Morgunblaðið - 15.07.1980, Side 40
NYR MATSEÐILL
Opið alla daga frá kl. 11-24
tfguuliltifrifc
Síminn á rilstjórn
og skrifstofu:
10100
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
Ekkert lát á slysaöldunni:
Átta íslendingar hafa
farizt á rúmri viku
Þrjú ungmenni á gjörgæzlu-
deild eftir umferðarslys í gær
EKKERT lát virðist á þeirri miklu slysaöldu. sem
gengið jiefur yfir undanfarnar vikur. Á rétt rúmri viku
hafa 8 íslendingar látið lífið af slysförum hér á landi og
fjögur ungmenni liggja stórslösuð á sjúkrahúsum í
Reykjavík eftir umferðarslys. Þrennt slasaðist í gær og
þar af eru tveir ungir menn lífshættulega slasaðir.
Laugardaginn 5. júlí
urðu tvö banaslys, 38 ára
gömul kona, Hólmfríður
Hákonardóttir lézt í um-
ferðarslysi í Kópavogi og
22ja ára gamall maður,
Rúnar Bjarnason, lét lífið
er svifdreki hrapaði til
jarðar í Vestmannaeyjum.
Fimmtudaginn 10. júlí fór-
ust tveir sjómenn frá Vest-
mannaeyjum með mótor-
bátnum Skuld VE, Gísli
Leifur Skúlason 36 ára og
Sigurvin Þorsteinsson 3o
ára. Föstudaginn 11. júlí
lézt 67 ára gamall maður,
Þorsteinn Helgason, í um-
ferðarslysi í Reykjavík. Og
um helgina drukknuðu þrír
ungir menn er bátum, sem
þeir voru á, hvolfdi á vötn-
um. Þeir hétu Ingi Garðar
Helgason Reykjavík, 28
ára, Valdimar Björnsson
Akureyri, 27 ára og Halldór
Sveinbjörnsson úr Eyja-
firði, 26 ára.
1 gærmorgun stórslasað-
ist ungt par í Reykjavík
þegar ökumaður bifreiðar
missti stjórn á bifreiðinni
er hann var að beygja sig
eftir kveikjara og bifreið
hans skall framan á bifreið
unga fólksins. Þau eru bæði
19 ára. Þá slasaðist 23ja
ára gamall maður lífs-
hættulega þegar steinn fór
í gegnum framrúðu bifreið-
ar, sem hann ók eftir Vest-
urlandsvegi, og lenti í and-
liti mannsins. Þessi ung-
menni voru margar klukku-
stundir á skurðarborðum
Borgarspítalans í gær.
Loks er þess að geta að 15
ára stúlka liggur mikið
slösuð á sjúkrahúsi í
Reykjavík vegna höfuð-
meiðsla, sem hún hlaut í
umferðarslysi á Akureyri
s.l. fimmtudag. Því slysi
olli ölvaður ökumaður.
Nánar um slysaölduna á bls. 3.
Hólmíriður Hákonardótt-
ir, 37 ára. Fórst i bilslysi í
Kópavogi 5. júli.
Þorsteinn Helgason, 67
ára. Fórst i bilsiysi i
Reykjavik 11. júli.
Rúnar Bjarnason, 22ja
ára. Fórst i svifdrekaslysi
i Vestmannaeyjum 5. júii.
Halldór Sveinbjörnsson,
26 ára. Drukknaði i Más-
vatni 12. júli.
Valdlmar Björnsson. 27
ára. Drukknafi i Más-
vatni 12. júli.
Sigurvin Þorsteinsson, 30
ára. Fórst með mótorbátn-
um Skuid VE 10. júli.
Ingi Garðar Einarsson. 28
ára. Drukknaði i Gisl-
holtsvatni 13. júii.
Egg, svínakjöt og kjúkl-
ingar hækka um 25%
VEGNA tvöhundruð pró-
sent hækkunar fóðurbætis-
skatts hækkar verðlags-
grundvöllur eggja, kjúkl-
inga og svínakjöts um
50%, sem þýðir að verð á
þessum vörutegundum
hækkar um því sem næst
25%.
Mjög erfitt er að nefna
ákveðnar tölur í þessu sam-
bandi þar sem verð er mjög
misjafnt milli verzlana.
Það er í raun framboð og
eftirspurn sem ræður verð-
Sundrung í Sjálfstæðis-
flokki þýðir völd sósíalista
- sagði Geir Hallgrimsson i ræðu i Bolungarvík á laugardagskvöld
GEIR Hailgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði i
ræðu i Bolungarvík sl. laugar-
dagskvold, að skapa yrði skil-
yrði innan Sjálfstæðisflokksins
til þess að fylkja öllum sjálf-
stæðismönnum saman til sátta
og samkomulags og afla flokkn-
um aukins fylgis með þjóðinni.
„Við skulum takast i hendur
sjálfstæðismenn og ganga sam-
einaðir til nýrrar baráttu,“
sagði Geir Hallgrímsson. „Við
verðum að standa saman og
berjast saman, en augljóst er,
að það verður því miður ekki
meðan núverandi stjórnar-
stefna ríkir,“ sagði formaður
Sjálfstæðisflokksins ennfrem-
ur.
í ræðu sinni minnti Geir
Hallgrímsson á, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði verið hið sam-
einandi afl í íslenzku þjóðlífi. Nú
yrðu sjálfstæðismenn að horfast
í augu við það, „að leiðir sumra
okkar hefur skilið um skeið".
Afleiðingin væri sú, að vinstri
öflin væru áhrifameiri en
nokkru sinni fyrr. Sósíalistar
hefðu seilzt til áhrifa um allt
þjóðlífið. Þeir sitja í stjórnar-
ráðinu, sagði Geir Hallgrímsson,
þeir ráða ferðinni í höfuðborg-
inni og þeir stjórna verkalýðs-
hreyfingunni. Sundrung í Sjálf-
stæðisflokknum þýðir sterkari
stöðu sósíalista. Haldi svo fram
sem horfir, þurfa vinstri menn
ekki á neinum sjálfstæðismanni
að halda til þess að tryggja völd
sín og áhrif. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins kvaðst vita, að
margir traustustu fylgismenn
flokksins fylltust svartsýni, þeg-
ar þeir litu yfir stöðuna í
íslenzkum stjórnmálum. Við
þurfum að snúa ofan af þessari
svartsýni, efla eldmóð meðal
flokksmanna og hjá þjóðinni
allri.
Geir Hallgrímsson nefndi í
ræðu sinni nokkur verkefni, sem
Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti að
vinna að á næstunni:
• Sporna verður gegn opin-
berri íhlutun og skapa al-
menn skilyrði fyrir því að
frumkvæði einstaklingsins
fái að njóta sin.
• Koma verður í veg fyrir að
sú bábilja fái að skjóta rótum
að hag manna sé bezt borgið
með þvi að fjármunir þeirra
streymi í rikishítina.
• Móta þarf stórhuga atvinnu-
stefnu, þar sem virkjun
vatnsfalla og jarðvarma
skipar eðlilegan sess i orku-
sveltri veröld.
• Koma verður í veg fyrir
klofning milli dreifbýlis og
þéttbýlis.
• Kosningalög og kjördæma-
skipun verður að endur-
skoða.
• Marka verður landbúnað-
arstefnu, sem tekur mið af
þjóðarhag og sanngjörnum
hagsmunum bænda.
Sjá ræðu Geirs Hallgrims-
sonar i heild á bls. 18 og 19.
mu.
Til að gera sér samt
einhverja mynd af þessu
má taka sem dæmi eggja-
kíló á 1400 krónur í dag.
Það myndi kosta eftir 25%
hækkun 1750 krónur. Ef
tekið væri eitt kíló af kjúkl-
ingakjöti, sem kostaði fyrir
hækkun 3350 krónur, þá
myndi það kosta eftir
hækkun 4188 krónur. Þá
mætti taka dæmi af svína-
kótelettum, sem fyrir
hækkun kostuðu, hvert
kíló, 7150 krónur. Kílóið
myndi kosta eftir hækkun
8938 krónur.
Góð tækifæri
nýttust ekki
ÍSLENDINGAR töpuðu knatt-
spyrnulandsleik gegn Norðmönnum
1—3 í Osló í gærkvöldi. Var hér um
vináttulandsleik að ræða. Engu að
síður þótti íslenska liðið leika betur
en það hefur gert í háa herrans tíð.
Attu íslensku leikmennirnir mý-
mörg tækifæri til að skora í leiknum,
en tókst ekki nema einu sinni.
Sjá nánar á iþróttasiðum blaðsins.