Morgunblaðið - 21.04.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
17
Árásir Alþýdubandalagsins
á sjálfstæðan eignarétt —
Unga fólkið og verzlunarstéttin
— eftir Guðmund
H. Garðarsson
Allir þekkja hvernig neikvæð
stjórnarstefna Alþýðubandalagsins
— 100% verðbólga — hefur eyðilagt
byggingaráform þúsunda manna,
einkum ungs fólks, á síðustu árum.
En þessir herrar, alþýðubanda-
lagsmenn, hafa komið víðar við.
Svavar Gestsson er, auk þess að
vera félagsmálaráðherra, einnig
tryggingaráðherra. Lítið hefur
farið fyrir forustu hans í þeim
málum. Flest það, sem gerzt hefur í
tryggingamálum, einkum á sviði Iff-
eyrismála var mótað á stjórnarárum
Geirs Hallgrímssonar í samráði við
aðila vinnumarkaðarins. Þá var (
samningum milli verkalýðshreyf-
ingarinnar og vinnuveitenda stig-
ið fyrsta skrefið, árið 1976, í verð-
tryggingu örorku- og ellilífseyris í
hinum almennu lífeyrissjóðum á
samningssviði aðila vinnumarkað-
arins.
Aðrir vinna verkin
Samstarfsnefnd þessara aðila,
svonefnd 8 manna nefnd, og út-
víkkuð nefnd með fulltrúm frá
ríkisvaldinu, BSRB o.fl. undir for-
sæti Jóhannesar Nordal, hefur
síðan unnið að frekari þróun þess-
ara mála. Er málið nú á þvi stigi
að skammt er í það að settar verði
fram tillögur um framvarp til laga
er fjalla almennt um réttindi og
skyldur lífeyrissjóða. Þótt með því
sé stigið ákveðið skref í rétta átt,
hvað varðar almenna stöðu lífeyr-
issjóða í landinu, vantar mikið
upp á, að lífeyristryggingamál
landsmanna séu komin í viðun-
andi horf.
Aö hirða fé annarra
Enn vantar mikið á, að allir lands-
menn njóti þess lágmarksréttar sem
samræmt lífeyriskern er nær til
allra landsmanna, kemur til með að
veita. Enn eru of margir utan við
réttindi og enn ríkir of mikil óvissa
um framtíðarskipan þessara mála.
Svavar Gestsson, tryggingaráð-
herra, hefur verið algjörlega
stefnulaus í þessum málum. Fyrir
honum eru lífeyrissjóðir ekki
tryggingasjóðir, heldur fyrst og
fremst sjóðir til að sækja fé í til
annarra þarfa. Á sama tima sem
Svavar Gestsson, félagsmálaráð-
herra, lætur rýra tekjustofn
Byggingasjóðs ríkisins, launa-
skattinn, og færa peningana í
eyðsluhít ríkissjóðs, hyggst hann
hirða ráðstöfunarfé lífeyrissjóð-
anna til að mæta fjárvöntun
Byggingarsjóðs. Það, sem Alþýðu-
bandalagsmennirnir, Svavar
Gestsson og Ragnar Arnalds eru
raunverulega að gera með þessu er
það, að þeir eru að færa sparifé
fólksins í lífeyrissjóðunum, trygg-
ingarfé, yfir í ríkissjóð með óbein-
um hætti.
Það nægir vinstri mönnum ekki
að með svívirðilegri tekjuskatt-
stefnu gagnvart millitekjufólki er
girt fyrir allan sparnað af afla-
tekjum, heldur skal fé þessa fólks
í frjálsum, löglega stofnuðum
tryggingarsjóðum, einnig hirt.
í frjálsu samstarfi
Það er hollt fyrir vinstri menn
og sérstaklega Alþýðubandalags-
menn að minnast þess að lífeyris-
sjóðirnir eru tryggingasjóðir, sem
stofnað cr til í frjálsum samningum.
Almennu lífeyrissjóðirnir standa
flestir, bæði sameiginlega og sér-
staklega, sjálfir undir verðtryggingu
örorku- og ellilífeyris. Þeir styðjast
ekki við greiðslur, sem skipta ár-
lega milljónun til greiðslu verð-
bóta samkvæmt fjárlögum, eins og
lífeyrissjóðir opinberra starfs-
manna gera.
í samtryggingarkerfi almennu
lífeyrissjóðanna greiðir t.d. Líf-
Guðmundur H. Garðarsson
„Það er hollt fyrir vinstri
menn og sérstaklega Al-
þýðubandalagsmenn að
minnast þess að lífeyris-
sjóðirnir eru trygginga-
sjóðir, sem stofnað er til í
frjálsum samningum. Al-
mennu lífeyrissjóðirnir
standa flestir, bæði sam-
eiginlega og sérstaklega,
sjálfir undir verðtryggingu
örorku- og ellilífeyris.“
eyrissjóður verzlunarmanna í ár
um kr. 9,5 millj., þ.e. 5% af áætl-
uðum iðgjaldatekjum til að verð-
bæta lífeyrisgreiðslur veikari
sjóða. Það eru einkum sjóðir al-
mennu verkalýðsfélaganna.
Stærsti hlutinn af ráðstöfun-
arfé almennu sjóðanna, þ.e. þegar
tryggingar, rekstrarkostnaður,
5% til Umsjónarnefndar eftir-
launa o.fl. hafa verið dregin frá,
fer til lána til sjóðfélaga og til
Byggingarsjóðs ríkisins. Örfáir
sjóðir, þ.á m. Lífeyrissjóður verzl-
unarmanna, lána til stofnlána-
sjóðs atvinnuveganna til þess m.a.
að efla þann atvinnugrundvöll
sem sjóðfélagar byggja líf sitt og
afkomu á.
Árásir á sjálfstæðan
eignarétt
Svavar Gestsson hefur séð sér-
staka ástæðu til að ráðast á Líf-
eyrissjóð verzlunarmanna í gegn-
um árin. Það er að vonum. Komm-
únistar þola ekki að menn geti með
frjálsum hætti rifíð sig upp úr meðal-
mennskunni og stofnað eitthvað
stórt, óháð afskiptum stjórnmála-
manna og ríkisins. Þeir vilja komast
yfír fé, eignir og verk annarra til
þess aö ráðskast með þetta og upp-
hefja sig í skjóli þess sem aðrir
hafa stofnað til og unnið að. Það
skal Svavari Gestssyni og
atvinnukommúnistum í kringum
hann aldrei takast.
Þeir munu aldrei komast upp
með það að svifta menn yfirráðum
yfir eignum sínum, hvort sem til
þeirra er stofnað af einum ein-
staklingi eða i sameiginlegu átaki
mikils fjölda manna, s.s. á sér stað
í lífeyrissjóðunum.
Lífeyrissjóður verzlunafmanna
er nú myndaður af um 16.000
manns sem greiða fullt árlegt
iðgjald. Á skrá eru um 30.000
manns. Um 60% sjóðfélaga eru 35
ára og yngri. Aldursdreifing
sjóðsins hefur verið með þessum
hætti á annan áratug. Þetta veld-
ur því m.a. að greiðslubyrði sjóðs-
ins vegna trygginga er enn sem
komið er tiltölulega lítil.
Lán til íbúðabygginga
hafa forgang
Vegna hins lága aldurs sjóðfé-
laga, hefur þörf þeirra fyrir lánsfé
vegna íbúðabygginga verið mikil. I
gegnum árin hefur sjóðurinn get-
að fullnægt eftirspurn meginþorra
sjóðfélaga og veitt tiltölulega há
lán miðað við flesta aðra sjóði.
Núna er hámarkslán kr. 404.800,-
eftir 26 ára aðild og er kr. 106.000,-
eftir 3ja ára aðild. Fara lánin síð-
an stighækkandi í fyrrgreinda
upphæð. Um 60% útlána sjóðsins
fara til sjóðsfélaga. Samkvæmt
könnun kom i ljós að yfir 90%
þessara lána voru tekin vegna
íbúðabygginga eða húsnæðis-
kaupa. Um 10% ráðstöfunarfjár
árið 1982 fór í kaup á skuldabréf-
um frá Byggingarsjóði ríksins.
Samkvæmt þessu fóru um % hlutar
árlegs ráöstöfunarfjár til lána til
sjóðfélaga vegna íbúðarmála. 5% af
iðgjaldatekjum sem eru um 3% af
ráðstöfunarfé fór í að verðbæta
lífeyri aldraðs fólks í almennum
verkalýðsfélögum. Um 25% af
ráðstöfunarfé ársins 1982 fór í
skuldabréfakaup af stofnlánasjóð-
um atvinnuveganna, einkum iðn-
aðar og verzlun um allt land. Þá
fóru um 3% í byggingu Húss
verzlunarinnar árið 1982, en það
hús er sameiginleg eign allrar
verzlunarstéttarinnar. I ár fer
innan við 1% til HV og á næsta
ári ekkert.
Þúsundir til andsvara
Af þessu má m.a. sjá að það eru
brosleg öfugmæli og beinlínis
rangt þegar Svavar Gestsson leyf-
ir sér að segja að Lífeyrissjóðir
verzlunarmanna ráðstafi fjár-
munum sínum frekar í byggingu
stórhýsis en til íbúðabygginga-
mála ungs fólks. En það er
kannske ekki við öðru að búast af
þessum manni. Svavar Gestsson
hefur leyft sér af minna tiiefni að
bera menn opinberlega ranglega
sakir, án þess að þeir væru við-
staddir til að svara fyrir sig.
En í þessu máli eru þúsundir
ungra Reykvíkinga, meginstofninn í
Lífeyrissjóði verzlunarmanna til
andsvara. Þetta unga fólk lætur
hvorki Svavar né aðra pólitíska
skálka hirða tryggingafé þess í LV:
það veit, að í eigin sjóði fær það
eðlilega afgreiðslu sinna mála, en i
spilltu úthlutunarkerfi hins opin-
bera, þar sem pólitískur refskapur
og pólitísk spilling getur ráðið
ferðinni, er allra veðra von.
Slegin verði skjaldborg
um frjálsa verzlun
Það treystir ekki Svavari Gests-
syni, alþýðubandalagsmanni,
kommúnista, sem er fjandsamleg-
ur frjálsri verzlun, frjálshyggju og
yfirleitt flestum lífsskoðunum
fólks í íslenzkri verzlunarstétt,
fyrir sínum málum.
Frá kommúnistum á íslandi hefur
aldrei neitt gott komið gagnvart
verzlunarstéttinni. Þeir vita, að það
er kjarninn í þessari stétt, sem hefur
dugað bezt í baráttunni gegn komm-
únisma á íslandi.
Þess vegna leggja alþýðubanda-
lagsmenn með formann sinn,
Svavar Gestsson í fararbroddi,
ofurkapp á að brjóta niður öll
helztu vígi verzlunarmanna.
Það mun ekki takast.
Alþýðubandalagsmenn skulu vita
það, að hagsmunum frjálsrar verzl-
unar á íslandi verður ekkert fórnað
fyrir stjórnarsamstarf við kommún-
ista að kosningum afstöðnum.
í komandi kosningum verða ís-
lendingar að láta kommúnista fá
veröuga ráðningu fyrir svik þeirra
við atvinnuvegi landsmanna og
launafólk.
100% verðbólga — það er víti til
að varast.
UuAmundur H. Garðsson skipar 8.
sæti i frambodstista Sjálfsla dis-
flokksins í Reykjavík.
Nú er sumarið
komið við
Miðjarðarhafíð
Sólin skín
daglangt og hitinn 20-25
C0STA DEL S0L
Torremolinos/Marbella
Verð frá kr.
12.320,00
Staður, sem býöur mesta fjöl-
breytni í sumarleyfinu; góöa
gististaöi, úrval veitingahúsa,
fjörugt skemmtanalíf, frábært
veðurfar, aöstööu til íþrótta-
iökana og heilsuræktar, sund-
laugar og baðstrendur. Mikiö úr-
val kynnisferöa.
Brottför:
5. maí — 3 vikur — fá sæti laus
26. maí — 3 vikur — uppselt
16. júní — 2/3 vikur — uppselt
23., 30. júní — 2/3 vikur
7., 14., 21. júlí — 2/3 vikur
— laus sæti
28. júlí og 4. égúst — fá sæti laus
í 3 vikur
11. og 18. ágúst — uppselt í 3 vikur
1. og 8. sept. — laus sæti
15. sept. — 2 vikur — fá sæti laus
29. sept. — 3 vikur — laus sæti
MALL0RCA
Palma Nova/Magaluf
Verð frá kr.
13.100,00
Eftirsóttur dvalarstaöur fólks á
öllum aldri. Valdir gististaöir á
bestu baðströndum. Heimur
glaöværöar og gestrisni, frjáls-
ræöis og fjölbreytni.
Brottför:
3. maí — fá sæti laus
25. maí — örfá sæti laus
15. júní — laus sæti
6. og 27. júlí — laus sæti
17. ágúst — fá sæti laus
7. sept. — laus sæti
Hin gullna strönd Ítalíu
LIGNAN0
Sabbiadoro
Verð frá kr.
14.448,00
Nýtízkuleg — hreinleg — sívin-
sæl, kjörinn dvalarstaöur allra,
sem kunna aö njóta lífsins með
lífsglööu fólki. Frábær bað-
strönd, góöir veitingastaöir, úr-
val verzlana. Kynnisferðir m.a. til
Rómar, Feneyja, Flórenz og
Austurríkis.
10 ár
í beinu leigufflugi
Sérstakt affmælis-
verð á 0LIMP0
Brottför:
31. maí — fá sæti laus
21. júní — 15 sæti laus
12. júlí — 2/3 vikur — laus sæti
26. júlí — 2/3 vikur — örfá sæti laus
2., 9., 16., 23. ágúst 2/3 vikur
— fá sæti laus
30. ágúst — 2 vikur — laus sæti
P0RTÚGAL
Algarve
Einn sólríkasti staöur Evrópu,
meö heillandi þjóölíf, ódýrt verö-
lag, góöa gististaöi, fjörugt
skemmtanalíf og Ijósar hreinar
strendur. Nýr, glæsilegur
áfangastaöur Útsýnarfarþega.
Verð frá kr.
13.890,00
Brottför:
18. maí — fá sæti laus
8., 29. júní — laus sæti
20. júlí — fá sæti laus
10. ágúst — uppselt
31. ágúst — 5 sæti laus
21. sept. — laus sæti
Útsýn tryggir þér
toppferð
með
Austurstræti 17, sími 26611
Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 22911