Morgunblaðið - 15.07.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
31
Arnarflug
kaupir
nýjar
flugvélar
ARNARFLUG heíur fest kaup á
tveimur nýjum flugvélum frá
Bandaríkjunum. Eru þær af
gerdunum Piper Chieftain. 10
manna, og Piper Cheyenne, 7
manna skrúfuþota. Kaupverð
þeirra er alls tæplega 400 millj-
ónir króna. Tveir flugmenn Arn-
arflugs halda til Bandarikjanna í
dag til að sækja vélarnar og eru
væntanlegir með þær til Réykja-
vikur á fimmtudag eða föstudag.
Að sögn Gunnars Þorvaldsson-
ar, aðstoðarframkvæmdastjóra
Arnarflugs, er ætlunin að Chiefta-
in- vélin verði notuð í áætlunar-
fluginu og kemur hún í stað Piper
Navajo, 7 manna vélar, sem hefur
verið seld. Áfram verða notaðar í
áætlunarfluginu tvær Twin Otter-
vélar félagsins. Cheyenne-vélin er
hins vegar skrúfuþota búin jafn-
þrýstibúnaði og er ráðgert að hún
verði notuð í leiguflug, t.d. til
útlanda, en Gunnar sagði vera
nokkuð um að félagið væri beðið
um þess konar flug. Þá sagði hann
að með þeirri vél gæfust mögu-
leikar á að bjóða fyrirtækjum,
sem þyrftu að senda litla hópa
manna utan í stuttan tíma, slíkt
flug, en það gæti í ákveðnum
tilvikum verið hagstæðara en
áætlunarflug. Arngrímur Jó-
hannsson yfirflugstjóri og Guð-
mundur Hilmarsson flugmaður
fara til Bandaríkjanna í dag til að
sækja vélarnar.
Hólmadrangur i suðurbrún Skaftáreldahrauns, er um fjórar mann-
hæðir.
„Gáðu að
hvar þú stendur
Björn minn44
Af séra Birni í Hólmaseli og Hólmadrangi
í suðurbrún Skaftáreldahrauns,
í útnorður frá Feðgum, er Hólma-
drangur. Ekki er hann þó úr því
hrauni heldur því eldra, sem þar
er undir. Eru miklar líkur taldar
til að það sé einnig úr Lakagígum.
Eldhraunið hefur komið svo nærri
drangnum að varla munar nema
metra og hefur þunnt hraunberg
runnið kringum hann. Hafi ein-
hver verndarkraftur verið þarna
að verki hefur það ekki verið að
ástæðulausu, því Hólmadrangur
er mikil náttúrusmið. Það er eins
og bráðin hraunkvikan hafi gosið
þarna upp og myndað dranginn,
sem er um fjórar mannhæðir þar
sem frá hraunbrúninni veit, en
hærri hinum megin. Hólmadrang-
ur var talinn hádegismark Jrá
Hólmum en Nónsker eyktamark
frá Hólmaseli. Stóðu bæirnir rétt
saman, en Nónsker er hér um bil
2'A km vestar en Hólmadrangur.
Sóknarkirkjan í Meðallandi var
flutt að Hólmaseli 30 árum „fyrir
Eld“, sem féll yfir hana og þessa
bæi báða. Kirkjan þótti veglegt
hús og var fengin að láni í hana
klukka frá Þykkvabæjarklaustri,
mjög stór, en hún lenti undir
hrauninu.
Þarna stóð séra Björn í stólnum
„fyrir Eld“, oft allvel við skál,
samkvæmt þjóðsögunni. En frúin
sat í maddömusætinu og leiðrétti
ef illa horfði með boðskapinn.
„Hvar var ég nú við, Elín mín?“.
var haft eftir Birni í slíku tilfelli.
En tæpast var þó sr. Björn
kominn, segir þjóðsagan, er hann,
allölvaður, var farinn að lesa
Buslubæn af predikunarstól
Hólmaselskirkju. En Buslubæn er
úr Bósa sögu og Herrauðs og voru
í henni svo rammar særingar að
bannað var að lesa Buslubæn
fyrir dagsetur.
„Gáðu að hvar þú stendur,
Björn minn,“ sagði Elín þá. „Þá
tók ég mér fram,“ sagði prestur,
er hann minntist þess seinna. En
þetta skeði stuttu áður en eld-
hraunið féll yfir staðinn og stór-
skemmdi héraðið „milli sanda".
Og auðvitað var þetta talinn
refsidómur, því velsæmdin hér
„fyrir Eld“ þótti vera slík að, of
miklar syndir hlytust af. Eða svo
sýndist sr. Jóni Steingrímssyni.
Hrafn verpir oft í Hólmadrang og
ekki alltaf á sama stað. Er ég kom
þarna nú, var hann með þrjá unga
í hreiðri.
Þetta er austan í drangnum,
efst, og vísa bein á hreiðrið. En
engin leið er að sjá það, nema að
klifra að því. Hefur krummi hent
gamla laupnum niður, gert laut i
grastóna og fóðrað með ull. Hefur
eflaust verið búinn að reyna, að
kaldsamt væri að sitja þarna á
móti austanáttinni sem getur
verið þrálát hér á vorin. —
Vilhjálmur.
\
Nýtt rúgbrauð!
Hvaö er svona nýtt í bílnum? Hvað er óbreytt í bflnum? V
Útlitið fyrir það fyrsta, en það sameinar Ökumaður og farþegi njóta meiri þæginda og Óbreytt standa grundvallarhönnunar-
betur helstu kosti fólks- og sendibílsins
í hönnun, með hinu sérstæða yfirbragði nýju
VW kynslóðarinnar.
Rýmið hefur stóraukist á alla kanta.
Meiri breidd og hæð, sem hefur aukið hleðslu-
rýmið sjálft um sem svarar 700 lítrum.
betri starfsaðstöðu með aukna útsýnismöguleika.
Hleðslan er stórum auðveldari, vegna
þess að rennihurðin á hliðinni hefur verið
stækkuð um 15% og ekki síður vegna 75%
stækkunar á afturhurðinni. Fyrir vikið verður
hleðslan eins auðveld og sjálfur aksturinn.
atriði þau sem ef til vill öðru fremur hafa
stuðlað að gífurlegum vinsældum og sölu á
5.000.000 bílum í gegnum árin, þ.e. ökumaður
fremst, farmur í miðju og vélin aftast.
5 sjálft um sem svarar 700 litrum. hleðslan eins auðveld og sjálfur aksturinn. ■ ■■ ■ ■ hhb
Sendibíll rííunda ðratugsins!