Morgunblaðið - 21.04.1983, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
Um hvað er
— eftirJón
Magnússon
Við alþingiskosningar nú eru
valkostirnir óvenju skýrir. Valið
stendur um áframhald óstjórnar
Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks, sem staðið hefur nær lát-
laust í rúman áratug, leið út í
óvissuna með nýju flokkunum eða
hugmyndir sjálfstæðismanna um
viðreisn efnahagslífsins og ný-
sköpun í atvinnumálum.
Allar alþingiskosningar boða
ákveðin tímabót. Verk stjórnar og
stjórnarandstöðu eru metin af
kjósendum sem leggja dóm á
hvaða flokkum þeir treysta best
til að stjórna þjóðfélaginu að
loknum kosningum. Kjósendur
eiga valdið og það er þeirra að
segja til um hvers konar framtíð-
arstefnu á að marka.
Við kosningarnar 1979 lögðu
sjálfstæðismenn fram sína stefnu
og lögðu áherslu á að kveða niður
verðbólguna, sem þá var í kring-
um 50%. Þessi stefna náði ekki
fram að ganga og afleiðingarnar
eru helmingi meiri verðbólga.
LeiÖ Sjálfstæðis-
flokksins
Vegna þeirrar þróunar, sem átt
hefur sér stað á undanförnum ár-
um, verður að leita nýrra lausna
og ýmsar þær leiðir, sem farnar
voru fyrir fjórum árum eru ekki
færar í dag vegna örrar verð-
bólguþróunar og skerðingar lífs-
kjara. Sjálfstæðismenn bjóða því
ekki upp á gull og græna skóga
eins og sumir andstæðingar okkar
halda ranglega fram. Við bendum
kjósendum á hversu alvarlegt
ástandið er og leggjum fram til-
lögur til lausnar vandanum.
Helstu áhersluatriðin eru fjög-
ur, atvinnuuppbygging, skatta-
lækkun, samdráttur í ríkiskerfinu,
barátta við verðbólguna og viðun-
andi lán fyrir ungt fólk til að eign-
ast eigið húsnæði. Meginatriðið er,
að Sjálfstæðisflokkurinn vill leita
leiða frelsisins og láta dugnað
fólksins fá að njóta sín, meðan all-
ir aðrir íslenskir stjórnmálaflokk-
ar vilja með einum eða öðrum
hætti skerða þetta frelsi.
Sjálfstæðisflokkurinn er þvf
valkostur við þessar kosningar,
sem kjósendur þekkja. Flokkurinn
gengur sameinaður til kosninga,
eining er um stefnuna og Sjálf-
stæðisflokkurinn á þá sögu í ís-
lenskum stjórnmálum að til hans
hefur jafnan verið leitað þegar
erfiðleikar hafa sótt að og hann
hefur jafnan beitt sér fyrir þeim
aðgerðum sem þurfti til að bægja
frá hættu eða kreppuástandi.
Kjósendur mega því búast við því
af Sjálfstæðisflokknum að hann
taki á vandamálunum af festu og
til að leysa þau.
Valkostir vinstri
flokkanna
Annar valkostur nú eru vinstri
flokkarnir þrír svonefndu, Al-
kosið
þýðuflokkur, Alþýðubandalag og
Framsóknarflokkur. Alþýðuflokk-
urinn er nú í upplausn og því ekki
líklegur til að geta haft forgöngu
um mál á næstunni. Leiðir Al-
þýðubandalags og Framsóknar-
flokks eru öllum kunnar. Þessir
tveir flokkar bera ábyrgð á þeirri
óheilla verðbólguþróun, sem hófst
á valdaskeiði þeirra 1971—1974,
en nær nýju hámarki í samstjórn
þeirra nú. Þessir flokkar eru því
valkostur þeirra sem vilja
óbreytta stefnu, áframhaldandi
óðaverðbólgu og stöðnun. Ábyrgð-
arleysi þessara flokka og mistök
við stjórn landsins gerir þá því lítt
fýsilega.
Út í óvissuna
Þriðja valkostinn getum við eins
kallað út í óvissuna, en þar á ég
við Kvennaframboðið og Bandalag
jafnaðarmanna, sem er stjórn-
málaflokkur sem segist berjast
gegn stjórnmálaflokkum, hvernig
svo sem það getur farið saman. Að
mínu mati eru það ekki tæk rök að
hafna þessum flokkum á þeim
grundvelli einum að hér sé um
nýja flokka að ræða, því að nýir
flokkar geta þess vegna átt jafn-
mikið erindi og þeir sem starfað
hafa lengi. Þessir tveir flokkar,
Bandalag jafnaðarmanna og
Kvennaframboðið, hafa hins veg-
ar ekki heilsteypta stefnu í þeim
málum, sem mest eru knýjandi að
tekið sé á nú þegar. Þess vegna er
líklegt að þeir muni enn auka á
Jón Magnússon
„Sjálfstæðisflokkur-
inn er því valkostur við
þessar kosningar, sem
kjósendur þekkja.
Flokkurinn gengur sam-
einaður til kosninga,
eining er um stefnuna
og Sjálfstæðisflokkur-
inn á þá sögu í íslensk-
um stjórnmálum að til
hans hefur jafnan verið
leitað þegar erfiðleikar
hafa sótt að og hann
hefur jafnan beitt sér
fyrir þeim aðgerðum
sem þurfti til að bægja
frá hættu eða kreppu-
ástandi.“
glundroðann fái þeir stuðning.
Þessi valkostur er af þeim sökum
ótækur fyrir þá, sem vilja að tekið
sé af nauðsynlegri festu á brýn-
ustu vandamálum þjóðarinnar.
Hvað er til ráða?
Nú þegar verðbólgan er komin á
sama stig og hjá verðbólgumet-
höfum S-Ameríku, þjóðartekjur
eru minnkandi, lífskjör versna og
atvinnuleysi er yfirvofandi, verður
styrk ríkisstjórn að taka við til að
hægt verði á sem skemmstum
tíma að komast út úr kreppunni.
Við sjálfstæðismenn höldum því
fram að meirihlutastjórn eins
stjórnmálaflokks sé sterkari og
líklegri til að ná árangri en sam-
steypustjórn, þar sem hver kennir
öðrum um ef illa tekst til og
ákvarðanir eru teknar eftir samn-
ingaþóf og allskyns málamiðlanir.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini
flokkurinn sem á möguleika á því
að fá slíkt meirihlutafylgi og hann
gengur til kosninganna sterkur og
sameinaður. f raun er því stuðn-
ingur við Sjálfstæðisflokkinn nú
líklegastur til að marka veruleg
tímamót og bægja frá glundroða
og stöðugum bráðabirgðalausnum.
Valkostir kjósenda við þessar
kosningar eru því aðeins tveir,
annars vegar áframhald þeirrar
stefnu sem fylgt hefur verið eða
stuðningur við stefnu Sjálfstæðis-
flokksins, sem er það eina sem
býður upp á raunhæfar breytingar
á því ástandi sem nú ríkir.
Jón Magnússon skipar 9. sæti á
íramboðslista Sjálfstæðisílokksins
í Reykjavík.
Ný stefiia í nánd
— eftir Gunnar G.
Schram
Um margt eni menn ósammála í
þeim kosningum sem í hönd fara, en
þó mun fæstum dyljast nauðsyn þess
að taka upp gjörbreytta stefnu í
þjóðmálum.
Aldrei fyrr hefur ástandið verið
jafn geigvænlegt í efnahagsmál-
um þjóðarinnar. Allir þekkja með
hvílíkum hraða dýrtíðin æðir
áfram. Skuldir þjóðarinnar er-
lendis hafa aldrei verið hærri,
enda fer fjórðungur þjóðartekna í
afborganir af þeim á hverju ári. Á
sama tíma riða atvinnuvegirnir til
falls og stöðvun þeirra virðist
framundan að óbreyttri stefnu.
Það er þvi höfuðnauðsyn að
velja nýja leið í þjóðmálum. Leng-
ur má það ekki dragast.
Varnarmálin
Það má segja það núverandi rík-
isstjórn til hróss að hún hefur
fylgt skynsamlegri stefnu í varn-
armálum þegar á heildina er litið.
Það sem á hefur þó þar skort er að
þær framkvæmdir á Keflavíkur-
flugvelli, sem löngu voru fyrirhug-
aðar, hafa ekki náð fram að ganga.
Löngu er orðið tímabært að að-
skilja varnarstöðina og almenna
farþegaflugið. Ný flugstöðvar-
bygging er hin mesta nauðsyn og
ekki má lengur dragast að það
verk verði hafið. Sú fjárveiting
sem Bandaríkjastjórn hefur veitt
til verksins, 20 milljónir dollarar,
rennur út þann 1. október í haust
sem kunnugt er. Upphæð þessi
mun nægja til þess að unnt verði
að Ijúka fyrsta áfanga byggingar-
innar samkvæmt nýrri byggingar-
áætlun. í því felst m.a. að ljúka
þeim hluta flugstöðvarinnar, sem
rúma mun þá þjónustu, sem snýr
beint að farþegum.
Það má því ekki dragast öllu
lengur að taka ákvörðun f þessu
máli. Hún hefur dregist allt of
lengi vegna andstöðu eins stjórn-
arflokksins. Stefnubreyting er því
hér tímabær.
Ekki síður er nauðsynlegt að
hefja framkvæmdir í Helguvík svo
þeirri stórfelldu mengunarhættu,
sem nú stafar frá varnarstöðinni,
verði bægt frá. Bæði þessi áform
eru nauðsynlegur þáttur í því
varnarkerfi, sem íslendingar vilja
halda uppi í landinu. Auk þess
munu þau veita fjölda manna at-
vinnu á þessum slóðum næstu
5—7 árin.
Afkoma fyrirtækjanna
Á öðru sviði er ekki síður þörf
stefnubreytingar.
Efnahagsstefna síðustu ára hef-
ur leitt til þess að mörg fyrirtæki
í sjávarútvegi og iðnaði eiga nú í
meiri erfiðleikum en nokkru sinni
fyrr. Þetta á við um fyrirtæki á
Suðurnesjum ekki síður en annars
staðar á landinu.
Bráðabirgðaráðstafanir, eins og
þær sem nú er verið að fram-
kvæma, eru hér skammgóður
vermir. Það verður að finna nýjan
rekstrargrundvöll, sem gerir vel
reknum fyrirtækjum kleift að
hagnast — í stað þess að safna æ
meiri skuldum. Tvennt skiptir þar
einna mestu máli. Að skrá gengið
rétt og létta opinberum gjöldum
af atvinnuvegunum. Það hefur of
lengi gleymst að hagnaður
atvinnufyrirtækjanna er hagnað-
Gunnar G. Schram
„En sú stefna þýðir
ekki að Sjálfstæðis-
flokkurinn muni hverfa
af þeirri braut að vera
víðsýnn og frjálslyndur
ílokkur, sem einna
mestan þáttinn hefur átt
í því að byggja upp það
velferðarþjóðfélag, sem
við nú búum við.“
ur þjóðarinnar allrar. Það verður
að verða kjarni þeirra efnahags-
ráðstafana, sem framkvæma verð-
ur strax að kosningunum loknum.
f öðru lagi þarf að taka upp nýja
stefnu í stóriðjumálunum. Allt
framtak hefur þar verið drepið í
dróma á síðustu árum. Þó er flest-
um ljóst að það er fyrst og fremst
á sviði iðnaðar og stóriðju sem
nýju atvinnutækifærin liggja. Við
þurfum að reisa þrjú til fjögur ný
stóriðjufyrirtæki á næstu fimm-
tán árunum, því ella tekst okkur
ekki að nýta þá orku, sem helst
getur bætt lífskjörin frá því sem
nú er.
Verðbætur og
tekjuskatturinn
Þrátt fyrir tillögur tveggja
stjórnarflokkanna tókst ekki að
lögleiða nýjan vísitölugrundvöll á
síðasta þingi. Það mun þó vera
samdóma álit allra stjórnmála-
flokka að breyta þurfi hinu sjálf-
virka kerfi verðlags og kaup-
gjaldshækkana, sem lengi hefur
kynt eld verðbólgunnar. Þjóðar-
nauðsyn er að samstaða náist um
skynsamlegar aðgerðir í þeim efn-
um að loknum kosningum.
Breytingar á verðbótakerfinu á
ekki að knýja fram með laga-
þvingunum, heldur með samn-
ingum launþegasamtakanna og
atvinnurekenda. Þeir samningar
verða ekki auðveldir og allir aðil-
ar, sem þar eiga hlut að máli,
munu þurfa að taka á sig ein-
hverjar byrðar. í því efni skiptir
vitanlega mestu máli að vernda
kaupmátt launanna og koma í veg
fyrir kjaraskerðingu þeirra, sem
lægstu launin hafa.
Hér er það sem tillaga sjálf-
stæðismanna um afnám tekju-
skattsins á almennum launatekj-
um getur skipt sköpum. Slík fram-
kvæmd felur í sér mikla kjarabót
fyrir alla launþega landsins. Hún
getur skapað svigrúm og auðveld-
að innleiðingu nýs verðbótakerfis
án þeirrar kaupmáttarskerðingar,
sem ella er hætt við að til kæmi.
Þess vegna er tillagan um afnám
tekjuskattsins á almennum launa-
tekjum mikilsverðasta nýmælið,
sem fram hefur komið í þessari
kosningabaráttu. Forsendan er
hér auðvitað sú að ekki verði grip-
ið til nýrra skatta í stað þeirra
sem afnumdir verða.
Stefna Járnfrúarinnar
Síðustu vikurnar hefur Sjálf-
stæðisflokknum verið borið það á
brýn að hann muni framkvæma
óhefta markaðsstefnu á öllum
sviðum þjóðlífsins, stefnu Thatch-
ers hinnar bresku, sem leiða muni
til samdráttar og atvinnuleysis.
Það er mesti misskilningur, eins
og kosningastefnuskrá flokksins
gleggst sýnir. Flokkurinn vill
hverfa frá ríkisafskiptum og
miðstýringu síðustu ára, sem
drepið hafa í dróma framtak ein-
staklingsins og lamað atvinnuveg-
ina. Stefna hans er að efla ein-
staklinginn til athafna í frjálsu
þjóðfélagi.
En sú stefna þýðir ekki að
Sjálfstæðisflokkurinn muni
hverfa af þeirri braut að vera víð-
sýnn og frjálslyndur flokkur, sem
einna mestan þáttinn hefur átt í
því að byggja upp það velferðar-
þjóðfélag, sem við nú búum við.
Eftir sem áður verður að tryggja
kjör þeirra sem minna mega sín í
þjóðfélaginu og orðið hafa á ein-
hvern hátt undir í lífsbaráttunni.
Umbætur í heilbrigðismálum, fé-
lagsmálum og menntamálum eru
meðal hinna mikilvægustu mála,
sem sinna verður á næstu árum.
Það er engin nýjung, heldur að-
eins framhald þeirrar stefnu sem
helstu forystumenn flokksins hafa
verið sammála um á liðnum árum.
Á því mun engin breyting verða.
Gunnar C. Schram prófessor skipar
2. sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi.