Morgunblaðið - 12.05.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981
23
Sovétmaðurinn í
sjónmáli
EINS og greint hefur verið frá
áður í Morgunblaðinu, hefur
handknattleiksdeild Ilauka verið
á hottunum eftir sovéskum þjálf-
ara fyrir næstkomandi keppnis-
tímabil. Nú stendur einn til boða
og bendir allt til þess, að sá verði
Hauka
ráðinn þjáifari liðsins. Sá sovéski
heitir T.B. Zarapishvili. Hann er
32 ára gamail og hefur starfað
sem þjálfari í heimalandi sínu i
15 ár, auk þess sem hann hefur
þjálfað landslið Sýrlands. — gg.
Landsliðið vann
í f jörugum leik
• Þeir Víkingur Taustason (t.v.) og Jón Páll Sigmarsson hlutu silfurverðlaun á Evrópumeistaramótinu í
kraftlyftingum sem fram fór í Parma á Ítalíu um siðustu helgi. Jón Páll varð annar í 125 kg flokki og
Víkingur í 125 kg plús flokki íslenska kraftlyftingalandsliðið hafnaði i fimmta sæti af fjórtán þjóðum.
Evrópumeistaramótið í kraftlyftingum
LANDSLIÐIÐ í knattspyrnu si-
graði Prcssuliðið með einu marki
gegn engu í blíðviðrinu á Mcla-
vellinum i gærkvöldi og var
leikurinn nokkuð fjörugur og vel
leikinn á köflum. Það var Lárus
Guðmundsson sem skoraði sigur-
markið eftir varnarmistök hjá
„Pressunni" á 32. minútu leiks-
ins. Nokkur forföil voru í báðum
liðum, en kom þó ekki að sök, þvi
af nógu er að taka er veija skal
úrvalslið. Leikmenn þeir sem
ekki mættu til leiks voru
KR-ingar, Sæbjörn Guðmundsson
landsliðsmaður og Pressulcik-
mennirnir Ottó Guðmundsson og
Börkur Ingvarsson. Boðuðu þeir
forföll með litlum fyrirvara, voru
sagðir eiga við meiðsl að stríða.
Fyrri hálfleikurinn var fremur
tíðindalítill, en þá var úrvalslið
fréttamannanna ívíð sterkari aðil-
inn. Landsliðið potaði engu að
síður eina marki leiksins á 32.
mínútu eins og áður sagði. Síðari
hálfleikur var opnari og voru
leikmenn Pressuliðsins duglegir
að skapa sér tækifæri. Og jafn
duglegir að klúðra þeim. Jón
Einarsson, sem annars lék stórvel,
brenndi af úr dauðafæri og Helgi
Bentsson vippaði yfir markvörð-
inn, en naumlega fram hjá mark-
inu um leið. Auk þess björguðu
landsliðsmennirnir tvívegis af
línu. En landsliðið átti sín augna-
blik, þannig bjargaði Pressu-
markvörðurinn Guðmundur Ás-
geirsson frábærlega þrumuskoti
nafna síns Torfasonar undir lok
leiksins.
Ljóst er, að nokkrir leikmanna
Pressuliðsins myndu sóma sér vel
í landsliðinu. Þannig léku bæði
Dýri Guðmundsson og Valdemar
Valdemarsson stórvel, einnig Jón
Einarsson sem þaut eins og ára-
mótaflugeldur um allan völl. —gg.
Víkingur og Jón
hlutu silfurverólaun
- íslenska landsliöið hafnaði í fimmta sæti
Standard og
Lokeren unnu
1 BELGÍSKU deildarkeppninni i
knattspyrnu fóru lcikar þannig á
sunnudaginn. að Standard sigr-
aði Beringen 3—1 á heimavelli og
Lokeren vann góðan sigur. 3—1.
gegn Ghent á útivelli.
ÍSLENSKA landsliðið í kraftlyft-
ingum keppti um síðustu helgi á
Evrópumcistaramótinu í kraft-
lyftingum sem fram fór í Parma
á Ítalíu. íslcnska landsliðið stóð
sig með mikilli prýði. í stiga-
keppninni hafnaði liðið í fimmta
sæti af þeim fjórtán þjóðum scm
á mótinu kcpptu. ísland hlaut 4G
stig cn sigurvegari í mótinu varð
lið Bretlands með 116 stig. í öðru
sa“ti varð lið Svía en síðan komu
Finnar og Norðmenn. íslenska
liðið hlaut tvenn silfurverðlaun á
mótinu og ein bronsverðlaun.
Það voru þeir Víkingur Trausta-
son og Jón Páll Sigmarsson scm
hlutu silfrið en Sverrir Iljaltason
Magnús í fyrsta skipti
í byrjunarliði Dortmund
- sem sigraöi Núrnberg 1-0 um helgina
MAGNUS Bergs var í fyrsta
skipti í byrjunarliði Borussia
Dortmund í vestur-þýsku deildar-
keppninni í knattspyrnu á laug-
ardaginn, er liðið sigraði Nurn-
berg 1—0 á heimavelli sínum.
Magnús lék næstum allan leik-
inn, en var skipt út af undir
lokin. Atli var ekki í byrjunarliði
Dortmund að þessu sinni. Val
Magnúsar kcmur í beinu fram-
haldi af góðri frammistöðu hans í
keppnisfcrðalagi Borussia Dort-
mund til Ítalíu og Spánar fyrir
skömmu. En að sögn fréttaskeyta
þótti leikur Dortmund og Núrn-
berg mjög slakur og það var
Rudger Abramzic sem skoraði
sigurmark Dortmund í síðari
hálflciknum. Úrslit lcikja urðu
annars sem hér segir:
B. Mönch.gladbach — E. Frankfurt 2—2
F. Dússeldorf — Duisburg 0—1
A. Bielefeldt — 1860 Munchen 3—2
B. Leverkusen — Hamburger 1—2
B. Uerdingen — FC Köln 0—1
Bayern Múnchen — Kaiserslautern 3—1
B. Dortmund — Núrnberg 1—0
Schalke 04 — Bochum 0—6
Stuttgart — Karlsruhe 5—2
Hið gífurlega einvígi Bayern og
Hamburger heldur áfram og bæði
liðin sigruðu um helgina. Þegar
fjórar umferðir eru eftir, hafa
bæði liðin 45 stig, en markatalá
Bayern er ívið betri. Bayern sigr-
aði Kaiserslautern með tveimur
vítaspyrnum Paul Breitners og
marki Kurt Niedermayers. Ham-
burger átti hins vegar í miklum
erfiðleikum gegn Leverkusen, sem
náði forystunni strax á 6. mínútu,
er Franz Beckenbauer felldi Norð-
manninn Arne Ökland innan víta-
teigs. Glowacz skoraði úr vítinu,
en áður en yfir lauk tókst Horst
Hrubesch að jafna og Felix Mag-
ath að pota inn sigurmarkinu.
Ótrúlegustu atburðirnir áttu sér
stað á heimavelli botnliðsins Arm-
enia Bielefeldt, en þar var staðan
2—1 fyrir 1860 Múnchen þegar
tæplega ein og hálf mínúta var til
leiksloka. Nastase skoraði bæði
mörk 1860, en Schock mark Biele-
feldt. En á þessum síðustu sekúnd-
um tókst heimaliðinu að snúa
tapaðri stöðu í vinningsstöðu.
Páll gekk ekki heill til skógar á
meðan á keppninni stóð og hefði
án efa gert betur hefði hann ekki
meiðst. Víkingur lyfti samtals 800
kg í sínum flokki. Sverrir fékk
bronsverðlaun í 90 kg flokki lyfti
822,5 kg. Það er nýtt íslenskt met.
Lið Islands vakti mikla athygli á
mótinu fyrir góða frammistöðu.
hronsverðlaunin. Skúli óskars-
son varð fjórði í sinum flokki en
setti nýtt Norðurlandamet í
hnébeygju lyfti 320 ki
kg. Þá setti
Kári Elíasson þrjú ný Islandsmct
í 67.5 kg flokki en þar varð hann
i sjötta sæti.
Jón Páll sem keppti í 125 kg
flokki lyfti samtals 852,5 kg.
Sigurvegari í þessum flokki varð
Svíinn Ekström lyfti 912,5 kg. Jón
Verða að
leika á ný
Ekki fengust úrslit í skosku
bikarkeppninni í knattspyrnu á
laugardaginn. en þá áttust við
Dundee Utd og Rangers á Hamp-
dcn Park í Glasgow. Ekkert
mark var skorað í leiknum þrátt
fyrir framlengingu. Þegar ein
mínúta var eftir af venjulegum
lciktima fékk lið Rangers víti.
Ian Redford spyrnti, en Ilamish
McAlpine í marki Dundee Utd
varði!
Schröder jafnaði og Eilenfeldt
skoraði sigurmarkið nánast með
síðustu spyrnu leiksins! Sorgar-
saga í Krefeldt, þar sem Schalke
04 fékk yfir 50.000 áhorfendur á
völlinn, en tapaði síðan 0—6 og
virðist eiga litla möguleika á því
að halda í 1. deildarsæti sitt. Rolf
Blau, Lothar Wölk, Kurt Pinkall
(2) og Jochen Abel (2) skoruðu
mörk Bochum.
Sem fyrr segir, hafa Bayern og
Hamburger 45 stig hvort félag, en
næsta lið er sex stigum á eftir. Er
það Stuttgart með sín 39 stig.
Kaiserslautern hefur 37 stig og
Frankfurt 36 stig. Bochum hefur
lætt sér í 6. sætið með 36 stig, en
síðan koma Dortmund, Köln og
Borussia Mönchengladbach með
31 stig hvert. Dortmund telst vera
í sjöunda sætinu með betri marka-
tölu heldur en hin liðin tvö. Neðst
er lið Bayer Uerdingen með 21
stig, Schalke 04, Núrnberg, Arm-
enia Bielefeldt og 1860 Múnchen
hafa 22 stig hvert félag og Dúss-
eldorf og Leverkusen hafa 25 stig
hvort félag.
„íslendingaslagur“ í Svíþjóð:
Öster sigraði
TEITUR Þórðarson og félagar
hans hjá Öster sigruðu Örn
Óskarsson og félaga hans hjá
Örgryte í „íslendingaslag" í
sænsku knattspyrnunni um helg-
ina. Þar með hefur mcistaraliðið
Öster unnið fjóra fyrstu leiki
sína í sænsku deildarkeppninni
og komið sér þægilega fyrir í
efsta sæti deildarinnar. Lokatöl-
ur leiksins urðu 3—1 fyrir Öster,
en úrslit leikja urðu annars sem
hér segir:
Brage — Elfsborg 2—1
Djurgarden — Sundsvall 0—1
Halmstad — Hammarby 2—0
Kalmar — Norrköping 2—4
Malmö FF — Gautaborg 0—2
Atvidaberg — AIK 1—1
Örgryte — Öster 1—3
Þorsteinn Ólafsson og félagar
hjá Gautaborg unnu sinn fyrsta
sigur í deildarkeppninni og lyftu
sér þannig af botninum. Og AIK,
með Hörð Hilmarsson innanborðs,
nældi í gott stig á útivelli og hefur
spjarað sig bara bærilega. Öster
hefur 8 stig, næstu lið hafa 6 stig.
AIK og Örgryte hafa 4 stig hvort
félag og Gautaborg 2 stig.
KA sigraði
Á LAUGARDAGINN varð KA
hikarmcistari KRA þcgar þeir
sigruðu erkifjendurna úr Þór
5—4 eftir vitaspyrnukeppni.
Þessi lcikur var sá síðasti af
þrcmur en hinum fyrri lauk
báðum með jafntcfli 1 — 1. Eftir
venjulcgan leiktíma á laugardag-
inn var staðan 0—0 og fór þá
fram vítaspyrnukcppni sem lauk
eins og áður sagði með sigri KA
5-4.