Morgunblaðið - 21.04.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
21
fleira verður til skemmtunar.
Samkoman er til styrktar komu
norsku harmóníkuhljómsveitar-
innar Senja trekkspilklubb hingað
til lands í sumar. Allir velkomnir.
Seltjarnarnes:
Glatt á hjalla
í Félagsheimilinu
Kvenfélagið Seltjörn fagnar
sumri á sumardaginn fyrsta í Fé-
lagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Sá
skemmtilegi siður hefur verið þar
á undanförnum árum, að börn og
unglingar hafa skemmt meðan
fólk kaupir kaffi og styrkir með
því störf kvenfélagsins í þágu bæj-
arbúa. Svo verður einnig nú.
Lúðrasveit barna leikur og fleira
verður til skemmtunar kaffigest-
um. Það er von félagsins, að sem
flestir komi í kaffið og styrki með
því störf félagsins.
Reykjavík:
Hátíðahöld skáta
Reykjavíkurskátar munu halda
sumardaginn fyrsta hátíðlegan.
Að þessu sinni verður horfið til
gamalla hefða, því þá munu skát-
ar fylkja til hátíðarmessu í Há-
skólabíói.
Gangan leggur af stað kl. 9.45
frá nýju skátamiðstöðinni við
Snorrabraut, gengið verður niður
Laugaveg, Lækjargötu, Skothús-
veg og Hringbraut að Háskólabíói,
en þar mun séra Guðmundur
Óskar Ólafsson þjóna fyrir altari,
skátakór syngur og undirleik ann-
ast Smári Ólason.
Síðar um daginn mun skátafé-
lagið Dalbúar halda útihátíð á
Ármannsvelli, skátafélagið
Garðbúar verður með útihátíð við
Hæðargarð. Skátafélagið Skjöld-
ungar verða með fjölskyldu-
skemmtun í skátaheimilinu við
Sólheima, en á öllum þessum stöð-
um verður ýmislegt til skemmtun-
ar fyrir yngri sem eldri borg-
arbúa. Skátafélagið Árbúar mun
skemmta sjúklingnum á Landspít-
alanum.
Foreldrar, „gamlir“ skátar og
aðrir velunnarar eru hvattir til að
taka þátt í hátíðahöldum dagsins
og gaman væri ef þeir tækju fram
gömlu búningana sína og viðruðu
þá með því að bera hann þennan
dag og vekja þannig upp hinn
gamla skátaanda.
Kópavogur:
Skátamessa,
ganga og
skemmtiatriði
Mikil hátíðahöld verða í Kópa-
vogi á sumardaginn fyrsta. Klukk-
an 11 verður skátamessa í Kópa-
vogskirkju, en safnast verður
saman við Víghólaskóla klukkan
hálf ellefu og gengið niður Álf-
hólsveg og upp í kirkju.
Klukkan hálf tvö safnast menn
saman við Digranesskóla og
klukkan tvö verður lagt af stað í
göngu niður Álfhólsveg, upp
Meltröð og inn á Víghólaskólalóð-
ina að sunnanverðu þar sem
skemmtun fer fram. Rannveig
Guðmundsdóttir forseti bæjar-
stjórnar flytur ávarp, en kynnir er
Sigurður Lyngdal. Barnakór
Kársnes- og Þinghólsskóla syngur
nokkur lög. Þá verður Leikbrúðu-
land á staðnum og eftir skemmti-
atriðin sér diskótekið Dísa um
fjörið fyrir krakkana.
Grýlurnar með
afmælishátíð
GRÝLURNAR halda upp á
tveggja ára afmæli hljómsveitar-
innar í dag, sumardaginn fyrsta,
með útgáfu fyrstu breiðskífu
sinnar, „Mávastellið". Útgefandi
plötunnar er Spor.
Vinnsla plötunnar hófst í byrj-
un þessa árs í Hljóðrita, og var
Bretinn Louis Austin upptöku-
stjóri. Á plötunni eru ellefu frum-
samdir söngvar og önnuðust Grýl-
urnar sjálfar allar útsetningar og
hljóðfæraleik. Hljóðblöndun var
framkvæmd í Bretlandi, nánar til-
tekið í Statling Studio, sem er í
bústað bítilsins Ringo Starr.
{ tilefni af afmælinu og plötu-
útgáfunni halda Grýlurnar af-
mælishátíð í Klúbbnum í kvöld og
hefst hún klukkan 21.
Festi:
Fjölbreytt
skemmtiatriði
Kvennadeild knattspyrnudeild-
ar UMFG stendur fyrir hátíða-
höldum í dag í Festi. Hátíðin hefst
klukkan 14 og verður ýmislegt til
skemmtunar. Fjórtán börn leika
og syngja í söngleiknum Lóan eft-
ir Margréti Sighvatsdóttur. Skóla-
lúðrasveitin leikur nndir stjórn
Jóns Hjaltasonar. Lína langsokk-
ur kemur í heimsókn. Unglingar
sýna dans, o.fl. Þá verður kaffisala
í litla salnum.
Félagssvæði Ármanns:
Barna- og fjöl-
skylduhátíö
Eins og venja er á sumardaginn
fyrsta verður haldin barna- og
fjölskylduhátíð í dag á félags-
svæði Ármanns við Sigtún. Hátíð-
in hefst kl. 14 með því að Lúðra-
sveit Laugarnesskóla leikur, en
frá 14.30 til 17 sýnir Glímufélag
Ármanns fimleika, glímu, júdó og
frjálsar íþróttir. Sýningin verður í
Ármannsheimilinu. A þessum
tíma verður Skátaélagið Dalbúar
með skátatjaldbúð og skátatívolí.
Einnig verða útileikir á útisvæði
og sælgætis- og kaffisala.
Við erum komin
í betri fötin.
Höfum opnað eftir
velheppnaðar breytingar
fRUIN HiÆK
Ui 'l BETRi 6ÍL
í tilefni
sumarkomunnar
langþráöu höfum viö
opið í dag kl. 1—6
Nú er rétti tíminn til aö skrá hjólhýsin.
SYNUMAANNAÐ
HUNDRAÐ BÍLA