Morgunblaðið - 21.04.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
15
Ólafsvíkurhöfn.
Hvalstöö Hvals hf. í Hvalfirði.
Skelvinnsla í Stykkishólmi.
Ljósm: HBj.
rúm, þar af rúmur helmingur af
heilsárshótelum. í þessu sambandi
nægir að nefna ný og glæsileg hót-
el í Stykkishólmi og í Borgarnesi. f
kjördæminu eru rekin ein 17 veit-
ingahús af ýmsu tagi og auk 24
bensín- og olíusölustaða er þar að
finna 20 verkstæði svo einhver
þjónusta sé nefnd. Kjördæmið
hefur því upp á ýmsa þjónustu að
bjóða auk sjálfrar náttúrufegurð-
arinnar og sögustaðanna. Á síð-
astliðnu ári bundust nokkur félög
og einstaklingar samtökum í
Ferðamálasamtökum Vesturlands
og var markmiðið m.a. að nýta
betur þá möguleika sem felast í
þjónustu við ferðamenn. Samtökin
réðu sér ferðamálafulltrúa í fyrra-
sumar. Hér er um algert braut-
ryðjendastarf að ræða en það sem
af er þá lofar það góðu um að
ferðamannaþjónustan geti orðið
aukinn þáttur í atvinnulífi lands-
hlutans.
Samgöngumál: Bættir
vegir aðalhagsmunamálið
Bættir vegir eru mesta hags-
munamál vestlendinga í sam-
göngumálum. Ástand vega á Vest-
urlandi hefur verið harðlega gagn-
rýnt á undanförnum árum, sér-
staklega á Snæfellsnesi, í Dala-
sýslu og uppsveitum Borgarfjarð-
ar. Vegirnir eru með elstu vegum í
landinu og hafa þeir lítið verið
endurbyggðir. Talið hefur verið að
vegirnir hafi verið látnir drabbast
niður m.a. vegna fjárfrekra fram-
kvæmda svo sem gerð Borgar-
fjarðarbrúarinnar. Borgarfjarð-
arbrúin hefur vissulega orðið mik-
il samgöngubót fyrir vestlendinga
en ekki síður fyrir Vestfirði og
Norðurland, þannig að mönnum
hefur þótt óréttlátt að láta fjár-
framlög til hennar bitna á ástandi
vega í þessu eina kjördæmi.
Ymsar framkvæmdir eru taldar
brýnar í vegamálum í kjördæm-
inu. Hafnar eru framkvæmdir við
nýjan veg fyrir ólafsvíkurenni, í
stað núverandi vegar sem talinn
er vera hættulegur. Nýlega var
samið við verktakafyrirtæki um
að leggja nýjan veg niður við sjáv-
armál fyrir Ennið. Fyrirtækið átti
lægsta tilboð í útboði sem fram
fór um verkið og treysti sér til að
taka það að sér fyrir rúman helm-
ing kostnaðaráætlunar Vegagerð-
arinnar. Nú þegar er lagning
bundins slitlags á veginn á milli
Akraness og Borgarness langt
komin og á allra næstu árum er
gert ráð fyrir að þjóðvegur nr. 1
frá Reykjavík og norður í land
verði allur lagður bundnu slitlagi.
Sveitarstjórnamenn á Vesturlandi
hafa lagt áherslu á að vegurinn á
Mýrum, vestur frá Borgarnesi,
verði forgangsverkefni næstu ára
í vegagerð á Vesturlandi. Einnig
hafa sveitarstórnamenn á Snæ-
fellsnesi lagt mikla áherslu á betri
samtengingu þéttbýlisstaðanna á
norðanverðu nesinu, þannig að
þeir verði meiri heild í markaðs-
legu, atvinnulegu og félagslegu til-
liti. Ýmis önnur verkefni hafa ver-
ið nefnd. T.d. endurbætur á vegin-
um um Bröttubrekku. Þar eru nú
þungataklmarkanir allt árið
vegna þess að brúin yfir Bjarna-
dalsá er léleg en leiðin um Bröttu-
brekku er mun styttri fyrir Dala-
menn og Vestfirðinga en Heydals
vegur. Brú yfir Gilsfjörð er talin
tiltölulega einfaldur hlutur. Það
mál er í athugun en aðal ávinn-
ingur slíkrar framkvæmdar er að
svokölluð Dalabyggð, þ.e. Dala-
sýsla og Austur-Barðastrandar-
sýsla, sem hafa nú þegar mikla
samvinnu í ýmsum málum, myndi
tengjast betur saman. Miklar um-
ræður hafa farið fram um Hval-
fjarðarbrú og áhugi er fyrir því í
kjördæminu að taka fyrri áætlan-
ir um samgöngur um Hvalfjörð til
endurskoðunar með tilliti til
tækniframfara á þessu sviði.
Mestallir fólksflutningar til og
frá kjördæminu fara fram á landi
og er þjónusta sérleyfishafa kjör-
dæmisins mjög til fyrirmyndar.
Hugmyndir hafa verið uppi um að
bæta skipulag fólksflutninganna
með því að koma upp umferðar-
miðstöð í Borgarnesi. Vöruflutn-
ingar í kjördæmið fara einnig að
miklu leyti fram á landi þannig að
vegamálin eru brýnasta hags-
munamálið í samgöngumálum
kjördæmisins.
Arnarflug er með áætlunarferð-
ir til Rifs og Stykkishólms. Hefur
verið unnið að endurbótum flug-
vallanna á þessum stöðum. Einnig
hafa komið fram óskir um að bæta
flugvellina í Grundarfirði, Búð-
ardal og Stóra-Kroppi í Borgar-
firði. Skipaútgerð ríkisins er ekki
með áætlunarferðir til hafna á
Vesturlandi en tvær ferjur eru
með áætlunarferðir til og frá kjör-
dæminu. Akraborg gengur á milli
Akraness og Reykjavíkur og eftir
að nýja Akraborgin var tekin í
notkun hafa flutningar með henni
stóraukist. Fer nú drjúgur hluti
umferðarinnar inn og út úr kjör-
dæminu um hana. Baldur gengur
á milli Stykkishólms og Brjáns-
lækjar á Barðaströnd og tengir
hann saman tvo landshluta. Smíði
á nýrri og afkastameiri ferju er nú
í undirbúningi.
Orkumál:
Hugmyndir um stofnun
hitaveitna á Snæfellsnesi
og í Dölum
Á hinum svokölluðu köldu svæð-
um kjördæmisins, Snæfellsnesi og
Dölum, ríkir mikil óánægja með
hinn mikla kostnað sem leggst á
fólk vegna þess hve rafhitun er
orðin dýr. Skv. lauslegum athug-
unum Orkustofnunar þá koma
tveir staðir á Snæfellsnesi helst til
greina við öflun á heitu vatni til
hitaveitu Snæfellsness sem hug-
myndir hafa verið uppi um að
stofna. Heimamenn hafa viljað
láta rannsaka þessa möguleika
betur en það hefur ekki enn feng-
ist gert þar sem fullnaðarrann-
sóknir munu vera dýrar og tíma-
frekar og mikil óvissa vera með
útkomu. Hefur Orkustofnun ekki
haft aðstöðu til að fara út í þær að
svo komnu máli, enda nóg til af
ónýttu rafmagni í landinu eins og
er, þó dýrt sé. í Dalasýslu eru
taldir vera mjög álitlegir kostir til
öflunar á heitu vatni en þeir eru
ekki fullrannsakaðir. Snæfell-
ingar og Dalamenn hafa unnið
talsvert að orkumálum sínum að
undanförnu og auk þess að fara
fram á fjármagn til niðurgreiðslu
húshitunarrafmagns hugsa þeir
sér að framkvæma áætlun um
orkusparandi aðgerðir.
Hitaveita Akraness og Borg-
arfjarðar, sem tekin var í notkun
ekki alls fyrir löngu, hefur þegar
sannað gildi sitt. Sparar hún eig-
endum sínum, sem eru aðallega
íbúar Akraness, Borgarness og
Hvanneyrar, mikinn kostnað þó
að hitaveitan sé ný og í hópi þeirra
hitaveitna sem selja orkuna einna
dýrasta. Hitaveitan hefur orðið
fyrir óvæntum skakkaföllum sem
leikið hafa fjárhag hennar illa.
Fyrst og fremst er það hin mjög
svo óhagstæða gengisþróun sem
verið hefur en skuldir hennar eru
allar í dollurum. Einnig kemur
það til að orkusalan hefur reynst
minni en gert var ráð fyrir í áætl-
unum.
Vestlendingar búa við nokkuð
gott öryggi í orkumálum. Anda-
kílsárvirkjun er fyrirtæki ( eigu
heimamanna sem sannað hefur
ágæti sitt en dugar þó engan veg-
inn fyrir notkun alls kjördæmis-
ins. Verður því að kaupa mikinn
hluta raforkunnar að. Hugmyndir
hafa verið uppi um að byggja litla
virkjun við Kljáfoss í Borgarfirði
en sá virkjunarkostur hefur ekki
verið talinn standast samkeppn-
ina við stórvirkjanirnar enn sem
komið er, hvað sem síðar verður.
Menntamál: Áhugi á að
treysta framhaldsmennt-
unina í kjördæminu
Fjölbrautaskólinn á Akranesi,
sem stofnaður var fyrir nokkrum
árum, hefur með öðru orðið til að
breyta mikið bæjarbragnum á
Akranesi og hefur hann orðið
menningarlífi þar mikil lyfti-
stöng. Nú er ekki lengur ástæða til
þess fyrir fólk, á Akranesi a.m.k.,
að flytja til höfuðborgarsvæðisins
í þeim eina tilgangi að mennta
börnin sín eins og talsvert bar á
áður. Sérstaklega þar sem Fjöl-
brautaskólinn hefur reynst jafn
góð menntastofnun og raun ber
vitni. Nýlega var hafin bygging
heimavistarhúss við skólann og
mun það bæta úr brýnni þörf
utanbæjarnemenda við skólann,
ekki síst af Vesturlandi. 520 nem-
endur eru í reglulegu framhalds-
námi við skólann í vetur og eru
180 þeirra utan Akraness, þar af
120 af Vesturlandi. Vöntun á
framhaldsskólalöggjöf hefur háð
þróun framhaldsnáms í þessu
kjördæmi sem öðrum. í dag er
málum þannig háttað að fram-
haldsdeildir eru við nokkra
grunnskóla kjördæmisins og
starfa þær í tengslum við Fjöl-
brautaskólann. Áhugi er fyrir því
í kjördæminu að treysta Fjöl-
brautaskólann sem mest sem
framhaldsskóla kjördæmisins, en
sveitarfélögin eru beitt óþolandi
misrétti við rekstur skólans miðað
við þau sveitarfélög sem hafa að-
gang að menntaskóla sem ríkið
greiðir allan kostnað af.
í Borgarfirði eru myndarleg
skólasetur með fjölbreytilegum
námsmöguleikum, Reykholt, Bif-
röst, Hvanneyri og Varmaland.
Hinu sögufræga menntasetri
Reykholti hefur ekki verið sýndur
mikill sómi á undanförnum árum
og er þörf á uppbyggingu hér-
aðsskólans. Uppbygging á Hvann-
eyri hefur nú legið niðri um hríð
en þar bíða mikil verkefni. Hús-
stjórnarskólinn á Varmalandi hef-
ur verið hornreka í kerfinu um
árabil og aðeins verið starfandi
vegna þrautseigju örfárra ein-
staklinga. Nú hefur heyrst að rík-
ið ætli endanlega að kippa að sér
hendinni og gæti því svo farið að
þessi skóli legðist af. Víða um
kjördæmið er skortur á húsnæði
við grunnskólana, en einna verst
er ástandið þó á Akranesi. Þar er
vandræðaástand í húsnæðismál-
um grunnskólanna og hægt geng-
ur í uppbyggingu.
Heilbrigðismál: Starf
heilsugæslustöðvanna
komið í fastan farveg
Heilsugæslustöðvar eru sam-
kvæmt lögum á Akranesi, í Borg-
arnesi, Búðardal, Ólafsvík og
Stykkishólmi. Starfsemi þeirra er
komin í nokkuð fastan farveg. All-
ar læknisstöður eru skipaðar og
helst vel á læknum. í ólafsvík og
Stykkishólmi er verið að byggja
yfir heilsugæslustöðvarnar.
Sjúkrahús er á Akranesi og í
Stykkishólmi, og er verið að
byggja við sjúkrahúsið í Stykkis-
hólmi. Á Akranesi er verið að
byggja vistheimili fyrir þroska-
hefta og öryrkja á vegum svæðis-
stjórnar þroskaheftra og öryrkja
á Vesturlandi. Verður því vænt-
anlega lokið á næsta ári og mun
það þá bæta úr brýnni þörf. Að-
hlynning aldraðra er víðast all
góð. Dvalarheimili aldraðra eru á
flestum aðalþéttbýlisstöðum.
Hjúkrunarheimili er í byggingu í
Ólafsvík og dvalarheimili aldraðra
í Búðardal.
Ekki er unnt að gefa í þessari
grein neitt tæmandi yfirlit um líf
og starf fólks í Vesturlandskjör-
dæmi en þó er vonast til að þessi
upptalning gefi nokkra innsýn í
stöðu ýmissa mála þar. Niður-
staða þessarar greinar hlýtur að
vera sú að ekki sé sérstök ástæða
til svartsýni um þróun mála í
þessum landshluta, það er að
segja ef almenn skilyrði í þjóðfé-
laginu verða gerð atvinnulífinu
hagstæð þannig að sú atvinnu-
starfsemi sem fyrir er réttist
fjárhagslega við og menn sjái sér
hag í því að setja á stofn ný
atvinnufyrirtæki. Á því munu
blómlegar byggðir Vesturlands og
gott mannlíf byggjast.