sinn mun ekki verða svigrúm
til aðgerða á sviði peningamála, en
þeirra mun þó að vænta í fram-
haldstillögum nefndarinnar, þar
sem hennar starf er mun víðtæk-
ara en svo, að það nái einungis til
aðgerða á sviði ríkisfjármála.
vinnuflugmanna, FIA, hefur fjall-
að um málið, og hefur hún mælt
gegn flugi við þessar aðstæður,"
sagði Baldur ennfremur.
Baldur sagði aðspurður, að fé-
lagið myndi ekki grípa til neinna
sérstakra aðgerða á næstunni,
heldur bíða átekta. Hann sagði
ennfremur, að sú hugmynd, að
senda aðstoðarmenn flugumferð-
arstjóra í Reykjavík norður, hefði
fallið um sjálft sig, þar sem engir
hefðu fengist til starfans. — „í því
sambandi er athyglisvert að bera
saman kostnaðinn, sem yrði því
samfara að senda aðstoðarmenn
norður og að borga mönnunum
þessar eðlilegu greiðslur. Það er
margfalt dýrara að senda menn-
ina norður, auk þess, sem því
fylgdi auðvitað minna öryggi,"
sagði Baldur að síðustu.
„Skorum á
forstjórann
að sanna
mál sitt“
VIÐ HÖFUM skorað á Sigurð
Helgason, forstjóra Flugleiða,
að hann leggi fram sannanir
fyrir þvi að nýting flugmanna
félagsins sé svo miklu verri en
hjá samkeppnisfélögunum. að
það kosti félagið milljarð á
ári. Staðreyndin er hins vegar
sú að fá flugfélög hafa jafn
rúman nýtingartima á flug-
mönnum og Flugleiðir, sagði
Kristján Egilsson. formaður
Félags ísl. atvinnuflugmanna,
er Mbl. bar undir hann frétt
frá Flugleiðum um slæma
nýtingu flugmanna félagsins.
— FIA menn eru orðnir
þreyttir á þeirri áráttu Flug-
leiða að kynna kjör einstakra
starfsstétta sinna, en þessi
fréttaflutningur er nógu lítill
til þess að hann gefur enga
hugmynd um kjör okkar. Það
er illt að sitja undir þessum
lestri þar sem rangt er farið
með staðreyndir málsins, sagði
Kristján Egilsson.
„Þjófurinn
skili sálinni“
„ÞAÐ SEM. mér er mest í mun,
er, að þjófurinn skili a.m.k.
sálinni ef hann hefur hugsað sér
að selja hjólið í brotajárn. því
hann á um fátt annað að velja.
svo auðþekkt er það,“ sagði
Olafur Sveinn Gíslason. heldur
óhamingjusamur ungur maður
sem leit inn á ritstjórn Mbl. í
gærkvöldi eftir að hjóli hans
hafði verið hnuplað við Héðins-
götu í gærdag.
„Þetta er mér nefnilega ekkert
venjulegt hjól. Þetta er gamalt
forláta sendlareiðhjól með stórri
grind framan á og tilheyrandi.
Það er og auðþekkt á því, að
framhjólið er mun minna heldur-
en afturhjólið," sagði Ólafur
ennfremur.
Að síðustu vildi Ólafur gefa
þjófnum gott ráð til að koma í veg
fyrir slys á honum, eða öðru fólki.
— „Farðu varlegum höndum um
stýri hjólsins, því það á það til að
detta af af minnsta tilefni". Ef
einhver skildi rekast á gripinn
getur hann haft samband við Ólaf
í síma 35933.
Slæm staða húsgagnaiðnaðarins:
Nokkur fyrirtæki hafa
lagt niður starfsemi
„ÞAÐ ER ekki hægt að neita
því, að staða velflestra fyrir-
tækjanna er mjög slæm. það
hefur stöðugt sigið á ógæfuhlið-
ina undanfarna mánuði með
auknum innflutningi," sagði
Ólafur Rúnar Árnason, formað-
ur félags húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðenda, er Mbl. innti
hann eftir stöðu islenzka hús-
gagnaiðnaðarins í dag.
og nokkur
íhuga um þessar
mundir lokun
„Það, sem veldur þessu fyrst
og fremst, er auðvitað það, að við
búum við mun verri starfsskil-
yrði heldur en keppinautar
okkar í nágrannalöndunum.
Ástandið er í raun svo slæmt,
að á undanförnum mánuðum
hafa nokkur fyrirtæki lagt niður
starfsemi sína og nokkur fyrir-
tæki eru um þessar mundir að
meta stöðuna með tilliti til þess
hvort eitthvert vit sé í að halda
rekstri áfram," sagði Ólafur
Rúnar ennfremur.
Unnið við fermingu og affermingu Fokkervéla Flugleiða á Reykjavíkurflug-
velli. Ljósmynd Mbl. Snurri Snorrasun.
Fyrstu tillögur efnahagsnefndar:
Stórauknar niður-
greiðslur á döfinni
Viðræður hefjast í dag