Morgunblaðið - 03.02.1983, Qupperneq 48
^^^skriftar-
síminn er 830 33
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983
Fellt að mótmæla hvalveiði-
banni með eins atkvæðis mun
SAMEINAÐ Alþingi felldi í gærkvöldi þá ákvöröun ríkis-
stjórnarinnar að hvalveiðibanni Alþjóða hvalveiðiráðsins
verði mótmælt. Atkvæðagreiðsla, að viðhöfðu nafnakalli, fór
fram um kl. 21 í gærkvöldi eftir langar og harðorðar umræður
og féllu atkvæði þannig að 29 vildu ekki mótmæla hvalveiði-
banninu, en 28 voru samþykkir mótmælum. Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsráðherra sagði í viðtali við Mbl. að
afloknum fundinum, að þessi niðurstaða þýddi að hann
myndi ekki senda þau mótmæli sem hann hafði ráðgert,
Alþingi hefði tekið ákvörðun sem ekki yrði haggað.
Við atkvæðagreiðsluna sem
fram fór um breytingartillögu
meirihluta utanríkismálanefndar
var viðhaft nafnakall og kom þar
fram að eftirtaldir vildu ekki að
hvalveiðibanninu væri mótmælt:
Albert Guðmundsson, Árni
Gunnarsson, Birgir ísl. Gunn-
arsson, Eggert Haukdal, Egill
Jónsson, Eyjólfur Konráð Jóns-
son, Friðrik Sophusson, Garðar
Sigurðsson, Geir Gunnarsson,
Guðmundur Bjarnason, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Guð-
mundur Karlsson, Guðrún Helga-
dóttir, Halldór Ásgrímsson,
Helgi Seljan, Hjörleifur Gutt-
ormsson, Jón Baldvin Hannibals-
son, Karvel Pálmason, Lárus
Jónsson, Sigurlaug Bjarnadóttir,
Ólafur Ragnar Grímsson, Páll
Pétursson, Pétur Sigurðsson, Sal-
ome Þorkelsdóttir, Skúli Alex-
andersson, Stefán Jónsson, Svav-
ar Gestsson, Sverrir Hermanns-
son og Vilmundur Gylfason.
. Eftirtaldir vildu mótmæla
banninu: Jón Helgason, Alexand-
er Stefánsson, Davíð Aðalsteins-
son, Eiður Guðnason, Friðjón
Þórðarson, Geir Hallgrímsson,
Guðmundur G. Þórarinsson,
Gunnar Thoroddsen, Halldór
Blöndal, Ingólfur Guðnason,
Dollaraverð
hefur hækkað
um 4,62%
DOLLARAVERÐ hefur hækkað um
4,62% frá því gengi íslenzku krón-
unnar var fellt 5. janúar sl., en í
kjölfar gengisfellingarinnar var
sölugengi dollarans skráð 18,170
krónur, en var í gærdag skráð 19,010
krónur.
Frá áramótum hefur dollarinn
síðan hækkað um 14,17%, en í
upphafi ársins var sölugengi hans
skráð 16,650 krónur.
Ef litið er á þróunina til lengri
tíma, eða frá valdatöku núverandi
ríkisstjórnar í febrúar 1980, þá
hefur dollaraverð hækkað um lið-
lega 373,24%, en þá var sölugengi
dollarans skráð 4,017 krónur.
Fjársvikamálið:
Yfirheyrslum
miðar vel áfram
YFIRHEYRSLUM var fram haldið í
gær hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
yfir lögfræðingunum tveimur, sem
sitja í gæsluvarðhaldi fyrir meint
auðgunar- og fjármálabrot. Yfir-
heyrslum miðaði vel í gær.
Rannsóknin beinist að ætluðum
lánveitingum lögfræðinganna gegn
okurvöxtum, svo sem til tiltekins
bílasala í Reykjavík. Þessu tengj-
ast önnur meint auðgunarbrot
lögfræðinganna.
Ingvar Gíslason, Jóhann Ein-
varðsson, Jóhanna Sigurðardótt-
ir, Jósef H. Þorgeirsson, Karl
Steinar Guðnason, Kjartan Jó-
hannsson, Magnús H. Magnús-
son, Matthías Á. Mathiesen, ólaf-
ur G. Einarsson, Ólafur Jóhann-
esson, Ólafur Þ. Þórðarson, Pálmi
Jónsson, Sighvatur Björgvinsson,
Stefán Valgeirsson, Steingrímur
Hermannsson, Steinþór Gests-
son, Tómas Árnason og Þórarinn
Sigurjónsson.
Þrír þingmenn voru fjarver-
andi, þeir Ragnar Arnalds, Stef-
án Guðmundsson og Þorvaldur
Garðar Kristjánsson. Átta þing-
menn gerðu grein fyrir atkvæð-
um sínum.
Sjá umræður á Alþingi á mið-
opnu og umsagnir aðila í
Bandaríkjunum á bls. 26.
r* I* Z . " V? . Vf
Ljósm. Kristján E. Einarsson.
„Hvað er svona merkilegt við
það að vera karlmaður?“
Hvert karlmannavígið á fætur öðru í atvinnulífinu fellur nú á tímum, og meðal hafnarverkamanna eru
nú starfandi konur. Þessar tvær hitti blaðamaður Morgunblaðsins í gær við Faxaskála hjá Hafskip, en
þær hafa nýlega verið ráðnar á vörulyftara fyrirtækisins, og munu vera einu konurnar sem þann starfa
hafa hér á landi, Ágústa Jónsdóttir og Salome Birgisdóttir. Sjá viðtal á blaðsíðu 3 í Mbl. í dag.
Christine Stevens, forseti Dýravernd arsambands Bandaríkjanna:
Við hvetjum almenning til
kaupa á íslenzkum vörum
„VIÐ erum að sjálfsögðu í sjöunda
himni yfir ákvörðun íslenska þings-
ins,“ sagði ('hristinc Stevens, forseti
Dýraverndarstofnunarinnar banda-
rísku, þegar eftir að atkvæðagreiðsl-
unni lauk á Alþingi í gærkveldi, og
Gunnar Pálsson fréttaritari Morgun-
blaðsins í Bandaríkjunum, hafði sam-
band við hana.
Hún sagði: „Við teljum að tslend-
ingar hafi með þessu sýnt aðdáun-
Ber íslenzku lýdræði frábært vitni
arvert fordæmi öðrum hvalveiði-
þjóðum. Þegar tillit er tekið til þess
að ísl. stjórnvöld höfðu áður ákveð-
ið að mæla með banninu, hlýtur
það að bera íslensku stjórnarfari
og lýðræðislegum hugsunarhætti
íslensku þjóðarinnar frábært vitni,
að ákvörðun þessari var breytt.
Einkum var ánægjulegt að ákvörð-
unin var tekin án þess að bandarísk
stjórnvöld hefðu nokkur afskipti af
málinu. Við óskum íslendingum til
hamingju.
Við munum nú gera allt sem í
okkar valdi stendur til að auka
viðskipti landanna tveggja, hvetja
almenning til að kaupa íslenskar
vörur, og jafnvel heimsækja landið.
Mér þætti vænt um að fá ráðlegg-
ingar frá íslenskum blaðamönnum,
stjórnmálamönnum og almenningi,
um á hvern hátt við getum best
orðið Islendingum að liði," sagði
Stevens að lokum.
Léttir hjá S.H. en
áfall fyrir Hval hf.
„EG TEL að niðurstöður þessa
máls séu ákaflega alvarlegar
fyrir íslenska lýðveldið og
sjálfstæði þess,“ sagði Kristján
Loftsson forstjóri Hvals hf. er
blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við hann í gærkveldi að
lokinni atkvæðagreiðslunni á
Alþingi.
„Þetta er ef til vill fyrsta at-
lagan að lýðveldinu af þessu
tagi,“ sagði Kristján ennfrem-
ur. „Við höfum þarna gefið
slæman höggstað á okkur
gagnvart hugsanlegum þrýsti-
hópum í framtíðinni, sem
munu telja sig geta gengið á
lagið og kúgað íslensk stjórn-
völd. Ég þori varla að hugsa þá
hugsun til enda, hvernig þetta
getur endað.
Við höfum ekki enn hugleitt
hver framtíð fyrirtækis okkar
verður, ætli það leggi ekki upp
laupana? — Ég hygg hins veg-
ar að sá dagur kunni að koma,
að við verðum að grípa til að-
gerða vegna ofvaxtar hvala-
stofnsins, líkt og við eigum nú
í vanda vegna selsins. Ég hef
að minnsta kosti aldrei heyrt
að hvalir færu í megrun, þótt
hætt verði að veiða þá,“ sagði
Kristján að lokum.
Guðmundur H. Garðarsson
blaðafulltrúi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna sagði í
gærkveldi, að þessi málalok
væru SH mikill léttir. „Niður-
staðan er okkur mikill léttir,"
sagði Guðmundur, „og okkar
menn úti í Bandaríkjunum eru
sömu skoðunar, þeir menn sem
þar standa í baráttu við að
selja íslenskar afurðir."
Bráðabirgða-
lögin tekin fyr-
ir á mánudag
BRÁDABIRGÐALÖGIN verða ekki
tekin fyrir í neðri deild Alþingis fyrr
en á mánudag. Á fundum forscta
Alþingis og forsætisráðhcrra í gær
lagði forsætisráðherra fast að Sverri
Hermannssyni forseta neðri deildar,
að bráðabirgðalögin yrðu tekin til
umfjöliunar á fundi neðri dcildar að
afloknum fundi sameinaðs þings í
gærkvöldi. Sverrir tilkynnti forsæt-
isráðherra aftur á móti, að hann
myndi taka bráðabirgðalögin á
dagskrá dcildarinnar nk. mánudag.
Á stuttum fundi neðri deildar,
sem settur var í lok fundar sam-
einaðs þings í gærkvöldi gerði
Sverrir Hermannsson grein fyrir
því að til funda í deildum væri
boðað kl. 14 í dag. Hann sagði að á
dagskrá fundar neðri deildar væri
olíusjóður fiskiskipa, og eitt annað
smærra mál. Þá tilkynnti hann að
að loknum fundum í deildum
kæmi sameinað þing til fundar.
Engir þingfundir verða á morgun,
föstudag, að sögn Sverris.