Morgunblaðið - 15.07.1980, Qupperneq 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ1980
Frá Þórarni Ragnarssyni blaðamanni Mbl. í Osló:
Stórleikur Islands endaói
þrátt fyrir allt með tapi
Skríll á vellinum
Tveir drukknir Norðmenn
gerðu aðsújí að Þorsteini ólafs-
syni markverði i þann mund að
leikurinn hófst. Hlupu þeir inn á
leikvanginn og tóku að kljást við
Steina. Marteinn Geirsson kom
þar aðvifandi og vildi skakka
leikinn, en fékk fyrir vikið vel
útilátið kjaftshögg. Varð Mar-
teinn að snúa annan ólátabelginn
niður og halda honum þar til
laganna verðir gátu komið járn-
um á kauða. Varð af þessu
töluverð töf.
Noregur -
ísland
skipað leikmönnum undir 21 árs,
var lagt að velli í vor.
Á 41. mínútu léku Pétur og
Sigurlás mjög vel í gegn um vörn
andstæðinganna, Sigurlás komst á
auðan sjó, en var stöðvaður ólög-
lega rétt utan vítateigs. Ekkert
varð þó úr aukaspyrnunni sem
dæmd var.
Slysamark
Á 55. mínútu leiksins sóttu
Norðmenn og missti Árni Sveins-
son norskan sóknarmann illa frá
sér. Inni í vítateignum hindraði
Sigurður Ha'ldórsson Norðmann-
inn og dæmdi danski dómarinn
óbeina aukaspyrnu inni í miðjum
vítateig. Paul Jakobsen skaut
þrumuskoti að marki islenska
liðsins og hrökk boltinn úr varn-
arveggnum inn á markteig þar
sem Kolshaug var fyrir og potaði
knettinum rétta boðleið. Voru
margir á því að Kolshaug hafi
verið kolrangstæður. Var þetta
mikið slysamark.
Dauðafæri Péturs
Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks
braust Pétur Ormslev í gegn af
upp að endamörkum, gaf gullfal-
lega sendingu út í teiginn, þar sem
Guðmundur Þorbjörnsson kom á
fleygiferð gersamlega óvaldaður.
Allir sáu knöttinn fyrir sér í
netinu, en Guðmundur hitti mjög
illa, skotið var laust og fór fram
hjá markinu. Var þetta tvímæla-
laust eitt besta tækifæri íslenska
liðsins í leiknum. Fyrstu 20 mínút-
ur siðari hálfleiks hafði íslenska
liðið öll völd á vellinum og hvað
eftir annað áttu islensku leik-
mennirnir góð marktækifæri, en
tókst ekki að nýta þau.
Sigurlás komst í gegn á 60.
mínútu, en lét stela af sér knettin-
um á síðustu stundu. Skömmu
síðar átti Trausti Haraldsson, sem
var mjög sókndjarfur, gott skot að
norska markinu, en markvörður-
inn varði.
Gull af marki
Á 65. mínútu leiksins voru
heilladísirnar með Norðmönnum.
Besti maður þeirra, Paul Jakob-
sen, var með knöttinn á miðjum
vallarhelmingi ísienska liðsins,
lék í átt að íslenska markinu og
skaut miklu þrumuskoti af um 23
metra færi. Hafnaði þrumufleyg-
urinn efst í markvinklinum án
þess að Þorsteinn ætti nokkra
möguleika á því að verja, þrátt
fyrir góða tilburði. Skömmu síðar
komst Albert Guðmundsson inn í
sendingu varnarmanns til mark-
varðar. Lék Albert inn í norska
vítateiginn og fram hjá markverð-
inum, skaut af stuttu færi á tómt
markið, en hæfði marksúluna! Það
var greinilegt að heppnin var ekki
með íslendingum, því að ekkert
gekk upp við norska markið. Er
líða tók á síðari hálfleikinn, dró
nokkuð af íslensku leikmönnun-
um, enda höfðu þeir barist mjög
vel og yfirferð þeirra var mjög
mikil í leiknum.
Á 85. mínútu skoruðu Norð-
menn sitt þriðja mark og aftur
með skoti af löngu færi. Arne
Erlandsen skaut óvæntu skoti af
19 metra færi og sigldi knötturinn
beint í bláhorn íslenska marksins
án þess að vörnin eða Þorsteinn
markvörður gætu rönd við reist.
Má segja að þau fáu skot sem
Norðmenn áttu að íslenska mark-
inu í leiknum, hafi nýst vel. Það
var svo ekki fyrr en á síðustu
mínútu leiksins, að íslendingum
tókst að skora. Knötturinn barst
til Sigurláss Þorleifssonar á víta-
teigslínu og tókst honum að snúa
laglega á norskan varnarmann
áður en hann lét sig falla og skaut
um leið góðu bogaskoti rakleiðis í
netið. Var vel að þessu staðið hjá
Lása og átti norski markvörðurinn
enga möguleika á að verja. Var
mark þetta nokkur sárabót fyrir
öll vonbrigðin sem á undan voru
gengin.
ÍSLENSKA landsliðið I knattspyrnu varð að sætta sig við 1—3 tap
fyrir Norðmönnum hér i Osló á Ullevall-Ieikvanginum i gærkvöldi.
Voru það mjög ósanngjörn úrslit samkvæmt gangi leiksins. íslenska
landsliðið lék mjög vel allan leikinn og langt er siðan íslenskt landslið
hefur skapað sér jafn mörg góð marktækifæri og i leiknum i
gærkvöldi. En islensku leikmönnunum virtist gersamlega fyrirmunað
að skora úr þeim mýmörgu marktækifærum sem þeir fengu. Voru þeir
mjög ragir við að reyna skot og reyndu um of að leika alveg í gegn um
vörn Norðmanna og inn i markið. Var það ekki fyrr en á lokaminútu
leiksins, að Sigurlás Þorleifssyni tókst að skora eina mark íslands frá
vitateigslinu.
íslenska liðið
náði tökum
á miðjunni
íslenska liðið byrjaði leikinn
mjög vel, fór hægt af stað, en lék
yfirvegað og knötturinn gekk
mjög vel milli manna. Aftasta
vörn var mjög traust og Albert og
Magnús áttu góðan leik á miðj-
unni. Tókst íslenska liðinu að ná
góðum tökum á vallarmiðjunni og
hélt þeim tökum út fyrri hálfleik.
Fyrsta góða sókn íslenska liðsins
kom á sjöttu mínútu. Eftir lagleg-
an samleik renndi Pétur Ormslev
knettinum til Sigurláss, sem hins
vegar reyndist vera rangstæður. Á
tíundu minútu átti Trausti gott
skot að marki Norðmannanna, en
markvörðurinn varði mjög vel.
♦orsteinn ólafsson gripur Inn i leikinn.
Oft hefur það komið fyrir, að
íslenska landsliðið hefur átt
slæma kafla í síðari hálfleik. Nú
brá svo við, að íslenska liðið lék
mun betur í síðari hálfleik heldur
en í þeim fyrri og lék liðið þó vel í
þeim fyrri. íslenska liðið kom
mjög ákveðið til leiks í síðari
hálfleik og strax á 48. minútu
leiksins tókst þeim Sigurlási og
Pétri Ormslev að opna vörn Norð-
manna. Pétur komst með knöttinn
Norðmenn áttu ekki hættulegt
færi fyrr en á 20. mínútu, er Arne
Erlandsen átti gott skot að marki.
Þorsteinn varði vel. Skömmu síðar
léku Pétur og Albert skemmtilega
í gegn um vörn norska liðsins, en
skoti Alberts var naumlega bjarg-
að í horn. Upp úr hornspyrnunni
átti Marteinn síðan góðan skalla
sem norski markvörðurinn varði
vel. Sigurðar Halldórssonar var
mjög vel gætt er hann fór inn í
vítateig Norðmanna í leiknum.
Voru Norðmenn greinilega minn-
ugir þess að Sigurður skoraði bæði
mörk íslands er norska landsliðið,
Sigurður Halldórsson og Magnús Bergs hafa betur i návigi við
Norðmann. Sfmamyndir AP.
íslendingar góðir í
síðari hálfleik
miklu harðfylgi og átti aðeins
eftir að koma knettinum fram hjá
norska markverðinum. Var Pétur
kominn inn í miðjan vítateiginn
og markvörðurinn, sem kom
hlaupandi út á móti, datt kylliflat-
ur. En í stað þess að skjóta, reyndi
Pétur að leika fram hjá markverð-
inum í þröngri stöðu. Fyrir vikið
tókst markverðinum að sparka
knettinum í horn á síðustu stundu.
Þarna fór mjög gott tækifæri
forgörðum. Eftir leikinn sagði
Pétur, að hann hefði ekki séð
þegar markvörðurinn datt, því
hann hefði haft augun á knettin-
um. Reyndi hann því að leika
áfram og tókst markverðinum þá
að sparka sig niður og bjarga um
leið í horn.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ1980
25
Góður leikur
íslands
Þrátt fyrir tap, lék íslenska liðið
mjög vel. Var allt annar bragur á
leik liðsins nú og í síðustu leikjum.
Þorsteinn Ólafsson var mjög ör-
uggur í markinu og verður ekki
sakaður um mörkin. Greip hann
vel inn í leikinn og varði vel þess á
milli það sem á markið kom.
Aftasta vörnin lék mjög vel.
Trausti Haraldsson var góður,
einnig Örn Óskarsson sem sýndi
mikla baráttu og gaf aldrei eftir.
Sigurður Halldórsson og Marteinn
Geirsson voru mjög traustir á
Pétur Ormslev voru mjög ógnandi
í framlínunni, en voru allt of ragir
við að reyna skot á markið. Pétur
lék norsku vörnina hvað eftir
annað grátt með leikni sinni og
átti stórgóðan leik. Baráttan í
íslenska liðinu var allan tímann
eins og best varð á kosið og oft lék
liðið mjög góða knattspyrnu.
Norska liðið, sem lék án fjög-
urra atvinnumanna sinna, var
nokkuð þokkalegt. Leikmenn liðs-
ins hafa góða knattmeðferð, en
vantaði kraft í sókninni. Heppnin
var hins vegar á þeirra bandi að
þessu sinni. Bestu leikmenn liðs-
ins voru Hamkam-leikmaðurinn
Lið íslands: Þorsteinn Ólafsson,
Trausti Haraldsson, Örn Óskars-
son, Sigurður Halldórsson, Mar-
teinn Geirsson, Árni Sveinsson,
Guðmundur Þorbjörnsson, Magn-
ús Bergs, Albert Guðmundsson,
Sigurlás Þorleifsson og Pétur
Ormslev. Sigurður Grétarsson lék
sinn fyrsta landsleik, kom inn á
fyrir Árna Sveinsson á 75. minútu.
Lið Noregs: Tom Jakobsen,
Trond Petersen, Morten Minje,
Ture Kordal, Sven Gröndalen,
Rune Ottesen, Arne Erlandsen,
Gabriel Hoyland, Stein Kolshaug-
en, Paul Jakobsen og Oddstein
miðjunni og gáfu Norðmönnunum
engin tækifæri inni í vítateignum.
Á miðjunni var Albert Guð-
mundsson mjög góður, hafði mikla
yfirferð og skilaði knettinum vel
frá sér. Þá barðist Magnús Bergs
einnig vel, en hann hefur leikið
betur. Guðmundur Þorbjörnsson
og Árni Sveinsson voru þokka-
legir. Þeir Sigurlás Þorleifsson og
Paul Jakobsen og Trond Petersen
frá Start.
í stuttu máli:
Noregur—ísland, 3—1 (1—0)
Mörk Noregs: Kolhaug, Jakob-
sen og Erlandsen.
Mark íslands: Sigurlás Þor-
leifsson
Áminningar: Örn Óskarsson
Áhorfendur: 10420.
Wormdal. Tom Lund gaf ekki kost
á sér og líkaði norska þjálfaranum
það illa. Er óvíst hvort Lund
verður valinn í náinni framtíð.
Þetta var tuttugasti landsleikur
þjóðanna í knattspyrnu. Fimm
hafa unnist, einum lauk sem
jafntefli og fjórtán sinnum hafa
Norðmenn unnið. Markatalan er
20-47.
Sagt efftir leikinn:
„Úrslitin fáránleg“
Marteinn Geirsson, fyririiði
islenska liðsins, lék þarna sinn
50 landsleik, sem er algert met á
íslandi. Marteini voru færð blóm
i upphafi leiksins. Marteinn
sagði eftir leikinn: — Ég var
mjög ánægður með þá miklu
baráttu sem náðist i leiknum, en
ekki með úrslitin. Við áttum
fjölda góðra marktækifæra og
áttum að vera yfir i hálfleik, en
það er ekki einleikið hvað okkur
gengur illa að skora mörk. Þetta
var góður leikur af okkar hálfu,
en við vorum mjög óheppnir.
— Við hefðum átt að fá meira
út úr leik okkar en við gerðum,
miðað við þann góða leik sem við
náðum. Þeir skoruðu tvö drauma-
mörk á sama tima og við nýttum
ekki einfóld færi, sagði Þorsteinn
Ólafsson.
Guðni Kjartansson, landsliðs-
þjálfari sagðist vera ákaflega
óhress með úrslit leiksins, þau
gæfu alls ekki rétta mynd af
gangi hans. — Þetta er besti
landsleikur sem ísland hefur
leikið undir minni stjórn, þetta
er mjög samstilltur hópur og
virkaði nú sem ein sterk heild.
Ég vissi að þessi góða knatt-
spyrna byggi i þessum hóp og
það væri aðeins timaspursmál
hvenær liðið næði saman. Það var
sorglegt hvað okkur gekk illa að
nýta tækifærin og það vantaði
aðeins hörku til að reka enda-
hnútinn á sóknaraðgerðirnar,
sagði Guðni að lokum.
Orn óskarsson sagði leikinn
góðan af hálfu islenska liðsins,
— við vorum betra liðið á vellin-
um og áttum að vinna. En þetta
var ekki okkar dagur, óheppnin
var hrikaleg.
Jóhannes Atlason. fyrrverandi
landsliðsfyrirliði, var meðal
áhorfenda. Hann sagði: — Þetta
var besti leikur islensks landsliðs
um nokkuð langt skeið. Liðið lék
mjög góða knattspyrnu og úrslit
leiksins þvi fáránleg. íslenska
liðið var betri aðilinn i leiknum
og Norðmenn skoruðu úr þeim
fáu tækifærum sem þeim buðust.
Albert og Pétur voru bestu menn
liðsins, en allir eiga þó hrós
skilið.
— Að sjálfsögðu voru þetta
ekki hagstæð úrslit, en þetta var
besti leikur islenska landsliðsins
i langan tima og er ég að
sjálfsögðu mjög ánægður með
það, sagði Helgi Danielsson for-
maður landsliðsnefndarinnar.
— Við áttum að vera yfir i
hálfleik, en þetta var ekki okkar
dagur.
Islandsmet Þórdísar
var Ijósi punkturinn
ÞÓRDlS Gísladóttir frjálsiþróttakona úr IR setti nýtt og gott
íslandsmet i hástökki, er vængbrotið kvennalandslið tók þátt i
Norðurlandabikarkeppni kvenna i frjálsíþróttum í Varberg i
Svíþjóð á laugardag. Þórdís stökk 1,81 metra, bætti eigið met um
einn sentimetra og átti hún mjög góðar tilraunir við 1,84. Varð
Þórdis i öðru sæti i keppninni, þar sem sænsku stúlkunni Susönnu
Lorentzon tókst í síðustu tilraun að smeygja sér yfir 1,84, en hefði
hún ekki farið þá hæð, hefði Þórdis sigrað i keppninni.
Þórdís háði harða keppni við
Lorentzon á móti í Gautaborg í
fyrri viku og stukku þær þá
jafnhátt, og er árangur Þórdísar
í viðureignum sínum við þessa
stúlku athyglisverður, þar sem
Lorentzon hefur stokkið 1,90
metra í hástökkinu í ár. Úrslit
Norðurlandabikarsins urðu ann-
ars þau, að Svíþjóð sigraði með
61 stigi, Finnland hlaut 58,
Noregur 53, Danmörk 33 og
ísiand 16. ísland tefldi ekki fram
keppanda í fjórum greinanna,
1500 og 3000 metra hlaupum, 400
metra grindahlaupi og lang-
stökki. Einn keppandinn, Ragn-
hildur Ólafsdóttir FH, mætti
ekki til keppninnar, en með fullu
liði hefði Island átt að fá a.m.k.
22 stig og stigum Danmerkur
hefði að sama skapi fækkað og
þau orðið 31.
Árangur hinna íslenzku
stúlknanna varð sá, að Helga
Halldórsdóttir hljóp 100 metra
grindahlaup á 14,54 sekúndum
og 200 metra hlaup á 25,06
sekúndum, sem er rétt við ís-
landsmetið, en mótvindur var í
hlaupinu. Helga varð fimmta í
grindahlaupinu, en í 200 metrun-
um skaut hún danska keppand-
anum ref fyrir rass. Sænska
frjálsíþróttastjarnan Linda
Haglund sigraði í 200 metra
hlaupinu á 23,56 sekúndum.
Haglund sigraði einnig í 100
metra hlaupinu, hljóp á 11,66
sekúndum í mótvindi, en Oddný
Árnadóttir varð þar í fimmta
sæti á 12,89 sekúndum.
Hrönn Guðmundsdóttir varð
fimmta í 400 metra hlaupi á
59,30 sekúndum, en sænska |
stúlkan Ann-Louise Skoglund
sigraði á nýju sænsku meti, 52,25
sekúndum. Rut Ólafsdóttir varð
fimmta í 800 metra hlaupi á
2:07,6 mínútum, ekki svo langt
frá sínu bezta, en í hlaupinu
sigraði finnsk stúlka á 2:02,8
mínútum.
Guðrún Ingólfsdóttir háði
hörkukeppni um annað til
fimmta sætið í kringlukastinu
og hafnaði í fjórða sæti með
46,14 metra, en finnsk stúlka
sigraði með 57,30 metra. Guðrún
varð langneðst í kúluvarpinu
með 12,25 metra, en þar sigraði
einnig finnsk stúlka með 16,50
metra. Dýrfinna Torfadóttir
varð einnig langneðst í spjót-
kastinu með 39,52 metra.
Mesti langhlaupari heims í
kvennaflokki undanfarin ár,
norska stúlkan Grete Waitz,
sigraði í einni grein keppninnar,
1500 metra hlaupinu, sem hún
hljóp á 4:13,9 mínútum. íslenzka
sveitin varð í fimmta og síðasta
sæti í báðum boðhlaupunum,
hljóp 4x100 á 49,77 sekúndum og
4x400 á 3:54,75 sekúndum.
Systkinin
stálu senunni
Systkinin Steinunn Sæmunds-
dóttir og óskar Sæmundsson
stálu senunni á meistaramóti GR
sem fram fór á Grafarholtsveili
um helgina. Steinunn sigraði
örugglega i meistaraflokki
kvenna og lék síðasta hringinn á
glæsilegu vallarmeti. Lék Stein-
unn þá á 77 höggum, en vallar-
metið var 79 högg. Jóhanna
Ingólfsdóttir átti gamla vallar-
metið, sem var einnig jafnað um
helgina. Það gerði Sólveig Þor-
steinsdóttir. Steinunn lék sam-
tals á 245 höggum. en Sólveig
hins vegar á 250 höggum. Þriðja
varð siðan Jóhanna Ingólfsdóttir
á 265 höggum.
Óskar sá til þess að um fjöl-
skylduviðburð var að ræða með
því að leika ákaflega yfirvegað og
vel. Tryggði hann sér þannig sigur
í meistaraflokki karla. Óskar lék á
305 höggum en Ragnar ólafsson
varð í öðru sæti á 310 höggum.
Þriðji varð Sigurður Pétursson á
312 höggum og fjórði Hannes
Eyvindsson á 315 höggum.
Hans Isebarn sigraði í 1. flokki
karla á 330 höggum. í 2. flokki
karla sigraði Kristinn Ólafsson,
bróðir Ragnars, á 325 höggum. Þá
sigraði Baldvin Haraldsson í 3.
flokki á 359 höggum. í 1. flokki
kvenna sigraði Elísabet Möller á
303 höggum og Lilja Óskarsdóttir
sigraði í 2. flokki kvenna á 333
höggum. Loks má geta þess, að
Franz Sigurðsson sigraði í flokki
eldri unglinga á 332 höggum og
Guðmundur Arason sigraði í
flokki yngri unglinga á 239 högg-
um.
Gunnar Akureyrar
meistari í golfi
GUNNAR Þórðarson varð um
helgina Akureyrarmeistari í
golíi i meistaraflokki karla.
Keppt var i 6 flokkum og aðeins
án forgjafar. Leiknar voru 72
holur og úrslit i einstaka flokk-
um urðu þessi:
Meistaraflokkur karla:
Högg
1. Gunnar Þórðarson 305
2. Jón Þór Gunnarsson 308
3. Magnús Birgisson 320
Meistaraflokkur kvenna:
1. Inga Magnúsdóttir 352
2. Katrín Frímannsdóttir 353
3. Karólína Guðmundsdóttir 405
1. flokkur karla:
1. Sigurður H. Ringsted 330
2. Haraidur Ringsted 337
3. Þórarinn Bjarnason 352
2. flokkur karla:
1. Karl Frímannsson 354
2. Gunnar Rafnsson 356
3. Ólafur Ágústsson 366
3. flokkur karla:
1. Ólafur Árnason 408
2. Jón Guðmundsson 431
3. Páll Pálsson 434
Drengjaflokkur:
1. Héðinn Gunnarsson 321
2. Sverrir Þorvaldsson 342
3. Jón Aðalsteinsson 344
— sor