Morgunblaðið - 15.07.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
35
Gunnar Friðriksson, furseti Slysavarnafélagsins afhendir vinnings-
hafanum lykla happdrættisbifreiðarinnar. Lengst til vinstri er
Gunnar, þá Drífa 6 ára, Arna 10 ára og móðir þeirra frú Erna Hansen.
Tíu ára telpa hlaut
happdrættisbifreið
ARNA Hansen, 10 ára, til
heimilis að Skipholti 58.
Reykjavík hlaut Mazda-929
station bifreiðna, sem var aðal-
vinningurinn í happdrætti
SVFÍ 1980.
Gunnar Friðriksson forseti
SVFÍ afhenti hinum unga vinn-
ingshafa lyklana að hinum
glæsta farkosti í viðurvist móð-
ur stúlkunnar og yngri systur.
Enn hefur eftirtöldum vinn-
ingsnúmerum ekki verið fram-
vísað: 16776 - 32689 - 22607 -
24784 - 4608 - 11979 - 26508
- 11178 - 17535 - 11135 -
20883 - 16313 - 3078 - 32151
- 23005 - 14257.
Húsmæðraskólan-
um á ísafirði slitið
Húsmæðraskólanum á ísafirði
var slitið mánud. 26. maí. Skóla-
stjóri Þorbjörg Bjarnadóttir
skýrði frá skólastarfinu. Skólinn
byrjaði 10. sept. sl. og starfaði í
löngum og stuttum handavinnu-
og hússtjórnarnámskeiðum fram
til áramóta. Voru þau öll full
setin.
27 nemendur úr grunnskóla
Bolungarvíkur og Gagnfræðaskóla
Isafjarðar tóku matreiðslu sem
valgrein í Húsmæðraskólanum og
var þeim kennt í námskeiðum
fram að áramótum. Samtals
stunduðu 250 nemendur nám um
lengri eða skemmri tíma á skóla-
árinu.
Próf voru tekin að loknu 5
mánaða námskeiðinu og hlaut
Kristjana Valgeirsdóttir frá Ak-
ureyri hæsta einkunn, 8.37. Voru
henni veitt verðlaun úr Camillu-
sjóði. Skólakostnaður á nemanda
var að meðaltali kr. 300 þús. þar
innifalið fæði, handavinnuefni,
bækur og önnur skólagjöld.
Fastir kennarar við skólann auk
Sveinbjörn
Pétursson
Sveinbjörn Pétursson frá
Svefneyjum varð niræður s.l.
sunnudag.
— Þau mistök urðu að mynd,
sem fylgja átti afmælisgrein um
hann í blaðinu þann dag, féll
niður. Biðst blaðið velvirðingar á
þessu.
skólastjóra voru Guðrún Vigfús-
dóttir vefnaðark. og Elsa Bjart-
marsdóttir matreiðsluk. Rannveig
Hjaltadóttir lét af störfum sem
fastur kennari við skólann, en
kenndi útsaum sem stundakenn-
ari. Sigrún Vernharðsdóttir
kenndi fatasaum.
Við skólaslit voru mættir af-
mælisárgangur 20 og 10 ára nem-
enda, sem færðu skólanum höfð-
inglegar gjafir og heillaóskir.
SÁÁ sækir
um lóð í
Reykjavík
SAMTÖK áhugafólks um áfengis-
vandamálið leita nú fyrir sér hjá
Reykjavíkurborg um lóð undir
sjúkrastöð sína. Er hún nú til húsa
að SilungapoIIi, en þar hafa yfir-
völd amast við henni m.a. vegna
nálægðar við vatnsból, en samtök-
in telja hentugast að fá lóð i
Reykjavík.
— Við verðum ekki til langframa
á Silungapolli þrátt fyrir að við
höfum unnið þar að vissum endur-
bótum, komið upp rafmagnskynd-
ingu í stað olíukyndingar og látum
nú tæma þróna vikulega til að
menga síður, en hætta er talin á því
þegar svo umfangsmikil starfsemi
er rekin í húsinu, sagði Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri
SÁÁ í samtali við Mbl. Sagði
Vilhjálmur að samtökin hefðu þurft
að flytja fjórum sinnum að undan-
förnu og væri nú lagt kapp á að
finna stað fyrir framtíðarhúsnæði,
sem hýst gæti sjúkrastöðina og
leitarstöðina, sem nú er í Lágmúla.
— Við höfum augastað á lóð
sunnanvert við gamla Bústaðaveg-
inn, nálægt Kringlumýrarbraut, en
starfsemi okkar þarf helst nokkuð
verndað umhverfi. Við höfum fund-
ið fullan skilning yfirvalda á að
útvega okkur hentuga lóð, en engin
ákvörðun hefur verið tekin enn. Ef
lóð fæst fljótlega verður strax
hafist handa um að teikna og síðan
byggja og teljum við okkur geta
lokið byggingunni á 8 mánuðum.
Hyggjumst við þá standa fyrir
átaki, hvetja fólk til að styðja okkur
með framlögum og sjálfboðavinnu
og drífa bygginguna upp á fáum
mánuðum.
Áttræður sl. sunnudag:
Júlíus Vigfússon
Hlíð Ytri-Njarðvík
Áttræður varð sl. sunnudag,
Júlíus Vigfússon, Hlíð, Ytri-
Njarðvík.
Júlíus er fæddur 13. júlí árið
1900 að Teigum í Fljótum, sonur
Vigfúsar Árnasonar frá Isleifs-
stöðum á Mýrum og Elínar Jó-
hannsdóttur frá Reykjahóli í
Skagafirði.
Júlíus missti föður sinn þegar
hann var 9 ára, en ólst síðan upp
hjá móður sinni og eldri bræðrum
til 15 ára aldurs, að hann fór til
sjóróðra frá Siglufirði og síðar frá
Suðurlandi. Þegar Júlíus stundaði
sjó frá Njarðvíkum eftir 1920
kynntist hann Guðfinnu Magnús-
dóttur og gengu þau í hjónaband 4
október 1924. Þau eignuðust tvö
börn Karólínu og Árna, en urðu
fyrir þeirri sorg að missa son sinn
í samkomuhúsbrunanum í Kefla-
vík 30. desember 1935.
í sonarstað ólu þau upp og
ættleiddu dótturson sinn Árna
Júlíusson. Konu sína Guðfinnu
missti Július 31. maí árið 1971 og
eru afkomendur þeirra í dag 21 að
tölu.
Júlíus ólst upp á fátæku barn-
mörgu heimili, þar sem hann
vandist snemma vinnusemi. Hann
hefur ætíð átt sterka sjálfsbjargar
viðleitni og haft ríka tilhneigingu
til að vera ekki upp á aðra kominn.
Þessir eiginleikar, ásamt nægju-
semi, þrotlausum dugnaði og
hyggindum, breyttu fátækum
frumbýlishögum þeirra hjóna í
efnalegt sjálfstæði, Júlíus og Guð-
finna eru glöggt dæmi um dug-
mikið alþýðufólk, sem með lífi
sínu gáfu öllum er þeim kynntust
göfugt fordæmi. Sjómennska var
aðalstarf Júlíusar framan af æfi,
eða allt til ársins 1942, en auk
sjómennskunnar stundaði hann
ýmiskonar störf við húsb.vggingar.
Á árunum 1950 til 1976 starfaði
hann við margskonar viðgerðar-
þjónustu á Keflavíkurflugvelli.
Júlíus og Guðfinna bjuggu öll
sín búskaparár í Njarðvík. Árið
1926 fluttu þau í eigið íbúðarhús,
sem þau höfðu reist og nefndu
Hlíð. Tuttugu árum síðar fluttu
þau úr gömlu Hlíð í stórt og
myndarlegt tveggja hæða steinhús
að Þórustíg 4, er þau einnig
nefndu Hlíð, og var þar heimili
þeirra alla tíð. Síðan 'Júlíus hætti
störfum árið 1976 hefur hann búið
á Dvalarheimili Aldraðra Sjó-
manna í Reykjavík.
Við afkomendur Júliusar hugs-
um með hlýjum huga til þeirra
stunda, sem við eyddum á heimili
þeirra hjóna, allt frá því við
vorum börn að aldri.
Við óskum afa okkar hjartan-
lega til hamingju með þessi tíma-
mót og vonum að hann meigi njóta
góðrar heilsu enn um mörg ókom-
in ár.
Barnaborn
Max sportfatnaður
fyríralla
Það er nauðsynlegt að hafa Max sportgalla
með, hvort sem farið er í útilegu, gönguferð eða
verið úti við störf eða leik. Þau eru fyrirferða-
lítil í geymslu, létt og þægileg í notkun.
Margar stærðir, margir litir.
ARMULA 5 — SIMAR 86020 OG 82833