Morgunblaðið - 21.04.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
Janúar-marz:
Helmings samdrátt-
ur í bílainnflutningi
MIKILL samdráttur varð í inn-
flutningi á bílum fyrstu þrjá
mánuði ársins, samkvæmt upp-
lýsingum Hagstofu íslands.
Fyrstu þrjá mánuði ársins voru
samtals (luttir inn 1.553 bílar,
en til samanburðar voru seldir
2.913 bílar á sama tíma í fyrra.
Fjárnám í undirbúningi:
Ríkissjóður lagði ekki
vextina við höfuðstól
— ágreiningur um vaxtaútreikning af skaðabótum
fjórmenninganna vegna Geirfinnsmálsins
FJÓRMENNINGARNIH sem sátu í gæsluvarðhaldi um tíma
fyrir nokkrum árum vegna gruns um aðild að „Geirfinnsmál-
inu“ svokallaða, hafa ákveðið að krefja ríkissjóð um frekari
vaxtagreiðslur af skaöahótum sem þeim voru dæmdar vegna
málsins. Er uppi ágreiningur um vaxtaútreikning af upphæð-
inni.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá Hafsteini Bald-
vinssyni lögfræðingi eins aðila
málsins, er ágreiningurinn fólg-
inn í því að ríkissjóður reiknaði
ekki vaxtavexti af upphæðinni,
þ.e. lagði ekki vexti hvers árs við
höfuðstól. Hafsteinn Baldvinsson
sagðist telja að reikna ætti út
vexti á sama hátt og gert væri
hjá innlánsstofnunum, en sam-
kvæmt ákvæðum laga nr.
56/1979, á dómari að ákveða eftir
kröfu aðila að dæmdir vextir
fyrir tímabilið frá birtingardegi
stefnu til greiðsludags, skuli vera
jafn háir hæstu innlánsvöxtum
við innlánsstofnanir, eins og þeir
eru ákveðnir samkvæmt lögum á
hverjum tíma, þannig að sem
fyllst tillit sé tekið til varðveislu
á verðgildi fjármagns.
Sagði Hafsteinn að innláns-
stofnanir hefðu bætt vöxtum við
höfuðstól á 12 mánaða fresti og
síðar á 6 mánaða fresti. Sagði
Hafsteinn að þeir hefðu reiknað
út upphæðina með fyrrgreindum
hætti, en ríkissjóður hefði ekki
fallist á það sjónarmið og sagst
vilja reikna vextina eins og þeir
eru ákvarðaðir á hverjum tíma á
höfuðstólinn, án þess að bæta
vöxtunum við.
Hafsteinn sagði að ríkissjóður
hefði talið sig þurfa að greiða um
682 þúsund í tilfelli síns skjól-
stæðings, en hann kvaðst telja að
ríkissjóður ætti að greiða 1.378
þúsund krónur. Sagði Hafsteinn
að menn hefðu tekið við greiðslu
með fyrirvara um innheimtu þess
sem talið væri að ógreitt væri af
kröfunni.
Kvaðst Hafsteinn helst búast
við því að látið yrði reyna á að
fara í fjárnám fyrir eftirstöðvun-
um og bjóst hann við að það yrði
gert fljótlega.
Höskuldur Jónsson, ráðuneyt-
isstjóri í fjármálaráðuneytinu,
sagði að vextir í þessu máli hefðu
verið reiknaðir út á sama hátt og
gert hefði verið í öðrum dóms-
málum. Ef menn hefðu aðra skoð-
un á því máli, væri þeim frjálst
að leggja það fyrir dómstóla.
Sagði Höskuldur útilokað að rík-
issjóður færi öðru vísi með vaxta-
greiðslur í tilfellum sem þessum,
en í öllum öðrum málum sem áð-
ur hefðu verið til meðferðar.
Economist um ísland:
„Áhyggjulaus dans
á barmi eldgígs“
„í MESTA eldfjallalandi Evrópu átti síðasta meiriháttar eldgos sér stað
fyrir aðeins 10 árum. Síðan þá hefur jafnvægi í rauninni ekki komizt á
á íslandi. Pólitískt jafnvægisleysi hefur leitt af sér röð af veikum
ríkisstjórnum, sem hefur mistekizt að stöðva hraðstíga verðbólgu,"
segir í nýju tölublaði hins virta brezka tímarits, Economist, um stjórn-
málaástandið á íslandi.
Blaðið segir, að Gunnar
Thoroddsen, forsætisráðherra,
hafi við embættistöku sína lýst
því yfir, „að hann hygðist koma
verðbólgunni niður í sem svaraði
meðaltali þess, sem gerðist á
Vesturlöndum 1982. í staðinn óx
árleg verðbólga úr 42% á árinu
1981 upp í 60% 1982 og stefnir
nú í 70%.“
Economist segir, að landið
sökkvi „dýpra í skuldir, jörðin
dynur undir hærra og hærra og
kjósendum er boðið að taka þátt
í því, sem líkist áhyggjulausum
dans á barmi eldgígs".
Stúlkan sem lést
STÚLKAN sem lést er ekið var á
hana á gangbraut í Breiðholti um
hádegisbil á þriðjudag, hét Sigyn
Oddsdóttir.
Hún var fædd hinn 28. mars ár-
ið 1978 og var því aðeins fimm ára
gömul. Hún var dóttir hjónanna
Odds Sigurðssonar og Kolbrúnar
Hjaltadóttur.
Vegna þessa slyss óskar lögregl-
an í Reykjavík eftir ,því að þeir
sem kunna að hafa orðið vitni að
slysinu gefi sig fram. Ekið var á
stúlkuna á gangbraut á Breið-
holtsbraut, gegnt Engjaseli.
Bíllinn sem ók á stúlkuna var
lítill sendiferðabíll af Simca-gerð.
Samdrátturinn milli ára er því
um 46,7%.
Ef aðeins eru teknir nýir
fólksbílar, er samdrátturinn
um 48%, en fjöldi nýrra fólks-
bíla í ár er 1.234, en til sam-
anburðar voru þeir 2.373 á
sama tíma í fyrra.
Mest var selt af Lada-bílum
fyrstu þrjá mánuði ársins, eða
158, sem jafngildir um 5,42%
markaðshlutdeild. í öðru sæti
er Mazda með 154 bíla, sem
jafngildir um 5,28% mark-
aðshlutdeild. Mazda var mest
seldi bíllinn á síðasta ári. I
þriðja sæti er Volvo, en alls
seldust 144 bílar fyrstu þrjá
mánuði ársins, sem jafngildir
um 4,94% markaðshlutdeild.
í fjórða sæti er Daihatsu
með 111 bíla, sem jafngildir
um 3,81% markaðshlutdeild.
Þá kemur Toyota með 107 bíla,
sem jafngildir um 3,67%
markaðshlutdeild.
Dimmis
ÍMH
Dimmission var í Menntaskólanum við Hamrahlíð á þriðjudaginn.
Nemendur gerðu sér þá glaðan dag, klæddu sig upp í ýmsa búninga,
sungu og trölluðu. Nokkrir dimmittanta MH sóttu Morgunblaðið heim
og var þessi mynd tekin við það tækifæri.
Matthías Á. Mathiesen f sjónvarpsumræðum:
Sjálfstæðismenn reiðubúnir
að mynda minnihlutastjórn
— ef meirihlutastjórn tekst ekki
MATTHIAS A. Mathiesen,
efsti maður á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi, lýsti því yfir í sjón-
varpsumræðum í gærkvöldi,
að sjálfstæðismenn yrðu
reiðubúnir til þess eftir kosn-
ingar að mynda minnihluta-
stjórn, ef ekki tækist það
sem þeir telja æskilegast að
mynda meirihlutastjórn und-
ir sterkri forystu sjálfstæð-
ismanna.
í lokaorðum sínum í sjón-
varpsþættinum sagði Matthías
Á. Mathiesen, að í kosningabar-
áttunni hefði upplausnarástand-
Matthías A. Mathiesen
ið í röðum vinstri manna verið
undirstrikað, þeir byðu fram á
fimm listum og milli þeirra væri
mikil sundurþykkja. Síðan sagði
Matthías Á. Mathiesen orðrétt:
„Gegn áframhaldandi upp-
lausn og stjórnleysi er því val
kjósenda auðvelt. Það er að
veita Sjálfstæðisflokknum þann
styrk að eftir kosningar verði
landinu stjórnað skv. stefnu
hans. Við teljum æskilegast að
mynduð verði meirihlutastjórn
undir sterkri forystu sjálfstæð-
ismanna. Fáist það ekki, eru
sjálfstæðismenn reiðubúnir að
axla ábyrgðina og mynda minni-
hlutastjórn, sem takist á við að-
steðjandi vandamál með stuðn-
ingi ykkar.“
Breti stakk íslending með hníf í fyrrinótt:
Krafa um gæsluvarðhald
lögð fram í gærkveldi
TUTTUGU og sex ára gamall
maður varð fyrir árás í kjallara-
íbúð hússins númer 33 við Lauf-
ásveg á fimmta tímanum í fyrri-
nótt. Var hann stunginn í brjóstið
með hnífi, en árásarmaðurinn er
Breti, þrítugur að aldri, og er
hann fyrrum starfsmaður breska
sendiráðsins. Var hann handtek-
inn á vettvangi og viðurkenndi þá
verknað sinn og stóðu yfirheyrsl-
ur yfir honum í allan gærdag og
lagði rannsóknarlögreglan fram
kröfu um gæsluvarðhald yfir hon-
um í gærkveldi, samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. fékk hjá
Kannsóknarlögreglu ríkisins í
gær.
Rannsóknarlögreglunni barst
tilkynning um atburð þennan
um klukkan 4.30 í gærmorgun.
Var tilkynnt um mann sem
fengið hafði hnífsstungu í lunga
og blæddi honum mikið. Maður-
inn mun ekki vera í lífshættu.
Bretinn bar því við við yfir-
heyrslur að hann hafi hitt ís-
lendinga á skemmtistaðnum
Óðali og boðið fjórum eða fimm
þeirra heim ásamt þeim sem
fyrir árásinni varð. Síðan fór
fólkið úr íbúðinni á Laufásvegi,
að undanskildum Bretanum og
þeim sem fyrir árás hans varð.
Ekki er vitað um tilefni árásar-
innar, en málið er í rannsókn.
MYNDASÖGUR Morgun-
blaðsins fylgja blaðinu
ekki í dag.