Morgunblaðið - 15.07.1980, Page 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
f ** ammm m •••***• *«»*»«.*** i
• Elmar Geirsson sýndi gamla takta i leiknum gegn Ármanni. Hér
hefur hann snúið á Svein miðvörð. Ljósm. Guðjón Birgisson.
Óli Jó jafnaði
á síðustu mínútu
Þróttur:
Haukar
aðstæður, en Þróttarar voru
ívið nær sigri.
Haukarnir hófu leikinn heldur
betur og á 35. mínútu náði liðið
forystunnh Loftur Eyjólfsson
skoraði þá laglegt skallamark.
Aðeins sjö mínútum síðar jafn-
aði Þróttur. Magnús Jónsson
potaði þá knettinum í netið eftir
hornspyrnu. Var dálítii lykt af
þessu marki, en varadómari
leiksins, Hjörvar Jensson, sá
ekkert athugunarvert. Þess má
geta hér, að enginn dómari
mætti til leiks og mátti litlu
muna að Haukarnir yrðu að
hverfa suður á ný án þess að
leika. Svo fór þó ekki, Hjörvar
var þarna nálægur, nýkominn úr
fríi, og hann hljóp í skarðið.
Heimamenn voru sterkari aðil-
inn lengst af í síðari hálfleik og á
60. mínútu skoraði Þróttur mark
sem dæmt var af. Sigurbergur
Sigsteinsson skallaði þá í netið
eftir hornspyrnu, en Hjörvar
taldi hann hafa hrint frá sér og
dæmdi markið því af. Sýndist
sitt hverjum um réttmæti þess
dóms. 20 mínútum síðar bættu
Þróttarar hins vegar um betur,
Einar Sigurjónsson skoraði þá
beint úr hornspyrnu. Haukarnir
áttu hins vegar lokaorðið í leikn-
um, liðið fékk réttilega víta-
spyrnu tveimur mínútum fyrir
leikslok og úr vítinu skoraði
Ólafur Jóhannesson af öryggi.
gb/gg.
Dýrmæt stig
til Selfoss
STAÐA Austra á botni 2. deild-
ar er fjarri því að vera góð,
eftir enn eitt tapið um helgina.
Að þessu sinni áttust við botn-
liðin, Austri annars vegar og
Selfoss hins vegar. Og í leikslok
var staða Austra enn vonminni
en nokkru sinni fyrr. Lokatölur
leiksins urðu 4—2 Selfyssing-
um i hag. eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 2—0 fyrir
Selfoss.
Þessi leikur gat farið hvernig
sem var, því Austramenn áttu
sinn skammt og vel það af
dauðafærum þeim sem í leiknum
buðust. Það var hins vegar
heimaliðið sem nýtti betur sína
möguleika og lagaði því stöðu
sína til muna í deildinni, þó ekki
sé hún góð. Þórarinn Ingason og
Ámundi Sigmundsson skoruðu
fyrstu mörk Selfoss, en þeir
Snorri Guðmundsson og Sigurð-
ur Gunnarsson jöfnuðu fyrir
Austra snemma í síðari hálfleik.
Selfoss:
Austri
Austramenn léku nokkuð vel
framan af síðari hálfleik en
síðan dofnaði yfir liðinu á ný og
þeir Ólafur Sigurðsson og
Ámundi Sigmundsson tryggðu
sigurinn með mörkum sínum.
Frestaö
LEIK Völsungs og Isafjarðar,
sem fram átti að fara á Húsavik
á laugardaginn var frestað, þar
sem Isfiröingarnir komust ekki
til leiks í tæka tið. Bæði liðin
eiga að leika i kvöld og var
leiknum þvi frestað fram i
næstu viku.
Sigurður til Þýzkalands
LANDSLIÐSMAÐURINN ungi
úr Víking, Sigurður Gunnars-
son, mun að öllum likindum
leika með vestur-þýzka liðinu
Bayer Leverkausen næsta
keppnistímabil. Annar Viking-
ur, Viggó Sigurðsson, hefur
þegar gengið frá samningum
við þetta félag, eins og fram
hefur komið i Mbl.
Þrir menn frá þýzka liðinu
dvöldu hér á landi um helgina
og ræddu við Sigurð og forráða-
menn handknattleiksdeildar
Vikings. Sigurður sagði í sam-
tali við iþróttasiðuna að hann
væri ekki enn búinn að skrifa
undir en yfirgnæfandi líkur
væru á þvi að hann færi til
þýzka félagsins. Sigurður er 20
ára gamall og hefur þegar að
baki 20 landsleiki. Hann er eitt
mesta efni, sem fram hefur
komið i islenzkum handknatt-
leik um áraraðir og verður þvi
mikil blóðtaka fyrir Viking að
missa hann.
Bayer Leverkausen sigraði í 2.
deild s.l. vetur og leikur því í 1.
deild næsta keppnistímabil. For-
ráðamenn félagsins hafa undan-
farið leitað að mönnum til þess
að styrkja liðið og fengu þeir
augastað á Sigurði er þeir skoð-
uðu myndir frá Heimsmeistara-
keppni unglinga í handknattleik,
sem haldin var í Danmörku s.l.
vetur. Ef Sigurður fer utan, mun
hann gera samning til eins árs.
Hann mun starfa hálfan daginn
hjá Bayer lyfjafyrirtækinu, sem
á félagið. Leverkausen er lítil
borg í útjaðri Köln.
-SS.
ÞRÓTTUR og Haukar deildu
bróðurlega með sér stigum, er
liðin áttust við í 2. deild ís-
landsmótsins i knattspyrnu um
helgina. Bæði liðin skoruðu
tvivegis og staðan i hálflcik var
eitt eitt. Þetta þótti nokkuð
þokkalegur leikur miðað við
STAÐAN í 2. deild er nú þessi.
Eins og sjá má er staða Ákur-
eyrarliðanna KA og Þórs mjög
traust á toppnum en staða
Austra aftur á móti orðin mjög
erfið á botninum:
Leikir helgarinnar:
Þór - Fylkir 2:1
Ármann — KA 1:4
Þróttur — Haukar 2:2
Selfoss — Austri 4:2
• Sigurður Gunnarsson hittir fyrir félaga sinn Viggó Sigurðsson í
Leverkusen.
KA 8 611 27:6 13
Þór 8 611 17:6 13
ísafjörður 7 33 1 18:15 9
Fylkir 8 412 15:6 9
Haukar 8 332 16:17 8
Völsungur 7 313 9:9 7
Þróttur N. 7 223 10:14 f.
Selfoss 7 214 10:16 5
Ármann 8 125 11:21 4
Austri 8 017 9:32 1
STAÐAN
2. DEILD
KA vann mikilvægan
útisigur og er efst
KA vann mikilvægan útisigur
þegar liðið lagði Ármann að
velli á Laugardalsvellinum s.l.
laugardag. Sigur KA var ör-
uggur. 4:1 og hefur liðið nú
örugga forystu i 2. deild ásamt
hinu Akureyrarliðinu, Þór.
Ekki er hægt að segja annað
en KA hafi fengið óskabyrjun
því staðan var orðin 2:0 eftir
aðeins 7 mínútur. Fyrsta markið
kom á 5. mínútu. Gunnar Blön-
da! fékk knöttinn eftir mikil
mistök í vörn Ármanns, brunaði
upp að markinu og skoraði með
góðu skoti í stöng og inn. Tveim-
ur mínútum síðar fékk KA
aukaspyrnu út við hliðarlínu,
sem Steinþór Þórarinsson fram-
kvæmdi. Hann spyrnti inn í
vítateiginn, þar sem mikil þvaga
myndaðist. Að síðustu barst
knötturinn til Elmars Geirsson-
ar sem var einn og óvaldaður tvo
metra frá marki og hann skoraði
auðveldlega.
Knattspyrna)
Ármann—
KA
Akureyringarnir voru mun
sterkari í seinni hálfleiknum en
tókst ekki að skora fleiri mörk.
Á 2. mínútu seinni hálfleiks
bættu þeir svo þriðja markinu
við. Knötturinn var gefinn inn í
vítateiginn til Óskars Ingimund-
arsonar og hann skoraði með
góðu skoti.
Eftir markið fór að bera æ
meira á Ármenningum og það
kom ekki á óvart er þeir skoruðu
mark á 34. mínútu. Þráinn Ás-
mundsson braust þá upp vinstri
kantinn og gaf góða sendingu
fyrir markið. Þar var bróðir
hans Óskar staðsettur og sneiddi
knöttinn laglega í netið.
Á 39. mínútu innsiglaði Gunn-
ar Gíslason sigur KA með sér-
lega fallegu marki. Hann skaut
af 20 metra færi og knötturinn
hafnaði efst í markhorninu fjær.
Lið KA lék oft á tíðum ágæta
knattspyrnu og það verður
greinilega ekki auðsigrað í
sumar. Beztu menn voru Harald-
ur Haraldsson, Gunnar Gísla-
son,. Aðalsteinn markvörður og
svo Elmar Geirsson, sem sýndi
oft gamla góða takta. í liði
Ármanns skaraði enginn framúr
nema þá helst Sveinn miðvörður.
Ungur dómari, Birgir Óskars-
son dæmdi leikinn og gerðu
ýmsir athugasemdir við dóm-
gæzluna. En vafalaust verður
hann góður dómari með meiri
reynzlu.
- SS.
ic.cií.i.ikl