Morgunblaðið - 15.07.1980, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
47
Sovézkar húsmæður sólgnar í notuð föt frá Bandaríkjunurr
Kabúl. 14. júlí. AP.
DAGLEGA kaupa sovéskar
eiginkonur hermanna og emb-
ættismanna föt. Það í sjálfu
sér þykir ekki í frásögur
færandi en það sem þykir
merkilegra er, að sovésku kon-
urnar i Kabúl kaupa notuð föt,
sem hafa verið flutt inn til
landsins frá Bandaríkjunum.
Innlendir kaupmenn hafa gert
sér grein fyrir því, að sovésku
konurnar eru mjög hrifnar af
bandarísku fötunum, — og
þar eð þær þora ekki inn á
hina hefðbundnu markaði þá
hafa þeir sett upp markaði
fyrir framan hús þeirra.
Um árabil hefur notaður banda-
rískur fatnaður verið fluttur inn
til Afganistan. Þetta eru föt, sem
bandarískur almenningur er hætt-
ur að nota, og eftir að hafa legið í
kjöllurum um skeið, hefur hann
Kvennaráðstefna
S.Þ. sett í Khöfn
Kaupmannahöfn, 14. júlí. — AP.
Kvennaráðstefna Sameinuðu
þjóðanna var sett i Kaupmanna-
höfn í dag. Um 1500 fulltrúar frá
140 rikjum sitja ráðstefnuna.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna setti
ráðstefnuna í Kaupmannahöfn en
hún mun standa i 18 daga. Wald-
heim sagði i ræðu sinni, að nú
væru 5 ár siðan sams konar
ráðstefnu iauk í Mexikóborg og
mörgum virtist lítið hafa miðað
siðan þá. Þó sagði hann, að ekki
mætti vanmeta þann árangur sem
náðst hefði.
„Almennt þá vinna konur að
staðaldri, en hljóta ekki alltaf laun
fyrir. Þær vinna langan vinnudag
og hljóta oft litla umbun," sagði
Waldheim. Hann sagði að sérstak-
lega væru konur í þróunarríkjum
illa á vegi staddar og tveir af
hverjum þrem sem ólæsir væru í
heiminum væru konur.
Margrét Danadrottning ávarpaði
ráðstefnuna. Um 50 manns stóðu
fyrir utan ráðstefnusalinn og báru
mótmælaspjöld þar sem þátttak-
endur frá Afganistan voru for-
dæmdir. „Stöðvið Rússa í að skjóta
afgönsk börn,“ stóð á mótmæla-
spjöldum.
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra Dana ávarpaði ráðstefnuna
og gagnrýndi hann stefnu íranskra
stjórnvalda, en mjög hefur verið
þrengt að hag íranskra kvenna
undir stjórn Ayatolahs Khomeinis.
verið gefinn hjálparstofnunum,
svo sem Hjálpræðishernum. Hins
vegar hefur þessi fatnaður verið
seldur í miklum mæli til Afganist-
an og er talið að árlega séu flutt
föt til landsins fyrir andvirði 12 til
20 milljónir dollara.
Mikið úrval er af þessum gömlu
bandarísku fötum. í Kabúl er
hægt að fá mini-pils frá því upp úr
1970, — þau eru mjög vinsæl,
mótórhjólajakka og fleira og
fleira. Allt selst ódýrt — þannig
kostar blússa 1 dollar, og kjóllinn
fer á 4 dollara — allt selst.
Svartamarkaðsbraskið blómstrar
en afganskir kaupmenn, sem nýta
sér sovéska hersetu, kvarta helst
undan nísku Rússanna.
En ekki eru bara bandarísk föt
á svörtum markaði. Þar selst
rússneskur kavíar og rússneskt
vodka dýru verði og helstu kaup-
endur slíkra „munaðarvara“ eru
vestrænir menn á ferð um þetta
stríðsþjáða land.
(Bysrxt á grein Edith Leder, AP-
fréttamanns, sem dvaldi í 12 daga i
Afganistan.)
Geimskutla Bandaríkjamanna á skotpalli í Kennedy-geimstöðinni á
Florida. Tilraunir hafa verið gerðar með skutluna á skotsvæðinu.
Newsweek:
„Trianon" - njósnari
CIA innan múra Kremiar
New York, 13. júlí. AP.
BANDARÍSKA tímaritið
Newsweek skýrði frá því í dag,
að bandaríska Ieyniþjónustan,
CIA, hafi haft á sínum snærum
njósnara í sovéska utanríkis-
ráðuneytinu á áttunda áratugn-
um. Dulnefni hans var „Trian-
on“. Hann var álitinn einn
mikilvægasti njósnari CIA.
„Trianon" var sovéskur sendi-
ráðsstarfsmaður erlendis þegar
CIA réð hann til starfa fljótlega
upp úr 1970. Þegar „Trianon"
sneri aftur heim til Sovétríkj-
anna, hóf hann störf í sovéska
utanríkisráðuneytinu og var
háttsettur innan veggja þess. Á
árunum 1974 til 1976, þegar
Gerald Ford ríkti í Washington,
hætti „Trianon" að senda upp-
lýsingar og var óttast að upp um
hann hefði komist.
í apríl 1977 vaknaði „Trianon"
aftur til lífsins og skýrði frá
samtali Henrys Kissingers fyrr-
um utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og Anatolys Dobrynins,
sendiherra Sovétríkjanna í
Washington. Kissinger átti að
hafa verið mjög gagnrýninn á
Zbigniew Brzezinski, öryggis-
málafulltrúa Carters, og einnig á
tillegg Carterstjórnarinnar til
SALT II viðræðnanna. Kissinger
hefur harðlega mótmælt þessu
og sagt, að bandarísk stjórnvöld
hefðu beinlínis lekið sögunni af
„Trianon" einmitt nú, svo
skömmu fyrir flokksþing repú-
blikana.
Newsweek skýrði frá því, að
CIA hefði haft spurnir af því, að
„Trianon" hefði framið sjálfs-
morð skömmu eftir fund Dobr-
ynins og Kissingers en lítið er
vitað með vissu um örlög „Trian-
ons“, að sögn tímaritsins.
Mini-pils seljast
grimmt í Kabúl
Margrét II Danadrottning, sem sjálf hefur lýst því yfir, að hún sé
ekki kvenréttindakona, ávarpar kvennaráðstefnuna i Kaupmanna-
höfn, er stendur í 18 daga.
Karpov
vann IBM-
skákmótið
Amsterdam. 14. júli. AP.
SOVÉSKI heimsmeistarinn í skák,
Anatoly Karpov, varð hinn öruggi
sigurvegari á IBM-skákmótinu.
Hann hlaut 10 vinninga, varð heil-
um vinningi á undan næsta manni,
Jan Timman frá Hollandi. Alls voru
14 umferðir tefldar. t siðustu um-
ferð vann Karpov Danann Bent
Larsen næsta auðveldlega á svart. í
aðeins 23 leikjum. Karpov tefldi
svörtu mönnunum. Larsen stóð sig
afar illa á mótinu og hafnaði i
neðsta sæti.
Kreisky vill ekki
nýjar kosningar
Vín. 13. júll - AP
BRUNO Kreisky, kanslari Aust-
urrikis, sagði i dag, að hann teldi
ekki nauðsynlegt að fram færu
nýjar kosningar í landinu, vegna
mútuhneykslís, sem upp kom í
sambandi við byggingu á nýrri
spítalasamstæðu í Vin.
Hann sagði að kosningar nú
væru „tilgangslausar", en ítarleg
rannsókn færi fram á málinu.
Kreisky hefur verið kanslari
Austurríkis síðan 1970 en flokkur
hans, Jafnaðarmannaflokkurinn,
vann hreinan meirihluta í þing-
kosningunum á síðasta ári.
Jan Timman tefldi við Tékkann
Hort í síðustu umferð. Þegar hann sá
að Karpov hafði sigrað Larsen þá
bauð hann jafntefli, sem Hort þáði.
Landflótta Sovétmaðurinn í Hol-
landi, Gerd Sosonko, varð í þriðja
sæti með 8 vinninga en hann vann
John van der Wiel. Ribli og Dolmatov
gerðu jafntefli.
Lokastaðan varð: Karpov 10,
Timman 9, Sosonko 8, Hort 7,5,
Dolmatov og Ribli 7, van der Wiel 4
og lestina rak Bent Larsen með 3,5. í
meistaraflokki vann Sovétmaðurinn
Alexander Chernin yfirburðasigur,
hlaut 10,5 vinninga af 11 mögulegum.
Chernin er Evrópumeistari unglinga.
1979 — Morarji Desai, forsætis-
ráðherra Indlands, segir af sér.
1974 — Grískir liðsforingjar á
Kýpur steypa Makariosi.
1972 — 10.000 konur og börn flýja
úr kaþólska hverfinu í Belfast.
1%8 — Beint áætlunarflug milli
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna.
1%5 — Konstantín Grikkjakon-
ungur víkur Georg Papandreou
forsætisráðherra úr embætti.
1%1 — Mikoyan verður forseti í
stað Brezhnevs.
1963 — Þríveldaviðræður í
Moskvu um tilraunabann.
1%0 — Gæzlulið SÞ kemur til
Kongó — Kennedy tilpefndur for-
setaefni demókrata.
1958 — Bandarískt herlið sent til
Líbanon.
1948 — Vopnahlé fyrirskipað í
Palestínu.
1936 — Þjóðabandalagið afléttir
refsiaðgerðum gegn ítðlum.
1912 — Almannatryggingar taka
gildi í Bretlandi.
1909 — Mohammed Ali íranskeis-
ara steypt og Ahmad Shah tekur
við.
1895 — Stefan Stambulov, forsæt-
isráðherra Búlgaríu, myrtur.
1857 — Fjöldamorð á konum og
börnum í Cawnpore á Indlandi.
1840 — Lundúna-sáttmálinn um
stuðning fjórveldanna við Tyrki
undirritaður.
1822 — Innrás Tyrkja í Grikkland
hefst
1685 — Hertoginn af Monmouth
hálshöggvinn fyrir uppreisn.
1236 — Alexander Nevsky sigrar
Birgi jarl við Neva-fljót.
1099 — Krossfarar taka Jerúsal-
em herskildi; blóðbað í borginni.
Afmæli. Rembrandt, hollenzkur
listmálari (1606-1669) -
Northcliffe lávarður, brezkur
blaðaútgefandi (1865—1922).
Andlát. 1291 Rudolf I Þýzka-
laandskeisari — 1948 John Persh-
ing, hermaður.
Innlent. 1975 Reglugerð um 200
mílna fiskveiðilögsögu — 1626 d.
síra Einar Sigurðsson — 1803 d.
síra Snorri Björnsson á Húsafelli
— 1294 Réttarbót — 1856 Jerome
Napoleon kemur hingað úr ferð
norður í höf — 1872 Bóndinn á
Gili í Öxnadal dæmdur f 100
ríkisdala sekt í hrossadrápsmál-
inu — 1917 „Vestu“ sökkt — 1957
Yfir 100 grindhvalir drepnir í
Njarðvíkum — 1968 Fjórir fórust
með lftilli flugvél á Látrabjargi —
1971 Ráðuneyti Jóhanns Hafstein
fær lausn — 1973 Fjórir fórust
með lítilli flugvél í Snjófjöllum —
1888 f. Alexander Jóhannesson.
Orð dagsins. Ég er hræddur við
útskýringar sem eiga að útskýra
útskýringar — Abraham Lincoln,
forseti Bandaríkjanna (1809—
1865).