Morgunblaðið - 15.07.1980, Blaðsíða 4
4
■■ 1 iTf» i; rt * ■ / '/,'J 9 !mf,m. " 'T,*, ,* T m7P7.7"
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGljR 15. JÚLÍ 1980
Hópferðabílar
8—50 farþega
Kjartan Ingimarsson
sími 86155, 32716.
ÞÖCLI
ÞJONNINN
Fatahengi geta
veriö falleg
o
KRISTJfln
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113 REYKJA/IK SIMI25870
BROOK
RAFMÓTORAR
Verzlunarmannahelgin
Mót í Galtalækjarskógi
MÖRG undanfarin ár hefur Um-
dæmisstúkan nr. 1 og íslenskir
ungtemplarar staðið fyrir útihá-
tíð bindindismanna í Galtalækj-
arskógi um verslunarmannahelg-
ina.
Ákveðið hefur verið að halda
um næstu verslunarmannahelgi
slíkt mót og verður það með líku
sniði og undanfarin ár.
Mótin í Galtalækjarskógi hafa
verið vel sótt, að því er segir í frétt
frá aðstandendum mótsins. Þar
hafa ungir og aldnir komið saman
á fögrum stað og notið hvíldar og
næðis í tjaldbúðum. Ýmis
skemmtiatriði og dans hafa stytt
mótsgestum stundir, en lögð hefur
verið áhersla á að hafa sem mesta
fjölbreytni í þeim atriðum. Með-
fylgjandi mynd er úr Galtalækj-
arskógi.
Bráðabirgðatölur frá Fiskifélagi íslands:
Heildaraflinn um
90 þúsund lestum
minni en í fyrra
HEILDARFISKAFLI lands-
manna var orðinn 814.18G lestir í
lok júní. en var í fyrra á sama
tíma 904.259 lestir samkvæmt
tölum frá Fiskifélagi íslands. í
bráðahirgðatölum fyrir þetta ár
kemur fram að aflinn í júní var
52.031 lest. en í sama mánuði í
fyrra 52.238 lestir.
Sé litið á hvað veiðst hefur af
einstökum fisktegundum kemur í
Ijós að mestu munar um minni
loðnuafla. Var hann rúm 391
þúsund lest í júní í ár, en var um
120 þúsund lestum meiri á sama
tíma í fyrra eða yfir 521 þús. lest.
Mun meira hefur hins vegar veiðst
af þorski í ár en í fyrra eða um 277
þúsund lestir á móti 244 þús.
lestum í fyrra og af botnfiskafla
hefur veiðst um 50 þúsund tonnum
meira í ár en á sama tíma í fyrra,
rúmar 408 þúsund lestir á móti
353 þúsund lestum þá. Þá hefur
einnig veiðst meiri humar það sem
af er árinu miðað við sama tíma í
fyrra, en minna hefur aflast af
rækju, hörpudiski og kolmunna.
Útvarp kl. 9.05.:
Lestur nýrr-
ar sögu hef st
Ása Ragnarsdóttir hyrjar í
dag að lesa nýja. norska barna-
sögu, „Sumar á Mírabellueyju“.
eftir Björn Rönningen í þýð-
ingu Jóhönnu Þráinsdóttur.
Sagan fjallar, að sögn Asu, um
fjölskyldu sem fer í sumarfrí á
litla eyju og lendir þar í ýmsu
skemmtilegu og skringilegu. í
fjölskyldunni eru pabbi, mamma
og tvö börn, strákur og stelpa.
Það er stelpan sem er 11 ára sem
er sögumaður og sagði Ása að
sagan væri ljóðræn og skemmti-
leg. Lestrar verða alls 17 talsins.
„Áður fyrr á árunum“. þáttur
i umsjón Ágústu Björnsdóttur
er á dagskrá útvarpsins í dag kl.
10.25. Iiulda Runólfsdóttir les
úr „Minningum" Einars
Jónssonar myndhöggvara.
Hann hefur væntanlega ekki
verið svona einmanalegur klár-
inn. á fjórðungsmóti hestamanna
á Vesturlandi. en um það verð-
ur fjallað i útvarpi i kvöld kl.
21.10. Umsjónarmaður þáttar-
ins er Hjalti Jón Sveinsson og
þeir sem rætt verður við eru
Albert Jóhannsson formaður
Landssambands hestamanna,
Þorkell Bjarnason hrossarækt-
arráðunautur. Högni Bærings-
son starfsmannastjóri móts-
ins og Ólöf Guðbrandsdóttir i
Nýjabæ.
Einar Jónsson
Eigum fyrirliggjandi
Eins fasa:
0,25 HÖ — 1,5 HÖ
Þriggja fasa:
11 HÖ — 4 HÖ
Ýmsir snúningshraöar
Utvegum allar stæröir og
geröir meö stuttum fyrir-
vara.
ÓlAfHX OlSlASOM % CO. HF.
SUNDABORG 22 - 10< REYKJAVlK - SlMI 81800
Útvarp Reykjavík
ÞRIÐJUDhGUR
15. júli
MORGUNINN
7.00 Veðurfrcgnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar. Þul-
ur velur og kynnir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
8.55 Mælt mál. Endurtekinn
þáttur Bjarna Einarssonar
frá kvöldinu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Ása Ragnarsdóttir byrjar að
lesa „Sumar á Mírabellu-
eyju“ eftir Björn Rönningen
i þýðingu Jóhönnu Þráins-
dóttur.
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 „Áður fyrr á áruniiin“.
Ágústa Björnsdóttir sér um
þáttinn. Hulda Runólfsdóttir
les úr „Minningum" Einars
Jónssonar myndhöggvara.
11.00 Sjáyarútvegur -- SJgl|ng.
ar- J'úomundur Hallvarðs-
son ræðir öðru sinni við
Guðmund H. Garðarsson hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna um ástand og horfur á
mörkuðum hraðfrystra sjáv-
arafurða.
11.15 Morguntónleikar.
Christian Larde og Alain
Marion leika með Kammer-
sveit Parísar Sinfóniu nr. 5 í
d-moll fyrir tvær flautur og
strengjasveit eftir Ales-
sandro Scarlatti; Charles
Ravier stj./ I Solisti Veneti
kammersveitin leikur
Hljómsveitarkonsert nr. 4 í
F-dúr eftir Alessandro Marc-
ello; Claudio Scimone stj. /
Enska kammersveitin leikur
Vatnasvítu í G-dúr eftir G.F.
Hándel; Raymond Leppard
stj./ Nathan Mistein og
kammcrsveit leika Fiðlu-
konsert nr. 2 í E-dúr eftir
J.S. Bach.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍDDEGID
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
írégr.ír. Tilkynningar.
Á frívaktinni. Margrét Guð-
mundsdóttir kvi’-’ —
sjóm-- v -»tir óskalög
. ...oitna.
14.30 Miðdegissagan: „Ragn-
hildur" eftir P*iru Flage-
stad Lars--„ Benedikt Arn-
ke,.B^on þýddi. Helgi Elías-
son les (11).
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Alicia de Larrocha leikur
Píanósónötu í e-moll op. 7
eftir Edvard Grieg.
Zino Francescatti og Fíl-
harmoniusveitin i New York
leika Fiðlukonsert í d-moll
op. 74 eftir Jean Sibelius:
Leonard Bernstein stj./
Elisabeth Söderström syng-
ur lög eftir Wilhelm Sten-
hammar og Ture Rang-
ström; Jan Eyron leikur á
pianó.
17.20 Sagan „Barnaeyjan" eft-
ir P.C. Jersild. Guðrún
Bachmann þýddi. Leifur
Hauksson les (4).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDID
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Allt í einni kös. Hr»»-
Pálssi>n — * —
ug Jörundur Guð-
mundsson láta gamminn
geisa.
20.00 Frá óperuhátiðinni í
Savonlinna 1979: Eero Hein-
onen leikur á pianó.
a. Sónata nr. 21 í C-dúr op.
53, „Waldstein", eftir Lud-
wig van Beethoven.
b. Fimm þættir úr Fantasiu
op. 116 eftir Johannes
Brahms.
c. Fantasíutilbrigði op. 19.
eftir Ilmari Hannikainen.
d. Þrjár etýður, op. 42 nr. 5
og op. 8 nr. 5 og 12, eftir
AÍexander Skrjabin.
21.10 Frá fjórðungsmóti hesta-
manna á Vesturlandi. Rætt
er við Albert Jóhannsson
formann Landssambands
hestamanna, Þorkel Bjarna-
son hrossaræktarráðunaut,
Högna Bæringsson starfs-
mannastjóra mótsins og
ólöfu Guðbrandsdóttur í
Nýjabæ. Umsjónarmaður er
Hjalti Jón Sveinsson.
21.45 Útvarpssagan: „Fugla-
fit“ eftir Kurt Vonnegut.
Hlynur Árnason þýddi.
Anna Guðmundsdóttir les
(16).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Úr Austfjarðaþokunni.
Vilhjálmur Einarsson skóla-
meistari á F«Hi—*
^„..aoiooum ræðir
ooru sinni við Guðmund G.
Hagalin rithöfund.
23.00 Á hljóðbergi. Umsjónar-
maður: Björn Th. Björnsson
litsfræðingur. Enski leikar-
inn Stanley Holloway segir
og syngur söguna af Albert
litla Ramsbottom og öðrum
(ó)8ögufrægum persónum.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.