Morgunblaðið - 15.07.1980, Page 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JULI1980
I
Fólk og fréttir í máli og myndum
Þessir fengu flest atkvæði
Skotmrnn skotfélags Reykjavíkur æfa í Baldurshaxa undir stúkunni
á LauKardalsvellinum. Hér má sjá einn þeirra á ufiniíu. Ef dæma á af
skothylkjunum hefur kappinn hleypt oft af.
NÝLEGA lét eitt stærsta og virtasta blað V-Þýskalands lesendur sína
velja óskalandslið sitt í knattspyrnu og hér að neðan má sjá hverjir
valdir voru o« fengu flest atkvæði.
Harald Schumacher (FC Köln — 55%), Bernd Cullmann (FC Köln —
58%), Manfred Kaltz (HSV — 96%), Karl Heinz Förster (VfB Stuttgart
— 64%), Bernard Dietz (MSV Duisburg — 74%), Bernd Förster (VfB
Stuttgart — 45%) Rainer Bonhof (Valencia (61%), Hansi Muller (VfB
Stuttgart (84%), Karl-Heinz Rummenigge (Bayern — 90%), Horst
Hrubesch (HSV — 75%), Klaus Allofs (Dílsseldorf — 53%).
Hvar sem farið er, þramma lögreglumenn. og viða eru hermenn á
stjái, þrátt fyrir að allir andófsmenn séu löngu fluttir á brott. Það
verður að gæta þess að ferðamenn komi engum óhróðri inn i landið.
• Skotfimi er býsna merkileg íþrótt. Er hún í slikum hávegum höfð, að lengst af hefur hún verið
keppnisgrein á Olympiuleikunum. Ilér á landi hefur vegur hennar ekki verið sérlega mikill, en þó ávallt
nokkrir sem hana stunda. Vinsældir þessarar íþróttar hafa hins vegar aukist hérlendis. Meðfylgjandi
myndir tók Kristján Einarsson í skotkeppni sem haldin var í tengslum við iþróttahátið ÍSÍ á dögunum. Þar
varð Carl Eiriksson öruggur sigurvegari, hlaut 588 stig af 600 mögulegum. Annar varð Ferdinand Hanse
með 577 stig og þriðji Johanncs Johanncssen með 574 stig.
ítlormiuMntóí*
■líTitoiira
Moskva er einhver
mesta lögregluborg
jarðarkúlunnar
Vel heppnaö minningarmót
VEL hcppnað minningarmót um
Ingimund Arnason fór fram fyrir
skömmu á vegum Golfkiúbbs
Akureyrar.
Mót þctta. scm var hið fjöl-
mcnnasta á sumrinu. heppnaðist
í alla staði mjög vel. Þetta var
svokaliað opið mót, þar sem
lciknar voru 36 holur með og án
forgjafar. Úrslit urðu sem hér
segir:
Án forgjafar:
Ilögg
1. Gunnar Þórðarson GA 151
2. Gunnar Sólncs GA 158
3.-4. Jón Þór Gunnarsson 159
3.-4. Sigurjón Gislason Kcili 159
Jón Þór sigraði Sigurjón í
bráðabana.
Með forgjöf:
Högg
1. Héðinn Gunnarsson GA 142
2. Gunnar Þórðarson GA 143
3. Gunnar Rafnsson GA 146
4. Gunnar Sólnes GA 146
ÞEGAR Olympíuleikar fara
fram, er venjan að vissar öryggis-
ráðstafanir séu gerðar. Menn
muna gjarnan eftir hryðjuverk-
unum í Munchen, þar sem að
arabískir skæruliðar felldu flesta
íþróttamenn ísraela. Þær þjóðir
sem halda þessa leika hafa ekki
hug á að láta slíkt endurtaka sig.
Sovétmenn eru þar engin undan-
tekning. Þeir hafa gert miklar
varúðarráðstafanir, mun meiri
heldur en gengur og gerist.
En ráðstöfunum Sovétmanna er
aðeins að hluta til beint gegn
möguleikunum á hryðjuverkum.
Rússar eru fyrst og fremst að
hugsa um að útlendingarnir kom-
ist ekki í kynni við almenning í
Sovétríkjunum. Þúsundir ungra
Sovétmanna hafa verið ráðnir í
hin ýmsu störf samhliða Olympíu-
haldinu. Er hér um að ræða stöður
þjóna, einkaritara, leiðsögumanna
o.m.fl. Þetta fólk hefur verið varað
við að vingast um of við útlend-
ingana. Sovésk yfirvöld hafa og
látið þau boð út ganga til almenn-
ings, að banna börnunum að
þiggja tyggigúmmí af útlending-
um, því að víst mætti telja að um
eiturbyrlun væri að ræða. Unga
fólkinu hafa yfirvöld tilkynnt, að
það kalli yfir sig kynsjúkdóma að
vingast um of. Það sé engin leið
fram hjá því!
Moskva var einhver mesta lög-
regluborg jarðkúlunnar löngu áð-
ur en að ákveðið var að halda þar
Olympíuleika. En eftir að ákveðið
var að halda þar Olympíuleikana
1980, var 35.000 lögreglumönnum
bætt í lögregludeild Moskvu. Auk
þess má bóka að jafnvel tvöföld sú
tala hafi verið ráðin sem felulög-
regla. Standist þessar tölur, er
ekki fjarri lagi, að lögreglumenn
Moskvuborgar verði jafnmargir
erlendu gestunum. Allar götur frá
áramótum hefur verið óvenjulega
margt um lögreglumenn á öllum
helstu götuhornum Moskvu.
Erlendir fréttamenn munu ekki
fara varhluta af öryggisráðstöfun-
um Rússa. Fjölmargir eru fyrir
nokkru komnir til Moskvu og eru
lýsingar þeirra ekki fagrar. Allir
erlendu fréttamennirnir hafa ver-
ið settir á tvö risavaxin gistihús.
Auk fréttamannanna eru á gisti-
húsinu mikill fjöldi lögreglu-
manna, bæði einkennisklæddra og
óeinkennisklæddra. Skoða þeir
skilríki fréttamannanna mörgum
sinnum á dag og vakta sovéska
starfsliðið á gistihúsunum, að það
eigi sem allra minnst samskipti
við fréttamennina. Þegar frétta-
mennirnir síðan fara á vinnustað,
verða þeir allt að því að afklæðast
áður en þeir fara í gegn um
viðamikið vopnaleitarkerfi. Að
sjálfsögðu eru Rússar ekki bara að
leita að vopnum. Kannski síst af
öllu vopnum. Þeir eru að leita að
andsovéskum áróðri sem þeir
gruna fréttamennina um að ætla
að dreifa á meðal almennra borg-
ara. Og kerfið er svo svifaseint og
þungt, að nú þegar, áður en
leikarnir sjálfir eru byrjaðir, hafa
erlendir ferðamenn og fréttamenn
orðið fyrir verulegum óþægindum
og allt annað en vinátta og
bróðurhugur er milli útlendinga
og Rússa.
Olympíumaðurinn
:r |l'!'n
ECYlA tiASA
ö//toí
'JfA-l 8 /V* írJm
DiSaaþJa j/l oeij
ST»K/
, % etw
je/ipjvL
l£ha e*«i
/JrcSTd
Zí 'ASllAI
þetfjm mnr/i/l TCUiT sei
"OOA'tfTJm VI* ACOHl AAHl» U€,/v,"
Sot*0 p'€n.frue»iAc*iroUi/l o/n
OAUpAlUjTAmMUlillJ öOO l3€Amoi4-
(iCA-r\Oil toust ‘ </*"►' i LArlCSroUU/rjJ ot c^A.9)
ca OA.-Ul.AJSA, fp?AA s€rr\ UAr/rJ JiAtiST SITJVA v l-O € T
J oc wÁ-Þi ^ Co rr\ S I .
’SCAITIQrJ \Jm oUOrSArlDl
OC, AuCcAS’JA HArCrl
Jatvi B/ett menD
Om rJi%SrOrr\ (c,OSrr\.
ly TœvJi-LJOfd—MMM /m mmcoi I