Morgunblaðið - 23.06.1981, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JUNI 1981
Keflavíkurganga á laugardagirm
SAMTÖK herstöðvaandstæðinKa
st('W)u fyrir KeflavikurKönKU sl.
lauKardag. 570 manns Iököu upp
frá hliöi KeflavikurfluKvallar kl.
níu um morKuninn ok var haldiA
til Reykjavikur. Áð var á ýmsum
stöðum á leiðinni. ávörp flutt ok
sönKvar sunKnir.
Um tíuleytið um kvöldið kom
fólkið til Reykjavíkur og haldinn
var fundur á Lækjartorgi. Að sögn
lögreglunnar voru saman komin á
torginu um eitt til tvö þúsund
manns, en herstöðvaandstæðingar
segja að þar hafi verið allt upp í
sex þúsund manns. Á Lækjartorgi
voru ávörp flutt og töluðu þar m.a.
Guðrún Helgadóttir alþingismað-
ur, Jón Helgason ritstjóri og Berit
Ás, sem er norsk og hefur unnið að
undirbúningi Friðargöngu frá
Kaupmannahöfn til Parísar.
Forsvarsmenn verðlista:
Verðkynning Verðlagsstofnunar
ekki marktæk sem heildarkönnun
á hagkvæmni verðlistaverzlunar
MORGUNBLAÐINU hefur b«r-
ist eftirfarandi athugasemd frá
Lárusi G. Ólafssyni og Birni
Maijnússyni:
„I verðkynningu Verðlags-
stofnunar. sem send var
fjölmiðlum nú um helgina. var
leitast við að svara spurning-
unni: „Er hagkvæmt fyrir neyt-
endur að kaupa vörur gegnum
p<')stverslun?“ Athugað var sér-
staklega hvernig fatnaður
kæmi út i þessari könnun enda
væri hann u.þ.h. 90% af solu
verðlistanna. í tilefni af þvi
viljum við forsvarsmenn
tveggja verðlista í könnuninni
taka fram eftirfarandi:
1. I verðsamanburðinum var
verð á 32 tegundum fatnaðar
athuguð. Þar af voru hvorki
meira né minna en 19 brjósta-
höld, nær öll sömu gerðar. Þ.e.
brjóstahaldarar vógu 60% í
verðkönnuninni, þrátt fyrir að
þeir séu innan við 1% af vöru-
úrvali verðlistanna.
2. í flestum tilfellum má fá
keyptar sambærilegar vörur og
eru teknar í könnuninni á mun
lægra verði í verðlistunum.
3. Af hagkvæmnis- og hagræð-
ingarástæðum fyrir viðskipta-
vini okkar, hefur sú leið verið
farin, að sama álagningarpró-
senta gildi fyrir allan fatnað
óháð því hve há aðflutningsgjöld
eru. Nær allur sá fatnaður, sem
valinn var í könnuninni, bar
lægstu hugsanlegu aðflutnings-
gjöld, sem kemur óhagstæðar út
fyrir verðlistaverðið.
4. í könnuninni er enginn sá
fatnaður sem langmest er
keyptur og er í mestu úrvali í
verðlistunum, svo sem kjólar,
jakkar, kápur, skyrtur, blússur
o.fl. o.fl.
5. Ávallt er tekið hæsta verð úr
verðlista, þótt sama vara sé til á
mismunandi verði, en meðalverð
í verslunum.
6. Verðið, sem gefið er upp sem
„verð í verðlistum", er reiknað
út frá gengi krónunnar þann 1.
júní sl., eða skömmu eftir geng-
isfellingu. Áhrif gengisbreyt-
ingarinnar koma að fullu fram í
verðlistaverðinu, en ekki í versl-
unarverði. Ef reiknað væri út
frá samá gengi, væri t.d. hag-
kvæmara að kaupa skófatnað úr
verðlista.
Að framansögðu má ljóst vera
að könnunin er alls ekki mark-
tæk sem heildarkönnun á hag-
kvæmni verslunar gegnum verð-
lista. I verðkönnunum sem þess-
um kemur oft fram mikill og illa
útskýranlegur verðmunur á ein-
stökum vörutegundum og verður
það sérstaklega kannað í þessu
tilfelli. Varðandi ábyrgð á vör-
um úr verðlistunum verður að
sjálfsögðu farið að landslögum
og viðteknum viðskiptavenjum.
Að lokum viljum við hvetja
viðskiptavini okkar til að fara
Kuilsstoóum. 22. júni.
AÐALFUNDUR Sambands fsl.
rafveitna hófst hér á Egilsstöðum
í morgun og sitja fundinn um 80
manns víðs vegar að af landinu.
Aðalsteinn Guðjohnsen, formað-
ur SÍR setti fundinn. en Hjörleif-
ur Guttormsson, iðnaðarráð-
herra, ávarpaði síðan fundinn.
Þá tók Jóhannes Nordal til máls.
Umræður í dag hafa snúist um
margvísleg málefni, t.d. gagnrýndi
Erling Garðar Jónasson, rafveitu-
stjóri hér, það sem hann kallaöi
einokun Suðvesturlands á raforku
og líkti hann því við nýlendu-
stefnu Breta, sem hefðu lagt veg
frá námu að höfn á sama tíma og
innfæddir notuðu skógarstíga.
eftir ráðleggingum verðlags-
stofnunar og gera sjálfir verð-
samanburð."
Kolmunnaveiðar
gengu erfiðlega hjá
Eskifjarðarbátum
Kskifirói, 22. júni.
STEIKJANDI hiti og sumarbliða
hefur verið hér á Eskifirði síð-
ustu daga. en í dag var hér 22
stÍKa hiti ok 20 stig í Kær. Gróður
er því kominn vel á veg ok Kott
hljoð í fólki. enda ekki annað
hægt í svo góðu veðri.
Kolmunnaveiðar þær sem héðan
eru stundaðar hafa gengið fremur
erfiðlega og er þeim nú lokið í bili.
Ætlunin er að bíða átekta og sjá
hvað setur í þeim málum og
verður jafnvel reynt aftur seinna í
sumar við veiðarnar. Á meðan
liggja bátarnir í höfn, því þeir
hafa ekki leyfi til að stunda aðrar
veiðar.
— Ævar
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, talaði um að jafna þyrfti
orkureikninginn fyrir aldamót, en
með því er átt við, að þá verði
framleidd næg orka, ekki aðeins
til heimanotkunar heldur einnig
til að selja megi nóg af orkufram-
leiddum vörum til þess að greiða
allar innfluttar orkuvörur.
Rætt var um gjaldskrármál og
ýmis rekstrarmál rafveitnanna.
Fyrirhugað er að fundinum ljúki
annað kvöld, en á miðvikudag
verður farið í skoðunarferð um
virkjunarsvæði Fljótsdalsvirkjun-
ar.
— Steindór.
Aðalfundur Sambands rafveitna:
Fjallað um margvís-
leg mál á Egilsstöðum
Kaupfélag Króksfjarðar:
Rausnarleg gjöf
til öldrunarmála
^ MiÓhúsum. A-BarA., 22. júni.
Á ÞESSU ári eru 70 ár frá
stofnun Kaupfélags Króks-
fjarðar. Kaupfélagið er meðal
minni kaupfélaga. en stendur
þó fjárhagslega allvel. Verzlun-
arsvæðið er stórt og fólksfæð
mikil, en úr því er heldur að
rætast með vaxandi þéttbýli á
Reykhólum. Kaupfélagsstjórn-
in lagði til á aðalfundi kaupfé-
lagsins að gefa 20 þúsund krón-
ur til öldrunarmála i A-Barða-
strandarsýslu. Þetta er stórgjöf
og þakkarverð, sem allir vel-
unnarar eldra fólksins fagna.
Kaupfélagsstjóri er Friðbjörn
Níelsson.
Nokkrar villur hafa slæðst í
fréttapistla að undanförnu og
skulu þær helstu leiðréttar. I
þriðjudagsblaðinu 16. júní á að
vera í fyrstu málsgrein fréttar
„varasjóður" í stað „stofnsjóð-
ur“. I blaðinu 17. júní á að vera
„kaupfélagsstjórnarmenn“ í stað
„sveitarstjórnarmenn" og lögum
kaupfélagsins var breytt í hitti-
fyrra, en ekki í fyrra eins og
sagði í blaðinu. Lesendur eru
beðnir velvirðingar á þessum
mistökum. — Sveinn
Skagafjörður:
Grasið þýtur upp, þar
sem tún eru ekki kalin
Bæ. Hofðaströnd, 22. júni.
SKIPT hefur nú um veðurfar
frá því sem var er kvöldnepja
ok þurrviðri voru á hverjum
degi, en nú er komin sunnan
gola og rigningarskúrir með
hlýviðri. Var sannarlega full-
komin þörf á þessum breyting-
um því að á túnum var áður
aöeins sauðgróður, en nú þýtur
grasið upp. þar sem hægt er
vegna kals, sem mun vera
40—50%. Er það þó nokkuð
misjafnt frá bæ til bæjar. Lik-
legast er alls staðar búið að láta
kýr út og þá sums staðar vegna
foðurskorts því að gjafatimi er
óvenju langur orðinn. Mikið er
unnið upp af túnum, plægt og
herfað, og sáð grænfóðri og
grasfræi.
Sauðburður gekk yfirleitt vel,
enda veðurfar hagstætt til sauð-
burðar, og alls staðar er mikil
fjölgun j)vi mikið er af tví-
lembdu. I Þórðarhöfða voru unn-
ir tíu refir á einum sólarhring og
tólf minkar hafa verið unnir á
skömmum tíma hér um slóðir.
Silungsveiði er að byrja, bæði í
sjó og vötnum, og er fiskurinn
sæmilega feitur.
17. júní voru gefin saman í
Dalskirkju í Fljótum af prófasti,
séra Gunnari Gislasyni í
Glaumbæ, Anna Jónsdóttir,
Mýrarkoti, söngstjóri og organ-
isti í 5 kirkjum austan Skaga-
fjarðar, og Trausti Sveinsson,
Berglandi i Fljótum. Laugardag-
inn 20. þessa mánaðar jarðsöng
séra Ágúst Sigurðsson á Mæli-
felli í Hólakirkjugarði jarðnesk-
ar leifar frú Kristjönu Guð-
mundsdóttur frá Skriðulandi í
Kolbeinsdal. Var aska hennar
lögð í gröf sonar þeirra Skriðu-
landshjóna, sem nú síðari ár
hafa búið í Reykjavík.
Sjúkrahúsið á Sauðárkróki er
alltaf yfirfullt af sjúklingum, en
þar er mikið um aldrað fólk, sem
bíður eftir húsnæði, er nú á að
fara að byggja í Skagafirði.
Nokkuð á annað hundrað um-
sóknir eru hér á lista um dvöl á
þessum heimilum.
Togarar Skagfirðinga afla vel,
en lítið virðist af fiski inni á
Skagafirði. Smásíld mun þó vera
komin inn í fjarðarbotn. Grá-
sleppuveiði var með besta móti.
— Björn
Vígsluhátíð að
Ýdölum í Aðaldal
_ Húsavík. 22. júni.
ÝDALIR, hið nýja félags- ok
íþróttahús AAaldæla, sem stað-
sett er við Hafralækjarskóla,
var vÍKt í gær. Athöfnin hófst
með helgistund. sem séra Sig-
urður Guðmundsson, prófastur
að Grenjaðarstað, annaöist með
kirkjukórum Nes- og Grenjað-
arstaðasókna undir stjórn Frið-
riks Jónssonar. Dagur Jóhann-
esson, oddviti, ávarpaði síðan
fjölmenna samkomu og stjórn-
aði henni.
Stefán Skaftason, formaður
byggingarnefndar, rakti bygg-
ingarsögu hússins, sem hófst
1974 og er nú fullgerð svo að allt
það, sem húsið er byggt fyrir,
getur hafið starfsemi sína. Hluti
hússins var tekinn í notkun fyrir
þremur árum. Auk venjulegrar
félagsheimilisaðstöðu er í hús-
inu fullkominn íþróttasalur,
veitingasalur og mjög rúmgott
leiksvið, bókasafn hreppsins og
skrifstofa oddvita.
Menntamálaráðherra, Ingvar
Gíslason, var viðstaddur vígsl-
una og flutti þar ávarp og
sömuleiðis skólastjóri Hafra-
lækjarskóla, Sigmar Ólafsson.
Gat hann þess, að þetta félags-
heimili hefði dálitla sérstöðu því
hluti þess er skipuiagður sem
hluti af aðstöðu fyrir kennslu
Hafralækjarskóla. Einnig tóku
til máls Indriði Ketilsson, Bald-
vin Baldursson og Skúli Norð-
dahl, arkitekt hússins, en við-
staddir luku lofsorði á skipulag
hússins.
Karlakórinn Hreimur söng,
Lúðrasveit Hafralækjarskóla lék
undir stjórn Guðmundar Norð-
dahl, tónlistarkennara skólans,
og Bjarni Jóhannesson lék ein-
leik á nýjan flygil, sem Hafra-
lækjarskóli hefur eignast og
staðsettur er að Ýdölum.
— Fréttaritari