Morgunblaðið - 15.07.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
3
Ekkert lát á slysaöldunni
Hafnaði
í gjótu
AÐFARARNÓTT s.l. sunnudags
var lítilli Fiat fólksbifreið ekið
út af IlafnarfjarðarveKÍ i Engi-
dal ok hafnaði bíllinn i 5—6
metra djúpri gjótu og stór-
skemmdist. Ökumaðurinn var
einn i bilnum ok slapp hann
ómeiddur. Grunur leikur á þvi að
hann hafi verið ölvaður.
Fyrr um daginn varb slys á
Karlabraut í Garðabæ. Sendibíll
ók eftir götunni en skyndilega
missti ökumaðurinn vald á honum
svo hann valt. Ökumaðurinn
skarst töluvert í andliti.
Loks varð það slys á Arnarnes-
hæð sl. laugardagskvöld að stúlka
á bifreið ók aftan á kyrrstæða
bifreið. í þessu slysi urðu meiðsl
og skemmdir.
Billinn dreginn upp úr gjótunni,
í>rír menn drukknuðu
er bátar þeirra fórust
ÞRÍR menn drukknuðu er
bátum þeirra hvolfdi um
helgina á Gíslholtsvatni í
Holtahreppi ok Másvatni í
Reykjadal. Þeir hétu Ingi
Garðar Einarsson, Flúða-
seli 61 Reykjavík, sem la*t-
ur eftir sig konu og son.
Valdimar Björnsson,
Furulundi 6 Akureyri og
Halldór Sveinbjörnsson.
Ilrísum Saurbæjarhreppi.
báðir ókvæntir.
Fyrra slysið varð um kl. 8
á laugardagsmorgun á Más-
vatni í Reykjadal, skammt
vestan Mývatns. Þrír menn
fengu lánaða kænu í Más-
koti og héldu út á vatnið. Er
ekki ljóst hvort bátinn fyllti
af vatni eða honum hvolfdi,
en mennirnir féllu í vatnið.
Lögðust tveir þeirra, Valdi-
mar Björnsson og Halldór
Sveinbjörnsson, til sunds,
og náðu ekki landi, en lík
annars þeirra fannst 5—6 m
frá fjörunni. Þeir voru ekki
í björgunarvestum. Sá
þriðji hélt sig við bátinn og
tókst að svamla á honum að
landi.
Síðara slysið varð laust
eftir kl. 1 aðfaranótt sunnu-
dags á Gíslholtsvatni í
Holtahreppi í Rangárvalla-
sýslu. Þrír menn lögðu á
litlum bát út á vatnið, en
honum hvolfdi er þeir
skiptu um sæti í bátnum
þegar hann var staddur
milli 100 og 200 metra frá
landi. Drukknaði einn
þeirra, Ingi Garðar Ein-
arsson, og fannst lík hans á
sunnudagsmorgun. Hinum
tókst að ná landi við illan
leik, en þeir voru búnir
björgunarvestum.
Dróst 50-60
metra
með
strætisvagni
LITLU munaði að slvs
yrði í Reykjavík í gær-
dag, þegar þriggja ára
drengur festist í aft-
urstuðara strætisvagns
og dróst með honum
50—60 metra en féll
síðan í götuna. Dreng-
urinn var fluttur á
slysadeild Borgarspítal-
ans en reyndist ómeidd-
ur.
Atburður þessi varð
um sexleytið á Arnar-
bakka í Breiðholti. Þegar
vagninn stoppaði reyndi
drengurinn litli að príla
upp á stuðarann. Þegar
vagninn lagði síðan af
stað festist drengurinn
og dróst með vagninum
en vagnstjórinn varð
einskis var. Þykir mesta
mildi að ekki fór ver.
Nafn mannsins
sem lézt
MAÐURINN, sem beið bana í
umferðarslysi á mótum Elliðavogs
og Langholtsvegar í Reykjavík sl.
föstudag hét Þorsteinn Helgason,
til heimilis að Langholtsvegi 106.
Þorsteinn heitinn var 67 ára er
hann \ézt, fæddur 13. maí 1913.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
uppkomin börn.
Stórslasaðist þegar
grjóthnullungur kom
í gegnum framrúðuna
UNGUR maður stórslasaðist á
höfði í Ka*r, þegar grjóthnullung-
ur kom í gegnum framrúðu
bifreiðar, sem hann ók eftir
Vesturlandsvegi. Vegna þessa
slyss þarf Rannsóknarlögreglan
i Hafnarfirði nauðsynlega að ná
tali af ökumanni rauðrar vöru-
bifreiðar, en að sögn sjónarvotta
féll steinninn af paíli vörubifreið-
arinnar.
Slysið varð um klukkan 13,30 í
gær á Vesturlandsvegi milli Hlé-
garðs og Brúarlands. Bifreið af
Polonez-gerð ók í áttina til
Reykjavíkur þegar grjót kom
skyndilega í gegnum framrúðuna
og í höfuð ökumannsins. Ökumað-
urinn, sem er 23ja ára gamall,
missti þegar meðvitund en unn-
ustu hans, sem sat í framsætinu,
tókst að stöðva bifreiðina. Maður-
inn var fluttur í skyndingu á
Borgarspítalann, þar sem gerð var
á honum höfuðaðgerð og síðan átti
að flytja manninn á gjörgæzlu-
deild spítalans.
Við rannsókn á slysinu kom í
ljós, að talið er að stór grjóthnull-
ungur hafi fallið af rauðri vöru-
bifreið, sem ók næst á undan
fólksbílnum. Steinninn lenti á
stuðara gulrar Lada sport-bifreið-
ar, sem kom á móti og af honum í
framrúðu Polones-bílsins með
fyrrgreindum afleiðingum.
Vitað er að vörubifreiðin stöðv-
aði á slysstað en fór af vettvangi
áður en lögreglan kom. Skorar
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
firði á ökumann hennar að gefa
sig fram við lögregluna svo og öll
vitni að atburðinum.
Nítján
árekstrar
SAMKVÆMT upplýsingum
lögreglunnar urðu alls nitján
árekstrar í umferðinni í
n°vkiavík í gær á timahilinu
“XV-. af voru tvö
06.00 til 24.UU. pa* —
slys, annað þeirra mjög alvar-
legt, eins og skýrt er frá á
öðrum stað á síðunni.
Að sögn lögreglunnar er þetta
nokkuð venjulegur fjöldi árekstra
á virkum degi, t.d. voru tuttugu og
þrír árekstrar sl. föstudag í um-
ferðinni og sl. fimmtudag voru
árekstrarnir alls sautján.
Ungt par stórslasað
ef tir umf erðarslys
Beygði sig eftir kveikjara og missti stjórn á bílnum
” * ” l’«,e,ur stórslasað á
UNGT ran nB„ " '-"a
gjörgæzludeild Borgarspitaiai...
eftir geysiharðan árekstur á
Hafnarfjarðarvegi rétt austan
Miklatorgs skömmu fyrir
klukkan 8 i gærmorgun. Piltur-
inn hlaut mikla áverka á
brjóstkassa og innvortis meiðsli
og á hann að fara i uppskurð i
dag. Ifann er t»!ír.r. í líís'nættu.
Stúikan hlaut mikla áverka i
... ’ á höfði og var hún í 5
andliti og » — - -*wrðinu í
klukkutíma á skuroar ln». .
gær. 2?ði eru þau 19 ára
gömul.
Parið ók í lítilli
ásamt þriðja aðila. Pilturinn ók
Fiat-bin“ið
en stúlkan sat í framsætinu. Á
móti þeim kom jeppi af Scout-
gerð og var ökumaður einn í
bifreiðinni. Rétt áður en bílarnir
mættust missti ökumaður jepp-
ans siga.'T!íukveikjya, sem
hann hélt á. Hann beyg„.' slý
niður til þess að ná í kveikjarann
£>n missti um leið stjórn á
jeppanum. Skipti engum togum
að jeppinn sveigði yfir á öfuga
akgrein og skall harkalega beint
framan á Fiat-bílnum. Svo mikið
var höggið að Fiatinn kastaðist
aftur á bak. Báðir bílarnir
skemmdust og Fiatinn þó öllu
iucir. kann jafnvel talinn
ónýtur.