Morgunblaðið - 21.04.1983, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1983
FINNARNIR
KOMA
FINNSK VIKA
25.-30.APRÍL
FINNSK TÓNLIST.
Norræna húsið,
23. apríl kl. 13:00
Matti Tuloisela og Gustav
Djupsjöbacka kynna finnska
tónlist.
Norræna húsið, 24. apríl kl.
- 20:30
Tónlistarkvöld með Matti
Tuloísela og Gustav Djupsjö-
backa.
Norræna húsið, 25. apríl kl.
21:00
Tónleikar finnsku vísnasöng-
konunnar Barböru Helsingius.
Hótel Borg, 26. apríl kl. 20:30
Vísnakvöld með Barböru
Helsingíus og Vfsnavinum.
Hótel Loftleiðir, 27. og 28. apríl
kl. 21:00
Barbara Helsingius syngur í
Blómasal.
FINNSKAR BÓKMENNTIR.
Sýning á finnskum bókum
í Norræna húsinu
25. - 30. apríl.
Opin kl. 9 - 19 daglega.
FINNSKAR KVIKMYNDIR.
Kvikmyndasýníngar í Norræna
húsínu 26. - 29. apríl kl. 16 -
17 daglega.
FINNSK VÖRUSÝNING
Á HÓTEL LOFTLEIÐUM.
Sýning á finnskum framleiðslu-
vörum í Kristalsal Hótels Loft-
leiða.
Sýningin er opín sem hér segir:
27. apríl kl. 12 - 20
28. apríl kl. 11 - 20
29. apríl kl. 11 - 16
VÖRUKYNNINGAR í
VERSLUNUM.
í tengslum við finnsku vikuna
munu fjölmargar verslanír efna
til sérstakrar kynníngar á
finnskum vörum dagana 25. -
30. apríl.
Áhersla er einkum lögð á að
kynna húsgögn, glervörur, raf-
suðuvélar, matvæli og tísku-
fatnað frá Finnlandi, en einnig
mun Fálkinn hf. standa fyrir
hljómplötukynningu í tilefni af
heimsókn Barböru Helsingius.
Húsgagna- og húsbúnaðarsýn-
íng verður í verslun Kristjáns
Siggeírssonar frá 26. apríl og
fram til 8. maí.
FINNSK
MATARGERÐARLIST.
Gómsætir finnskir réttír fram-
reiddir af finnskum matreiðslu-
mönnum á Hótel Loftleiðum
dagana 26. - 30. apríl.
Fínnskt kvöld í Broadway 29.
apríl. Sérstakur finnskur
matseðill og finnsk dagskrá.
FERÐAKYNNING
í NORRÆNA HÚSINU.
Sýning á finnskum vegg-
spjöldum og ferðabæklíngum
dagana 25. - 30. apríl.
Opið daglega kl. 9-19.
TÍSKUSÝNINGAR.
Finnskar tískusýningar verða á
éftirtöldum stöðum og trmum:
Hótel Loftleiðír, Ráðstefnusalur
27. apríl kl. 17:00
28. apríl kl. 14:00 og 17:00
29. apríl kl. 14:00 og 17:00
Hótel Loftleiðir, Blómasalur:
27. apríl kl. 20:30
28. apríl kl. 20:30
30. apríl kl. 20:30
Veítingahúsið Broadway:
29. apríl kl. 21:30 og 24:00
FINNSK 1](E FIHNSK
VIKA W VÓRUKYHNIHC
íStjórn og ellimálanefnd Bandalags kvenna í Reykjavík ásamt Birni
Bjarnasyni. Talið f.v.: Jóna Kristín Magnúsdóttir, Vigdís Einarsdóttir,
Svanlaug A. Árnadóttir, Steinunn Finnbogadóttir, Sigrid Karlsdóttir,
Unnur S. Ágústsdóttir, formaður, Björn Bjarnason, Guörún S. Jónsdótt-
ir, formaður ellimálanefndar, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Sigrún Sturlu-
dóttir og Jóna I. Guðmundsdóttir.
Bandalag kvenna í Reykjavík
færir félagsstarfi aldraðra
í borginni góðar gjafir
FÉLAGSSTARF eldri borgara á
vegum Félagamálastofnunar
Reykjavíkur er nú rekið á 4 stöð-
um í höfuðborginni.
Miðstöð félagsstarfsins er í
Norðurbrún 1, en það hús var
tekið í notkun árið 1972 og hefur
verið rekið þar fjölbreytt félags-
starf síðan með opnu húsi, spila-
dögum, margvíslegri handa-
vinnu, leirkerasmíði, málun,
enskukennslu, smíði, hársnyrt-
ingu, fótsnyrtingu o.fl.
Ennfremur er nú rekið starf
fyrir Reykvíkinga 67 ára og eldri
í Lönguhlíð 3, Furugerði 1 og í
Oddfellow-húsinu við Vonar-
stræti. í vetur hafa komið góðir
gestir í heimsókn í öll hús Fé-
lagsmálastofnunar þar sem rek-
ið er starf fyrir aldraða, í þjón-
ustuíbúðir við Dalbraut, Löngu-
hlíð 3, Droplaugarstaði og Norð-
urbrún 1. Voru hér á ferð stjórn-
og ellimálanefnd Bandalags
kvenna í Reykjavík, en þær hafa
að undanförnu farið stað úr stað
í Reykjavík þar sem aldnir hafa
búið eða komið saman eins og á
vistheimilinu á Grund, Hrafn-
istu og einnig í Hafnarbúðum.
Hafa þær haldið kvöldvökur á
þessum stöðum, séð um alla
dagskrá upp á eigin spýtur við
mikinn fögnuð og þakklæti
fjölda áheyrenda.
Þegar kvöldvökur voru haldn-
ar á Droplaugarstöðum og Furu-
gerði 1 afhenti formaður Banda-
lagsins frú Unnur S. Ágústs-
dóttir, félagsstarfinu að gjöf
vönduð píanó, sem vígð voru á
báðum þessum stöðum við hátíð-
lega athöfn. Á Droplaugarstöð-
um vígði magister Björn Bjarna-
son píanóið, hann er þar vist-
maður, spilaði hann bæði Chopin
og Liszt nótnalaust við mikinn
fögnuð áheyrenda.
Þess má einnig geta að Hús-
mæðrafélag Reykjavíkur, sem er
eitt af aðildarfélögum Banda-
lagsins, gaf Droplaugarstöðum
10 fótanuddtæki fyrir skömmu
og Soroptímistaklúbbur Árbæj-
ar gaf heimilinu veglega bók-
argjöf.
A vistheimilinu Droplaugar-
stöðum dveljast nú 68 vistmenn
og hjúkrunarsjúklingar og tæp-
lega 90 manns búa í Furugerði 1,
en þar er jafnan rekið þróttmik-
ið félagsstarf og öldrunarþjón-
usta sem borgarbúar geta nýtt
sér. Ekkert hljóðfæri hefur verið
til á þessum stöðum og komu því
gjafir þessar í góðar þarfir og
ekki að efa að hljóðfærin verði
nýtt til hins ýtrasta á næstunni.
Var góður rómur gerður að
hugulsemi og þeim þakkað fyrir
hönd borgarstjórnar og Félags-
málastofnunar Reykjavíkur.
Vetrarstarfi félagsstarfs eldri
borgara fer nú senn að ljúka á
þessum vetri og tekur þá sumar-
dagskráin við. Ákveðnar hafa
verið 6 orlofsdvalir að Löngu-
mýri í Skagafirði í sumar, 3
utanlandsferðir, 3ja daga ferð til
Egilsstaða og að Eiðum, 2ja daga
ferð á Snæfellsnes og að Skóg-
arskóla ásamt mörgum dags-
ferðum. Verður sumardagskráin
kynnt nánar í næsta mánuði.
Björn Bjarnason vígir píanóið.
Metsölublad á hverjum degi!