Morgunblaðið - 21.04.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
7
Bfllinn bíður í
„Grænu hjarta"
Evrópu
Útsýn býður viöskiptavinum sínum ótrúlega hagstæöa bíla-
leigusamninga og flugfargjald til Luxemborgar og heim aft-
ur. Lesiö þessa veröskrá og hugleiöið hvort þarna sé ekki
einmitt þaö sem hentar orlofsáætlun yöar í ár. Bíll, ótak-
markaöur kílómetrafjöldi og flugfar fram og til baka pr.
mann: Hægt að velja um 1, 2, 3 eöa 4 vikur.
Brottför: 4/5, 6/5, 3/6, 10/6, 15/6, 24/6, 1/7, 8/7, 15/7, 22/7,
29/7, 5/8, 12/8, 13/8, 26/8.
Bílaflokkur:
A. Fiat Panda Fiat Uno B. Ford Fiesta Fiat 127
C. Ford Escort Opel Cadett Fiat Ritmo 65 D. Ford Sierra 1.6 Opel Ascona Fiat Ritmo dies. Ford Granada 2.0
E. Station Wagons F. Ford Sierra 2.0 GL
G. Ford Transit Minibus H. Mercedes Benz BMW 528
Ford Granada 2.3 GL
1 vika — verö frá kr.7.390.------ 5 í bíl.
2 vikur — verö frá kr. 7.800.---- 5 í bíl.
3 vikur — verö frá kr. 8.210.-----5 í bfl.
4 vikur — verö frá kr. 8.610.-----5 í bíl.
Innifalið: í þessum fargjöldum er innifalinn flugfarseöill KEF
— LUX — KEF, þíll í umsaminn dagafjölda, þ.e. vikur meö
ótakmörkuðum km fjölda, söluskattur og ábyrgöartrygging
gegn þriðja aðila, en leigutaki ber sjálfsábyrgö aö upphæö
kr. 11.220.-.
Barnaafsláttur 2—11 ára
kr.3.500."’
Reykjavik:
Austurstræti 17
Sími 26611.
Akureyri:
Hafnarstræti 98,
sími 22911.
Rökþrot Ólafs
R. Grímssonar
Eins og við var að búast
vikli Ólafur R. Grímsson
ekki kannast við neyðar-
áætlun Alþýðubandalags-
ins þegar á hana var fyrst
minnst í sjónvarpsþættin-
um á þriðjudagskvöldið.
Belgdi Ólafur sig við
stjórnanda þáttarins og
sagði hann fara raeð
„Morgunblaðslygi“ þegar
hann spurðist fyrir um
neyðaráætlunina. I*að var
hins vegar allt annar svipur
yfir Ólafi R. Grímssyni, eft-
ir að Albert Guðmundsson
hafði sýnt áhorfendum það
svart á hvítu hver var helsti
boðskapur Svavars Gests-
sonar, formanns Alþýðu-
bandalagsins, á flokks-
þinginu í nóvember 1982.
Þá talaði Svavar einmitt
um 4 ára neyðaráætlun
gegn kreppu og eins og Al-
bert hefur sagt, þá er
„samstarfsgrundvöllurinn"
svonefndi einskonar yfir-
breiðsla Alþýðubandalags-
ins yfir nafn og númer i
kosningabaráttunni, bæn-
arskjal hinnar nýju stéttar
Alþýðubandalagsins um að
hún fái að sitja í ráðherra-
stólum eftir kosningar,
hvað sem það kostar.
Ólafur R. Grímsson var
rökþrota í þessum sjón-
varpsumræðum. Hið eina
sem hann hélt fast við var
að biðja fólk um að kjósa
ekki Sjálfstæðisflokkinn í
kosningunum, það gæti
leitt til þess að Alþýðu-
bandalagið ætti enga ráð-
herra að þeim loknum!
Kommúnistar ræða nú um
úrslit kosninga á þann veg,
að þær séu „valdataka"
þessa eða hins. l*essi notk-
un á orðum er auðvitað út í
hött í lýðraðislandi, hún
kemur hins vegar vel heim
og saman við þá stjórnar-
hætti sem marxistum eru
kærastir.
Ritvélar
bannaðar
Þegar Alþýðubanda-
lagsmenn þóttust slíta
tengslin við kommúnista-
ríkin fyrir austan járntjald,
ERHNl
flokkmnim
BMRÁSEfiNA
EFNAHAGfflNU
Fyrst núna?
Framsóknarflokkurinn hefur setiö í ríkis-
stjórn á íslandi samfleytt síðan 1971, aö
undanskildum fjórum mánuöum um ára-
mótiN 1979—80. Allan þennan tíma hafa
þeir talaö eins og sá sem valdiö hefur og
meira aö segja tvisvar átt forsætisráö-
herra. Þrátt fyrir þetta segja þeir kjósend-
um þaö meö bros á vör núna, aö á þessum
12 árum hafi efnahagsstefna þeirra aðeins
komist í framkvæmd í 12 vikur í upphafi
árs 1981. Við lok þessa 12 ára tímabils er
hætta á atvinnubresti, erlendar skuldir eru
meiri en nokkru sinni og verðbólgan komin
á sama stig og í þeim ríkjum sem eru
skólabókardæmi um lélega stjórn og úr-
ræðaleysi. Hvaö gera framsóknarmenn við
þessar aöstæöur þegar gengiö er til kosn-
inga? Þeir velia ráð þeirra sem eru jafn
rökþrota og Ólafur R. Grímsson í sjón-
varpsumræöunum á þriðjudagkvöld, fara
aö tala um eitthvað allt annaö. Til marks
um það er auglýsingin frá Framsóknar-
flokknum sem birtist í Tímanum í gær. Al-
þýöubandalagiö birti í Dagblaöinu-Vísi í
gær auglýsingu meö aövörun um „valda-
töku“ kjósenda á kjördag — hin nýja stétt
flokksins óttast það mest aö með valdi
sínu vísi kjósendur henni úr ráöherrastól-
unum. Þaö er eina kosningamál Alþýöu-
bandalagsins.
sögðust þeir þó vilja eiga
samflot með rúmenska
kommúnistaflokknum og i
Rúmeníu var maðurinn í
heiðurssæti framboðslista
Alþýðubandalagsins I
Reykjavík, Einar Olgeirs-
son, staddur þegar herir
V arsjárbandalagslanda
réðust inn í Tékkóslóvakíu
í ágúst 1968. í Rúmeníu er
stjórnað eftir fyrirmynd
Stalíns. Þar er sultur, fá-
tækt og örbirgð. Spillingin í
kringum Ceausescu. for-
seta, er eins og í kringum
einræðisherra af verstu
gerð, hann hyglar fjöl-
skyldu sinni og vinum og
gefur purkunarlaus fyrir-
mæli um persónudýrkun.
Þar eins og annars staðar
líta sósíaliskir valdhafar á
fólkið eins og eign ríkisins
og viljalaust verkfæri. Þeir
sem ekki sætta sig við
ofríkið eru hundeltir,
ofsóttir og drepnir. Til að
styrkja stöðu sína enn
frekar hefur ('eausescu nú
ákveðið að banna ritvélar í
Rúmeníu nema á vegum
hins opinbera.
Sem betur fer er ekki
nægilegt að banna ritvélar
til að hefta frjálsa hugsun,
en ritvélabannið í Rúm-
eníu leiðir hugann að því,
aö þeir sem fyrir slíkum at-
höfnum standa heima fyrir,
eiga jafnan auðveldan að-
gang að ritvélum í hinum
lýðfrjálsum löndum til að
koma því á framfæri við
kjósendur þar, sem þeir
vilja. A því sviði hefur
meira að segja verið gengiö
svo langt hér á landi aö
boðskapur Menningar- og
friðarsamtaka íslenskra
kvenna er skrifaður á rit-
vélar sovésku áróðursskrif-
stofunnar Novosti og dreift
á fjölmiðla með öðrum
áróðri sovéska sendiráös-
ins.
Furðulegast er þegar
lista- og menntamenn sem
fá aðeins notið sín í frelsi
lýðræðisríkjanna ganga til
liðs við þau pólitísku öfl
eins og Alþýðubandalagið
sem vilja rækta bræðra-
flokkatengsl við valda-
flokka í löndum eins og
Rúmeníu og telja að þar sé
að finna tegund af sósíal-
isma og stjórnarfar sem sé
þolanlegra en til dæmis í
Sovétríkjunum. Dæmi um
slíkan áslátt á ritvélar hér
á landi blasa viö í þeirri
kosningabaráttu sem nú er
að Ijúka, er þeim boðskap
að vísu dreift með öðru en
sendiboöum Novosti og
sovéska sendiráðsins.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Kaffi-
hlaðborð
veröur í félagsheimili Fáks í dag sumardaginn fyrsta. Húsiö
opnaö kl. 14.30. Borö svigna undan meðlæti. Fákskonur sjá
um þaö. Hestamenn og unnendur hestamennsku, komiö og
fagniö sumri meö því aö taka þátt í uppbyggingu hestamennsk-
unnar.
Fékskonur
Bergstaðastræti 7, sfmi 16070 Opið frá 1-6 e.h.
Hallwag
Fæst hjá flestum bóksöluiTL^
Euro-Guide
Hallwag ferðahandbókin er bók ferðalangsins - um það
bil 1000 síður með aðgengilegum upplýsingum á
ensku, þýsku og frönsku.
í Hallwag ferðahandbókinni er að finna:
- Skýr og greinileg ökuleiðakort. Stór og þægileg kort
um vegakerfi frá Alpafjöllunum til Vínarborgar,
Marseille og áfram.
- Sérkort yfir allar helstu borgir Evrópu með greinar-
góðum upplýsingum.
- Héraðskort yfir öll helstu sumarleyfissvæði álfunnar
með upplýsingum símanúmerum og heimilisföngum til
hægðarauka fyrir ferðamenn.
- Upplýsingar um hvert land fyrir sig m.a. um
mat, gististaði, (þróttir, menningarmál o.fl.
- Tæmandi listi yfir gististaði og verðflokka,
allt frá sveitakrám til lúxushótela.
- Við höfum einnig á boðstólum fjölmörg Hallwag
sérkort af borgum og löndum um allan heim
ORÐABÓKAITTGÁFAN
Bókabúð Steinars