Morgunblaðið - 21.04.1983, Side 1
96 SÍÐUR
89. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
Prentsmiöja Morgunblaösins
„Krans í Varsjá —
sprengja í London“
ísraelar mótmæla þátttöku PLO í minn-
ingarathöfn um uppreisn Gyðinga í Varsjá
Varsjá. 20. aprfl. AP.
FJÓRIR háttsettir, ísraelskir embættismenn fóru í dag frá Póllandi í mót-
mælaskyni við þátttöku fulltrúa PLO, Frelsisfylkingar Palestínumanna, í
minningarathöfn um Gyðingauppreisnina í Varsjá. Var þaö talsmaður ísra-
elska utanríkisráðuneytisins, sem skýrði frá brottför mannanna.
„Opinber þátttaka fulltrúa PLO er
móðgun við alla Gyðinga," sagði tals-
maður utanríkisráðuneytisins en í Isra-
el hefur það valdið mikilli hneykslan,
að fulltrúa PLO skuli hafa verið boðið
til að leggja krans að minnisvarða um
þá Gyðinga, sem nasistar myrtu í upp-
reisninni í Gyðingahverfinu í Varsjá.
„Með þessu er verið að saurga heilag-
an stað,“ sagði Yosef Burg, innanrík-
isráðherra ísraels. „Þegar glæpamcnn-
irnir leggja krans í Varsjá til að minn-
ast látinna Gyöinga hafa þeir tilbúna
handsprengjuna fyrir lifandi Gyðinga í
London, Ziirich og annars staðar."
llm það bil 300 ísraelar eru nú í
Póllandi vegna minningarathafnarinn-
ar en langflestir eru þeir á eigin vegum
og munu ekki fara að dæmi embætt-
ismannanna og snúa heim strax. Jerus-
alem Post, sem er ritað á ensku, sagði
í dag, að PLO vildi láta líta svo út sem
þau væru „andi uppreisnarinnar í
Varsjá holdi klædd" þótt sannleikur-
inn væri sá, að þau hefðu verið áköf-
ustu aðdáendur nasismans á sínum
tíma.
írakar skjóta á
borgina Dezful
Nicosia, Kýpur, 20. aprfl. AP.
ÍKAKAR SKUTU í dag þremur eld-
flaugum inn í borgina Dezful í Khuz-
istan-olíuhéraðinu í suðurhluta fran,
að því er segir í fregnum hinnar opin-
beru írönsku fréttastofu, IRNA.
Það er haft eftir útvarpinu í Te-
heran að eldflaugarnar hafi lent á
Þurrka út
fjögur núll
Huenos Aires.
EFTIR margra mánaða japl og
jaml og fuður hefur argentínska
ríkisstjórnin loksins komið fram
með nýjar efnahagsaðgerðir —
ckki loforð um efnahagslega
endurreisn heldur um róttæka
niðurfærslu alls verðlags í landinu.
Þetta kcmur fram í frétt í breska
blaðinu Daily Telegraph og segir
þar að hinar nýju aðgerðir felist í
því að þurrka út fjögur núll, einn
nýr pesói jafngildir þá 10.000
gömlum.
Verðbólgan í Argentínu hefur
valdið því, að argentínski pesó-
inn er einhver lítilsvirtasti
gjaldmiðill í heimi. Þessa stund-
ina er einn pesói t.d. verðminni
en einn þúsundasti úr einu ensku
penny. Af þessum sökum ákvað
herstjórnin fyrir um sex mánuð-
um að reyna að gera einhverja
andlitslyftingu á gjaldmiðlinum,
en lengi var um það deilt hve
mörgum núllum ætti að slátra.
Niðurstaðan varð, að fjögur
þeirra mættu sigla sinn sjó.
borginni um klukkan 18 að staðar-
tíma, en ekki var unnt að fá fregnir
um manntjón eða skemmdir sam-
stundis.
Irakar sendu ekki frá sér tilkynn-
ingu um árásina í dag og ekkert var
minnst á bardaga á Dezful-svæðinu
í útsendingu Bagdad-útvarpsins nú
síðdegis.
Haber Al-Ahmed, leiðtogi Kuwa-
it, tók í dag við persónulegum sendi-
boðum frá forseta Sovétríkjanna,
Yuri Andropov, þar sem segir að
sovésk stjórnvöld styðji friðartil-
raunir sem Kuwait-stjórn hefur
staðið að varðandi stríð írana og Ir-
aka. Einnig segir í skilaboðunum að
Sovétmenn sjái mikilvægi þess að
binda enda á þetta stríð sem staðið
hefur í 31 mánuð.
Gleðilegt
sumar!
Verkamenn í fullum rétti
að hafa eigin hátíðahöld
— sagði Walesa á blaðamannafundi um dag verkalýðsins, 1. maí
Varsjá, 20. aprfl. AP.
LECH WALESA, leiðtoei óháðu
verkalýðsfélaganna Samstöðu, sem
hafa verið bönnuð, sagði' í dag að
pólskir verkamenn hefðu fullan rétt
til að halda upp á dag verkalýðsins, 1.
maí, eins og þeir sjálfir kysu. Yfirvöld
hafa tilkynnt að ákall andspyrnuleið-
toga Samstöðu um mótmæli á þessum
degi geti hugsanlega valdið því aö
komu Jóhannesar Páls II páfa til Pól-
lands verði frestað, en heimsókn hans
er ráðgerð 16. til 22. júní næstkom-
andi.
„Ég er verkamaður," sagði Wal-
Nicaragua fær vopn frá Líbýu
en ekki „lyf og hjúkrunargögn“
Brasilíu, Brazilíu, 20. aprfl. AP.
FJÓRAR líbýskar flugvélar, sem milli-
lentu í Brazilíu á leið sinni til Nicar-
agua, rcyndust ekki vera með lyf og
hjúkrunargögn eins og látið var í veðri
vaka heldur voru þær hlaðnar vopnum
og sprengiefni. Brazilíska utanríkis-
ráðuneytið skýrði frá þessu í gær og í
dag var flugmönnunum skipað að snúa
aftur til Líbýu.
Talsmaður Brazilíustjórnar sagði í
dag, að Líbýustjórn yrðu send hörð
mótmæli vegna þessa atburðar enda
hefðu Líbýumenn verið með vísvit-
andi blekkingar í þessu máli. Sagði
hann, að þegar Líbýustjórn hefði
farið fram á sl. laugardag, að flug-
vélarnar fengju að lenda í Brazilíu
vegna bilana, hefði farmurinn verið
sagður „sjúkrabílar, hjúkrunargögn
og lyf“-
„Sú yfirlýsing átti ekki við um
raunverulegan farm flugvélanna,"
sagði talsmaður stjórnarinnar og
bætti því við, að vélarnar hefðu verið
að flytja vopn og sprengiefni til Nic-
aragua. Þrjár vélanna eru af sov-
éskri gerð, Ilyushin, en sú fjórða er
C-130-herflutningaflugvél af banda-
rískri gerð.
Brazilíumenn reyna að gæta hlut-
leysis gagnvart átökunum í Mið-
Ameríku jafnframt því sem þeir eru
mjög andvígir erlendri íhlutun.
esa við fréttamenn á fundi síðdegis
í dag í íbúð sinni í Gdansk. „Ég ætla
að halda upp á 1. maí eins og verka-
maður, en ég get ekki sagt ykkur
nákvæmlega hvernig," sagði hann á
fundinum. Hann vildi hvorki gefa
upp hvernig tengslum sínum við þá
Samstöðuleiðtoga sem nú fara
huldu höfði í Varsjá er háttað né
tjá sig um nýafstaðnar yfirheyrslur
stjórnvalda.
Pólsk yfirvöld hafa yfirheyrt
Walesa þrisvar sinnum í þessari
viku vegna fundar hans með fimm
Samstöðuleiðtogum, sem fara huldu
höfði.en hann átti sér stað helgina
9. til 11. apríl.
Yfirvöld gerðu ekki tilraun til að
koma í veg fyrir þennan fund Wal-
esa með fréttamönnum, en hann
stóð yfir í eina og hálfa klukku-
stund og voru um fimmtíu manns
þar samankomnir. Fyrir utan vest-
ræna fréttamenn voru fréttamenn
frá sjónvarpsstöðinni í Gdansk við-
staddir og fleiri fréttamenn frá
ríkisreknum fjölmiðlum. Talið er að
þetta sé í fyrsta skipti sem ríkis-
reknir fjölmiðlar sækja blaða-
mannafund hjá Walesa eftir að
hann var látinn laus úr ellefu mán-
aða stofufangelsi í nóvember
síðastliðnum.
Walesa hvatti stjórnvöld til að
hefja viðræður við leitoga Sam-
stöðu, en samningaviðræðum þess-
arra aðila var hætt þegar herlög
gengu í gildi i landinu 13. desember
1981.
Dagblaðið „Zycie Warszawy"
birti síðan í dag fregnir þess eðlis,
að þrjátíu og fimm manns hafi ver-
ið handteknir um síðastliðna helgi í
hinni helgu borg Czestochowa, þeg-
ar lögregla gerði leit í fjölda blaða-
verslana, sem reknar eru af liðs-
mönnum Samstöðu, sem fara huldu
höfði. Þúsundir ólöglegra rita voru
gerð upptæk, en þar munu t.a.m.
vera upplýsingar um hvernig hátta
skuli mótmælaaðgerðum að því er
segir í fregnum blaðsins.