Morgunblaðið - 21.04.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
13
Skyggnst undir skelina
Myndlist
Valtýr Pétursson
Einn af okkar einstæðustu
listamönnum, Ágúst Petersen,
hefur efnt til sýningar á por-
trettum sínum í Listmunahúsinu
við Lækjargötu. Ágúst Petersen
er afar sérstæður persónuleiki,
sem skapað hefur sér stíl á
myndlistarsviðinu, sem er full-
komlega í samræmi við persónu-
leika hans, og svo lengi sem ég
man sýningar hans, hefur ætíð
blasað við á þeim sterkur og við-
kvæmur listamaður í senn. Nú
hefur Ágúst valið að sýna ein-
göngu mannamyndir. Á því sviði
er hann mjög framarlega og
beitir þar tækni og litrofi, sem
hann sækir einvörðungu í eigin
barm.
Picasso lét Gertrud Stein sitja
hérumbil hundrað sinnum fyrir,
er hann málaði hið fræga por-
trett af henni á fyrstu áratugum
þessarar aldar. Cézanne átti það
til að láta fyrirmyndir sínar
sitja lengi og oft fyrir hjá sér.
Aðrir málarar láta fyrirmyndir
sínar ekki sitja fyrir, og mála þá
það sem þeir hafa fest í huga sér,
og ná þannig fram séreinkenn-
um hvers og eins. Ágúst Peter-
sen er í þessum flokki. Hann seg-
ist leita og finna fyrirmyndir
sínar í sjálfum myndfletinum,
og jafnan nær hann því fram í
myndgerð sinni, sem einhverju
máli skiptir. Það hefur líka verið
haft eftir vitrum manni, að öll
góð portrett hafi verið gerð eftir
minni. En portrett er meir en
svipur hvers og eins. Það er
einnig málverk á fleti, og því
verður allt að spila saman til að
verkið verði heilsteypt og megi
flokkast undir málverk, fyrst og
fremst. Þannig er það hjá Ágúst
Petersen, hann kann þá kúnst að
gera málverk út frá fyrirmynd
og láta fyrirmyndina samt halda
sínum persónueinkennum.
Sú sýning, er nú stendur, er að
mínum dómi sú merkilegasta, er
Ágúst hefur haldið. Ég held að
ég muni flestar sýningar hans og
fari því ekki með neitt þvaður.
En það er alltaf nokkuð mikið
sagt, er það er iátið flakka, að
þetta og hitt sé það besta. Að
þessu sinni er freistingin of mik-
il, og ég læt það flakka. Það eru
72 verk á þessari sýningu Ág-
ústs, og þar kennir margra
grasa. Þarna eru kunnugleg and-
lit, og allt þekkist þetta, þótt
listamaðurinn notfæri ekki
nema það allra nauðsynlegasta
til að láta hlutina skila sér. Ef
náið er skoðað, eru þessi verk
full af litbrigðum, sem hafa
sterk áhrif og skila raunveru-
legum boðskap. Hér er mál-
verkið eitt á ferð, og allir ismar
látnir lönd og leið. Það er málari
af guðs náð, sem hér er að verki,
en ekki tískufyrirbæri, sem
endurspeglar einhverjar hrær-
ingar frá nágrönnum.
Þessar fáu línur, sem hér
koma fyrir almennings sjónir,
eru hvergi tæmandi lýsing eða
greining á þessum portrettum
Ágústs Petersen. Hann er einn
af þessum einkennilega áhrifa-
miklu málurum, sem eru ef til
vill seinteknir, og sumir halda að
hann sé minni listamaður fyrir
það eitt að vera ekki sprenglærð-
ur frá akademíum erlendis. En
það er alger misskilningur. Við
hér á íslandi eigum mikið í
menningarlegu tilliti, þar sem
Ágúst Petersen er.
Ég er óhræddur við að vísa
mönnum á þessa sýningu, og ég
er viss um, að margur skemmtir
sér konunglega við að skoða
þessi portrett. Þarna eru herleg
verk, sem vel má mæla með og
hér með er það gert.
„1798“ sýnd í
Regnboganum
Kvikmyndaklúhbur Alliance Franc-
ais sýnir í dag, fimmtudag, klukkan
20.30, kvikmyndina „1789: Ijóslifandi
sögu frönsku byltingarinnar“ í E-sal
Regnbogans.
I fréttatilkynningu frá klúbbnum
segir m.a.:
Tilurð myndarinnar „1789“, sem
tekin var upp á 13 síðustu sýningum
samnefnds leikrits í París í júnímán-
uði 1973, má rekja til þeirrar löngun-
ar að varðveita þennan frábæra
leiklistaratburð. Notaðar voru fimm
16 mm myndavélar til að mynda
þessa miklu leikhúshátíð. Leikurinn
fer fram á nokkrum pöllum um-
hverfis áhorfendur, en röðin kemur
líka að þeim og veitist þeim sú
ánægja að verða sjálfir leikarar. Hér
er sagt frá, sungið um og leikin með
látbragði Franska byltingin í upp-
höfnu andrúmslofti-
Myndin er í lit og tekur um tvær
og hálfa stund í sýningu.
Allar myndir Kvikmyndaklúbbs-
ins eru sýndar með enskum skýr-
ingartextum.
Sýnir gler-
skúlptúra
BRYNHILDUR Þorgeirsdóttir opnar
sýningu á glerskúlptúrum í Galleri
Langbrók, Amtmannsstíg 1 í Reykja-
vík, laugardaginn 23. apríl kl. 16.
Brynhildur lauk námi frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum 1978. Hún
hélt utan til náms í glergerð við
glerdeild Gerrit Rietveld Academie,
Amsterdam 1979—’80 og var um
tíma í Orrefors glerskólanum, Sví-
þjóð.
1980 fór hún til Bandaríkjanna og
var í 2 ár í „Master of Fine Art
Program" við glerdeild The Cali-
fornia College of Arts and Crafts
Oakland undir leiðsögn prófessor
Marvin Lipofsky.
Sumarið 1982 stundaði hún nám í
Pilchuck-glerskólanum, Washing-
ton, og hlaut þar viðurkenningu
„The Corning price" sem The Corn-
ing Glass Museum, New York-fylki
veitir.
Þetta er fyrsta einkasýning
Brynhildar, en áður hefur hún tekið
þátt í samsýningum í Hollandi,
Bandaríkjunum og hér á landi á
„Gullströndin andar".
Á sýninginni í Langbrók eru verk
unnin á árunum 1980—1981. Sýning-
in er opin virka daga kl. 12—18 og
laugardag kl. 14—18 og lýkur 6. maí.
Kveðjum HORKU
ogfögnum HORPCI
vetur
sumn
Nú er þorra, góu og einmánuði lokið
og Harpa gengin í garð.
í dag er sumardagurinn fyrsti og runninn upp sá tími
sem fólk fer að huga að málningunni
utanhúss sem innan.
er málning sem létt er að mála
með þekur þétt og vel og hefur
fallega silkimjúka áferð.
HÖRPU MÁLNING FÆST í ÖLLUM HELSTU MÁLNINGARVERSLUNUM.
GLEÐILEGT HÖRPU SUMAR.