Morgunblaðið - 30.11.1982, Page 27

Morgunblaðið - 30.11.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982 31 Birgir ísleifur Gunnarsson: Útboð meginregla í op- inberum framkvæmdum Birgir ísleifur Gunnarsson (S) mælti í gær fyrir frum- varpi, sem hann flytur ásamt Friðriki Sophussyni (S) um skipan opinberra fram- kvæmda. Frumvarpið felur það í sér, ef samþykkt verð- ur, að tekin eru af öll tvímæli um, að útboð skuli vera aðal- stefna varðandi opinberar framkvæmdir. í ákvæðum til bráöabirgða er heimilt að gefa ríkisstofnunum, sem að- allega hafa framkvæmt verk sjálfar, ákveðin umþóttunar- tíma til að laga sig að fram- kvæmd þessara ákvæða. Útboð hagkvæmasta og sanngjarnasta leiðin Birgir ísleifur Gunnarsson (S) sagði í framsðgu að þrátt fyrir ákvæði í gildandi lögum um útboð opinberra framkvæmda, sem væri í senn hagkvæmasti og sanngjarn- asti háttur varðandi opinberar framkvæmdir, væri staðreyndin sú, að fjölmargar ríkisstofnanir önnuðust framkvæmdir og úttekt sömu verká. Greiðslur til verktaka sem hlutfall af framkvæmdum við vega- og brúargerð hafi verið 11% 1978, 12% 1979,18,8% 1980, 20,2% 1981. Hjá Hafnarmálastofnun hafi hlutfall útboða 1980 verið 17,8%, þar af 5% innlend en 12 erlend (aðallega efni). Hjá Flug- málastjórn vóru útboð 13,2% 1981. Nauðsynlegt sé því að kveða fastar á um útboðsskyldu. Verðkynningarrit Jóhanna Sigurðardóttir (A) mælti fyrir frumvarpi sem hún flytur ásamt fleiri þingmönnum þess efnis, að Verðlagsstofnun skuli mánaðarlega gefa út verðkynn- ingarrit þar sem fram kemur verð og verðlagsbreytingar á öllum helztu þáttum vöru og þjónustu sem Verðlagsstofnun fjallar um eða fær til staðfestingar. Auk þess skal í verðkynningarritinu fjallað um breytingar á hinu opinbera verðmyndunarkerfi. Birgir ísl. Gunnarsson Jóhanna sagði m.a. að bæði myntbreytingin og óðaverðbólgan hafi ruglað verðskyn fólks. Því sé nauðsynlegt að styrkja þann þátt í aðhaldi og eftirliti með allri verð- lagsþróun sem virkt neytendaeft- irlit eigi að vera. Frumvarpið sé spor til slíkrar styrkingar. Fíkniefnafræðsla í grunnskólum Sigurlaug Bjarnadóttir (S), Jó- hanna Sigurðardóttir (A), Aiexander Stefánsson (F), Guðrún Helgadóttir (Abi.), Pétur Sigurðsson (S) og Birg- ir ísleifur Gunnarsson (S) flytja frumvarp til breytinga á grunn- skólalögum þessefnis, að lögbinda „fræðslu um áhrif og neyzlu áfengis og annarra ávana- og fíkniefna“ í grunnskólanum. Fjölgun tollhafna Fram hefur verið lagt stjórnar- frumvarp sem felur í sér, ef sam- þykkt verður, að tollhöfnum verði fjölgað um sex. Við bætast: Grundartangi, Rif, Grundarfjörð- ur, Skagaströnd, Dalvík og Þórs- höfn. Frumvarpið gerir og ráð fyrir því að „íslenzk tollalögsaga fylgi jafnan landhelgi íslands svo sem hún er afmörkuð í lögum þar um og taki breytingum eins og hún“. Greiðslufrestur á aðflutningsgjöldum Fram hefur verið lagt stjórnar- frumvarp til breytinga á tollalög- um, sem m.a. felur í sér heimild til greiðslufrests á aðflutningsgjöld- um „allt að tveir mánuðir frá þeim tima er far tekur höfn“. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin komi ekki til framkvæmda fyrr en að nokkrum tíma liðnum og þá í áföngum. Sérskattur á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði: Líkur á falli hliðar- frumvarps við fjárlög EIÐUR Guðnason, þingmaður Al- þýðuflokks, lýsti því yfir í efri deild Alþingis í gær, að þingmenn Alþýðuflokks myndu greiða at- kvæði gegn framlengingu sérstaks skatts á verzlunar- og skrifstofu- húsna'ði. Skattur þessi var fyrst lagður á árið 1979, þá með sam- þykki Alþýðuflokksins, en var hugsaður sem skammtimaskattur, sagði Eiður. Á síðasta þingi fluttu Alþýðuflokksmenn breytingartil- lögu við fraralengingarfrumvarp, þess efnis, að skatturinn skyldi þá helmingaður (1982) en felldur niður 1983. í samræmi við þessa afstöðu lýsi ég þvi yfir, sagði Eiður Guðnason, að við þingmenn Al- þýðuflokks munum greiða atkvæði gegn framlengingu skattsins nú. Þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa frá öndverðu verið andvígir þessari sérsköttun. Það sýnist því ljóst að framlengingarfrum- varpið verður fellt í neðri deild Alþingis, ef fer sem horfir. Ragnar Arnalds, fjármálaráð- herra, mælti fyrir stjórnar- frumvarpi um framlengingu skattsins, sem er 1,4% á fast- eignagjaldsstofn, til viðbótar öðrum sköttum á sama gjald- stofn. Verzlunin er eina atvinnu- greinin sem gert hefur verið að greiða þennan skatt. Í tekjuáætl- un fjárlagafrumvarps 1983 er þessi skattur talinn gefa 54,7 m. kr. í ríkissjóð. Ýmis tekjufrumvörp (fram- lenging tímabundinnar skatt- heimtu), sem fjárlagafrumvarp- ið gerir ráð fyrir að verði sam- þykkt, eru enn ókomin fram og ósýnt, hvort þingmeirihluti er fyrir í neðri deild. Úrvinnsla rekaviðar Guðmndur Bjarnason, Páll Pét- ursson og Sigurgeir Bóasson, þing- menn Framsóknarflokks, hafa lagt fram tillögu til þingsályktun- ar þar sem ríkisstjórn er falið að „láta framkvæma athugun á nýt- ingu og úrvinnslu rekaviðar og úrgangstimburs til iðnaðar og orkusparnaðar. Svipmynd frá Alþingi: Hér koma twir þingmonn úr Norðurlandskjör- dæmi vestra, Stofán Jónsson (Abl.) og Halldór Blöndal (S), til þing- fundar, hugsandi á svip eins og hrnfir slíkum ( alvöru líóandi stundar. Pétur Sigurðsson: Óhófleg skatt- lagning á sumarhús — miðað við nýtingartíma og þjónustu sveitarfélags Pétur Sigurðsson (S) mælti í gær fyrir frumvarpi sem hann flytur ásamt Guðmundi J. Guðmundssyni (Abl.), Vilmundi Gylfasyni (utan flokka) og Guðmundi G. Þórarins- syni (F), þess efnis, að skattur af sumarbústaðalóðum og mannvirkj- um á þeim skuli vera V4% * *f fast- eignamati, sem er veruleg lækkun frá þvi sem nú er. • Pétur Sigurðsson (S) sagði frum- varpið flutt að beiðni fjölda aðila, einstaklinga og stéttarfélaga, sem komið hefðu sér upp sumarhúsum. Þessi sumarhús væru skattlögð óhóflega miðað við stutta nýtingu, nálægt 3 mánuðum á ári, og nán- ast enga þjónustu af hálfu þeirra sveitarfélaga, sem skatturinn gengi til. öll sanngirni mælti því með lækkun skattsins. • Páll Pétursson (F) taldi frum- varpið ganga of langt. Viðkomandi sveitarfélög yrðu af tekjum af landbúnaði, sem ella færi fram á þessum lendum, og því eðlilegt, að eitthvað kæmi í staðinn. • Pétur Sigurðsson (S) sagði lönd þau, sem sumarhús væru byggð á, ýmist keypt eða leigð fyrir endur- gjald, sem hvort tveggja ætti að skila skattlagningu til viðkomandi sveitarfélaga. Hóflegur fasteigna- skattur, miðaður við notkunar- tíma, væri sjálfsagður. Hann vakti og athygli á því að stéttar- félög og einstaklingar, sem byggðu sumarhús, þyrftu yfirleitt að Pétur Sigurðsson standa í eigin vegagerð með ærn- um kostnaði heim að þessum hús- um og hverfum, en væri þó gert að greiða sýsluvegasjóðsgjald. öll höfum við þó greitt okkar hlut í hinni almennu vegagerð gegnum venjulega skattlagningu. Hér er of langt gengið í því að torvelda fólki að njóta náttúru landsins. Þingfréttir í stuttu máli | smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Hilmar Foss lögg. skjalaþ. og dómt. Hafnar- stræti 11, sími 14824. Framkvœmdamenn húsbyggjendur Tökum aö okkur ýmiskonar jarövinnuframkvæmdir t.d. hol- ræsalagnir o.fl. Höfum einnlg til leigu traktorsgröfur og loftpress- ur. Vanir menn. Ástvaldur og Gunnar hf., sími 23637. Ljósritun Stækkun — smækkun Stæröir A5, A4, Folíó, B4, A3, glærur, lögg. skjalapappír. Frá- gangur á ritgeröum og verklýs- ingum. Heftingar m. gormum og m. plastkanti. Magnafsláttur Næg bilastæöi. Ljósfell, Skipholti 31, siml 27210. Mottur - teppí - mottur Veriö velkomin. Teppasalan er á Laugavegi 5. Víxlar og skuldabréf í umboössölu. Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu 17, simi 16223. Þorleifur Guö- mundsson, heima 12469. ýmislegt Listaverkaunnendur Peningamenn og þeir sem hafa áhuga á málverkum eftir is- lenska listamenn hafi samband viö mig í síma 26513 milli 9 og 6 á daginn og í síma 34672 milli 7 og 9 á kvöldin. Húsráóendur Jólapóstur fer nú aö berast. Vantar ekki skilti á hurö eöa póstkassa? Út- buum nafnskilti meö stuttum fyrirvara fram til jóla. Skilti & Ljósrit Hverfisgötu 41. Simi 23520. □ Hamar 598211307—1 Frl. Atkv. □ Helgafell 598211307 IV/V H. & V. Fíladelfía Almennur bibliulestur i kvöld kl. 20.30. Ræöumaöur Sam Daniel Glad. Fimir fætur Dansæfing í Hreyfilshúsinu sunnudaginn 5. desember kl. 21.00. Mætiö timanlega. Nýir fé- lagar ávallt velkomnir. Ad. KFUK Amtmanns- stíg 2 B Fundur í kvöld kl. 20.30. Viö fáum uppörvun fyrir jólaundir- búninginn og lærum eitthvaö nýtt. Smakk-kaffi. Hugleiöing. Allar konur velkomnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.