Morgunblaðið - 21.04.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
3
Geir Hallgrímsson í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli:
Látum hvorki Alþýðubandalagiö né
aðra setia okkur stólinn fyrir dyrnar
„ÉG viðurkenni ekki það neitunarvald sem einn ilokkur með aðeins um 18%
þjóðarinnar að baki sér getur beitt í eins stóru máli og flugstöðvarmálinu;
neitunarvald varðandi ýmsar varnarframkvæmdir á íslandi og neitunarvald
varðandi efnahagsráðstafanir. Við sjálfstæðismenn útilokum ekki samvinnu
við Alþýðubandalagið, ef málefnaleg samstaða næst, en við látum Alþýðu-
bandalagið aldrei setja okkur slíka kosti, eða stólinn fyrir dyrnar," svaraði
Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins spurningu á einum af
mörgum vinnustaðafundum sem hann sótti á Suðurnesjum í gær. Spurningin
var þess efnis, hvort ekki væru viss hættumerki hjá lýðræðisþjóð eins og
íslandi, þegar einn flokkur með mikinn minnihluta þjóðarinnar að baki sér
gæti beitt neitunarvaldi í svo stóru máli sem flugstöðvarmálinu.
Geir Hallgrímsson heimsótti, að fram hjá honum verði ekki
ásamt nokkrum frambjóðendum
flokksins I Reykjaneskjördæmi,
þeim Ellert Eiríkssyni, Salome
Þorkelsdóttur og Gunnari G.
Schram svo og Halldóri Ibsen,
vinnustaði í Keflavík, Ytri-Njarð-
vík, á Keflavíkurflugvelli og í Vog-
um á Vatnsleysuströnd. Hann
lýsti aðalstefnumiðum Sjálfstæð-
isflokksins og sagði valið á kjör-
dag standa um óbreytta stefnu
vinstri flokkanna eða stefnu
Sjálfstæðisflokksins. „Til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn geti mótað
stjórnarframkvæmdir þarf hann
ótvírætt að vera forustuflokkur
með þjóðinni og öðlast þann styrk
gengið. Ella er hætta á því að
Framsókn og Alþýðubandalagið,
sem ég hefi lýst sem ósamlyndum
hjónum, hlaupi saman í ríkis-
stjórn á ný,“ sagði hann.
Frambjóðendurnir fengu spurn-
ingar varðandi atvinnu-, efna-
hags-, skatta- og vísitölumál. Þá
var verðbólgan og afleiðingar
hennar í þeirri þriggja stafa tölu
sem hún er komin í tíðrædd.
Fundirnir voru allflestir mjög líf-
legir, mikið var spurt og skipst var
á skoðunum. Spurt var m.a. hvort
verðbólgan væri ekki orðin
„ólæknandi sjúkdómur", hvort
vísitölukerfið væri „séríslensk
Geir ræðir við starfsfólk Hraðfrystihússins Vogar hf. í Vogum.
Vextir af orlofs-
fé ákveðnir 57%
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur tekið ákvörðun um vexti af
orlofsfé hjá Fóstgíróstofunni. Verða vextir þessir nú 57% en voru
34% á síðasta ári. Orlofsféð er nú ávaxtað í Seðlabankanum á
verðtryggðum reikningi.
Gunnar Valdimarsson, for-
stöðumaður Póstgíróstofunnar,
sagði í samtali við Mbl., að um 320
milljónir króna kæmu til útborg-
unar í næsta mánuði. Höfuðstóll-
inn væri um 252 milljónir króna
og vextir um 68 milljónir króna.
Gunnar Valdimarsson var innt-
ur eftir því hvað yrði um mismun-
inn á ávöxtun orlofsfjárins, en
eins og áður sagði er það ávaxtað
á verðtryggðum reikningi í Seðla-
bankanum, en nú hefur verið
ákveðið að greiða út 57% vexti af
því. „Það má í raun segja, að mis-
munurinn farið í rekstur Póstgíró-
stofunnar, sem sér um málið."
Gunnar Valdimarsson sagði
ennfremur aðspurður, að kostnað-
urinn við rekstur Póstgíróstof-
unnnar á síðasta orlofsári, þ.e. frá
maí til maí vegna orlofsfjármála,
væri um 7,7 milljónir króna.
Albert Bessí Geir Ragnhildur
Qpið hús í Valhöll í dag:
Fjölskylduhátíð
OPIÐ hús verður í Valhöll í dag,
sumardaginn fyrsta, á vegum Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík.
Ávörp flytja frambjóðendurnir
Albert Guðmundsson, Bessí Jó-
hannsdóttir, Geir Hallgrímsson og
Ragnhildur Helgadóttir.
Kunnir listamenn flytja tónlist-
aratriði, en í upphafi leikur
Lúðrasveit Reykjavíkur. Samfelld
dagskrá hefst klukkan 15:15 með
setningarávarpi Guðmundar H.
Garðarssonar, formanns Full-
trúaráðsins í Reykjavík. Kynnir er
Svavar Gests tónlistarmaður.
Veitingabúð Valhallar er opin.
Stór-hlutavelta Varðar er í
kjallarasalnum. Þar verður margt
góðra vinninga og engin núll.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið á
kosningahátíð fjölskyldunnar í
Valhöll í dag. Húsið verður opnað
kl. 14:30.
„Nauðsynlegt að sú ríkisstjórn sem mynduð verður eftir kosningar komi flugstöðvarbyggingunni upp,“ sagði Geir
Hallgrímsson m.a. á vinnustaðafundi í gömlu flugstöðvarbyggingunni á Keflavíkurflugvelli. Ljósm. Mbl.: Kristján Einarsson.
flækja", eða hvort finna mætti
sambærilega í heiminum. Geir var
spurður hvort hann vissi hvað nýj-
asta skammaryrði Alþýðubanda-
lagsins „afturhaldssinni" þýddi í
mæltu máli, svo fátt eitt sé rakið.
Ein var sú spurning sem kom
fram á öllum þeim fundum sem
blm. Mbl. sat með frambjóðendun-
um, en hún var sú, hvort nokkur
leið væri að mynda ríkisstjórn á
íslandi án íhlutunar Alþýðu-
bandalagsins, þar sem friður á
vinnumarkaðinum yrði ekki
tryggður ella. Geir Hallgrímsson
sagði það rétt vera, sem fram kom
í spurningu, að Alþýðubandalagið
hefði misnotað vald sitt í laun-
þegasamtökunum til að koma í
veg fyrir lögmætar ráðstafanir
stjórnvalda, sem gengið hefðu í þá
átt að vernda hagsmuni launþega.
Hann sagði það einnig rétt vera að
sumir héldu því fram að þessi litli
minnihluti, Alþýðubandalagið,
yrði að eiga aðild að ríkisstjórn til
að vinnufriður héldist. Hann sagð-
ist þó telja að launþegahreyfingin
myndi ekki, að fenginni reynslu,
leyfa áframhaldandi misnotkun.
Alþýðubandalagið hefði hrópað
„samningana I gildi“ fyrir síðustu
kosningar, en í stjórnartíð þeirra
hefðu laun verið skert fjórtán
sinnum um samtals 50%, en á
sama tíma hefði grunnkaup aðeins
hækkað um 30%.
Það kom greinilega fram í þess-
um heimsóknum, að fólk hefur
áhyggjur af þeim glundroða, sem
mundi skapast ef fimm flokkar á
vinstri væng deildu með sér völd-
um. Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins bentu á, að engin hætta
væri í því fólgin að treysta einum
flokki fyrir ábyrgð og fengu þar
góðan hljómgrunn.
Sala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða og flokksmiða stendur yfir.
i ■ ——
VINNING
HAPPDRÆTTI 83-84
MIÐIER
MÖGULHKI
Ellefu íbúðavinningar á 400 þús. kr. hver, verða dregnir út á
næsta happdrættisári.
Aðalvinningur ársins; húseign að eigin vali fyrir 1.5 milljónir
króna. Langstærsti vinningur á einn miða hérlendis.