Morgunblaðið - 15.07.1980, Qupperneq 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
SÍKuröur Grétarsson 24 ára
bygKÍnKartæknifræðinKur frá
Tækniskóla íslands var nýverið
ráðinn sveitarstjóri Fella-
hrepps (við LaKarfljótsbrú) i
Norður-Múlasýslu. SÍKurður fer
með starf tæknifræðinKs og
byKKÍnKafulltrúa auk sveitar-
stjórastarfsins. Hann sér um
undirhúninK ok hefur eftirlit
með öllum verkleKum fram-
kvæmdum sveitarfélaKsins. Sík-
urður er fæddur ok uppalinn á
Skipalæk í Fellahreppi ok þekk-
ir því sveitarfélaK sitt mjóK vel
sem ok alla staðháttu.
Ibúar í Fellahreppi nálgast nú
óðum 3ja hundraðið þar af búa
um 180 í þéttbýlinu við Lagar-
fljótsbrú, oft nefnt Hlaðir, en
það er nafnið á húsi Sigbjörns
Brynjólfssonar faktors, segir
Sigurður.
— Mikil ásókn hefur verið í
byggingalóðir í þéttbýlinu og
eykst stöðugt. í fyrra var úthlut-
' ' *
-t
Frá framkvæmdum i Fellahreppi.
*’S.
Ásókn í byggingarlóðir, nóg
af lóðum fyrir iðnfyrirtæki
að 8 lóðum fyrir íbúðarhús en
sennilega verða þær 10 í ár.
Nýlega gerði sveitarfélagið
samning við aðila sem á land er
Iiggur að þéttbýlinu og þannig
tryggði það sér byggingarlóðir
um nokkra framtíð. Skipulags-
mál sveitarfélagsins eru í nokk-
uð góðu lagi, en nýverið gerði
sveitarfélagið samning við
Skipulagsstofnun Austurlands
um gerð framtíðarskipulags. Séð
hefur verið fyrir iðnaðarlóða-
þörfinni næstu árin svo ekki
stendur á sveitarfélaginu ef ein-
hver vildi fá lóð fyrir iðnaðar- og
þjónustufyrirtæki.
— Atvinnumálin eru í góðu
lagi í hreppnum. Hér er fjöldi
atvinnufyrirtækja. Trésmiðja
Fljótsdalshéraðs sem framleiðir
einingahús úr timbri, Verslunar-
félag Austurlands með slátur-
hús, verslanir og veitingaskál-
ann, sem áður gekk undir nafn-
inu Vegaveitingar og Þráinn
Jónsson rak af sinni alkunnu
snilld.
Hjólbarða- og sólningarverk-
stæði, bifreiðaverkstæði, Plast-
iðjan Ylur, sem framleiðir ein-
angrunarplast, varahluta- og
byggingavöruverslun, úrsmiður,
bílasala, bílaleiga og bókaversl-
un svo eitthvað sé nefnt. Héraðs-
stjóri Vegagerðar ríkisins er
staðsettur hér í Fellahreppi og
vegagerðin hefur aðstöðu fyrir
tæki sín hér. Af þessu öllu
skapast beint og óbeint ótal
atvinnutækifæri enda hefur
aldrei verið maður á atvinnu-
leysisskrá í þessum hreppi. Rétt
er það, að ýmislegt er líkt með
atvinnuuppbyggingu þéttbýlis-
ins hér og á Egilsstöðum og því
ekki óeðlilegt að á samkeppni
örli milli þessara sveitarfélaga á
atvinnu- og uppbyggingarmark-
aðinum.
— Þetta er í fyrsta sinn, sem
ráðinn er sveitarstjóri til starfa
í Fellahreppi, en hingað til hefur
oddviti gegnt þeim störfum. Með
ört vaxandi byggð verða málin
sífellt sérhæfðari og tæknistörf-
in aukast verulega. Nýlagning
vega og frágangur á eldri götum
fyrir lagningu olíumalar eru
með helstu verkefnum sveitarfé-
lagsins í ár hér í þéttbýlinu. Þá
verða nokkrar vegaframkvæmd-
ir í sveitinni á vegum sveitarfé-
lagsins og sýsluvegasjóðs. Hins-
vegar teljum við að vegagerðin
Rætt við
sveitarstjóra
Fellahrepps
megi halda betur áfram með
uppbyggingu þjóðvega um sveit-
irnar en víða er ástand vega út
um sveitir mjög slæmt. Hita-
veita var tengd nokkrum húsum
í þéttbýlinu í fyrra, en reiknað er
með að öll hús, sem nú er búið í,
verði tengd hitaveitunni fyrir
veturinn.
Þá stendur Fellahreppur að
sameiginlegum framkvæmdum
með Egilsstaðahreppi á Egils-
stöðum. Það er svona að eiga
stóran bróður fyrir nágranna-
sveitarfélag, sem leyfir litla
sveitarfélaginu ekki að þróast á
venjulegan hátt, en þessar fram-
kvæmdir eru mjög fjárfrekar á
okkar mælikvarða. Hér er um að
ræða skóla- og íþróttahúss-
byggingar. Þar fyrir utan er
Fellahreppur ásamt öðrum
sveitarfélögum á Fljótsdalshér-
aði aðili að byggingu og rekstri
Heilsugæslustöðvar og sjúkra-
húss, félagsheimilis og elliheim-
ilis svo og slökkvistöðvar á
Egilsstöðum. Sambýlið er alls
ekki slæmt og samstarfið við
Egilsstaði mjög gott á flestum
sviðum. Má þar til nefna ágætan
árangur af stofnun sameiginlegs
hitaveitufyrirtækis.
— Öllu jafnan fer vel á með
íbúum þéttbýlisins og sveitar-
innar þó svo að sjálfsögðu verði
ekki hjá því komist að á greini
um ýmis' mál og þá helst um
tekjuuppruna hreppsins og
framkvæmdaskiptingu. Mál sem
þessi leysast alltaf í miklu bróð-
erni hjá okkur.
— Hvort yfir höfuð ætti að
sameina Fellahrepp og Egils-
staði læt ég ósvarað að svo
stöddu. Ef aðeins væru hreppa-
mörk á milli væri málið auðvelt,
en því er ekki fyrir að fara. Hér
liggja á milli sýslumörk, sem og
ýmis önnur tormerki, og verða
þau enn um sinn þessu máli til
fyrirstöðu, segir sveitarstjórinn
að lokum.
Sigurður horfir bjartsýnisaug-
um til framtíðarinnar og sér
ekki ástæðu til að kvíða neinu
því morgundagurinn verður
Fellahreppi augljóslega gjöfull.
— Fréttaritari.
Nokkrir ungir Fcllabúar.
Brynjólfur Bergsteinsson á Hafrafelli, oddviti Fellahrepps og Sigurður Grétarsson sveitarstjóri.
— Ljósm. J.D.J.
IWtt