Morgunblaðið - 12.05.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1981
29
Ný tækni í einangrun húsa:
SteinuU blásið inn í
veggi, þök og gólf
NÝ TÆKNI I einannrun húsa,
sem hyKKtst á því að steinull er
blásið með loftþrýstitækjum inn i
holrúm í veggjum, þökum eða
gólfum, var kynnt á blaðamanna-
fundi i gær. Húsaeinangrun s/f
kynnti þessa nýjung og hefur
fiutt tii landsins tæki sem blæs
einangruninni inn i veggi, þök
eða Kólf. og er tækinu komið
fyrir í fiutningabil, en þar á að
rúmast steinull i nokkur hús.
Steinullin sem notuð er er frá
Elkcm-Rockwool i NoreKÍ er
vatnsfráhrindandi og hefur auk
þess mikið brennsluþol og bráðn-
ar ekki fyrr en við 1000°C,
samkvæmt upplýsingum sem
fram komu á fundinum.
Steinullinni er komið fyrir í
flutningabíl, eins og áður sagði, og
er pressuð í sekki, en vélar tæta
hana í smá agnir. Fer ullin síðan
eftir slöngu á einangrunarstað og
er tækjum stjórnað frá slönguend-
anum, þ.e. blástur stöðvaður og
hafinn.
Áður en einangrun er hafin er
borað gat í hvert hólf og enda
slöngunnar stungið þar inn og
blástur hafinn. Þegar gólfið er
orðið fullt er tappi settur í gatið,
úr sama efni og klæðningin er úr.
Þéttleiki steinullarinnar í hólf-
unum ræðst af þeim þrýstingi sem
tækin gefa og eru þau stillt á þann
þéttleika sem besta einangrun
gefur, en hann mun vera um 70
kíló á rúmmetra, samkvæmt upp-
lýsingum sem fram komu á fund-
inum.
Á blaðamannafundinum kom
það fram hjá Halldóri Backman,
byggingameistara, að þessi aðferð
við einangrun væri ódýrari en þær
sem áður hafa verið notaðar og
ekki síður góð. Einnig væri auð-
velt að koma einangruninni fyrir
með þrifalegum hætti.
Saltfiskur ekki á
markaðinn fyrr en
við f áum hækkun
- segir Matthías t>. Guðmundsson verkstjóri hjá BÚR
Halldór Backman bendir fréttamönnum á hvernig slöngustútnum er komið fyrir i vegg, en um slönguna
fer síðan einangrunin inn i vegginn. Ljósm. Mbi. ói.K.M.
„ÞAD ER enginn fiskur fluttur
út svo lélegur að hann sé ekki
bctur borgaður en heimamark-
aðsfiskurinn. Við urðum að
borga með hverju kílói á bæjar-
markaðinn og það da mi gat ekki
gengið þó við hefðum gert það í
nokkurn tíma og hreinlega gáf-
umst upp. Saltfiskur fer ekki á
markaðinn innanlands á ný fyrr
en við fáum hækkun. Það er
alveg á hreinu,“ sagði Matthias
Þ. Guðmundsson. verkstjóri hjá
Bæjarútgerð Rcykjavikur. er
Mbl. ræddi við hann. en saltfisk-
ur hefur ekki fengizt i verzlunum
á höfuðborgarsvæðinu um nokk-
urt skeið.
„Við fáum 12,50 kr. fyrir kílóið
af heilum fiski og það sjá allir að
það er glórulaus vitleysa. Það er
allur annar fiskur dýrari, en
saltfiskurinn þarf mörg handtök-
in. Ég mundi halda að það þyrfti
að vera upp undir 20 kr. fyrir
hvert kíló.
Við höfum ekki átt fisk í salt
fyrr en í þessari viku, því við
höfum lagt áherzlu á skreiðina.
Ferming í Innra-
Hólmskirkju
Á SUNNUDAGINN var voru
þessi börn fermd i Innra-IIólms-
kirkju:
Rannveig Steinþórsdóttir,
Miðhúsum.
Guðmundur Jón Hafsteinsson,
Skarðsbraut 1, Akranesi.
Hallgrímur Agnar Jónsson,
Gröf II.
Jóhann Ragnar Ágústsson,
Ásfelli IV.
Það skal ekki standa á mér þegar
flugan kemur, en ég vil nota
tímann á meðan púpan sefur til að
koma fiskinum á hjallana. Við
urðum hjallalausir í vikunni og þá
söltuðum við þannig að fiskur er á
leiðinni í gegnum verkunina en
hann fer ekki á markaðinn innan-
lands fyrr en við fáum hækkun,
það er alveg á hreinu."
Fáskrúðsfjörður:
Hafðist ekki
undan að vinna
aflann í landi
Fáskrúðsílrði. 9. maí.
NETABÁTAR héðan eru búnir
að taka upp net sín og skipta nú
um veiðarfæri.
Afli togaranna hefur verið ein-
staklega góður undanfarið og mik-
il vinna í landi. Ljósafellið landaði
hér 140 tonnum um miðja vikuna
og sólarhring síðar var Hoffellið
komið með fullfermi, um 180 tonn,
eftir 5 daga veiðiferð. Þar sem
ekki hafðist undan að vinna afl-
ann í landi hélt Hoffellið til
Færeyja
landað.
þar sem
aflanum v
— Albert
Innrömmun Sigurjóns:
Sölusýning
á 60 mynduin
NÚ stendur yfir sölusýn-
ing á um 60 málverkum og
myndum eftir þekkta lista-
menn hjá Innrömmun Sig-
urjóhs, Ármúla 22, og hef-
ur verzlunin verkin í um-
boðssölu.
Á sýningunni eru verk
eftir Flóka, Kjarval, Jó-
hannes Geir, Sigurð Krist-
jánsson, Ágústu Thors og
marga fleiri. Innrömmun
Sigurjóns annast alhliða
innrömmunarþjónustu og
umboðssölu á listaverkum.
Sýningin er opin frá kl.
9—18 alla daga til og með
15. maí.
REPORT DE LUXE: LÚXUS FYRIR LÍTIÐ
Rafritvél meö fisléttum áslætti,
áferðafallegri skrift, dálkastilli
28 eða 33 sm valsi.
Vél sem er peningana virði
fyrir jafnt leikmenn sem
atvinnumenn.
Fullkomin viögerða-
og varahlutaþjónusta.
Leitiö nánari upplýsinga.
jSSBMBB8BB WÉp
o Olympia
IMlÆ^tMU)^ KJARAIM HF [
ARMULI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022
<ugys>^DBt»>ff|
Verð eftir
IM1
aiii
HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON