Morgunblaðið - 21.04.1983, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
HVAÐ ER AÐ GERAST?
Hveragerði:
Dómkirkjukórinn
syngur í dag
KÓR Dómkirkjunnar í Reykjavík
heldur tónleika í kirkjunni í Hvera-
gerrti sumardaginn fyrsta kl. 17.
Með kórtónlist eftir Vittoria,
Brahms og Mendelssohn ætlar
Kór Dómkirkjunnar að bjóða
sumarið velkomið í Hveragerði í
dag. Einnig mun Elín Sigurvins-
dóttir syngja einsöng og stjórn-
andi kórsins, Marteinn H. Frið-
riksson, leika á orgel. Aðgangur er
ókeypis.
íslenska óperan:
Míkadó
annaö kvöld
ÍSLENSKA Óperan sýnir gaman-
óperuna Mikadó eftir Lundúna-
búana Gilbert og Sullivan föstudags-
kvöldió 22. apríl kl. 20. Það er 12.
sýningin, en óperan var frumsýnd
þann 11. mars sl.
Með helstu hlutverk fara Krist-
inn Hallsson, Júlíus Vífill Ing-
varsson, Bessi Bjarnason, Stein-
þór Þráinsson, Hjálmar Kjart-
ansson, Katrín Sigurðardóttir,
Elísabet F. Eiríksdóttir, Soffía H.
Bjarnleifsdóttir og Hrönn Haf-
liðadóttir. Hljómsveitarstjóri er
Jón Stefánsson en konsertmeistari
er Helga Hauksdóttir.
Mikadóinn var fyrst frumsýnd-
ur í Savoy-leikhúsinu 14. mars ár-
ið 1885. Sýningar urðu þá 672. Og
enn í dag er óperan sýnd reglulega
í Lundúnum og víðar. Má af þessu
nokkuð marka um vinsældir
verksins.
Kjarvalsstaðir:
Þorbjörg Pálsdóttir
opnar högg-
myndasýningu
í DAG, fimmtudaginn 21. apríl,
opnar Þorbjörg Pálsdóttir sýningu
á höggmyndum sínum að Kjar-
valsstöðum. Sýningin mun standa
til 3. maí og verður opin frá klukk-
an 14 til 22 alla daga. Aðgangur er
ókeypis. Þetta er þriðja einkasýn-
ing Þorbjargar, en hún hefur tekið
þátt í mörgum samsýningum,
bæði hér heima og erlendis.
Á sýningunni eru eingöngu
höggmyndir og hafa flestar þeirra
verið unnar sl. tvö ár. Þetta eru
allt myndir af börnum ef undan er
skilin höggmynd af ófrískri konu.
Þorbjörg sækir yfirleitt fyrir-
myndir sínar úr daglega lífinu
umhverfis hana og verða þá börn-
in gjarnan hvati að verkunum.
„Þau eru frjálslegri i vali stellinga
en þeir fullorðnu og vekja því hjá
mér meiri áhuga," segir Þorbjörg.
Um myndir sínar segir hún
ennfremur: „Ég vil leitast við að
gera myndir mínar lifandi og hef
því aldrei stall undir þeim, sem
myndi gera þær að styttum. Ég
læt þær standa, eða sitja, eins og
þær koma fyrir á gólfinu. Þá hef
ég verk mín alltaf í fullri lík-
amsstærð, en það geri ég til að
frekar sé hægt að skynja í þeim
sjáifstæða einstaklinga.
Það sem einkennir verk mín er
ekki síður hin grófa áferð og holir
líkamar þeirra. Mörgum finnst
myndir mínar óhuggulegar fyrir
vikið, en sú er ekki ætlun min. Ég
tel að hin grófa áferð veiti þeim
meira líf en þær hefðu ef þær
væru sléttar og pússaðar. Einnig
finnst mér að þetta samspil innra
rýmis og þess sem umlykur —
leikur opinna og lokaðra forma —
auka á spennu og sjálfstæði
verkanna.
Þorbjörg hefur stundað mynd-
listarnám bæði í Stokkhólmi og
hér heima, m.a. hjá Ásmundi
Sveinssyni, Sigurjóni Ólafssyni og
Jóhanni Eyfells. f tengslum við
sýninguna hefur verið gefin út bók
um höggmyndir Þorbjargar og
verður hún til sölu á sýningunni.
Garðabær:
Skátamessa
og skrúðganga
Sumardagurinn fyrsti í Garða-
bæ verður haldinn hátíðlegur með
hefðbundnum hætti. Skátafélagið
Vífill gengst fyrir hátíðarhöldun-
um eins og mörg undanfarin ár.
Sumri verður fyrst fagnað með
fánahyllingu við Garðakirkju og
að henni lokinni skátamessu.
Benjamín Árnason erindreki
Vorafsláttur hjá
gullsmiöum
ÞEKKING — ÞJÓNUSTA — ÁBYRGO
Verslið
hjá gullsmið
MERKIÐ
tryggir gæðin
„Viö neitum aö fresta sumardeginum fyrsta," gæti Hamrahlíöakórinn
verið aö syngja þegar þessi skemmtilega mynd var tekin fyrir utan MH
í gær. Enda leynir þaö sér ekki að kórfélagarnir eni með sumar í hjarta
þótt vetur sé enn á jörð. Morgunbiaðift/KÖE.
Menntaskólinn við Hamrahlíð:
Vorvítamín fyrir alla
KÓRARNIR tveir í Menntaskól-
anum við Hamrahlið halda uppi
samfelldu tóna- og skemmtana-
flóði í dag á milli tvö og sjö í
skólanum. „Vorvítamín fyrir
alla,“ sagði stjórnandinn Þor-
gerður Ingólfsdóttir. „Þrennir
kórtónleikar, einsöngur og ein-
leikur á ýmis hljóðfæri, þjóð-
dans, hlutavelta, lukkupottur,
hárgreiðsla, kökubasar, blóma-
sala, kveðnar stemmur og fleira
og fleira. Og auðvitað verða kaffi
og kökur á boðstólum og kórfé-
lagar sjá fyrir barnagæslu á
staðnum."
f MH-kórnum eru um 100
manns, 45 í eldri kórnum en 55 í
þeim yngri. Á tónleikunum
þremur í dag syngja kórarnir
ýmist saman eða í sitt hvoru
lagi. Sérstök efnisskrá er fyrir
hverja tónleika. Fyrstu tónleik-
arnir hefjast kl. 14.30, þeir
næstu 16.30 og þeir síðustu kl.
18. Sungin verða lög frá ýmsum
löndum. M.a. mun eldri kórinn
syngja sígaunaljóð eftir Brahms
og slóvaska dansa eftir Béla
Bartók.
Allir eru velkomnir á fjörefna-
hátíðina í Hamrahlíðaskólanum
og kostar 75 krónur inn fyrir
fullorðan, en 25 krónur fyrir
börn, eldri en 6 ára.
Bandalags ísl. skáta, flytur ræðu.
Skrúðganga hefst kl. 14 og verður
safnast saman á gatnamótum
Hofstaðabrautar og Karlabrautar
og gengið að skátaheimilinu um
Brúarflöt, Móaflöt, Hagaflöt,
Garðaflöt og Stekkjarflöt. Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar leikur fyrir
göngunni.
Við skátaheimilið leikur Lúðra-
sveit Tónlistarskólans í Garðabæ.
í skátaheimilinu verða kaffiveit-
ingar og úti tjaldbúðir og þraut-
abrautir. Síðan verður varðeldur
að skátasið.
Listmunahúsið:
Skyggnst undir
skelina
ÁGÚST Petersen sýnir um þessar
mundir 70 manna- og portret-
myndir í Listmunahúsinu,
Lækjargötu 2. Sýningin heitir
Skyggnst undir skelina og er að
hluta til sölusýning. Sýningin er
opin virka daga frá kl. 10 til 18, en
um helgar frá 14 til 18. Lokað
mánudaga. Sýningunni lýkur 1.
maí.
Hveragarði:
Opið hús í Garð-
yrkjuskólanum
Garðyrkjuskóli rikisins er 44
ára á sumardaginn fyrsta og hafa
nemendur ákveðið í samráði við
skólayfirvöld að hafa skólann
opinn öllum landsmönnum frá kl.
10—22 þann dag. Kynningarstarf-
semi verður á staðnum, einnig
stendur fólki til boða að skoða
hinn sérstæða 800 m2 gróðurskála
skólans, sem nú stendur í fullum
skrúða og hagnýtar upplýsingar
um ræktun standa til boða. Einnig
verður til sölu fjölbreytt úrval af
pottaplöntum og nýtt grænmeti á
vægu verði, auk tveggja garðhúsa
sem nemendur hafa smíðað. Selt
verður kaffi og meðlæti. Ferðir
verða frá BSÍ.
Nú eru í skólanum 40 nemendur
á 3 brautum; ylræktarbraut,
garðplöntubraut og skrúðgarð-
yrkjubraut. Þar af eru 26 nemend-
ur á heimavist. Fastráðnir kenn-
arar eru fjórir auk skólastjóra og
fjölda stundakennara.
Kúnígúnd:
Helgi Björgvins-
son sýnir leirmuni
FIMMTUDAGINN 21. apríl verð-
ur opnuð sýning í versluninni
Kúnígúnd, Hafnarstræti 11, á sér-
unnum leirmyndum og leirmunum
eftir Helga Björgvinsson, leir-
kerasmið. Þetta er önnur einka-
sýning Helga. Sýningin verður
opin kl. 14 til 22 um helgar, en
virka daga á venjulegum verslun-
artíma. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Harmoníkuunnendur:
Kaffi og
kræsingar
Félag harmóníkuunnenda verð-
ur með kaffi og kræsingar í dag,
sumardaginn fyrsta í Skipholti 70,
klukkan 15.30. Börn munu koma
og spila og dansa, og ýmislegt