Morgunblaðið - 15.07.1980, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
ólafur
Skasvík og
Bjarni
Sveinsson á
In«u. sík-
urvegarar í
flokki báta
með stærri
vélar
„VID ERUM með bátadeliu og svo er alltaf gaman að láta bera
svolítið á sér.“ sögðu þeir ólafur Skagvík og Bjarni Sveinsson
sjóþeysarar á Ingu, í spjalli við Morgunblaðið.
„Þetta er iþróttakeppni og það er gaman að geta sigrað
einhversstaðar. þó maður hafi aldrei getað neitt í fótboltanum í
gamla daga," sagði Bjarni. Þeir félagar sögðu að keppnin hefði
verið erfið, en þó hefðu ýmis skemmtileg atvik gerst. „Við
kynntumst mörgu góðu fólki og eignuðumst marga góða vini allt i
kringum landið.
Það má segja að allt hafi verið
gert fyrir okkur og voru FR-
menn sérstakir í því sambandi,"
sögðu þeir Ólafur og Bjarni.
„Það virtist vera að mönnum
væri alveg sama þó þeir vektu
alla nóttina og ynnu svo á
daginn, þeir voru ódrepandi.
I þessari keppni kom ekkert
upp á, sem heitið gat, þetta var
áfallalítill túr. Enda vorum við
með allt nýtt, Volvo Penta vél og
báturinn frá Flugfiski. Við feng-
um góða þjónustu hjá báðum
þessum aðilum, þó sérstaklega
hjá Runólfi Guðj^nssyni hjá
Flugfiski," sagði Ólafur.
alltaf af reynslunni. FR-menn
stóðu sig sérlega vel, þeir vöktu
yfir okkur í marga sólarhringa.
Ég get nefnt FR-1412 sérstak-
lega, hann kallaði okkur upp á
10—15 mínútna fresti, bókstaf-
lega vakti yfir okkur.
Annars var þetta erfitt, varla
hægt að sofa neitt. Við köstuðum
Inga sigraði
í sjóþeysunni
SJÓÞEYSU Snarfara. Félags
farstöðvaeigenda og Dagblaðs-
ins lauk á sunnudagskvöld.
Keppt var I tveimur flokkum.
Spörri frá Grundarfirði sigr-
aði í A-flokki, en Inga frá
Vestmannaeyjum í B-flokki.
í A-flokki, báta með minni
vélar, sigraði Spörri eins og
áður gat, hlaut 104 stig, en
Gáski frá Hafnarfirði hlaut 83
stig.
I flokki báta með stærri
vélar, B-flokki, sigraði Inga,
hlaut 107 stig, í öðru sæti varð
Gustur frá ísafirði með 83 stig,
en Lára rak lestina í keppninni
með 22 stig, enda lauk báturinn
ekki keppni.
Inga þeysir inn Reykjavikurhófn.
Bjarni og Ólafur sjóþeysarar á Ingu:
hana efst á loftnetið. Hún sómdi
sér þar vel,“ sagði Ólafur.
„Það hefur nokkuð verið rætt
um hvað við fáum fyrir auglýs-
ingu Morgunblaðsins á bátnum
og hefur gætt nokkurs misskiln-
ings í þeim efnum. Við fengum
bensínkostnað greiddan hjá
Morgunblaðinu og annað ekki.
Morgunblaðið stóð ekki undir
þessu á neinn annan hátt,“ sögðu
þeir Bjarni Sveinsson og Ólafur
Skagvík að lokum.
Vorum heppnir
og unnum
„Okkur gekk vel, það var ekki
hægt að setja út á neitt, nema ef
vera skyldi blessað bensínið í
Eyjum,“ sagði Magnús Soffaní-
asson, annar tveggja bátsverja á
Spörra, en Spörri varð hlut-
skarpastur í flokki báta með
minni vélar.
„í Vestmannaeyjum lengum
við skítugt bensín og það stóð
okkur fyrir þrifum alla leiðina.
Annars kom lítið upp á hjá
okkur, að vísu kom smárifa á
botninn á bátnum, en hún var
það lítil að hægt var að gera við
hana,“ sagði Magnús.
„Vélin í bátnum stóð sig mjög
vel, bilaði aldrei, en hún er ný.
Báturinn sjálfur er hins vegar
3ja ára gamall.
Veðrið var ágætt alla leiðina,
nánast logn allan hringinn, enda
áttum við aldrei í neinum vand-
ræðum. Ég var aðeins einu sinni
smeykur, en þá blekkti dýptar-
mælirinn mig. Hann sýndi dýpið
Þetta var áfallalítill túr
„Við unnum alla leggina nema
einn,“ sagði Bjarni. „Það var á
Þistilfirði, en þá kveikti þéttir í
rafkerfinu og eyðilagði platín-
urnar. Við vorum dregnir inn á
Raufarhöfn og það var ekki að
sökum að spyrja, allir komu
niður á bryggju og vildu gera við
bátinn, — og tóku ekki krónu
fyrir. Það má nefna það til
gamans að á þessum legg höfð-
um við bundið Morgunblaðsveif-
una við radarspegilinn og var
hún ekki vel uppi. Þá var ekki að
sökum að spyrja, við töpuðum
leggnum. Eftir það var veifan
alltaf uppi og ekkert klikkaði,!
sögðu þeir félagar.
„Stjórnin á keppninni var
skárri en í fyrra, menn læra
okkur rétt augnablik. Þó þetta
hafi verið fjári mikið puð var
þetta ekkert miðað við keppnina
í fyrra, þá var maður eins og
ruslahaugur miðað við nú,“ sagði
Bjarni. „Ég er eiginlega feginn
að þessu skuli vera lokið, þó að
Hraðfrystistöðin í Vestmanna-
eyjum taki við á miðvikudaginn,
en ég starfa þar.“
„Ég er í fríi fram í miðjan
ágúst,“ sagði Ólafur, „en ég vinn
í Alaska, er á krabbaveiðum þar.
Ég er búinn að vera þar í ár og
líkar vel. Þetta gefur góðar
tekjur.
Þegar ég fór út í fyrra tók ég
með mér Morgunblaðsveifuna,
gömlu veifuna af Ingu, og setti
Þröstur Líndal og Magnús Soffaniasson á Spörra, sigurvegarar i
flokki báta með minni vélar. Ljósm. Mbi. Kristinn <>g ÓI.K.M.
0 þegar við fórum í gegnum gatið
á Dyrhólaey.
Við unnum alla leggina á
leiðinni, að tveimur undanskild-
um en þá vann Gáski. Sá bátur
sigldi mjög vel, alltaf á sama
hraða. Við vorum hins vegar
heppnir og unnum.
Ég vil að lokum þakka FR-
mönnum og raunar öllum sem
aðstoðuðu okkur. Það var hreint
ótrúlegt hvað menn voru dugleg-
ir við að snúast í kringum
okkur.Til dæmis hefðum við
aldrei komist frá Akureyri ef
þar hefðu ekki verið menn til að
bjarga okkur,“ sagði Magnús
Soffaníasson.
- ój.
Myndarlegar gjafir til endurbóta á húsnæði
Hafþór Baldvinsson afhendir Katrínu Guðmundsdóttur söfnunarféð.
LAUGARDAGINN 12. júli fengu
Sólheimar góða og mjög óvænta
heimsókn. Þeir Hafþór Bald-
vinsson, starfsmaður Útvegs-
banka Islands, og Magnús Víðir,
starfsmaður Landsbanka ís-
lands. komu og afhentu heimilinu
samtals kr. 1.162.000.-. Fé þessu
höfðu þeir safnað meðal starfs-
manna Borgarfógetaembættisins
í Reykjavik. Landsbanka tslands
í Reykjavik. Seðlabanka íslands,
Útvegsbanka tslands i Reykja-
vik, Kópavogi og Seltj.nesi og
Reiknistofu bankanna.
Gjöfinni fylgdi ósk um að fénu
yrði varið til endurbóta á húsnæði
staðarins. Þar sem heimilið er 50
ára á þessu ári, segir það sig sjálft
að margar af byggingunum eru
orðnar gamlar og þarfnast mikils
viðhalds sem mjög erfitt er að
fjármagna. Einnig er eitt vist-
mannahúsið nær algjörlega óíbúð-
arhæft, og hefur heimilið verið að
reyna að afla fjár til nýbyggingar,
svo hægt verði að flytja úr því
húsi.
Sólheimar þakka kærlega öllum
j>eim, sem lagt hafa sitt af mörk-
um í þessa höfðinglegu gjöf.
Á þessari mynd eru Katrín Guðmundsdóttir. sem veitir Sólheimum
forstöðu. ásamt Magnúsi Víði og tveimur vistmönnum á Sólheimum,
Ásdísi og Sirrý.