Morgunblaðið - 12.05.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981
19
Sjálfstæðiskonur úr 17 félögum
Landssambandsins þinguðu
Fulltrúar sjálfstæðiskvennaíélaKanna víðs vegar að af landinu á aðalfundi um helgina.
Að örva og styrkja hina
fötluðu til sjálfsbjargar
Eftirfarandi samþykkt var
Kerð á aðalfundi Landsþings
sjálfstæðiskvenna:
Landsþing sjálfstæðiskvenna,
haldið í Reykjavík 9. maí 1981,
minnir á kjörorð alþjóðaárs fatl-
aðra: „Fullkomin þátttaka og jafn-
rétti“ og heitir á alla landsmenn að
leggjast á eitt til að það megi ná
tilætluðum árangri.
Sérstaklega verður að huga að
atvinnumálum fatlaðra og tryggja
svo sem kostur er, að hver einstakl-
ingur, hvernig sem fötlun hans er
háttað, fái starf við sitt hæfi
þannig, að hæfileikar hans og
starfslöngun fái notið sín. Verka-
lýðshreyfingin, vinnuveitendur og
samtök fatlaðra verða að taka
höndum saman ,í þessu skyni og
vinna markvisst að því, að starfs-
orka hinna fötluðu nýtist sem best á
hinum almenna vinnumarkaði eða á
vernduðum vinnustöðum. Hér þarf
til að koma virk vinnumiðlun í góðri
og skilningsríkri samvinnu við aðila
vinnumarkaðarins.
Það er skylda samfélagsins að
örva og styðja hina fötluðu til
sjálfsbjargar, þeim sjálfum til auk-
innar lífsfyllingar og bættrar af-
komu og um leið til hagsbóta fyrir
þjóðfélagið sem heild. Það er sjálf-
sögð krafa, sem framfylgja verður í
verki, að tekið sé tillit til þarfa
fatlaðra við hverskonar mann-
virkjagerð, þannig að þeir geti sem
LANDSSAMBAND sjálfstæð-
iskvenna ályktaði eftirfarandi á
landsþingi sinu:
Landsþing Sjálfstæðiskvenna,
haldið í Reykjavík 9. maí 1981,
lýsir fullum stuðningi við her-
ferð þá gegn áfengisneyslu:
„Átak gegn áfengi", sem sérstök
samstarfsnefnd vinnur að um
þessar mundir. Það er uggvæn-
leg staðreynd, að áfengisneysla
greiðlegast komist leiðar sinnar,
þrátt fyrir fötlun sína.
Sérstaklega ber að hyggja að
kjörum þeirra, sem við fulla örorku
búa, að efnahagslegu öryggi þeirra
sé ekki ógnað á tímum óöaverð-
bólgu. Jafnframt skal á það bent, að
hverskonar fyrirbyggjandi starf fel-
ur í sér besta tryggingu gegn slysum
og örorku.
færist stöðugt niður í hina yngri
aldursflokka og vítavert er
ábyrgðarleysi hinna fullorðnu,
sem stunda útvegun áfengis til
unglinga.
Landsþingið átelur harðlega,
hve slælega er staðið af hálfu
yfirvalda fræðslu- og skólamála
að lögskipaðri fræðslu um skað-
semi af völdum tóbaks, áfengis
og annarra fíkniefna. Jákvæð og
Margrét Einarsdóttir
öfgalaus fræðsla, ásamt góðu
fordæmi foreldra og heimila, að
ógleymdum opinberum aðilum,
mun haldbesta vörnin í þessum
efnum jafnhliða ákveðnu aðhaldi
og aðgæslu í meðferð og dreif-
ingu áfengis.
Landsþingið vekur athygli á
staðhæfingum, er komið hafa
fram nýlega í fjölmiðlum, um
stóraukið framboð eiturlyfja í
13. LANDSÞING Landssam
hands sjálfsta'ðiskvenna var
haldið á sunnudag. A annað
hundrað fulltrúar frá hinum 17
aðildarfélögum sóttu þingið.
Formaður var endurkjörin Mar-
grét S. Einarsdóttir. Áuk venju „
legra aðalfundastarfa var sér-
staklega fjallað um lítinn hlut
ísienzkra kvenna í íslenzkum
stjórnmálum og einkum með til-
liti til Sjálfsta-ðisflokksin.s. þar
sem þrjár konur hiifðu framsögu-
erindi. Ragnhildur Ilelgadóttir.
fyrrv. alþingismaður. Sigríður A.
Þórðardóttir. oddviti á Grundar-
firði og Svanhildur Björgvins-
dóttir. form. kjörda'misráðs á
Norðurlandi eystra. Umræður
urðu um það. svo og stjórnmála-
ályktun þingsins. sem hirt er í
blaðinu og var samþykkt ein-
róma. Einnig ályktanir um mál-
efni fatlaðra og varnir gegn
áfengi og fíkniefnum. Þá var
stjórn falið að athuga og gera
tillögur um það á hvern hátt
ma-tti auka þátttöku kvenna í
opinberri ákvarðanatöku og
kalla saman formannafund.
Þrjár konur gengu úr stjórn
skv. lögum félagsins og voru
kjörnar í þeirra stað Svanhildur
Björgvinsdóttir Dalvík. Jósefína
Gísladóttir ísafirði og Birna Guð-
jónsdóttir Sauðárkróki.
Endurkjörnar voru Elín
Pálmadóttir. Reykjavík. sem er
varaformaður, Áslaug Friðriks-
dóttir Rvík. ritari. Ilelga Guð-
mundsdóttir. Ilafnarfirði, gjald-
keri. Áshildur Pétursdóttir.
Kópavogi. Freyja Jónsdóttir. Ak-
ureyri. Ingibjörg Johnsen. Vest-
mannaeyjum. Margrét Friðriks-
dóttir. Keflavík. Sigríður Péturs-
dóttir, Ólafsvöllum á Skeiðum og
Þóra Björk Kristinsdóttir. Akra-
nesi.
heiminum og að dreifing og sala
slíkra efna sé orðin atvinnu-
grein, hér á landi. Því skorar
þingið eindregið á allan almenn-
ing að vera vel á verði og á
stjórnvöld að taka málið föstum
tökum. Tryggja verður viðun-
andi starfsaðstöðu fíkniefna-
deildar lögreglunnar og fíkni-
efnadómstólsins, þannig að þess-
ir aðiiar fái gegnt hlutverki sínu.
Styðja herferðina „Átak gegn áfengi“
Stjórnmálaályktun landsþings sjálfstæðiskvenna:
Aðgerðarleysi stjórnvalda hindrar framfarir
- kommúnistum leyfist að ráða ferðinni
Hornsteinn sjálfstæðisstefnunnar er frelsi einstaklingsins
til orðs og athafna. Baráttan fyrir jafnrétti kynjanna snýst
um það, að hver og einn einstaklingur, karl eða kona, hafi
jafnan rétt til að þroska hæfileika sína og nýta á þeim
vettvangi, sem hann kýs helst.
Á tímum örra þjóðfélagsbreytinga raskast hin hefðbundna
hlutverkaskipting. Sífellt fleiri afla sér meiri og fjölbreyttari
menntunar. Tækninýjungar gera heimilishald auðveldara
viðfangs og fleiri þarfir manna eru uppfylltar utan heimilis. í
umróti síðustu ára hefur staða og hlutverk fjölskyldunnar því
breyst.
Sjálfstæðiskonur ítreka enn sem fyrr mikilvægi fjölskyld-
unnar í samfélaginu og leggja áherslu á, að undirstaða
þessarar grunneiningar þjóðfélagsins verði treyst.
Landsþing sjálfstæðiskvenna bendjr ^ a£ þó a5 konur hafi
öoíáSt jafnrétti skortir töluvert á, að raunverulegu
jafnrétti kynjanna sé náð. Tii aö svö me"! verða, verða konur
að vera tilbúnar að nýta sér frelsi einstak!u5£5!ná >
þjóðfélaginu og axla um leið ábyrgð, sem það leggur þeim á
herðar.
Landsþingið brýnir fyrir konum að notfæra sér þá
möguleika sem gefast. Jafnframt er ítrekuð krafa um að
bættar séu forsendur aukinnar þátttöku kvenna í atvinnulífi
og félagsmálum. Laga ber vinnumarkað og skólakerfi að
breyttum þörfum m.a. með sveigjanlegum vinnutíma, sam-
felldum skóladegi og möguleikum til endurmenntunar auk
þess sem gera þarf stórátak í uppbyggingu dagvistunarstofn-
ana.
Landsþing sjálfstæðiskvenna lýsir yfir andstöðu við fram-
komna tillögu á Alþingi um forréttindi kvenna vegna
starfsráðninga. Slíkar tillögur eru einungis til þess fallnar að
mismuna einstaklingum og bjóða heim spillingu og ranglæti.
Þær eru því jafnréttisbaráttu síst til framdráttar heldur
vekja andúð og hamla gegn því að jafnrétti náist í raun.
Misrétti verður ekki leiðrétt með öðru misrétti.
Ein meginforsenda þess, að konur komist til meiri áhrifa í
þjóðfélaginu, er að þær taki í auknum mæli að sér
stjórnunarstörf í atvinnulífinu og á félagslegum vettvangi. Til
að svo megi verða, þarf frjálst atvinnulíf að veita einstakling-
um möguleika og konur að vera reiðubúnar til að láta til sín
taka hver á sínum vettvangi s.s. í stéttarfélögum.
Landsþing sjálfstæðiskvenna varar við þeirri hættu, sem
frjálsu atvinnulífi er búin af stefnu núverandi ríkisstjórnar.
Mjög er þrengt að atvinnurekstri með aukinni skattbyrði og
ströngum verðlagshöftum, sem til lengri tíma litið stofna
aíyjnnuöryggi í voða. Stefna, sem ívilnar innfluttum varningi
á kostnað inii.'födrar framleiðslu stríðir á móti hagsmunum
landsmanna.
Landsþing sjálfstæðiskvenna áteiur hsrölega aðgerðarleysi
stjórnvalda í uppbyggingu atvinnulifsins. Á unaanííU'num
árum hafa þúsundir Islendinga flúið land og á nýbyrjuðum
áratug er gert ráð fyrir að 15 þúsund manns bætist á
vinnumarkaðinn. Hinar hefðbundnu atvinnugreinar lands-
manna byggja á auðlindum, sem nú eru fullnýttar og því er
ljóst, að undirstaða nýrrar atvinnusóknar er fólgin í nýtingu
þeirrar auðlindar, sem fallvötn og jarðvarmi landsins er.
Vítaverður er sá seinagangur, sem nú er á ákvörðun um
nýtingu þessarar auðlindar og lamar alla framfarasókn.
Leggja ber áherslu á sem hraðasta uppbyggingu og hagkvæma
nýtingu orkunnar svo að hægt verði að skapa ný atvinnutæki-
færi og stöðva landflótta.
Islendingar eiga að hafa alla möguleika á því að njóta
lífskjara eins og þau best gerast. Það verður einungis gert með
því að auka framleiðslu þjóðarbúsins og framleiðni í
atvinnugreinum, sem grundvallist á bættri verkmenntun og
hagkvæmri nýtingu fjármuna. Það verður að hefja djarfhuga
sókn í nýtingu orkunnar og koma á fót stóriðju, sem skapar
skilyrði fyrir almennan iðnað og aukna tækniþekkingu. Það
verður ekki gert með þeirri afturhaldsstefnu, sem nú ríkir,
þar sem framtak og frelsi er hneppti í fjötra rikisvaldsins, þar
sem aðgerðarleysi stjórnvalda hindrar eðlilegar framfarir og
kommúnistum leyfist að ráða ferðinni.
Landsþing sjálfstæðiskvenna átelur harðlega þá lýðræðis-
sinna, sem leiða kommúnista til slíkra áhrifa í málefnum
þjóðarinnar ekki síst öryggis- og varnarmálum landsins, sem
raun ber vitni og eru í engu samræmi við kjörfylgi þeirra.
Ófriðvænlegt er nú á alþjóðavettvangi og brýnt að
sjálfstæðismenn standi þétt saman um þá utanríkisstefnu,
sem þeir höfðu forgöngu um á sínum tíma og byggir á
samstarfi vestrænna lýðræðisþjóða.