Morgunblaðið - 09.05.1982, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
t
Konan mín og móöir okkar,
ÞURÍDUR BÆRINGSDÓTTIR
frá Hóli í Hvammsaveit,
lést aófaranótt 7. maí.
Ingvar Kristjénsson og börn.
+ Móöir okkar.
KATRÍN KOLBEINSDÓTTIR,
Miötúni 9, Reykjavík,
andaöist fimmtudaginn 6. mai. Börnin.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
LOUISE V. DALMAR
er látin.
Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Faöir minn,
EYJÓLFUR FINNBOGASON,
Lindargötu 13, Sauöórkróki,
andaöist í Landspítalanum 7. maí.
Fyrir hönd vandamanna,
Guörún Eyjólfsdóttir.
Oddur Matthías
Helgason — Minning
Á morgun, mánudag, verður
kvaddur hinztu kveðju góður vin-
ur og fyrrverandi samstarfsmaður
minn, Matthías Helgason, bakara-
meistari, sem lézt á heimili sínu
29. apríl sl.
Matthías fæddist í Hafnarfirði
4. janúar 1907, sonur hjónanna
Bjarnasínu Oddsdóttur og Helga
Einarssonar, sjómanns fra
Bjarnabæ í Hafnarfirði. Matthías
og systkini hans voru alltaf kennd
við Bjarnabæ, sem nú er Suður-
gata 38.
Systkinin voru sjö og var
Matthías næstelztur, elzt var Þóra
Kristín, en hún lézt í ársbyrjun
1975, þá Einar, Margrét, Sigríður,
Bjarni og Helgi.
Þegar Matthías var aðeins 15
ára gamall missti hann föður sinn,
en móðir hans hafði þá misst
heilsuna og var rúmliggjandi allt
til dauðadags.
Maíthias og Þóra systir hans,
þá 17 ára, tóku þá að sér heimilið
og ólu upp systkini sín, sem öll
voru innan fermingaraldurs, það
yngsta aðeins eins árs. Þetta er
ótrúlegt en satt og óskiljanlegt
fyrir mig og annað nútímafólk,
þar sem á þessum árum var ekki
um neina opinbera aðstoð að ræða,
t.d. almannatryggingar, sjúkra-
samlag eða lífeyrissjóði, eins og
nú er.
Matthías byrjaði ungur að
stunda sjómennsku og þá fyrst
með föður sínum. En svo var það á
milli vertíða, að hann réð sig til
skamms tíma í vinnu hjá Kex- og
brauðgerð Ásmundar Jónssonar,
Hafnarfirði (Ásmundarbakarí) til
að vinna sér inn peninga fyrir
fermingarfötum. En þegar
Matthías ætlaði að hætta, þá bað
Ásmundur hann mjög eindregið
að vinna hjá sér áfram og fór svo
að lokum að hann gerði það, enda
sá Ásmundur strax hversu mikill
mannkostamaður Matthias var,
því hjá honum fór saman dugnað-
ur, samvizkusemi og stjórnsemi.
Að nokkrum tíma liðnum hvatti
t
Útför
GESTS ÓSKARS FRIÐBERGSSONAR,
f.v. yfirvólstjóra,
Laugarnesvegi 104,
veröur gerö frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 11. mai 1982 kl. 13.30.
Blóm vlnsamlegast afþökkuö.
Marla Friöbergsson,
Hólmfríöur, Alice, Agnea, Karen,
Vilborg og Kristrún Gestsdætur,
Ómar og María Vala Friðbergs.
t
JÓHANNESJÓHANNSSON,
Hóteigsvegi 19,
lést í Landspítalanum 26. apríl sl.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Jóhann Ágúst Jóhannesson,
Jóhannes Jóhannsson, Helga Thoroddsen
og barnabarnabörn.
t
Móöir okkar og tengdamóöir mín,
ÞORSTEINSÍNA GÍSLADÓTTIR,
Úthlíö 3,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 10. maí kl.
13.30.
Áslaug Axelsdóttir,
Ólafía Axelsdóttir,
Auöur Ólafsdóttir.
t
Bróðir okkar,
ODDUR MATTÍAS HELGASON,
Suóurgtötu 38, Hafnarfirði,
veröur jarðsunginn frá Hafnarfjaröarkirkju, mánudaginn 10. maí kl.
2 e.h.
Blóm eru vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hins
látna er bent á aö láta líknarstofnanir njóta þess.
Einar Helgason, Margrót Helgadóttir,
Sigríöur Helgadóttir, Bjarni Helgason
Helgi Helgason.
t
Móðir okkar,
MARÍA VfÐIS JÓNSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Hafnarfjaröarkirkju, miövikudaginn 12. maí
kl. 14.00.
Dóra Þorvaldsdóttir, Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Herdís Þorvaldsdóttir,
Þóra Þorvaldsdóttir,
María Þorvaldsdóttir,
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móður okkar og tengdamóöur,
KARLOTTU S. ÞORSTEINSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum viö hjúkrunarfólki og starfsfólki Sólvangs.
Kristín Þorsteins, Bragi Helgason,
Anton Helgi Jónsson, Margrót Steinsdóttir.
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu er sýndu okkur samúö og
vinarhug vegna andláts
REYNIS GUDMUNDAR JÓNASSONAR,
verkfræóings.
Guörún Teitsdóttir, Hretna Magnúsdóttir,
Arndís Reynisdóttir, Jónas Valdimarsson,
Unnur Kristinsdóttir,
Valdimar Jónasson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarð-
arför móöur okkar, tengdamóöur, ómmu og langömmu,
STEINUNNAR GUÐBRANDSDÓTTUR,
Njarðvíkurbraut 19,
Innri-Njarövik.
Guö blessi ykkur öll.
María Þorsteinsdóttir,
Guöbrandur Þorsteinsson,
Guöný Þorsteinsdóttir,
Siguröur Þorsteinsson,
Hókon Kristinsson,
Þóra Erlendsdóttir,
Ingimundur Eiríksson,
Ásdís Minný Siguröardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö fráfall sonar míns, fóst-
ursonar, bróöur og mágs,
JÓNS VALDIMARS LÖVDALS,
Hóbergi 36.
Sérstakar þakkir sendum viö Björgunarsveitinni í Sandgeröi og
öörum fyrir veitta aöstoö.
Guö blessi ykkur öll.
Sigrún Jónsdóttir, Gunnar Sigurgeirsson,
Ragnar Lövdal, Kristín Halldórsdóttir,
Jóhann Lövdal, Gunnar Ingi Lövdal,
Ólafía Lövdal, Edda Lövdal,
Ingiberg Baldursson, Sigurgeir Gunnarsson.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
svo Ásmundur Matthías til að
nema bakaraiðn, gerði hann það
og tók sveinspróf með góðum vitn-
isburði, enda ekki við öðru að bú-
ast af jafn samvizkusömum og
kappsömum manni sem Matthías
var.
Og enn var haldið áfram þar til
hann öðlaðist meistararéttindi i
iðn sinni.
Ég minnist alltaf orða Matthí-
asar, þegar ég sem unglingur fór
að vinna með honum í fyrsta sinn
í bakaríinu, og þá aðallega við að
skera tvíbökur og pússa plötur. Er
ég var búinn að vinna nokkrar vik-
ur, þá fannst mér Matthías vera
alltaf að bæta við tvíbökurnar og
kringlurnar (þ.e. harðabrauðið) og
við þetta fjölgaði auðvitað plötun-
um, sem þurfti að hreinsa. Þá
hafði ég orð á því við hann, að það
væri bakað alltof mikið af þessu
harðabrauði, maður losnaði orðið
svo seint á daginn.
„Þegiðu nú, strákur, haltu bara
áfram að skera, þú mundir ekki
láta svona, ef þú ættir þetta sjálf-
ur,“ svaraði hann um hæl.
Þannig var Matthías alla tíð,
húsbóndahollur.
Ég minnist einnig orða föður
míns sáluga, er hann hélt upp á 45
ára starfsafmæli Matthiasar og
sagði:
„Það er ótrúlegt en satt, að í
þessi 45 ár hefur Matthias ekki
vantað einn einasta dag, hann hef-
ur alltaf mætt manna fyrstur til
vinnu og farið síðastur."
Matthías, sem í upphafi ætlaði
sér einungis að vinna í skamman
tíma í bakaríinu, eins og áður get-
ur, starfaði hvorki meira né
minna en í 49 ár við fyrirtækið, en
varð þá að láta af störfum vegna
heilsubrests.
Matthías var morgunmaður,
sem gekk rösklega til vinnu sinnar
og skilaði miklum og góðum af-
köstum alla tíð. Hann var traust-
ur og hollur ráðgjafi þeim, sem
hann vann með, enda vel að sér í
sinni grein, sem öðru.
Ég veit að Matthías kærði sig
ekki um neinar lofgreinar, því að
hann var meðal hinna kyrrlátu í
lífinu, hógvær, yfirleitt glaðvær,
gat verið glettinn án græsku,
ákveðinn án gremju, hlýlegur án
smjaðurs og uppgerðar, hæglátur
en þó marksækinn.
Hann lét alltaf sem minnst bera
á eigin áhyggjum vegna þess
heilsubrests, sem hann átti við að
stríða síðustu árin sem hann iifði,
enda var það ríkt í fari hans að
mæta andstreymi með styrk og
kjarki, hopa hvergi.
Nú eru þáttaskil, horfinn er
traustur, ástrikur bróðir, mágur,
frændi, samferðamaður og vinur.
Yfir minningum er bjart og trúin
brúar bilið til meira ljóss og
starfs.
Að síðustu kveð ég vin minn,
Matthías Helgason, með orðum
Jónasar Hallgrímssonar, er hann
kvaddi vin sinn einn:
Klýl |mt vinur í fegra hoim.
Krjúplu aó fólum frióarboóans
og fljúgðu á va’ntyum morgunroðans
meira aó slarfa guðs um gt*im.
Þar sem góðir menn fara eru
guðs vegir.
Valur Ásmundsson
Hinn 29. apríl sl. lést að heimili
sínu í Hafnarfirði Oddur Matthías
Helgason, bakari. Fæddur var
hann 4. janúar 1907, sonur hjón-
anna Bjarnasínu Oddsdóttur og
Helga Einarssonar, sjómanns,
sem bjuggu í Bjarnabæ, nú Suður-
gata 38.
Hjá okkur eldri Hafnfirðingum
gekk Oddur Matthías ávallt undir
nafninu Matti í Bjarnabæ, og mun
það haft svo hér.
Eins og títt var um drengi á
uppvaxtarárum Matta hér i Hafn-
arfirði, var snemma byrjað að
taka til hendi við hin ýmsu störf
til framfærslu heimilanna, þá að-
allega vinna að sjávarnytjum, og
það gerði Matti. Hann mun hafa
verið ellefu ára eða tólf, þegar
hann fékk að fara vortúr, eins og
það var kallað, með skútu, sem
faðir hans var á. Þetta var mikil
upplifun fyrir Matta, því fannst
mér gæta trega hjá honum, er
hann stundum minntist þessarar
ánægjulegu sjóferðar sinnar, því