Morgunblaðið - 21.04.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
27
;pandi
ms“
atvinnulaus það get ég sagt þér,“
sagði Bjarni Jónsson. „Ég er búinn
að vera það frá því í nóvember. Ég
vann á skrifstofu og hef verið að
senda inn umsóknir alls staðar, en
illa gengið fram að þessu, það virð-
ast vera margir um hvert starf. Ég
hef þó smá von núna, helst virðist
vera von um starf í gegnum kunn-
ingsskap, því maður fær oft ekki
svar við umsóknum sem maður
sendir inn samkvæmt auglýsingum.
Þetta er orðið mjög svo þreytandi,
maður lifir eiginlega á loftinu, því
að þessar bætur eru ekki miklar og
ef maður væri með fjölskyldu gengi
það engan veginn. Þetta eru ekki
nema tæpar tvö þúsund krónur á
viku greiddar út hálfsmánaðarlega,
svo maður berst í bökkum með
þetta, þó maður búi einn. Þetta er
orðinn ansi langur tími og hefur
mikil áhrif á einkalíf manns," sagði
Bjarni að Iokum.
„Ég hef verið atvinnulaus frá því
9. mars, vann áður við afgreiðslu-
störf. Þetta er erfitt fyrir mig, ég er
einstæð móðir með tvö börn. Styrk-
urinn er ekki mikill og þar að auki
fæ ég ekki fullan styrk, því að hann
miðast við þann tíma sem maður
hefur unnið, en ekki það kaup sem
maður hafði. Ég hef ekki von um
neina vinnu eins og er, en það er að
mörgu leyti gott að vera heima hjá
börnunum, en gengur því miður
engan veginn upp. Til að mynda
þarf ég að standa 1 skilum með
greiðslur af íbúð sem ég keypti,"
sagði Alma Haraldsdóttir.
Vona aö úr rætist
eftir kosningar
„Þetta er búið að vera ansi erfitt.
Ég hef verið atvinnulaus frá því í
endaðan október og ekkert fengið
við mitt hæfi enn sem komið er,“
sagði Skarphéðinn óskasrsson. „Áð-
ur vann ég í rennismiðju, en maður
er farinn að eldast og verður greini-
lega var við það, að yngra fólk er
tekið fram yfir það eldra þegar at-
vinna er annars vegar. Sem betur
fer erum við ekki nema tvö í heimili,
því að annars gengi þetta ekki upp
fjárhagslega. Það er ekki gott að
segja hvað verður eftir kosningar,
en maður verður að vona að úr ræt-
ist,“ sagði Skarphéðinn óskarsson
að lokum.
„Við erum að sækja um sumar-
vinnu," sögðu Helgi Valsson og Jón
Júlíusson, sem stunda nám í Iðn-
skólanum. „Við erum í grunndeild
rafiðnaðar á fyrsta ári og vantar
vinnu í sumar. Þetta er í fyrsta
skipti sem við sækjum um vinnu
hérna og eiginlega fyrsta starfið
sem við athugum með fyrir sumar-
ið. Það eru ákveðin störf sem maður
gerir sér vonir um, en til öryggis
vildum við láta skrá okkur hér,“
sögðu Helgi og Jón.
upplýsa hvenær þær áttu sér stað.
f fyrra tilfellinu var um að ræða
kosningabaráttuna 1979. Þá komst
þú, Óli minn, ásamt Guðmundi J.
og fulltrúa frá Iðju. 1 síðara skipt-
ið komu Adda Bára og Guðrún
Ágústsdóttir fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar sl. vor og í bæði
skiptin án þess að hafa óskað leyf-
is. Þetta eru tveir verkstjórar á
saumastofu Karnabæjar tilbúnir
til að staðfesta með nöfnum sín-
um, þær Guðrún E. Guðmunds-
dóttir (3247—9200) og Herborg
Árnadóttir (4012-6872).
Óli minn! Við skulum hafa það
sem sannara reynist og ég vona að
það sé einhver snefill eftir af þeim
hugsjónum, sem þú hafðir, þegar
við vorum ungir, þótt þú hafir lent
í þessum flokki.
KAUPMATTUR (3-ársfj. 1978 = 100) Heimild: Þjóöhagsstofnun
1978 1979 1980 1981 1982 1983
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi
Þessi mynd var tekin fyrir skömmu af frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi. Fremri röð frá vinstri: Matthías Á. Mathiesen, alþm., Kristj-
ana Milla Thorsteinsson, viðskiptafræðingur, Salome Þorkelsdóttir, alþm., Gunnar
G. Schram, prófessor. Aftari röð frá vinstri: Dagbjartur Einarsson, útgerðarmaður,
Helgi Jónsson, bóndi, Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, Ólafur G. Einarsson, alþm.,
Ellert Eiríksson, sveitarstjóri og Bragi Michaelsson, framkvæmdastjóri.
Alþýðubandalagið
og kaupmáttur launa:
Enginn flokk-
ur hefur svik-
ið jafn oft og
jafn rækilega
á jafn skömm-
um tíma
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ talar títt
um hagsmunavörslu sína um kjör
launþega. Það komst inn í ríkis-
stjórn 1978 í kjölfar kosninga, sem
það háði undir kjörorðunum
„samningana í gildi“, „kosningar
eru kjarabarátta“ og „gegn kaup-
ránsstjórn“. Á stjórnarferli þess
1978—1983 hefur verið krukkað í
gerða kjarasamninga fjórtan sinn-
um, verðbætur á laun skertar jafn
oft, — samtals um 50%. Á sama
tíma hefur opinber skattheimta,
m.a. í vöruverði (tollaf-
greiðslugjald, vörugjöld, söluskatt-
ur), hækkað verulega, verðbólga
vaxið raeira en áður, gengislækk-
anir verið tíðar, (nýkrónan komin
niður í 35 aura af verðgildi 1. janú-
ar 1981) — og atvinnubrestur sagt
til sín vegna viðvarandi taprekstrar
í undirstöðuatvinnuvegunum.
Þannig hefur „niðurtalningin" sýnt
sig í Ijósi reynslunnar.
Tafla sú sem hér birtist er
byggð á upplýsingum frá Þjóð-
hagsstofnun. Hún sýnir kaup-
máttarþróun 1) ASI-launa, 2)
BSRB-launa, 3) Elli- og örorku-
lífeyris án tekjutryggingar, 4)
Elli- og örorkulífeyris með tekju-
tryggingu, 5) Meðallaun laun-
þega landsins.
Ef kaupmáttur ASÍ-iauna er
settur í 100 á 3ja ársfjórðungi
1978 er hann 86,6 á fyrsta árs-
fjórðungi 1983. Á sama tíma
lækkar kaupmáttur opinberra
starfsmanna úr 100 í 87,8. Meðal-
kaupmáttur launþega lækkar á
sama tíma úr 100 í 87. Elli- og
örorkulífeyrir lækkar úr 100 í 92,
ef tekjutrygging fæst, en í 80,3
án tekjutryggingar.
Þessi þróun sagði fljótlega til
sín á stjórnarferli Alþýðubanda-
lagsins og Framsóknarflokks. Á
öðrum ársfjórðungi 1979 er kaup-
máttur flestra launa kominn
niður fyrir það sem hann var á
3ja ársfjórðungi 1978. Frá og
með 3ja ársfjórðungi 1979 eru öll
laun komin niður fyrir það mark
— og hafa farið lækkandi síðan.
Alþýðubandalagið hefur fengið
sinn reynslutíma við stjórnvöl
þjóðarskútunnar. Verkin sýna
merkin.
Móttaka gjafa-
bréfa á kjör-
stöðum
Á KJÖRDAG munu sjálfboðalióar frá
Styrktarfélagi Sogns koma sér fyrir í
bílum við allflesta kjörstaði landsins
til að taka þar á móti gjafabréfum
SÁÁ, segir í fréttatilkynningu frá
samtökunum, sem Morgunblaðinu
hefur borizt.
Vonast er til þess að sem flestir
sem vilja leggja byggingu sjúkra-
stöðvar SÁÁ við Grafarvog lið skili
bréfunum fljótt inn. Mikil vinna er
því samfara að flokka gjafabréfin
og því mikilvægt að þau komi sem
fyrst inn, en ekki síðustu dagana
fyrir fyrsta gjalddagann, 5. júní nk.
Þeir, sem ekki hafa fengið gjafa-
bréf eða hafa glatað þeim, geta
fengið aukabréf í bílunum við kjör-
staðina. Bílarnir verða merktir
SÁÁ.