Morgunblaðið - 15.07.1980, Side 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
+ Bálför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR G. BJÖRNSDÓTTUR, fer fram frá Garöakirkju á Álftanesi, miövikudaginn 16. júlí kl. 13.30. F.h. fjarstaddrar dóttur og annarra ættingja, Elísa M. Kwaszenko, Björn Magnússon, Svanhvít Gunnarsdóttir.
+ Útför eiginkonu minnar og móöur, GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Ránargötu 1, sem andaöist 1. júlí, veröur gerö frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 15. júlí kl. 13.30. Sveinn R. Jónsson, Kjartan Gunnarsson.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, YNGVI PÁLSSON, Hjaröarhaga 62, lézt 2. júlí sl. Útförin hefur fariö fram. Katrín J. Smári, Helga Björg Yngvadóttir, Jakob Yngvason.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, ÞORSTEINN HELGASON, Langholtsvegi 106, lést af slysförum þann 11. júlí. Anna Siguróardóttir og börn.
+ Systir okkar, ANNA ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Pálsbæ, sem andaöist 7. þ.m. veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 17. þ.m. kl. 13.30. Guölaug Siguröardóttir, Pétur Sigurðsson, Ólafur Sigurösson.
+ Móöir okkar ANNA Þ. MAGNÚSDÓTTIR, Bústaóavegi 73, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 21. júlí kl. 13.30. Hulda Sproat, Magnús Skarphéðinsson Elfar Skarphéðinsson, Elín Skarphéöinsdóttir Anna S. Skarphéöinsdóttir Hilmar Skarphéóinsson
+ Eiginmaöur minn, faöir og bróöir, HARALDUR HARALDSSON, vélstjóri 48 Mamore Terrace Kinmylies Inverness, Scotland. lést aöfaranótt laugardagsins 12. þ.m. íris Haraldsdóttir, Rúna Haraldsdóttir, Stella Haraldsdóttir, Siguröur Haraldsson, Norma Haraldsdóttir.
+ Eiginmaöur minn og faöir INGI GARÐAR EINARSSON Flúóaseli 61, Reykjavík lést af slysförum 13. júlí, jaröarförin auglýst síöar. Dagný Leifsdóttir, Davíö örn Ingason.
+
Minningarathöfn um móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
AÐALHEIOAR ÞÓRÐARDÓTTUR SALT
fer fram frá Safnaöarheimili Grensássóknar, miövikudaginn 16.
júlí, kl. 3 e.h.
Heimir Salt, Sigrún Sveinsdóttir,
Daníel Heimisson Salt.
Hólmfríöur Hákon-
ardóttir - Minning
Fædd 5. september 1942 .....
Dáin 5. júli 1980
í dag verður til moldar borin frá
Fossvogskirkju Hólmfríður Há-
konardóttir Neðstutröð 6 Kópa-
vogi. Hólmfríður var fædd í
Reykjavík 5. 9. 1942 og var því
aðeins 37 ára gömul þegar hún lést
af slysförum.
Foreldrar hennar eru Hákon
Hafliðason og Guðfinna Jóna
Torfadóttir Reykjavík, og var
Hólmfríður næst elst af 6 systkin-
um.
Árið 1960 giftist Hólmfríður
Kristjáni Oddgeirssyni bifreiða-
stjóra og var þeim 6 barna auðið,
þau eru Hjördís, Oddgeir, Baldvin,
Guðfinna Jóna, Halldóra, og
Helga. Fyrir 7 mánuðum síðan
eignuðust þau sitt fyrsta barna-
barn, dreng sem skírður var Krist-
ján Oddgeirsson og er því alnafni
afa síns.
Það er fátt um orð. Ung kona, 6
barna móðir, er hrifin burt úr
blóma lífsins. Margar spurningar
koma upp í huga manns, en það er
fátt um svör.
Hólmfríður og Kristján hófu
sinn búskap við hinar fjölbreyti-
legustu aðstæður eins og algengt
var hjá ungu fólki á þeim tímum.
Fyrst bjuggu þau vestur á Selja-
vegi, síðan á Hverfisgötu 123, en
1966 kaupa þau hús uppvið Geit-
háls sem þau kölluðu Vindheima
og þar var góður leikvangur fyrir
stóran barnahóp. Það er á þessum
árum sem við kynnumst þeim
hjónum.
Kristján keyrði þá vörur út á
land fyrir fyrirtæki sem ég vann
hjá og kom þá oft ekki heim fyrr
en seint á kvöldin eða nóttu. Þar
af leiðandi þurfti ég oft að hafa
samband við Hólmfríði til að
frétta af ferðum hans og það má
segja að fyrstu tvö árin þekktumst
við aðeins í gegnum síma, en það
var sama hvenær maður hringdi,
alltaf var sama glaðværðin og
hressileikinn yfir henni og gat
maður vart hugsað sér að þar væri
kona með 6 börn á höndum sér.
Árið 1974 verðum við svo ná-
grannar er þau byggðu sér hús og
fluttu í bæinn. Það hús seldu þau
og keyptu sér myndarlegt einbýl-
ishús að Neðstutröð 6 í Kópavogi.
Þar er vissum áfanga náð, rúmt er
orðið um alla fjölskylduna og
bjartir tímar framundan?
Það var aðeins örfáum dögum
áður en hinn örlagaríki dagur
rann upp, að ég sat í stofu hjá
þeim hjónum og slegið var á létta
strengi yfir kaffibolla. En enginn
veit hvað næsti dagur ber í skauti
sér og aldrei erum við viðbúin
tíðindum sem þessum.
Um leið og ég þakka þér og konu
þinni, Kristján minn, tryggð ykk-
ar og umhyggju fyrir mér og
mínum sendum við hjónin þér og
börnum þínum okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum Guð að
styrkja ykkur í þeim söknuði sem
þið þurfið nú að bera. Megi
minningin um eiginkonu og móður
verða ykkar bautasteinn til
bjartrar framtíðar. Guð blessi
ykkur öll.
Gunnar Páll.
Nanna Magnúsdótt-
ir - Minningarorð
Nanna Magnúsdóttir frá Flat-
ey á Breiðafirði, var jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
þann 14. júlí sl. Nanna íæddist i
Flatey þann 30. október 1915.
Snemma byrjar hennar lífs-
starf. 9 ára flyst hún frá Flatey og
fljótlega upp frá því tekur ábyrgð-
in við hjá Nönnu, er hún missir
móður sína, en á yngri systkini,
sem nú urðu að stóla á sína eldri
systur.
Sá er hér ritar kynnist Nönnu,
er hún hefur störf hjá Loftleiðum
1956, í veitingabúð félagsins á
Reykjavíkurflugvelli, hjá braut-
ryðjanda í veitingamannastétt,
Elíasi Dagfinnssyni. Þar starfar
hún af mikilli orku og elju, sem
öllum er kunnugt, er með henni
störfuðu. Fljótlega gerist hún
hægri hönd Elíasar í veitingamál-
unum og eftir brunann á Reykja-
víkurflugvellinum færist starf-
semin í Tjarnarkaffi, en þangað
sóttu ekki ófáir starfsmenn fé-
lagsins hressingar til Nönnu.
Árið 1962 eru þáttaskil, er
félagið flytur starfsemi sína til
Keflavíkurflugvallar, þar nýtast
starfskraftar Nönnu til hins ýtr-
asta.
Brautryðjandans Elíasar Dag-
finnssonar nýtur nú skammt við,
þar eð hann fellur frá, en við tekur
ðlfreð Rosenberg, þekktur fröm-
uður í þessum málum. Starfar
Nanna með honum næstu árin,
bæði við hótel- og veitingarekstur,
sem hvoru tveggja var rekið í þá
daga af Loftleiðum á Keflavíkur-
flugvelli.
+
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
JAKOBÍNA ÓLAFSDÓTTIR,
Hjallavegí 2,
veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 18. julí kl.
13.30.
Hjörtur Wíum Vilhjálmsson,
Olafur Hjartarson, Herborg Ólafsdóttir,
Vilhjálmur Hjartarson, Harpa Jónsdóttir,
Guóbjörn Hjartarson, Bára Benediktsdóttir,
Sigríöur Hjartardóttir, Hreiöar Gíslason,
SaBvar Hjartarson, Dagbjört Hjörleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÞORSTEINN JÓNSSON,
frá Hraunger&i, Hellissandi,
sem lést aö heimili sínu Yrsufelli 9, 6. júlí veröur jarösunginn
miövikudaginn 16. júlí kl. 13.30 í Fossvogskirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast
hans er bent á hjartavernd.
Áslaug Einarsdóttir, Einar Þorsteinsson,
Jónína Þorsteinsdóttir, Baldur Magnússon,
Ása Þorsteinsdóttir, Guömundur Bjarnleifsson,
Sigurlaug Þorateinsdóttir, Siguröur Kristjánsson.
Verslunin
veröur lokuð
vegna jaröarfarar í dag.
Kjartan Jónsson byggingavöruveslun,
Tryggvagötu 6.
Árið 1974 fellur Alfreð Rosen-
berg frá og tekur þá Nanna við
rekstrinum, sem nokkrum breyt-
ingum hafði þá tekið, þ.á m. félag-
ið orðið Flugleiðir. Áfram og þá
ein og af fullum krafti sá hún um
starfsemina sem áður og er bæði
virt og vinsæl meðal sinna sam-
starfsfélaga, enda ávallt greiðvik-
in og úrræðagóð.
Allt fram í ársbyrjun 1978 er
hún hefur sinn lokaferil og þá á
braut hið óhindranlega og hið
óyfirstíganlega, sem að lokum nær
yfirhöndinni. Þar háði hún langa
baráttu eða í rúm 2 ár, en stöðugt
með það í huga að sigra.
Á æviferli sínum gekk Nanna í
gegnum bæði leitt og ljúft, eins og
flestir, en hennar braut var oft
grýttari yfirferðar en annarra, þó
hún léti aldrei á því bera. Nanna
tók ríkan þátt í félagsskap meðal
samstarfsfélaga sinna og minnist
ég sérstaklega ferðar nokkurra
starfsmanna um Breiðafjarðar-
eyjar. Þar kunni hún frámmörgu
að segja og nutum við fróðleiks
hennar frá æskuárum um eyjarn-
Samstarfsmenn Nönnu minnast
hennar með hlýjum hug og sem
kjarkmikilli og duglegri konu, sem
skilur eftir sig skýra mynd í
hugum þeirra er hana þekktu.
Jón óskarsson.