Morgunblaðið - 15.05.1982, Síða 23

Morgunblaðið - 15.05.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1982 23 Brjóstvasi borg- arfulltrúans rúmar skurðgröfu ÉG GÆTI verið með öll mælitæki, sem menn nota við sprungumæl- ingar hérna í brjóstvasanum, sagði Sigurður Tómasson, borgarfulltfui Alþýðubandalagsins, þegar sprungu- svæðin við Rauðavatn voru fyrst til umræðu í borgarstjórn 30. apríl 1981. Lét Sigurður drjúgt yfír því að hann, sem væri hálfgildings jarð- fræðingur, og félagar hans hlægju nú að svona. Þessi ummæli Sigurðar voru rifjuð upp í ummælum á síðasta borgarstjórnarfundi, þegar jarðfræðingur borgarinnar hafði unnið þarna að rannsóknum að beiðni borgarverkfræðings og gert sprungukort af svæðinu, þar sem reyndust allt niður í 50 m milli sprungna. Þegar þetta var upplýst, kom í ræðustól Davíð Oddsson, borgar- fulltrúi sem er orðheppinn maður sem kunnugt er, og las upp úr greinargerð jarðfræðingsins: Grafnar voru sex prufuholur eða skurðir með Atlas-gröfu á mis- munandi stöðum á svæðinu, þar sem talið var að finna mætti sprungur. Og hann bætti við: — Jarðfræðingurinn virðist skv. þessu hafa þurft 20 tonna gröfu til að geta leitað að sprung- unum. Það er nú meiri brjóstvas- inn, sem borgarfulltrúi Sigurður Tómasson hefur, ef Atlas-skurð- grafa rúmast þar með meiru. Nýja ferjan jafnvel tek- in 1 notkun um rniðjan júní „ÞAÐ ER ekki enn búið að ganga alveg frá peningamálunum, en ég á von á að lokaákvörðun um kaup á nýju ferjunni verði tekin á aðalfundi Skallagríms hf., sem haldinn verður bér á Akranesi í dag,“ sagði Helgi Ibsen framkvæmdastjóri þegar Morgunblaðið innti hann eftir kaup- um á nýrri ferju í stað Akraborgar. Helgi sagði að með bjartsýni mætti reikna með að nýja ferjan kæmi til landsins uppúr miðjum júní og yrði hún þá strax tekin í notkun. „Það er ákaflega mikið að gera hjá okkur, nema hvað fólk hefur ekki áttað sig almennilega á kvöldferðunum, sem eru á föstu- dags- og sunnudagskvöldum, klukkan 20.30 frá Akranesi og klukkan 22.00 frá Reykjavík." Frá sýningu á munum eftir eldri borgara I Reykjavik sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Sýningunni lýkur á sunnudagskvöld. Moreuiibladr«(.uíljón. „Ævintýri líkast“ — segir ellimálafulltrúi borgarinnar um sýningu á munum eldri borgara „ÞAÐ ER ævintýri líkast að sjá hvað komið hefur út úr starfi þessa fólks í vetur,“ sagði Geirþrúður Hildur Bernhöft ellimálafulltrúi Reykjavík- urborgar í samtali við Morgunblaðið en nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum sýning á ýmsum munum, sem unnir hafa verið í vetur af öldruðu fólki, sem tekið hefur þátt í félagsstarfi eldri borgara í Reykjavik. Þar hefur verið boðið upp á fé- lagsstarf ýmiss konar, námskeið, handavinnu og margvíslega þjón- ustu. Hafa þessi félagsstörf verið fjölsótt. Sem dæmi má nefna að um 40 þúsund manns tóku þátt í félagsstarfinu veturinn 1980. Er nú afraksturinn af starfi eldri borgara til sýnis á Kjarvalsstöð- um. „Sjón er sögu ríkari,“ sagði Geirþrúður Hildur. „Þessi sýn- ing,“ sagði Geirþrúður ennfremur, „sýnir það betur en annað að hjá þessu fólki, sem komið er á eftir- launaaldurinn, koma fram hæfi- leikar, sem viðkomandi hefur ekki haft hugmynd um sjálfur að hann hefði.“ Það er fólk frá sjötugsaldrinum upp í nírætt sem á muni á sýning- unni en hún var opnuð sl. föstudag með því að Lúðrasveit Laugar- nesskóla lék fyrir utan sýninguna. Sýningin verður opin frá kl. 14.00 til 22.00 laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. maí. Sala á mun- um unnum í félagsstarfinu verður að Norðurbrún 1, laugardaginn 15. maí og sunnudaginn 16. maí, frá kl. 13.00 til 18.00 báða dagana. tíslandsmótið 1. deild Laugardalsvöllur í dag kl. 2 Leikur Valur sinn fyrsta heimaleik í sumar við K.A. REYKMVÍK SÍMI 85333 VARPSBÚDIN NEC FINLUX FISHERI Ö5 SAMSUNG ASKUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.